Dagblaðið - 11.02.1978, Síða 15

Dagblaðið - 11.02.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978. Mikið er skrifað þessa dagana um að vinsældir ABBA fari þverr- andi á Norðurlöndum og getum leitt að því, hvað valdi. Hver sem skýringin kann að vera, þá virðast Englendingar og Hollendingar kunna að meta hljómsveitina. Myndin er af Björn Ulvaeus og Anni Frid Lyngstad. DB-mynd Ragnar Th. ABBA-hahh Enn eittABBA-lagið æðirupp vinsældalistana Vonir enskra aðdáenda Brotherhood Of Man um að sjá sitt fólk í fyrsta sæti vinsæida- listans renna út í sandinn þessa vikuna. ABBÁ er komin á vin- sældalistann enn einu sinni. Að þessu sinni er það lagið Take A Chance On Me sem þýtur upp á við. Lagið var í 26. sæti í síðustu viku, í fjórða sæti núna og ég skal éta hattinn hans Ömars Valdimarssonar ef það verður ekki í fyrsta sæti i næstu viku. Það þarf ekki að kynna Take A Chance On Me, fyrir lesend- um. Búið er að leika það ótal oft í útvarpi síðan platan ABBA — The Album kom út. Um þessar mundir er stóra platan að koma út í Englandi og þegar vorar verður kvikmyndin um ABBA sýnd þar. ABBA-æðið hjá Engilsöxum er semsé bara rétt að byrja! Almennt var búizt við því að Brotherhood Of Man lagið Angelo kæmist á toppinn í næstu viku eða þarnæstu. Af því verður þó tæpast héðan af. ABBA og „Bræðalagið" eru að mörgu leyti líkar hljómsveitir. Þá síðarnefndu skortir þó eitt, sem sú sænska kann, — að' breyta plasti f gull. Tvö ný lög til viðbótar eru á topp tíu í Englandi þessa vikuna Heatwave er í áttunda sæti með lagið The Groove Line, og spænska dúóið Baccara er númer tíu. Lag þeirra, Sorry, I’m A Lady, er orðið velþekkt hér á landi í óskalagaþáttum að minnsta kosti. Bandaríkjamenn eru lítt fyrir breytingarnar þessa vikuna. Aðeins eitt nýtt iag er þar á topp tiu. Andy Gibb er í níunda sæti með lagið (Love Is) Thicker Than Water. Það leynir sér ekki að Andy er bróðir Bee Gees meðlimanna. Lagið gæti allt eins verið af plötu með þeim og söngurinn er mjög svipaður. -ÁT- ENGLAND — MELODY MAKER 1 - < ) UPTOWN TOP RANKING ................ALTHEA AND DONNA 2. ( 3 ) FIGARO ........................BROTHERHOOD OF MAN 3. ( 6 ) IF I HAD WORDS ....SCOTT FITZGERALD AND YVONNE KELLY 4. (26) TAKE A CHANCE ON ME.,..........................ABBA 5. ( 2 ) MULL OF KINTYRE/GIRLS SCHOOL................WINGS 6. (5) NATIVE NEW YORKER............................ODYSSEY 7. (4) LOVELY DAY ..............................BILL WITHERS 8. (11) THE GROOVE LINE ..........................HEATWAVE 9. ( 7 ) LOVE'S UNKIND .......................DONNA SUMMER 10. (13) SORRY. I'M A LADY .....................'...BACCARA BANDARÍKIN — CASH BOX 1. (1) STAYIN' ALIVE................................BEE GEES 2. (2) SHORT PEOPLE...........................RANDY NEWMAN 3. (4 ) JUSTTHE WAY YOU ARE ......................BILLYJOEL 4. ( 3 ) BABY COME BACK .............................PLAYER 5. (5) WE ARE THE CHAMPIONS...........................QUEEN 6. ( 7 ) SOMETIMES WHEN WE TOUCH ...................DAN HILL 7. ( 8 ) DANCE, DANCE, DANCE ..........................CHIC 8. (10) EMOTION..............................SAMANTHA SANG 9. (11) (LOVE IS) THICKER THAN WATER .............ANDYGIBB 10. ( 6 ) YOU'RE IN MY HEART ....................ROD STEWART VESTUR—ÞYZKALAND 1. (1) SURFIN' USA...............................LEIF GARRETT 2. ( 2 ) NEEDLES AND PINS ...........................SMOKIE 3. ( 3 ) ROCKIN' ALL OVER THE WORLD...............STATUS QUO 4. (4) DON'T STOP THE MUSIC BAY CITY ROLLERS 5. ( 5 ) DON'T LET ME BE MISUNDERSTOOD..................... ..................SANTA ESMERALDA FEATURING LEROY GOMEZ 6. ( 9 ) LADY IN BLACK............................URIAH HEEP 7. (10) MULLOF KINTYRE ...............................WINGS 8. ( 6 ) BLACK IS BLACK ......................LA BELLE EPOQUE 9. ( 7 ) THE NAME OF THE GAME ..... ...................ABBA 10. (1 3) Tl AMO...............................UMBERRTO TOZZI HOLLAND 1. (1 ) IF I HAD WORDS .....SCOTT FITZGERALD AND YVONNE KEELEY 2. ( 2 ) MULL OF KINTYRE ..............................WINGS 3. (1 5) TAKE A CHANCE ON ME.............................ABBA 4. (16) SMURFENBIER ...........................VADER ABRAHAM 5. ( 3 ) TINGELINGELINGELING ......... ........ANDRE VAN DUIN 6. ( 6 ) SHE’S NOTTHERE .............................SANTANA 7. ( 7 ) SINGING IN THE RAIN ........SHEILA AND BLACK DEVOTION 8. (10) I CAN'T STAND THE RAIN ......................ERUPTION 9. ( 9 ) IS JE MOEDER NIETTHUIS ....................NICO HAAK 10. (19) BLACK BETTY .................................RAM JAM HONG KONG 1. (2) MULL OF KINTYRE . .......................WINGS 2. ( 3 ) YOU MAKE LOVING FUN .............FLEETWOOD MAC 3. ( 4 ) HERE YuJ COME AGAIN................DOLLY PARTON 4. ( 1 ) HOW DEEP IS YOUR LOVE...................BEE GEES 5. ( 6 ) MY WAY.............................ELVIS PRESLEY 6. ( 8 ) NAME OF THE GAME .........................ABBA 7. ( 9 ) YOU'RE IN MY HEART .................ROD STEWART 8. (10) EMOTION ..........................SAMANTHA SANG 9. ( 7 ) SWINGTOWN .....................STEVE MILLER BAND 10. (11) DON'TIT MAKE MY BROWN EYES BLUE.....CRYSTAL GAYLE Eriendir jazz- leik- ararí heim• sókn Horace Parlan er fö1 kunnur fyrir vinstri- handarstíl sinn, sem , er til kominn vegna alvarlegrar fötiunar á , hægri hendi. riffl Unnendur jazztónlistar ættu að geta gengið með beint bak og bros á vör um þessa helgi. Klúbburinn Jazzvakning hefur gengizt fyrir hingaðkomu þríggja bandarfskra tónlistar- manna — Tríós Horace Parlan — sem halda þrenna tónleika í Reykjavík i kvöld og tvö næstu kvöld. Tónleikarnir í kvöld verða haldnir í Menntaskólanum við Hamrahlið. Annað kvöld flytur tríóið sig yfir á Hótel Esju og á mánudagskvöldið verður jazzað á Hótel Loftleiðum. Ailir hefj- ast tónleikarnir klukkan níu. Meðlimir Tríós Horace Parlan eiga það allir sameigin- legt, að þó að þeir séu Banda- rikjamenn, þá búa þeir og starfa í Evrópu. Þeir eru Horace Parlan sjálfur, sem leik- ur á píanó, Doug Raney gftar- leikari og Wilbur Little bassa- leikari. VINSTRIHANDARSTÍLISTI Horace Parlan er búsettur í Danmörku og hefur starfað þar síðan árið 1972. Milli ferðalaga um Evrópu leikur hann á Jazz- hus Montmartre. Frá árinu 1975 hefur hann leikið inn á hljómplötur fyrir Steeple Chase fyrirtækið. Það var lömun I hægri hluta líkamans, sem varð til þess að Horace Parlan lagði pianóleik fyrir sig. Það var að læknisráði, sem hann hóf tónlistarnám sjö ára gamail. Vegna fötlunar sinnar varð hann að þróa sér- stakan vinstrihandarstíl og náði slíkri leikni að kennarar hans skoruðu á hann að leggja píanóleik fyrir sig, fremur en lögfræði, sem hann nam í tvö ár. Parlan er nú 47 ára gamall. Hann er fæddur f Pittsburg í Pennsylvaníu, en eftir að hann varð atvinnumaður i tónlistinni varð hann að flytja sig yfir til New York. Þar lék hann um tveggja ára skeið i Charles Mingus Workshop (1957-59) og síðar með Lou Donaldson Quartet, hljómsveitinni Play- house Four og fjölda annarra. Hann lék inn á nokkrar hljóm- plötur undir eigin nafni hjá Blue Note fyrirtækinu. UNGUR GÍTARISTI Það hlýtur að teljast til tið- inda, þegar jazzgitaristi er kominn í fremstu röð á sinu sviði rétt rúmlega tvitugur. Svo er um Doug Raney. Hann er 21 árs að aldri, sonur Jimmy Raney sem Jazzvakningarmenn segja vera einn stórkostlegasta gítarleikara samtímans. Doug Raney þykir ákaflega lýriskur gítarleikar. Hann hóf nám þrettán ára gamall og sótti einkatíma hjá Barry Galbraith i New York. Þar kom hann meðal annars fram með A1 Haig, A1 Cohn og Charles McPherson, en siðastliðið ár hefur hann leikið dúó með föður sinum. Doug kom við í Hollandi áður en hann flutti til Danmerkur og lék þar með þarlendum um skeið. í september síðastliðnum lék hann inn á plötuna Introducing Doug Raney ásamt Duke Jordan píanóleikara, bassaleik- aranum Hugo Rasmussen og Billy Hart á trommur. MED HEIMSÞEKKTUM JAZZLEIKURUM Wilbur Little bassaleikari er aldursforseti Tríós Horace Parlan — rétt tæplega fimm- tugur. Snemma á sjötta ára- tugnum lék hann með Miles Davis, Sonny Stitt, Lester Young John Coltrane og fleir- um. Siðar lék hann meo J.J. Johnson kvintettinum og tók þátt í hinum frægu tríóupptök- um undir leiðsögn Tommy Flanagen í Svíþjóð árið 1957. í fyrra fór Wilbur Little i hljómleikaferð um Japan með Duke Jordan og að henni lok- inni flutti hann til Amsterdam. SAXÓFÓNLEIKARI BLOOD, SWEAT& TEARSLÉZTÁ HUÓMLEIKAFERÐ Gregory Delano Herberi saxófónleikari bandarisku jazz/rokkhljómsveitarinnar Blood, Sweat And Tears lézt fyrir nokkrum dögum, þrítugur að aldri. Hann var á hljómíeika- ferð með félögum sinum er dauða hans bar að í hótelher- bergi í Amsterdam í Hollandi. Við lögreglurannsókn kom í ljós að Gregory hafði í fórum sinum dálítið magn af heróíni og kókaíni. Sömuleiðis fundust i herbergi hans sprautur og nálar. Ekki var hægt að full- yrða neitt um dauðaorsök fyrr en krufning hefði farið fram. V I Gregory Herbert á einum af sínum siðustu hljómleikum 27. janúar síðastliðinn. Herbert er annar rokktón- listarmaðurinn, — það er að segja af þeim frægari, — sem deyr á árinu. I siðasta mánuði lézt Terry Kath gítarleikari jazz/rokkhljómsveitarinnar Chicago af voðaskoti. Það voru aðrir meðlimir Blood, Sweat And Tears, sem komu að Gregory Herbert. Þeir höfðu farið á veitingahús í Amsterdam til að fá sér í svang- inn. Er þeir komu að læstum dyrum hjá Herbert gerðu þeir næturverði hótelsins viðvart um að eitthvað kynni að ama að. Lögreglunni var gert við- vart og læknir til kvaddur. Hann úrskurðaði, er herbergið hafði verið opnað, að Herbert væri látinn. Hljómsveitin aflýsti hljóm- leikum sínum í Amsterdam þegar í stað vegna dauða saxó- fónleikaransog sömuleiðis þeim hljómleikum, sem eftir voru i ferðinni. Meðal annars átti hljómsveitin eftir að heim- sækja Paris og London. Gregory Herbert var altsaxó- fónleikari. Hann hóf feril sinn sem atvinnumaður sextán ára gamall. Þá gerðist hann auka- meðlimur í kvintett Miles Davis. Ari síðar gekk hann í hljómsveit Duke Ellingtons. Að loknu tónlistarnámi við Temple háskólann starfaði hann um skeið með hljómsveit Woody Herman og Thad Jones-Mel Lewis Band. Herbert var í hópi virtustu hljóðfæraleikara rokksins. Hann lætur eftir sig eiginkonu og eitt barn.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.