Dagblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1978.
Kvikmyndahátfðin:
KYNUF ER EKKIGLÆPUR EN
AÐ SÝNA KYNUF ER GLÆPUR
Opið bréf til ríkissaksóknara og
framkvæmdastjórnar lista-
hátíðar.
Nemendur Myndlista- og
handíðaskóla Islands telja
stöðvun á sýningu kvikmyndar-
innar Veldi tilfinninganna árás
á frjálsa listsköpun. Við mót-
mælum að aðrir taki sér fyrir
hendur að ákveða hvað okkur
sé hollt að sjá eða heyra. Við
getum ekki túlkað þetta á ann-
an veg en sem brot á ákvæði
stjórnarskrárinnar um tján-
ingarfrelsi, prent- og málfrelsi.
Þvi skorum við á framkvæmda-
nefnd listahátíðar að hefja
sýningar á kvikmyndinni þegar
i stað.
F.h. nemenda í MHÍ
Ari Kristinsson
Þór Elis Pálsson
Brynjólfur Jónsson
Ásta Ólafsdóttir
Morð er glæpur, að sýna morð
er ekki glæpur. Kynlíf er ekki
glæpur, að sýna kynlíf er glæp-
ur.
Vi
Vantar nauðsynlega
fleiri almenningssíma
— einnig í Kópa vogi
og Hafnarfirði
0317-3852 hringdi:
Dæmalaus kotborg er hún
Reykjavík. Það er fjárakornið
enginn almenmngssími í
borginni sem hægt er að kom-
ast í Það er ekki fyrr en
verzlanir opna á morgnana sem
hægt er að komast í síma.
Ég þurfti að hringja nauðsyn-
legt símtal, hérna einn
morguninn, og var stödd niðri í
Þingholtum. Klukkan var ekki
nema rúmlega átta og ég fór
niður í símaklefann í Lækjar-
götu til þess arna. Hann var
auðvitað í ólagi, eins og jafnan
áður þegar ég hef ætlað að not-
færa mér hann. Þá datt mér í
hug að fara niður i Landssfma-
hús og hringja úr almennings-
símanum þar. En þá var allt
lokað þar og læst Ekki opnað
fyrr en klukkan níu eins og á
venjulegum skrifstofum!
Það er alveg furðulegt hve
borgarbúar taka þessu al-
menningssimaleysi með mikilli
skapstillingu. Auðvitað veit ég
að margir ef ekki flestir hafa
síma, en samt sem áður getur
verið nauðsynlegt að komast f
síma í bænum. Mætti einnig
segja að nauðsynlegt sé að hafa
almenningssíma í nágranna-
byggðum eins og Kópavogi og
Hafnarfirði. Kópavogsbúar
geta ekki fengið síma og fjöl-
margir sem verða þar að vera
án þessa nauðsynlega tækis.
Líklega er enginn almennings-
simi I Kópavogi, eða hvað?
Raddir
lesenda
Hringiöísíma
27022
millikl. 13-15
eðaskrifið
Spurning
dagsins
FINNST ÞÉR RÉTT AÐ YFIR-
VÖLD BANNI SÝNINGAR A
KVIKMYNDUM?
Brynjólfur Þorsteinsson skip-
stjóri: Er ekki til kvikmyndaeftir-
lit sem á að hafa „kontról" með
þvi sem sýnt er? Ég er á móti þvi
. að sýna hvað sem er.
húsmóðir: Ég veit það ekki. Mér
finnst alla vega ekki rétt að sýna
klámmyndir.
Kristbjörg Baldursdóttir
verzlunarmær: Það er erfitt að
svara þessari spurningu. Kvik-
myndir geta verið svo mismun-
andi. Mér finnst ekki rétt að
banna klámmynd hér fyrst hún
er leyfð annars staðar.
Jón Guðbergsson, vlnnur hjá
Félagsmálastofnuninni: Það fer
dálítið eftir því hvernig mynd-
irnar eru. Það er kánnski nóg að
banna þær stranglega fyrir
unglinga innan 16 ára aldurs en
framfylgja svo banninu gjörsam-
lega.
Sigurborg Sveinbjörnsdóttir hús-
móðir: Það fer dálitið eftir eðli
myndanna. Ef þær eru mjög
grófar er það réttlætanlegt.
Svanhvit Baldvinsdóttir hús-
móðir — Daniei 2ja ára: 1
sumum tilfellum gæti það átt rétt
á sér. Það þarf að hafa eftirlit
með þeim myndum sem eru fyrir
börn og unglinga.