Dagblaðið - 29.03.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978.
3
Lengi mágottbatna:
VANTAR FLEIRI
SKÍÐALYFTUR
í HLÍÐARFJALLIÐ
og snyrtilegt skot fyrir krakkana að narta f nestið sitt
Ólafur skrifar:
Einhver bezta aðstaða sem gefst hér
á landi til skíðaiðkunar er i Hlíðarfjalli
nálægt þeim ágæta kaupstað,
Akureyri.
Á fimmtudaginn var, skirdag, var
gaman að virða fyrir sér þær fjórar
troðnu skíðabrautir, sem snjó-
troðarinn — mesta þarfaþing — hafði
gert fyrir hina almennu og varkárari
skíðaunnendur að ógleymdum
brautunum enn ofar í fjallinu þar sem
hinir útlærðu i iþróttinni — frá
fjögurra ára til fimmtugs — léku listir
sinar.
Aðeins eitt skyggði á ánægjuna.
Reyndar ánægjulegt í sjálfu sér.
Akureyringar og aðrir/ sem í
„Fjallið fara” eru orðnir of margir.
Skíðalyftur og togbrautir i Hlíðarfjalli
bera ekki þann fjölda, sem vill nota.
þær.
Þess vegna skora ég á bæjaryfirvöld
á Akureyri að ráða á þessu bót hið
fyrsta.
Hver lyfta og hver króna sem lögð
verður til bættrar aðstöðu i Hlíðar-
fjalli skilar sér margfalt aftur í bættum
afköstum bæjarbúa og þar með meiri
tekjum og hærri útsvörum.
Utanbæjarfólkið mundi þá auðvitað
fljóta með Akureyri til ánægju og
sóma.
Að lokum, þegar aðstaðan fyrir
yngstu gestina á skíðahótelinu batnar
og þeim gefst tækifæri til að borða
nestið sitt við sómasamlegar aðstæður
verður á fátt betra kosið sem i
mannlegu valdi er. Um veðrið og
snjóinn sjá máttarvöldin og í þeim efn-
um vonum við aðeins það bezta.
Iþað
minnsta
grapejellý
í Sölu-
nefndinni
Jónas hringdi:
Ég hef fylgzt af áhuga með skrifum
Péturssonar um Mint jellý, sem hon-
um þykir betra en flest annað. Péturs-
son mun ekki hafa fengið lostætið hér-
lendis en Mint jellýið kætir þó
bragðlauka hans um þessar mundir
vegna góðra sambanda hans við
Bandariki Norður-Ameriku.
En fleiri jellý eru góð en Mint jellý.
Mikið lostæti er einnig grape jellý og
gleður margan matmanninn. Vera má
að grape jellýið fáist hér í matvöru-
verzlunum, en hitt veit ég, aðdáendum
grape jellýs til mikillar gleði, að það
fæst hérlendis.
Og enn blandast Bandariki Norður-
Ameríku inn í spilið. Grape jellý fæst
nefnilega hjá verndurum okkar hér-
lendis, í Sölunefndinni. Og ekki nóg
með það, jellýið er ódýrt.
Ekki er vitað hvort birgðir eru
miklar, en matmenn ættu að hafa
hraðan á. Grape jellýið svíkur engan.
Chevrolet Nova CustomTS
Þinn bíll 15. apríl n.k.,
- sértq Kinn heppni áskrifandi Dagblaðsins.
Verðmæti er 4.4 miljónir króna.
Gerstu áskrifandi að Dagblaðinu strax í dag.
Áskriftarsfmi 27022. Opiö til 10 f kvöld.
Spurning
dagsins
Hvernig finnst þér
Þrengslavegurinn?
(Spurt um borö I Herjólfi I Þorlákshöfn)
Jón Eyjólfsson skipstjóri: Hann er alltaf
eins, ófær. Það má undarlegt heita að
ekki skuli vera búið að malbika hann
fyrr því umferðin er mjög mikil. Þetta er
eins og á tunglinu. Að visu hef ég ekki
komið þangað en myndir benda til að
þar séu eintómir gigar og þannig er
vegurinn.
Sigmar Pálmason vörubilstjóri: Hann er
alveg rosalegur, alveg agalegur. Hann
hefur verið það i allan vetur. Ef ég er að
fiytja búslóð tekur það mig um þrjá tima
ef allt á ekki að eyðileggjast á leiðinni.
Sigmar Sveinbjörnsson 2. stýrímaður:
Hann er hryllilegur. Þetta er versti
vegur sem ég hef nokkru sinni keyrt.
Hann á skilyrðislaust að malbika.
Hann er hörmulega leiðinlegur. Ég fer
hann helzt aldrei nema i neyð. Bezt væri
að setja á hann varnalegt slitlag.
Jóhannesson Jónssen poppari: Eg keyrði
austur fyrir núna en ég fór Þrengslin
fyrir hálfum mánuði og það var allt í lagi
með veginn. Ferðin gekk alveg ágæt-
lega.
Hjörleifur Gislason bryggjuvörður:
Hann er mjög siæmur. Það hefur ekkert
verið gert fyrir hann í langan tíma. Helzt
þyrfti að malbika veginn.