Dagblaðið - 27.02.1978, Qupperneq 32
— segir Snorri Jónsson
„Ég vænti þess, að ekki færri
en 40-50 þúsund manns taki
þátt í allsherjarverkfallinu 1.
og 2. marz,“ sagði Snorri Jóns-
son, sem gegnir forsetastarfi í
ASl, í viðtali við DB í morgun.
„Með allsherjarverkfalli
stefnum við að því að stöðva'
sem flest,“ sagði Kristján
Thorlacíus, formaður Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja.
Kristján sagði, að stefnt væri
að stöðvun kennslu í skólum, og
raunar væru allir opinberir
starfsmenn, hvar sem væri,
hvattir til að leggja niður vinnu
til að mótmæla því ófremdar-
ástandi, sem skapazt hefði með
Volkswagen lenti
undirstrætó
Harður árekstur varð
klukkan rétt f.vrir 6 á föstu-
dagskvöld á Stekkjarbakka og
Breiðholtsbraut er Volks-
wagenbifreið lenti undir
vinstra afturhorni strætis- t
vagns. Þrír menn voru í Volks-
wagninum og slösuðust þeir
allir og tveir eru töluvert ?
meiddir. DB-mynd Sveinn
Þormóðsson.
efnahagsráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar. Þó yrðu veittar
undanþágur fyrir heilsu- og
öryggisgæzlu. Gera má yfirleitt
ráð fyrir lokun bensínstöðva,
þar sem afgreiðslumenn eru í
Dagsbrún. Verzlunarmanna-
félag Reykjayíkur hvetur ekki
til verkfalls, svo að búðir verða
líklega opnar, þótt einstaka
verzlunarmenn kunni að fara i
verkfall.
Asmundur Stefánsson, hag-
fræðingur ASl, sagði í morgun,
að við flugið starfaði bæði fólk í
almennum verkalýðsfélögum
og opinberir starfsmenn. Enn
hefði að minnsta kosti ekki
verið gefin nein undanþága
fyrir flugið, svo að búast mætti
við stöðvun þess.
Heppnist allsherjarverkfallið
eins og forsvarsmenn þess
vilja, má búast við stöðvun
framleiðslu á flestum sviðum.
Þó munu sjómenn að líkindum
róa.
HH
Suöumesjamenn stoppa bara 1. marz
hefði náðst um eins dags
stöðvun. Tvímælalaust yrði
mikil þátttaka í henni.
Fiskvinnslumenn ræddu við
Karl Steinar og fleiri verkalýðs-
foringja og bentu á vandræði
sín og báðu um, að hætt yrði við
stöðvun. HH
Verkafólk á Suðurnesjum
leggur bara niður vinnu hinn 1.
marz en ekki báða dagana, að
sögn Karls Steinars Guðna-
sonar, formanns Verkalýðs-
félags Keflavíkur og nágrennis,
í morgun.
Hann sagði, að bezt samstaða
Allsherjarverfcfallið:
„ Vænti ekki minna en 40-50
þúsund manna þátttöku"
Stútaráferð
yfirhelgina
Tuttugu ökumenn voru teknir i
höfuðborginni um helgina
grunaðir um ölvun við akstur.
Samkvæmt upplýsingum Magnús-
ar Magnússonar aðalvarðstjóra er
þetta há tala miðað við það sem
annars gerist.
-A.Bj.
Sjálfstæðismönnum á Suðurlandi tókst ekki að koma saman f rambodslista á kjördæmisráðsfundi
Eyjamenn hótuðu að ganga út ískyndingu
11 manna nefnd, sem kosin var
og tók þegar til starfa á 74 manna
kjördæmisráðsfundi sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi, tókst ekki að
koma saman framboðslista
flokksins til næstu alþingis-
kosninga á ráðsfundinum á laug-
ardag. Árangur nefndarstarfsins
varð hvorki meira né mirína en
þrjár minnihlutatillögur. 1.
tillaga var um Steinþór Gestsson
bónda í 1. sæti, Guðmund
Karlsson framkvæmdastjóra í
Eyjum í 2. sæti, Eggert Haukdal,
bónda í 3. sæti, Siggeir Björnsson
bónda í 4. sæti, Ola Þ. Guðbjarts-
son oddvita á Selfossi í 5. sæti,
Jón Þorgilsson, fulltrúa á Hellu í
6. sæti og Árna Johnsen
blaðamann í 7. sæti.
2. tillaga var um Steinþór í 1.,
Eggert í 2., Guðmund í 3., Siggeir
í 4., Arna í 5., Ola Þ. í 6., og Jón í
7. Tillaga Vestmannaeyinga var
hins vegar í því fólgin að Guð-
mundur yrði í 2. sæti og Árni I 5.,
en önnur röðun mátti nokkurn
veginn liggja milli hluta að því
undanskildu.
Þegar bera átti tillögurnar
undir atkvæði, reis fulltrúi Eyja-
manna úr sæti og sagði að ef
gengið yrði til atkvæða um fyrri
tillögurnar tvær, mundu þeir ekki
taka þátt í þeirri atkvæðagreiðslu
og ganga af fundi. Var þá gripið
til þess ráðs að samþykkja tillögu
Guðlaugs Gíslasonar um að fresta
fundinum strax. Guðlaugur hefur
I áraraðir skipað 2. sætið á listan-
um og Ingólfur Jónsson á Hellu
það fyrsta, en þeir eru nú báðir að
láta af störfum.
Er nú beðið nýrrar málá-
miðlunar, er miði að því að koma i
veg fyrir sprengingu Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi, en eftir
þvi sem blaðið kemst næst hefur
ekki verið ákveðið hvenær fram-
hald fundarins skuli vera.
-HP.
í Súgandafiröi: TVEIR DRENGIR HRÖPUÐU ÚR
KLETTABELH OFAN VIÐ SUÐUREYRI
— 8 ára drengur beið bana
Atta ára gamall drengur,
Egill Traustason, hrapaði til
bana I fjallinu fyrir ofán Suður-
eyri í Súgandafirði siðdegis á
föstudaginn. Leikfélagi hans,
Ingvqr Sigurðsson, 10 ára,
slasaðist alvarlega, en er nú úr
lífshættu og liggur á sjúkrahúsi
í Rejlkjavík.
Driengirnir voru að klifra í
fjallínu sem rís beint upp af
þorþinu og voru komnir I
gilskorning í klettabelti sem er
þar í 300-400 metra hæð. Þá
brast allt I einu snjóhengja og
rann af stað niður hlíðina með
drengina tvo. Munu þeir hafa
runnið að minnsta kosti 150
metra niður. Dreif að börn og
náði tólf ára gamall piltur
félögunum úr snjónum. Var sá
yngri þá látinn en hinn mikið
slasaður, tvílærbrotinn og með
talsverða höfuðáverka. Móðir
þess sá til hvar þeir runnu
niður hliðina.
Þegar var haft samband við
lækni á Isafirði, því læknislaust
er á staðnum, og var hann
kominn til Suðureyrar laust
fyrir kl. 7 um kvöldið. Gerði
hann til bráðabirgða að sárum
Ingvars og var siðan haldið með
jeppa yfir Breiðadalsheiði til
Isafjarðar. Mikill snjór er á
háheiðinni — allt að 4 metra
djúp snjógöng — og varð þvi að
fá jarðýtu til að draga jeppann
yfir á auðan veg ísafjarðar-
megin. Komst læknirinn með
sjúkling sinn á sjúkrahúsið á
tsafirði um miðnættið. Ingvar
litli var síðan fluttur á sjúkra-
hús í Reykjavik á laugardaginn.
-OV/SS, Suðureyri.
Suðureyri við Súgandaf jörð: Drengirnir féllu úr klettabeltinu fyrir
ofan bæinn þegar snjóhengja iosnaði. Ljósm: Mats Wibe Lubd, jr.
frfálst, nháð dagblað
MANUDAGUR 27. FEBRtJAR 1978.
Próf kjör sjálfstæðis-
mannaíKeflavík:
Tómas efstur—
Árni R. féll niður
ífimmta
Tómas Tómasson, sparisjóðs-
stjóri í Keflavík og forseti bæjar-
stjórnar, hlaut flest atkvæði í 1.-4.
sæti i prófkjöri sjálfstæðismanna
i Keflavík vegna bæjarstjórnar-
kosninganna í vor, sem haldið var
núna um helgina. Hlaut hann 379
atkvæði, en næstur kom Ingólfur
Halldórsson aðstoðarskóla-
meistari með 260 atkvæði.
I þriðja sæti varð Ingólfur Fals-
son vigtarmaður með 237 atkvæði
og 1 fjórða sæti Kristinn
Guðmundsson málarameistari
með 226 atkvæði í 1. til 4. sæti.
Þessir þrir fyrsttöldu áttu allir
sæti f bæjarstjórn frá síðustu
kosningum, en Arni R. Arnason,
féll niður í fimmta sæti með 253
atkvæði. Á hæla honumkomu þau
Ingibjörg Hafliðadóttir húsmóðir,
Arni Þór Þorgrímsson flugum-
ferðarstjóri Ingibjörg ELIasdóttir
húsmóðir og Halldór Ibsen fram-
kvæmdastjjóri.
Kosningin er bindandi i þrjú
efstu sætin, en alls greiddu 680
manns atkvæði. Er það töluvert
minna en þátttakan var i sfðustu
bæjarstjórnarkosningum, en þá
fékk Sjálfstæðisflokkurinn um
eitt þúsund atkvæði.
HP
Námsmenn
erlendisfá35
milljóniruppí
gengislækkunina
„Rikisstjórnin hefur veitt 35
milljónir króna til að bæta náms-
mönnum erlendis áhrif gengis-
fellingarinnar — og miðast það
við 1. marz,“ sagði Sigurjón Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri lána-
sjóðs íslenzkra námsmanna í við-
tali við DB.
„Stjórn lánasjóðsins taldi að til
að bæta námsmönnum erlendis
áhrif gengisfellingarinnar þyrfti
50 milljónir króna — sem
miðaðist við 1. febrúar. Stjórnvöld
hafa því komið til móts við sjóð-
inn sem nemur um sagði
Sigurjón ennfremur.
Námsmenn erlendis hafa verið
mjög óánægðir með aðgerðaleysi
eða bið stjórnvalda og sent yfir-
lýsingar þar að lútandi. Þar
kemur fram, að námsmenn telja
að gengislækkun frá áramótum
hafi numið 21%. Þeir hafa látið í
ljósi ótta við að leiðrétting þeim
til handa verði ekki nema hluti
lækkunarinnar — sem raunar
hefur nú komið á daginn.
H.Halis.
Skólarvíða
lokaðirvegna
óveðursins
Það var víðar óveður norðan-
lands en á Siglufirði í morgun,
því snemma tóku að berast til-
kynningar um að felld yrði niður
kennsla vegna veðurs. Grunnskól-
arnir á Dalvík, Hvammstanga,
úlafsfirði og Laugabakka i
Húnavatnssýslu eru þannig ailir
lokaðir i dag.