Dagblaðið - 11.02.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978.
...
Ekkiloðmundur og Öldurgráni
7
N
Fyrir eitthvað fjórum
vetrum voru ókennilegar
mannaferðir á Austfjörðum.
íllpuklæddur maður birtist hér
og þar þó engra mannaferða
væri von og passaði að láta ekki
sjá framan i sig; óskýranleg (en
býsna skir) fótspor fundust i
Loðmundarfirði og hálfétin
jólakaka í einu eyðibýlinu þar;
aldrei fundust þó viðhlitandi
skýringar á Loðmundi • og
verður hann að teljast sömu
mystikinni hjúpaður nú og þá.
Það var ekki laust við að
sumum yrði hugsað til Loð-
mundar síðastliðinn miðviku-
dag, er yfir stóð áköf leit að
grænum, ameriskum fólksbil
með máttvana — ef ekki lif-
vana — mannsskrokk 1 skott-
inu. Gjörhugull maður i Vestur-
bænum (það skyldi þó ekki
vera eiginmaður hins viðfræga
rithöfundar Velvakanda,
Húsmóður úr Vesturbænum?)
hafði slitið sjónir frá ábyrgðar-
fullu andliti Stierlitz á skjánum
og litið út um glugga. Það sem
hann sá þar var meira spenn-
andi heldur en stífar þenkingar
Stierlitz og endalausar öku-
ferðir hans, því þar var mátt-
vana mannsskrokki snarað upp
í skott á fyrrnefndum bíl og
siðan ekið burtu — horfið fyrir
horn. Sem skyldurækinn
borgari gerði maðurinn lögregl-
unni viðvart — það er ekki al-
gengt þegar öllu er á botninn
hvolft að flytja menn I skottinu
eins og farangur.
En það var ekki nóg með að
leit bæri lltinn árangur, heldur
var enginn maður horfinn svo
vitað væri — nema ef það væri
Loðmundur. En það var aldrei
að vita nema einhver væri
týndur sem ekki var vitað að
væri týndur, og þá er kannski
hæpið að tala um að hann væri
týndur, því enginn er týndur
nema hann sé týndur öðrum.
Svo leit var haldið áfram, en
þótt greinargóð lýsing á bilnum
væri fyrir hendi virðist hafa
vantað þá lýsingu sem ríður
baggamuninum, eins og maður-
inn sagði, sem sé lýsingu á skrá-
setningarnúmeri bílsins.
Það vakti athygli ýmissa að
þegar leitin var hafin að téðum
grænum amerískum fólksbil,
var tilkynning send bæði til
iögreglubíla og leigubila. Hvers
vegna leigubíla? Gat ekki
ameriski bíllinn einmitt verið
ieigublll, og mennirnir með
likamann í skottinu þannig
fengið aðvörun og átt hægara
með að vara sig? En vegir lög-
reglunnar eru órannsakanlegir
og það reyndust vegir græna
bilsins einnig, þvi að þegar þre-
menningarnir, sem við hann
voru riðnir, héldu á fund lög-
reglunnar á miðvikudags-
kvöldið til að aflétta
spennunni, voru menn vist litlu
nær um þann græna. Utan hvað
annar Vesturbæingur hafði séð
bil nema staðar og manni
hleypt upp úr skottinu og inn í
bil.
Svo þetta var ekki
Loðmundur, þegar allt kom til
alls, heldur 17 ára piltur sem
ætlar að verða leikari— og at-
riðið var æfing á þætti i kvik-
mynd sem við fáum kannski
aldrei að sjá. Nema lögreglunni
finnist þetta vera list. Samt var
þetta svo dramatiskt atriði, að
smámunir eins og 13% gengis-
felling féllu svo að segja í
skuggann. Ekki veit ég hve
margar gengisfellingar ég hef
lifað um dagana, en engri man
ég eftir sem gengið hefur jafn-
hljóðalaust yfir og þessi, þökk
sé Ekkiloðmundi í Skottinu.
En það verður fleira en
ökuferð Ekkiloðmundar sem
gerir dag fyrstu gengisfelling-
arinnar 1978 eftirminnilegan.
Hitt verður auðkýfingurinn
öldurgráni sem stráði silfri
sinu hér og þar um miðbæinn
handa fjármálastjórum
iþjóðarinnar að ganga á. Sé það
satt, að hann hafi stráð tí-
eyringum (peningum, sem
notaðir voru á Islandi meðan
SIGURÐUR
HREIÐAR
HREIÐARSSON
enn voru til aurar öðruvisi en
reikningsaurar) á göturnar svo
til þurfti menn með kústa og
rykskóflur að moka þeim upp,
er þetta einn stöndugasti
maður þjóðarinnar — eða rétt-
ara sagt var, áður en hann
stráði — þvi tíeyringar eru
antik og þar með verðmætir.
Að tala saman með sögnum
Eftir því sem árin líða verða
hin ýmsu sagnkerfi betri og í
þættinum. i dag verður sýnt
spil, þar sem félagarnir tala
saman með sögnum og hægt er
að ákveða lokasögn með 1ÓÓ%
vissu um hvað þeir eiga. Spilin
voru svona.
Norduk
A 54
K763
0 82
+ AG765
Suður
+ ÁKD
<?ÁDG1082
0 ÁG9
*2
Sagnir gengu þannig.
Suður
llauf (1)
2 hjörtu (3)
3 hjörtu (5)
4tíglar (7)
7 hjörtu (9)
Norður
2lauf (2)
3 lauf (4)
4lauf (6)
5 lauf (8)
Hvað þýða þessar sagnir.
1. Sterk spil 16 punktar.
2. Ég á að minnsta kosti 8
punkta og fimmlit lauf.
3. Hvað áttu í hjarta félagi?
4. Ég á stuðning við hjarta og
minna en fjögur kontról (ás
tvö kóngur eitt).
5. Hvað áttu nákvæmlega I
hjarta?
6. Háspil fjórða. Ef sagt er við
þrem hjörtum, þrír spaðar, þá
þýðir það fjórir hundar. Þrjú
grönd er háspil þriðja og fjögur
lauf er háspil fjórða og fjórir
tíglar væru tvö háspil þriðju og
fjögur hjörtu, tvö háspil f jórðu.
7. Fyrirstöðusögn tígulás.
8. Laufás.
9. Sjö hjörtu, ég veit að þú átt
fimm lauf og fjögur hjörtu.
Það er ekki oft sem slemma
vinnst á bæði borð, það er að
segja að á öðru borðinu vinnst
slemma í austur-vestur, en á
hinu borðinu 1 norður-suður.
En hér kemur spil, þar sem það
kom fyrir.
Norður
+ ÁDG42
5:7 G8
0 3
* K8763
Vlstiir
Á 6
ÁK65432
0 AG9
*G9
Austur
+ 10983
^ D1097
KD742
+ ekkert
* K75
^ ekkert
0 10865
* ÁD10542
Það eru náttúrlega snilling-
arnir Itölsku Garozzo og Bella-
donna og par sem þótti mjög
efnilegt Franco og de Falco.
Belladonna og Garozzo náðu
mjög skemmtilega sex spöðum i
norður-suður og Franco og de
Falco spiluðu sex hjörtu í
austur og vestur. Samtals fengu
þeir fyrir slemmurnar 2740, á
öðru borðinu 1430, en á hinu
voru sex hjörtu dobluð og þar
fengu ítalirnir 1310. Það
skemmtilega við sagnir hjá
Belladonna og Garozzo var hvað
þeir fóru rólega af stað, en eftir
þvi sem á leið þá fundu þeir
samleguna og þá gat ekkert
stoppað þá. Þar sem þeir sátu
gengu sagnir þannig:
Norður Austur Suður Vestur
Belladonna Garozzo
1 spaði 2 tiglar 2 spaðar 3 hjörtu
4 lauf 4 hjörtu 4 grönd 5 hjörtu
pass pass 5 spaðar pass
6 lauf 6 hjörtu 6 spaðar pass
pass pass
Það er aðeins ein leið til að
hnekkja sex spöðum og hún er
sú að austur hitti á tígul út og
vestur spili laufi til baka.
LANDSLK)SKEPPNIN
Landsliðskeppni Bridgesam-
bands íslands lauk um sl. helgi.
Röð efstu para varð þessi:
stig
X. GuAlaugur R. Jóhannsson —
öm Amþórsson 177
2. Guómundur Pétursson —
Kari Sigurhjartarson 90
3. Stafán GuAjohnsan —
Jóhann Jónsson 57
4. Jón Páli Sigurjónsson —
GuAbrandur Sigurbargsson 31
5. Ásmundur Pálsson —
Einar Þorfinnsson 23
6. Bjöm Eystainsson —
Magnús Jóhannsson 20
Unglingaflokkur stig
1. GuAmundur Harmannsson —
Sasvar Þorbjömsson 81
2. Páll Valdimarsson —
Tryggvi Bjamason 56
3. Jón Baldursson —
Ólafur Lárusson 42
Stjórn Bridgesambands
Islands hefur valið þá Guðlaug-
örn og Guðmund-Karl í sveit I
opna flokknum og Guðmund-
Sævar og Jón-Ölaf 1 unglinga-
flokki.
Þá munu þrjú næstu pör
velja með sér par og verður
siðan spiluð tvöföld umferð á
milli sveita eða 192 spil.
REYKJAVÍKURMÓT
SVEITAKEPPNI
Fyrsta umferðin i sveita-
keppni Reykjavikurmótsins,
úrslit, var spiluð sl. þriðjudag.
Leikirnir fóru þannig:
Dagbjartur Grímason —
GuAmundur Ksrmannsson 19-1
Jón Ásbjömsson —
Stafán GuAjohnsan 14-6
Hjalti Biasson —
Sigurjón Tryggvason 13-7
og Jón Hjaltason sat yfir.
Næsta umferð verður spiluð
nk. þriðjudag i Hreyfilshúsinu
við Grensásveg.
FRA BRIDGEFELAGI
REYKJAVÍKUR
Sl. miðvikudag hófst Board-
a-match keppni hjá félaginu og
er það sveitakeppni sem reikn-
uð er út þannig að ef sveit fær
hærri skor fyrir spilið, þá fær
hún tvö stig á móti 0, en ef
spilið er jafnt þá er það 1-1.
Staðan eftir fyrsta kvöldið er
þessi:
Sveit stig
1. Jóns Gíslasonar 42
2. SigurAar B. Þorstainssonar 35
3. Stafáns Guðjohnsan 33
4. Símonar Símonarsonar 33
5. Jóns Páls Sigurjónssonar 31
6. Guömundar T. Gíslasonar 30
Næsta umferð verður spiluð
nk. miðvikudag.
FRÁ TAFL- OG
BRIDGEKLÚBBNUM
Úrslit leikja i sjöttu umferð
urðu þessi:
Maistaraflokkur
Þórballur-Haukur 11-9
Ingólfur-Bjöm 20-0
Gestur-Haraldur 20-0
Rafn-Siguröur 14-6
Ragnar-Halgi 14-6
1. flokkur
Eria-Guömundina 20- + 3
Bragi-Eiríkur 14-6
Siguriaifur-GuÖmundur 10-10
Hannes-Bjami 20-0
Staðan eftir sex umferðir er
þessi:
Meistaraflokkur stig
1. Gastur Jónsson 88
2. Bjöm Kristjánsson 74
3. Halgi Einarsson 72
1. flokkur •tig
1. Guömundur Júliusson 99
2. Bragi Jónsson 87
3. Hannas Ingibergsson 63
Næsta umferð verður spiluð
nk. fimmtudag I Domus Medica.
MEISTARAMÓT
SUDURNESJA
Alfreð Alfreðsson og Einar
Jónsson hlutu frábæra skor í stig
síðustu umferðinni I meistara- 1. Trásmiöja Þorstoins og Áma (Bjami Jónsson . 80
keppni Suðurnesja í tví- 2. Glettingur h/f
menningskeppni á fimmtudag. (óli Olasan) 74
Skutust við það upp í efsta sæti. •i. uynjandi s/f (Krístmann Guömundsson) 73
usnt: 4. Suðurgaröur h/f
1. Alfraö Alfraðsson — (Sigurður Hjattason) 72
Einar Jónsson 159 5. Hópfaröabilar Raykdals
2. Logi Þormóösson — (Gunnar Andrésson) 72
Jóhannas Sigurösson 105 6. Hitaveita Salfoss
3. Gísli Torfason — i (Sigfús Þóröarson) 72
Jóhannes Sigurösson 103 7. Plastiðjan Eyrarbakka h /f
4. Siguröur Sigurbjömsson — (Brynjólfur Gestsson) 70
Þórtaif Magnúsdóttir 52 8. Mjólkurbú Flómanna
5. Gestur Auðunsson — (Halldór Magnússon) 70
Högni Oddsson 51 9. Samvinnutryggingar
(SigurÖur S. Sigurösson) 70
I dag verður bæjarkeppni 10. Siggabúö (Ingvar Jónsson ) 60
milli Keflvíkinga og Selfyss- 11. Einarshöfn h/f 60
inga I Keflavík — en sveita-
keppni hefst næstkomandi
fimmtudagskvöld.
BRIDGEFÉLAG
SELF0SS
Úrslit I einmenningskepþn-
inni, sem lauk 2. febr.
stig
1. Bjami Jónsson 238
2. SigurAur Hjaltason 223
3. Brynjólfur Gastsson 220
4. Krístmann GuAmundsson 220
5. Gunnar Andrósson 209
6. FriArik Larsen 205
7. Halldór Magnússon 205
8. öm Vigfússon 201
9. Jónas Magnússon 201
10. SigurAur S. SigurAsson 201
11. Sigfús ÞórAarson 199
12. Hannas Ingvarsson 198
Urslit i firmakeppni, sem
lauk fimmtudaginn 2. febr.
FRÁ BRIDGEFÉLAGI
HAFNARFJARÐAR
Úrslit i næstsíðustu umferð
sveitakeppninnar urðu þessi:
Sssvar — Bjöm 16-4
Þórarínn — óskar 16-4
Dröfn — Albert 12-8
ólafur Ingim. — Ólafur Gísla. 17-3
Flansborg B — Flansborg A 14-6
Staða 6 efstu sveita er nú
þessi:
Sssvar 129
Þórarínn 110
Bjöm 103
Albart 102
Ólafur Qlsla. SS
Ólafur Ingim. 91
Sævar ei\greinilega á grænu
ljósi en hart er barizt um næstu
sæti. Nk. mánudag verður
gengið á vit Ása og spilað á 10
borðum. Siðasta umferð sveita-
keppninnar fer fram þriðju-
daginn 21. febrúar.
VILLIRAKARIAUGLÝSIR
ÁÐUR
EFTIR
HINA HEIMSÞEKKTU TRENDMAN-HÁRTOPPA.
MR. FORSHOW FRÁ TRENDMAN VERÐUR TIL VIÐTALS
Á RAKARASTOFUNNI LAUGARDAGINN ll.FEB. TIL
ÞRIÐJUDAGSINS 14. FEBRÚAR.
PANTIÐ TÍMA í SÍMA 21575 EÐA 42415
VILLIRAKARI - MIKLUBRAUT 68