Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR 1978. Um lýðræði í sveitarstjómum Hér mun verða lauslega fjall- að um vissa þætti lýðræðisins, að því er varðar sveitarfélögin, þ.e.a.s. 1 hve rikum mæli kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn gefa rétta mynd af íbúasam- setningu í þeim sveitarfélögum sem þeir starfa fyrtr eða öllu heldur veita forystu á héraðs- grundvelli. Eftirtaldar for- sendur m.a. tel ég mikilvægt að séu skoðaðar i þvi skyni að gera sér ljóst hvort lýðræðið er I raun og sanni virkt og meðal hverra og einnig I þvf skyni að glöggva sig á hvaða hópar eru utangarðs þegar um ræðir áhrif og ftök f stjórn tiltekinna byggðarlaga: 1. Gefur tiltekinn hópur sveitarstjórnarmanna rétta mynd af stöðu byggðarlags- ins að þvi er varðar skipt- ingu kjósenda milli kynja? 2. Eiga allar fjölmennari stétt- ir (stétt hér f merkingunni starfshópur) tiltekins sveitarfélags fulltrúa f sveitarstjórn? Er fjöldi full- trúa f réttu hlutfalli við með- limafjölda f vk.stétt eða jafnvel mikilvægi stéttar- innar fyrir byggðarlagið? 3. Er meðalaldur hinna kjörnu fulltrúa nálægt meðalaldri fbúanna f sveitarfélaginu? í þessari lauslegu samantekt mun ég einungis lfta til hinna tveggja fyrrnefndu þáttanna enda ekki hyggja mín að efnatil ýtarlegrar úttektar heldur fiemur að drepa lítiliega á máli sem ég tel vera mikilvægt. — Einnig hef ég einungis skoðað kaupstaðina í þessu sambandi (miðað við kaup- staðarréttindi á útkomuári „Sveitarstjórnarmannatals" Sambands íslenskra sveita- félaga fyrir kjörtímabilið 1974- 1978) þar eð allur fjöldi sveitarfélaga án kaupstaðar- réttinda er svo fámennur og atvinnuhættir svo einhæfir að þeim yrði að gera skil sérstak- lega. — Til þess að auðvelda skipt- ingu sveitarstjórnarmanna f starfsstéttir hefur eftirfarandi heimatilbúin flokkun orðið til: I. Framkvæmdamenn og at- vinnurekendur. (T.d. for- stjórar, framkvæmdastjórar, útgerðarmenn, bankastjórar og kaupmenn). II. Störf sem alla jafnan krefj- ast sérmenntunar að nokkru eða að öllu leyti á háskólastigi. (T.a.m. viðskiptafr., læknar, hjúkrunarfr., kennarar, blaða- menn, verkfr., tæknifr.). III. Skrifstofufólk, verslunar- fólk og bankafólk. (Hér með er talið skrifstofufólk f ábyrgðar- meiri störfum, t.d. skrif- stofustj., deildarstj. o.s.frv.). IV. Iðnlært fólk og fólk með aðra verkmenntun en iðn- menntun. (T.d. skipstjórar, stýrimenn, flugmenn, ljós- mæður, sjúkraliðar, verkstjórar o. fl.). V. S'erkafólk, iðnverkafólk og bifreiðastjórar. VI. Húsmæður Eftirtaldir annmarkar eru augsýnilegir á flokkun þessari: a. Allmikill fjöldi fólks f hópi I gæti trúlega eins tilheyrt hópi II og e.t.v. einnig hópi IV. b. Almikill fjöldi fólks f hópi III á trúlega eins heima f hópi II. c. Hópur IV er æði stór og hefur að geyma fólk með innbyrðis mjög ólíkar tekjur. d. Ymsar þær, sem telja sig húsmæður, gætu allt eins verið útivinnandi og þá auð- veldlega heyrt öðrum hópi til. e. Um hóp I er það að segja að ekki hefur verið unnt að gera greinarmun á atvinnu- rekendum, þ.e.a.s. eigendum framleiðslu- eða arðskap- andi tækja annars vegar og hálaunuðum vinnuþegum hins vegar, þar eð ekki má marka af starfsheitum manna hvorn flokkinn þeir fylla. f. Loks er skylt að geta þess að vissir fámennir starfshópar, t.a.m. alþingismenn, eru nánast óflokkanlegir. . Varamenn f bæjarstjórnum eru f öllum tilvikum taldir með en hins vegar hlýt ég að fara eilftið aðrar leiðir en venja ber til við flokkun kaupstaða eftir landshlutum. T.a.m. verða kaupstaðir á Vesturlandi og Vestfjörðum teknir saman sök- um fæðar þeirra og Vest- mannaeyjar verða hér taldar með Reykjavfk og kaupstöðum f Reykjaneskjördæmi, enda eini kaupstaðurinn á Suðurlandi. Eftirtaldir kaupstaðir á Reykjanesi koma hér til álita: Seltjarnarnes, Kópavogur, Hafnarfjörður, Grindavfk og Keflavfk, auk Reykjavíkur og Vestmannaeyja eins og áður er getið. A þessu svæði er skipt- ingin sem hér segir: Hópur I: 41 fulltrúi Hópur II: 45 fulltrúar Hópur III: 11 fulltrúar Hópur IV: 26 fulltrúar Hópur V: 2 fulltrúar Hópur VI: 12 fulltrúar Alls 137 fulltrúar Hér er vert að vekja athygli á eftirfarandi: I öllum þeim kaupstöðum sem með eru taldir sitja tvelr verkamenn f bæjarstjórnum. Annars vegar er um að ræða Reykjavfk og hins vegar Kópa- vog. Hér kann að vera að fjöl- breyttari starfsheiti á sfðari árum vegna aukinnar sérgrein- ingar starfa valdi nokkru um en engum dylst þó að talan er fskyggileg. Húsmæður með slna 12 fulltr. mega nokkuð vel við una; eiga enda sex sinnumfleiri fulltrúa en verkamenn. Talan er þó áberandi lág miðað við fjölda húsmæðra á þessu svæði. Athyglisvert er einnig að meðal fjölmennustu starf- stéttar þessa lands, s.s. meðal verslunar-, banka- og skrif- stofufólks, eiga einungis 11 slíkir sæti f bæjarstjórnum. Er þetta athyglisvert þar eð al- mennt er talið að stærsti stjórn- málaflokkur landsins sæki mjög fylgi til þessara stétta. E.t.v. er þessi tala til marks um hið raunverulega „lýðræði" á þeim vígstöðvum. Einnig má telja sennilegt að fulltrúar úr hópi iðnaðar- og verkmennt- aðra manna (26) séu f litlu sam- ræmi við fjölda kjósenda í þessum starfsstéttum. Er þá komið að hinum eigin- legu valdastéttum á höfuð- borgarsvæðinu. Þykir einhverjum það senni- legt að af hverjum 3 fbúum þessa svæðis sé einn fram- kvæmdamaður eða atvinnurek- andi og annar langskólageng- inn skriffinnur af einhverju tagi? Af 14 fulltrúum (7 aðal- mönnum og jafnmörgum vara- mönnum) 1 bæjarstjórn Sel- tjarnarness eru 5 úr hópi fram- kvæmdamanna, eða atvinnu- rekenda, jafnmargir mennta- menn.eða 5 talsins, 3 verslunar- banka- og .skrifstofumenn og ein húsfreyja. Enginn verka- maður. Enginn iðn- eða verk- menntaður maður. Ef þessar tölur gefa rétta mynd af Ibúa- skipan þessa bæjarfélags þykir mér uggvænlega komið búsetu- þróun á Reykjavfkursvæðinu. Af 28 aöal- og varamönnum f borgarstjórn Reykjavfkur eru 17 menntamenn og einn verka- maður. M.a.s. f athafnabæ eins og Keflavfk, þar sem bæjar- stjórnin er skipuð 9 aðalmönn- um og 9 varamönnum, er eng- inn verkamaður f hópi hinna útvöldu og raunar einungis 4 verkmenntaðir menn. En hverfum nú til Vestu'r- lands og Vestfjarða, Akraness, Bolungarvikur og ísafjarðar. Hér getur að lfta eftirfarandi tölur: Hópurl: 7 fulltrúar Hópur II: 10 fulltrúar Hópur III: 10 fulltrúar Hópur IV: 16 fulltrúar Hópur V: 1 fulltrúi Hópur VI: 5 fulltrúar Alls 49 fulltrúar Hér er u.þ.b. einn þriðji hluti bæjarfulltrúa úr hópi iðn- og verkmenntaðra manna og kemur það e.t.v.heim og saman við mikilvægi þeirra stétta úti á landsbyggðinni en vafasamt er þó að tala þeirra gefi rétta mynd af fbúasamsetningunni. Hér er tala menntamanna u.þ.b. 20% og verslunarmenn eiga sömu prósentutölu. En á þessu einhverju hinu mesta at- hafnasvæði landsins, að því er tekur til fiskveiða og fiskverk- unar, á einungis 1 verkamaður sæti f bæjarstjórnunum. Hins vegar situr einn alþingismaður f bæjarstjórn Bolungarvíkur, einn af tveimur sem búsettir eru á Vestfjörðum! Hvað sem alþingismanninum lfður er þó Bolungarvík með e.t.v. hvað raunsæjasta sam- setningu fulltrúa f bæjarstjórn miðað við atvinnuhætti þar I bæ. (Sbr. „Sveitarstjórnar- mannatal" 1974-1978). Lftum næst á Norðurland. Eftirtalda kaupstaði er þar að finna: Sauðárkrók, Siglufjörð, Olafsfjörð, Dalvík, Akureyri og Húsavfk. 1 Hópur I: 35 fulltrúar Hópur II: 17 fulltrúar Hópur III: 11 fulltrúar Hópur IV: 20 fulltrúar Hópur V: 11 fulltrúar Hópur VI: 5 fulltrúar Alls 99 fulltrúar Af ofangreindum tölum mætti ætla að liðlega 30% fbú- anna væru framkvæmdamenn eða atvinnurekendur af ' ein- hverju tagi, 11% verkamenn, 5% húsmæður o.s.frv. Trúlegt má telja að þessu sé nokkuð á annan veg farið. A hinn bóginn er tala iðn- og verkmenntaðra manna, svo og menntamanna, e.t.v. raunsærri en vfða annars staðar. Á Austurlandi (Seyðisfirði, Neskaupstað og Eskifirði) eru samsvarandi tölur sem hér segir: Hópur I: 7 fulltrúar Hópur II: 5 fulltrúar Hópur III: 13 fulltrúar Hópur IV: 12 fulltrúar Hópur V: 6 fulltrúar. Hópur VI: 7 fulltrúar Alls 50 fulltrúar Lfklega eru þetta raunhæf- ustu tölur sem við höfum rekist á. U.þ.b. 25% bæjarfulltrúa á Austurlandi eru skrifstofu- og verslunarmenn og tala iðn- og verkmenntaðra manna er mjög hliðstæð. Hins vegar eru verka- menn einungis um 15% kjör- inna fulltrúa og húsfreyjur einnig. Tala menntamanna, þ.e.a.s. 10% er líklega ekki fjarri sanni. Ef við gerum þvi skóna að þessar tölur geti verið einna sanngjarnastar þeirra sem fram hafa komið og berum þær saman við Stór- Reykjavíkursvæðið og e.t.v. einnig Norðurland kemur eftir- farandi f ljós. 1. Verkamenn og sjómenn eru augsýnilega olnbogabörn þessa lýðræðis sem kjör- gengi til bæjarstjórna býður þegnunum. 2. Menntamenn hafa víðast hvar um landið komist til mun meiri áhrifa hvað varðar málefni sveitarfélag- anna en þeim ber skv. höfða- tölu. 3. Sama gildir um fram- kvæmdamenn og atvinnu- rekendur. 4. Húsmæður eru augljóslega Söluhörn vantarí eftir- talin hverfi í Hafnarfirdi: HVERFI 1. MÓABARÐ SVALBARÐ HÁABARÐ M0SBARÐ ÞÚFUBARÐ KELDUHVAMMUR LINDARHVAMMUR SMÁRAHVAMMUR BREKKUHVAMMUR SUÐURGATA HVERFI 2. HÓLABRAUT MELABRAUT ÞVERGATA HVERFI 3. REYNIHVAMMUR LYNGHVAMMUR BIRKIHVAMMUR GARÐSTÍGUR HRINGBRAUT MÝRARGATA OG SUÐURGATA HVERFI 4. STRANDGATA BREKKUGATA SELV0GSGATA H0LTSGATA HEIÐARBRAUT HRINGBRAUT MELH0LT ÖLDUSLÓÐ ÖLDUTÚN HVERFI 6. STRANDGATA FJARÐARGATA GUNNARSSUND AUSTURGATA MJÓSUND LINNETSSTÍGUR Vikan HVERFI13. SUDURVANGUR HJALLABRAUT HVERFI 14. KIRKJUVEGUR HELLISGATA SKÚLASKEID NÖNNUSTÍGUR VESTURBRAUT NORÐURBRAUT GARÐAVEGUR LANGEYRARVEGUR KROSSEYRARVEGUR UPPL. í SÍMA 36720. SÖLUBÖRN VANTAR Í EFT- IRTALIN HVERFI Í KÓPA- V0GI: HVERFI 16. SKJÓLBRAUT MEDALBRAUT Nýkomnir DEMPARAR í miklu úrvali, þar á meðal loftdemparar i ameríska og japanska bíla. Extra HeavyDuty demparar íLandRoverog RangeRoverogfl. fl Póstsendum um allt land HÖGGDEYFIR Dugguvogi 7—Sími 30154 Reykjavík

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.