Dagblaðið - 27.02.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1978.
Óvenjulegt og
sniðugt
Sinfóníuhljómeikarnir á
fimmtudaginn var voru á flestan
hátt óvenjulegir, í það minnsta
miðað við okkar aðstæður. Þar
komu fram íslenskur einleikari
og íslenskur stjórnandi, og þar
voru flutt heil þrjú tónverk f
fyrsta sinn hér á landi. Eitt þess-
ara verka var meira að segja ís-
lenskt, eftir kornungt tónskáld,
Snorra Sigfús Birgisson, og var
það frumflutt þarna, sem út af
fyrir sig var auðvitað merkisvið-
burður. Það er ekki annað hægt
en dást að hugrekki stjórnandans,
Páls P. Pálssonar, að taka til með-
ferðar þrjú tónverk, sem öll voru
hljómsveitinni ókunn, hefði
margur þótt fullsæmdur af að
flytja t.d. lokaverkið, Konsert f.
hljómsveit eftir Lutoslawskí, og
fylla sfðan upp með rútfnuverk-
um. En hljómleikarnir hófust
sumsé með Songs and places eftir
Snörra, sem er á margan hátt lag-
lega samið byrjandaverk. Er
greinilegt að Snorri kann orðið
margt fyrir sér, þó hann hafi ekki
stundað tónsmfðanám lengi, og
gæti ég best trúað að hann ætti
eftir að semja margt skemmtilegt
í framtíðinni. Nú ætla ég svo
sannarlega ekki að segja að Songs
and Places sé leiðinlegt eða ljótt.
Þar eru ýmsar glettnislegar hug-
myndir, sem vert er að gefa gaum.
Hinsvegar vantar talsvert á að
þessar hugmyndir þróist og vinni
saman, svo að heildin verður væg-
ast sagt dálftið laus í reipunum.
Byrjunin var falleg og lofaði' ein-
hveriu um þróun „klangfarbeb-
melodie" (einsog hjá Schönber og
Pijper?), en þetta rann fljótt útf
sandinn. Áframhaldið var einsog
upptaktar að ýmsu góðu, en þetta
góða náði einhvernveginn aldrei
skýrri mynd og athygli manns
slævðist fyrir bragðið, og maður
fór að hugsa um eitthvað annað
Þetta má helst ekki koma fyrir í
svona stuttu verki og ætti að vera ,
óþarfi, þegar svona talenteraður'
maður einsog Snorri er að bjástra.
Eitthvað held ég líka að megi
kenna um hvernig verkið var
flutt, því spilamennskan var
sannast að segja í daufara lagi. En
í öllu falli: áfram veginn, Snorri.
Anna Áslaug Ragnarsdóttir var
einleikari í útsetningu á Wander-
erfantasíu Schuberts eftir Liszt.
Ekki er þetta nú spennandi sam-
setningur og gerði Liszt held ég
flest betur en þetta. Ætli hann
hafi verið að æfa sig í hljóm-
sveitarútsetningu? í það minrista
má sjá og heyra í hljómsveitar-
verkunum hans (þau eru nú ekki
svo fá) að hann hefur stúderað
handverkið vel og vandlega. En
þetta verk á helst ekki að flytja
finnst mér. Ég láti Önnu Áslaugu
alls ekki, þó leikur hennar hafi
verið dálftið ósannfærandi á köfl-
um. Hver meðalmaður hlýtur að
missa áhugann á þessu f miðju
kafi, ef hann leggur þá nokkurn-
tfmann í að byrja. En Anna
Áslaug er ágætur píanóleikari,
held ég, spilar örugglega og
hreint, og vildi ég gjarnan heyra
hana í einhverju merkilegra, og
það fljótt.
Hljómleikunum lauk svo,
einsog áður segir, með Konsert
Lutoslawskfs. Þetta er stærsta
verk Lutoslawskis áður en hann
fann sjálfan sig einsog maður
segir, samið í anda Bartóks, sem
þótti vfst mikil bíræfni austan-
sterka rvksusan... /§_
Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga,
stillanlega og sparneytna
mótors, staðsetning
hans. oghámarks
orkunýting, vegna
lágmarks loft-
mótstöðu í
stóru ryksíunni.
stóra. ódýra
pappirspokanum
og nýju kónísku
slöngunni,
afbragðs sog-
stykki og varan-
legt efni, ál og J
stál. Svona er
NILFISK:
Vönduðog
tæknilega ósvik-
in, gerð til að
vinna sitt verk
fljótt og vel. ár
eftir ár. með lág-
marks truflunum
og tilkostnaði
Varanleg: til lcngdar
ódýrust.
Nýr hljóð-
deyfir:
Hljóðlótasta
ryksugan.
Afborgunarskilmólar
CAMIY HÁTÚN 6A
IvlllA SÍMI 24420
Raftækjaúrval — Næg bílastæði
tjalds uppúr 1950. Og þetta er
ótrúlega spennandi og magnað
verk, og alls ekki nein Bartók-
kópfa, því þar úir og grúir af
frumlegum uppátækjum. Stjórn
Páls P. á þessu var að mínu viti
mikið þrekvirki, og vegna þess má
sannarlega fyrirgefa honum pfnu-
lítið (ekki veit ég hvað Snorri og
Anna segja) hvað fyrrihluti
hljómleikanna var slappur. Hann
ætlaði sér og hljómsveitinni of
mikið, því verður ekki neitað, og
það má kannski segja að slfkt eigi
ekki að koma fyrir jafnreyndan
mann. En þegar maður tekur með
f reikninginn að tækifærin til að
reyria kraftana eru fá og strjál,
skal engan undra þó áhugasamur
músíkant brenni í skinninu að
reyna eitthvað óvenjulegt og
sniðugt.
Leifur Þ.-
' ' -
mHHgpiV
mrm $
lÉÍSBJfeæÉlK.
■ ./■■■' ■
...il* 1 *,
Mikió úrval
afnýjum
dömih og
herrapeysum
þjonum
.,
stor-
Reykja víkursvæóinu