Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 27. FEBRÚAR 1978. Kjallarinn Lárus Már Björnsson undirmálshópur i þessu til- liti. Heildartölur á landinu öllu eru þessar: Hópur I: 90 fuiltrúar Hópur II: 77 fulltrúar HópurlII: 45 fulltrúar Hópur IV: 74 fulltrúar Hópur V: 20 fulltrúar Hópur VI: 29 fulltrúar Alls 335 fulltrúar Ef við gerum ráð fyrir að hópar III, IV og V, sem alls hafa á að skipa 139 fulltrúum i bæjarstjórnum, séu settir fólki sem oft starfi undir stjórn eða þiggi vinnu af meðlimumhóps I (framkvæmdamönnum, at- vinnurekendum) kemur á dag- inn að á hvern einn yfirmann, eða stjóra, má vænta þess að hitta liðlega 1M almennan starfsmann úr fyrirtækjum landsins i bæjarstjórnunum úti um allt land. Segja má að fyrir- tæki á Islandi megi vissulega vera smá ef þær tölur eiga að geta stemmt við veruleikann, jafnvel þó að allfjarri færi að um réttar ágiskanir væri að ræða. I framhaldi af þessu vakna eðlilega spurningar um að- gerðir til að breyta þessum hlutföllum. E.t.v. þykir ein- hverjum líklegt, að sk. prófkjör stjórnmálaflokkanna muni að nokkru eða öllu leyti leysa þennan vanda. I þvi sambandi er þó rétt að benda á eftirfar- andi: Liklegt er skv. áðurgreind- um tölum að menntamenn, framkvæmdamenn og at- vinnurekendur séu einna virkastir I starfi stjórnmála- flokka og þar af leiðandi einnig líklegastir til að bjóða sig fram 1 sk. prófkjörum (e.t.v. einnig líklegastir til að hljóta kosningu). 2. Verkamenn og sjómenn hafa greinilega skv. ofansögðu mjög óverulega reynslu af starfi I sveitarstjórnum. Má því telja líklegt að þessar stéttir veigri sér við fram- boði til slíkra starfa. 3. Sjómenn hafa sökum af- brigðilegs starfstima minna tækifæri til starfa að opin- berum málum en aðrar stéttir. Sama má að verulegu leyti segja um húsmæður. 4. Verkamenn og að umtals- verðu leyti einnig fólk I hópi III og IV hefur sökum mikils vinnuálags litinn tima aflögu til starfa á opin- berum vettvangi. Ljóst má því vera að hina vægast sagt óeðlilegu stöðu þessara mála, að þvi er varðar fjölmennustu starfs- stéttir landsins, má rekja til víðtækra efnahagslegra og félagslegra ástæðna sem ennþá á árinu 1978 sniða þessum stéttum þrengri stakk en æskilegt væri. En þó að vandamálið eigi sér margþættar orsakir má þó benda á vissar aðgerðir sem gætu verið til þess fallnar að auka möguleika láglaunafólks til opinberra starfa. Meðal annarra má nefna þessar: 1. Hærri þóknun þeim til handa sem taka á sig opin- ber trúnaðarstörf. Þannig mætti skapa láglaunafólki valkost á móti óhjákvæmi- legri eftirvinnu. 2. Breytt viðhorf til þessara starfa á þann hátt að þau verði fremur talin til starfs en tómstundagamans.einsog nú vill brenna við. 3. Breytt skipan á starfi stjórn- málaflokkanna sem væri lík- legri til að hvetja almenning til þátttöku i stjórnmála- starfi. Lárus Már Björnsson, nemi, Gautaborg. Það er algjör óþarfi að láta flugur angra sig í fríinu - heima eða erlendis. Takið Shelltox flugnafæluna með í sólarlandaferð- ina - og losnið þannig við óþægileg kynni af framandi skorkvikindum. Fæst á afgreiðslustöðum Shell. Oliufélagið Skeljungur hf Shell méð / friið „13 Qrgv •• \\ nýjar i oaa Dækur leaa ENDURSKIIMS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ Bókaverzlun Snæbjamar ^HAFNARSTRÆTI 4 OG HAFNARSTRÆTI^ Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með frá 2 upp í 6 tegundir í einu, svo sem kaffi, te, kakó og súpu, og það tekur ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn. Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í handfangið og þá rennur efnið í bollann, síðan seturðu bollann undir kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú ert búinn að hræra í bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk. Þetta er þrifalegt, einfalt og ódýrt, ekkert fer til spillis, enginn uppþvottur, og drykkirnir eru alltaf nýjir og ferskir. Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þær eru jafnvel ekki dýrari en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar, sem óskað er heitra ljúffengra drykkja. Hringið í síma 16463 og fáið sölumann í heimsókn, hann mun gefa ykkur að smakka og allar nánari upplýsingar. £ KOMIST A BRAGÐIÐ OG YKKUR MUN VEL LIKA ■ m m m t* Imdtiif SIMI 16463 HEITIR LJÚFFENGIR DRYKKIR ALLAN SÓLARHRINGINN Styrkið og fegríð líkamann NÝ 4RA VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 1. MARZ. FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi. MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun—mœling—hollráð. SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Innritun og upplýsingar alla virka daga kl. 13-22 ísíma 83295. Sturtur — Ijds — gufuböð — kaffi — nudd. Júdódeild Ármanns Armúla32 MMBIAÐIÐ án ríkisstyrks

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.