Dagblaðið - 29.03.1978, Side 7

Dagblaðið - 29.03.1978, Side 7
7 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. Erlendar fréttir REUTER Naritaf lugvöllur í Japan: Mólótoff- kokteil- um kastað á nýtt hótel Japanskir andófsmenn gegn nýja flug- vellinum við Narita réðust snemma i morgun á hótel eitt sem þjóna á flug- vellinum og köstuðu bensínsprengjum inn um glugga sem þeir höfðu brotið. Lögreglan í Japan hefur látið eftir sér hafa aðalls hafi hermdarverkamennirnir kastað 20 sprengjum inn í anddyri hótelsins. Aðeins 20 menn voru staddir á hótélinu þvi það átti ekki að opna fyrr en 1. apríl. Þessir 20 menn sáu um að slökkva eldinn áður en hann olli verulegum skemmdum. Skæruliðarnir sem lögreglan telur mjög öfgafulla sluppu úr höndum hennareftirárásina. Japönsk yfirvöld hafa ákveðið að fresta opnun flugvallarins þar til í maí er betri öryggisráðstafanir verða komnar upp. Turináítalíu: Leiðtogar Rauðu her- deildanna fyrir rétt Reyntíþriðja sinnað koma lögumyfir skæruliðana Enn spyrst ekki til Aldo Moros Leiðtogar Rauðu herdeildanna á Ítalíu koma aftur fyrir rétt í Turin í dag eftir hlé sem gert var á réttar- höldunum vegna páskahátíðarinnar. Á meðan leiðtogar herdeildanna koma fyrir rétt leiða félagar þeirra Aldo Moro fv. forsætisráðherra Italíu fyrir svokallaðan alþýðudómstól, þar sem hann hefur verið „pólitískur guðfaðir” á Ítalíu undanfarin þrjátíu ár. Þá ákæra Rauðu herdeildirnar Moro einnig fyrir „glæpi gegn öreigunum”. AÍmennt var talið að Aldo Moro, sem nú er 61 árs gamall, yrði næsti forseti Ítalíu, áður en honum var rænt í blóðugri árás fyrir 13 dögum, þar sem fimm lífverðir hans létu lífið. Tuttugu og fimm þúsund lögreglu- mönnum og hundruðum hermanna héfur ekki tekizt að hafa upp á dvalar- stað mannræningjanna, þrátt fyrir geysimikla leit. Guido Barbaro á í vændum mikla erfiðleika á lagasviðinu, er þriðja tilraun til þess að koma lögum yfir leiðtoga Rauðu herdeildanna hefst í dag. Rétturinn hefur neitað kröfu skæruliðanna um að fá að verja sig sjálfir, en lögfræðingar sak- borninganna áttu fund með sér í gær- kvöldi til þess að ákveða hvort þeir ættu að neita að verja skæruliðana og þvinga dómarann þannig til þess að velja nýja lögfræðinga til varnar. Slikt myndi tefja réttarhöldin verulega. Curcio, hugmyndafræðilegur leiðtogi skæruliðahópsins, sem er 37 ára að aldri, á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsisvist ásamt með félögum sinum verði hann sekur fundinn. Leiðtogarnir eru ákærðir fyrir að mynda vopnaðan hóp til þess að kollvarpa núverandi þjóðskipulagi. Skæruliðarnir eru járnaðir í sérstöku búri i réttarsalnum og fyrir páska hrópuðu þeir i réttarsalnum að réttar- höldin væru skrípaleikur og að Moro kæmi fyrir alþýðudómstól. Þúsundir lögreglumanna eru á verði í Turin vegna réttarhaldanna og dómarar og kviðdómendur njóta sérstakrar öryggisgæzlu. Þá njóta leiðtogar Sósíalistaflokksins einnig sér- stakrar öryggisgæzlu en fimm daga þing flokksins hefst i Turin i dag. Hin mikla gæzla lögreglunnar leiddi til þess að þessir páskar voru hinir rólegustu á Ítalíu i meira en áratug. Ræningjar og þjófar néldu sig heima vegna viðbúnaðar lögreglunnar. Renato Curcio hugmyndafrxðilegur leiðtogi Rauðu herdeildanna og Paolo Ferrari félagi hans þar sem þeir dveljast í búri í réttarsalnum í Turin. Félagar þeirra halda Aldo Moro fv. forsætisráðherra Ítalíu enn, eftir mannrán fyrir 13 dögum. Kenýa: Muhammed Ali leikur þræl í kvikmynd — taka myndarinnar hefst í haust Muhammed Ali fv. heimsmeistari i hnefaleikum í þungavigt skrifaði undir samning i Kenýa i gær um kvikmynda- leik. Meistarinn mun leika þræl i kvik- mynd i fullri lengd, að þvi er fregnir herma. Tvö kvikmyndafyrirtæki, White Bird Productions í New York og Equator Productions í Kenya, ætla að framleiða myndina, Jean Lafitte Brown, þar sem Ali leikur aðalhlutverkið. Taka myndarinnar hefst i október og tekur u.þ.b. níu vikur. Búizt er við þvi að Ali fari til Kenýa einhvern tima á næstunni til að kynna sér aðstæður. Myndin á að gerast árið 1790 og er um fátækan en velmenntaðan frum- byggja, sem fer frá Ameriku til þess að snúa aftur til ættlands síns i Afriku. Hann finnur fæðingarstað sinn og for- eldra. En þrælasalar ná honum aftur og setja hann um borð til Ameríku á nýjan leik. En þar nær Jean Lafitte Brown völdum og leiðir aðra þræla til frelsis. THE BEATLES SAMAN Á NÝ — væntanlega í Los Angeles í maí Samkvæmt símskevti sem barst i gær frá fréttaritara DB í San Francisco, Hallgrimi Björgúlfssyni, eru taldar allmiklar líkur á þvi að hinir einu og sönnu Bitlar, The Beatks komi saman i maí. Að því er skeyti Hallgríms greinir hafa allir að frátöldum John Lennon samþykkt að halda hljómleika í Los Angeles i mai. Nú er því aðeins að bíða og vona. Bandaríkin: Vinna i kolanámum i eðhlegt Leiðtogar kolanámumanna i Banda rikjunum hafa hvatt alla kolanámu menn til þess að hefja störf aö nýju. þannig að full framleiðsla geti hafizt eftir verkfallið sem staðið hefur i þrjá mánuði. Flestir hinna 160 þúsund verka- manna sneru aftur til vinnu i gær eftir að hafa samþykkt nýjan samning við félag kolanámumanna. En u.þ.b. 19 þúsund manns var horf haldið frá vinnu af félagi námubyggingarmanna. sem einnig voru i verkfalli. Þessir byggingarmenn gera námugöng o. 11. Þeir náðu hins vegar samkomulagi við námueigendur i gær- kvöld og fjarlægðu þeir þá hindranir sem þcir höl'ðu sett fyrir aðra námuverka- menn. Félag kolanámumanna tilkynnti þvi í gærkvöldi að vinna gæti hafizt með eðlilegum hætti t öllum námum i dag.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.