Dagblaðið - 29.03.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978.
5
SÖKNUÐUR
— í minningu söngvara
Mérfihnst ég varla heill
né hálfur madur
og heldur ósjálfbjarga
því er ver
Ef værir þú hjá mér,
vild'égglaður
verða betri en ég er.
Svo kvað Vilhjálmur Vilhjálmsson
um vin sinn og starfsfélaga, Jón Heið-
berg flugmann, sem fórst í þyrluslysi
fyrir tæpu ári. Þessar Ijóðlinur rifjuð-
ust óhjákvæmilega upp þegar lát
Vilhjálms í Lusemburg spurðist
hingað heim.
Vegna kunnugleika síns i Luxem-
burg var Vilhjálmur fenginn til að lið-
sinna íslenzkum ferðahópi sem þurfti
að hafa viðkomu þar á leið sinni frá
ísrael um siðustu helgi. Undanfarna
mánuði hafði hann unnið á vegum
Arnarflugs i Afríku sem aðstoðar-
flugmaður. Aðeins þrír mánuðir voru
þangað til hann átti að fá starfið, sem
hann hafði lengi dreymt um, flug-
stjórastöðu. Annað viðfangsefni beið
hans einnig: að syngja vinsælustu
lögin sín inn á hljómplötu, — lög sem
öll þjóðin þekkir og hefur raulað með
við ólíkustu tækifæri. En þá var tekið í
taumana.
Söngferill Vilhjálms Vilhjálmssonar
hófst á menntaskólaárum hans á
Akureyri. Siðar gekk hann til liðs við
Ingimar Eydal og söng nokkur lög inn
á hljómplötur með hljómsveit hans.
Sem dæmi um vinsæl lög með Vil-
hjálmi og Hljómsveit Ingimars Eydal
má nefna Litla sæta Ijúfan góða og
Vor í Vaglaskógi. Textann við hið
siðarnefnda gerði Kristján skáld frá
Djúpalæk. Síðar söng Vilhjálmur inn
á heila plötu lög við texta Kristjáns.
Að loknu stúdentsprófi frá MA
kenndi Vilhjálmur einn vetur á Akur-
eyri og einnig stundaði hann blaða-
mennsku um tima. En loks lá leiðin
suður og i Háskólann. Þar nam hann
læknisfræði í tvo vetur, en leizt ekki
á fagið. Jafnframt söng Vilhjálmur
með hljómsveit Magnúsar Ingimars-
sonar og síðar með Haukum og hljóm-
sveit' Ólafs Gauks. Þar með lauk
hljómsveitarferlinum en frá árinu
1969 er hann söng með Ólafi Gauki á
Hótel Borg komu út með honum all-
margar plötur. Á sumum söng hann
einn, á öðrum með Ellý systur sinni.
Að aðalstarfi var Vilhjálmur Vil-
hjálmsson þó flugmaður. Hann vann
um margra ára skeið sem flugmaður i
Luxemburg og eignaðist þar marga
vini. Radio Luxemburg minntist hans
i gærmorgun, daginn eftir umferðar-
slysið. — Eftir að heim kom starfaði
hann hjá Flugleigu Sverris Þórodds-
sonar, Flugskóla Helga Jónssonar og
siðast hjá Arnarflugi. — Þá var Vil-
hjálmur meðeigandi i Hljómplötuút-
gáfunni hf. og virkur stjórnarmaður
þar.
Við kynntumst Vilhjálmi fyrst og
fremst sem söngvara. Ekki þarf að
tiunda hæfileika hans á þvi sviði. —
þjóðin öll þekkir rödd hans. En hann
var mikið meira en röddin, — vinur
vina sinna og skilningsríkur með af
brigðum. Kímnigáfu átti hann einnig i
rikum mæli og var allra manna kát-
astur i gleðistúndum. Þar sat bó ekki
gáloahúmorinn i fyrirrúmi, heldur
nett kimni og græskulaus. Við sem
viljum telja okkur til vina Vilhjálms
Vilhjálmssonar minnumst hans með
trega og söknuði.
Ein sinn verða allir menn
að deyja
ejiir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma,það. en sanu ég verð
að segja
að sumarið liðurallt oj fljótl.
Dagblaðið sendir eiginkonu
Vilhjálms, Þóru Guðmundsdóttur.
börnum hans, foreldrununt i Merki
nesi og ættingjum öllum innilegar
samúðarkveðjur.
ÁT—HP—ÓV.
AðalfundurVerzlunarbankans:
Vaxtaaukinn
blífur
Innlán í Verzlunarbankanum jukust í
fyrra meira en við var búizt eða um
rúman milljarð í fyrsta skipti. Aukning-
in varð 33,6 af hundraði og langmest i
vaxtaaukainnlánunum, tæplega 79 af
hundraði.
Vaxtaaukainnlánin voru um ára-
mótin 15,6 af hundraði af öllum spari-
innlánunum.
Útlánin jukust hins vegar aðeins um
23,3 af hundraði, sem varð þó heldur
meira en samkomulag við Seðlabank-
ann gerði ráð fyrir. Útlán með vaxta-
auka jukust mikið, úr 5 prósentum af
öllum útlánum upp í 11,9 prósent.
Innstæður Verzlunarbankans í Seðla-
bankanum námu um áramótin 1093
milljónum. Þar af var bundin innstæða
um 925 milljónir. 1 heild batnaði staða
bankans gagnvart Seðlabankanum um
rúmar436milljónir.
Verzlunarlánasjóður vinnur að lang-
mestu leyti með lánsfé, aðallega frá
Lifeyrissjóði verzlunarmanna, sem
lagði í sjóðinn 150 milljónir á síðasta ári.
Útlán sjóðsins námu i árslok um 597
milljónum og höfðu aukizt á árinu um
45,8 af hundraði.
Aðalfundur bankans samþykkti að
tvöfalda hlutafé hans með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, þannig að það ykist
úr 100 milljónum i 200 milljónir. Einnig
samþykkli fundurinn aukningu hluta-
fjár i 500 milljónir með innborgunum á
árunum 1979-1981, 100 milljónir hvert
árið.
Þorvaldur Guðmundsson forstjóri,
sem átt hefur sæti i stjórn bankans frá
upphafi og gegnt þar formennsku um
árabil, gaf ekki kost á sér til endurkjörs
sem formaðuren situr áfram i bankaráð-
inu.Pétur O. Nikulásson stórkaupmaður
var kjörinn formaður bankaráðsins.
Hluthöfunum verður greiddur 13%
arður.
HH
Utvegsbankinn opnar á Nesinu
„Seltjarnarneskaupstaður hefur
stækkað mjög mikið siöustu árin og var
orðin brýn nauðsyn á að bankaútibú
yrði stofnsett þar," segir i tilkynningu
fá Útvegsbankanum en bankinn hefur
nú opnað útibú við Nesveg á Seltjarnar-
nesi.
Verður þar veitt öll innlend banka-
þjónusta, auk þess sem það verður
keyptur og seldur erlendur gjaldeyrir,
veitt viðtaka inn- og útflutningsskjölum
og bankaábyrgðir opnaðar.
Við útibúið starfa fjórir starfsmenn en
útibússtjóri verður Hilmar Gunnarsson,
sem áður gegndi starfi féhirðis við
Útvegsbankann i Kópavogi og er
myndin af honum.
DB-mynd Hörður
v Mjallofiskur Morkið s«m vann haröfisknum nafn Mir Fœithjá: KJOTBUÐIN BORG
ÆBrltmt rgjjljtffi Laugavegi.
^ •ÆTT'- Hjallur hf. - Sölusímí 23472
Þorvaldur Guðmundsson 1 Síld og Fisk, fráfarandi formaður Verzlunarbankans, og hinn nýkjörni formaður, Pétur O.
Nikulásson stórkaupmaður.
Öskum eftir fólki í eftirtalin störf:
Deildarstjóra í ýmsar greinar sérvara.
Afgreiðslustörf í matvörubúðum.
Skrifstofustörf, bókhald, tollskjöl,
verðútreikningar.
Upplýsingará skrifstofu KRON, Laugavegi 91r kl. 10-12
næstu daga ekki í sfma.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis