Dagblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 6
Viljum ráða STARFSKRAFT við pökkunarvélar frá kl. 11.30 til 14.00 alla virka daga. Umsóknir sendist Dagblaðinu merkt ,,Pökkunarvélar“ fyrir 2. febrúar. Staða aóstoöarlæknis við lyflæknisdeild Landakotsspítala er laus 1. marz 1978. Ráðningartími er til eins árs í senn. Upplýsingar veita læknar deildarinnar. Umsókir sendist til yfirlæknis lyflæknisdeildar fyrir 15. febrúar næstkomandi. Samkeppni umskipulag Sveitarstjórn Mosfellshrepps og skipulagsstjórn ríkisins efna til hug- myndasamkeppni um skipulag í Mos- fellshreppi. Þátttaka er heimil öllum íslenskum ríkisborgurum, svo og erlendum arkitektum sem starfa hér á landi. Skilmálar fást hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyni, Kjartans- götu 2, R., pósthólf 841, og eru þeir ókeypis. Önnur samkeppnisgögn fást hjá sama aðila, gegn 10.000 króna skilatrygg- ingu. Tillögum ber að skila í síðasta lagi 17. maí 1978 til trúnaðarmanns dóm- nefndal' DÓMNEFNDIN DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1978. Danmörk: KEYRÐILÖGREGLU- RÚTU DRAUGFULLUR — virðingin fyrir laganna vörðum í lágmarki Nýlega setti danskur rútubíl- stjóri met í lítilli virðingu gagn- vart vörðum laganna þar í landi. I stað þess að venjulegir borgarar fara alls kyns króka- leiðir og afdalabrautir hafi þeir fengið sér einn lítinn, áður en þeir setjast undir stýri, þá sett- ist rútubílstjórinn einfaldlega undir stýri á rútunni og keyrði 25 lögreglumenn og yfirmann þeirra. Alkóhólmagnið í blóði bílstjórans var 2.37 prómill. Rútan flutti lögreglumenn- ina frá miklum gleðskap sem þeir og konur þeirra höfðu tekið þátt í. Rútan hafði farið marga km áður en það uppgötv- aðist að líkt var á komið með bílstjóranum og nokkrum lög- reglumannanna. Þá sáu tveir lögregluþjónar að eitthvað var skrítið við aksturslagið og að rútustjórinn átti fullt I fangi með að halda bílnum á vegin- um. Hinar árvökulu löggur báðu bílstjórann að stanza sem hann og gerði. En þegar hann var kominn út með löggunum tveimur sneri hann skyndilega við, lokaði bílhurðinni og ók af stað. Löggurnar sátu eftir með sárt ennið. Þeir sem eftir voru í bílnum héldu að bílstjórinn væri bara að stríða þeim og höfðu heilmikið gaman af þegar félagarnir stóðu eftir í myrkrinu. En að lokum rann það upp fyrir fólkinu að ekki var allt með felldu og bífstjórinn var stoppaður aftur. Lögreglubíll var kallaður til og þá kom hið mikla alkóhólmagn í blóði bíl- stjórans í ljós. Hann var settur í 20 daga varðhald og missti ökuleyfið í tvö ár. Að sögn bílstjórans, sem er þýzkur, hafði hann innbyrt nokkuð marga danska pilsnera. Hann sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að danska ölið væri áfengt. Ekki gerði rútubílstjórinn sér grein fvrir því að danski bjórinn væri áfengur og keyrði því löggurnar heim — svartfullur. SkákiníHollandi: STAÐA EFSTU MANNA ÓBREYTT Staða efstu manna breyttist lítið í 10. umferð skákmótsins í Wijk Aan Zee í Hollandi í gær. Portisch heldur enn forskoti sínu, en hann sigraði Sosonko. Korts- noj sigraði Najdorf og Anderson vann biðskák sína úr níundu um- ferð gegn Mecking og gerði jafn- tefli í gær við Panno og komst þannig í þriðja sætið. Staðan eftir 10 umferðir er þannig: 1. Portisch 7'A vinningur. 2. Kortsnoj 6!4 vinningur. 3. Anderson 6 vinningar. 4. Ree, Timman 5lA vinningur. 6. Miles, Panno 5 vinningar. 8. Najdorf, Mecking 4!4 vinning- ur. 10. Sosonko 4 vinningar. 11. Kavalek 3H vinningur. 12. Van der Sterren 2'A vinn- ingur. Helsinki: STÖÐVAÐ Á RAUÐU UÓSI Ökumaður þessa vörubíls i Helsinki taldi það skyldu sína að stöðva vagninn þar sem rautt Ijós var á götuvitanum. Og hann stöðvaði trukkinn reyndar, en það gekk ekki átakalaust. Eitthvað varð undan að láta og það var afturöxullinn sem gaf sig. Það fvlgdi ekki sögunni hvort hann náði næsta græna Ijósi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.