Dagblaðið - 01.04.1978, Side 15
ÐAGBJ
Þursar á opin-
berum vettvangi
Þursaflokkurinn mun skemmta
gestum veitingahússins Klúbbsins
annað kvöld. Mikill áhugi er hjá
tónlistarunnendum að sj:.’ og heyra
í Þursunum, en þar eð þeir hafa
litið leikið opinberlega hafa
tiltölulega fáir fengið að njóta
tónlistar þeirra, aðrir en nemendur
framhaldsskólanna.
Óðum styttist nú tíminn þar til
Þursaflokkurinn verður sleginn af.
Að sögn Egils Ólafssonar söngvara
flokksins langar þá þótil að leika á
nokkrum stöðum úti á landi áður
en af þvi verður. Hafa Vestmanna-
eyjar og Akranes verið nefnd sem
liklegir hljómleikastaðir.
Auk Þursaflokksins leikur
hljómsveitin Poker í Klúbbnum
annað kvöld samkvæmt venju. Þá
verður þar einnig boðið upp á
tízkusýningu. -ÁT-
Þó svo að Fjörefni haldi sig meir við
stúdíóvinnu heldur en almennt
tónleikahald, eru uppi ráðagerðir um
að koma fyrir almenningssjónir
einhvem tima á næstunni og kynna
nýju plötuna. Enn hefur þó ekkert
verið ákveðið í þeim efnum.
Upptökumaður plötunnar sem er
tekin upp í Hljóðrita er James Kay
sem tiltölulega nýkominn er til starfa i
Hljóðrita. Upptökunum er stjórnað af
Þórði Árnasyni sem einnig sér um
allan gitarleik á plötunni. Aðrir
meðlimirFjörefnisá þessari plötu eru:
Kristján Guðmundsson hljómborð,
Ásgeir Óskarsson trommur og Jóhann
Þórisson sér um bassaleik. Jón Þór
Gíslason og Páll Pálsson sjá svo um
söng eins og á A + . Auk þess munu
einhverjir aðrir aðstoða þá með auka-
hljóðfæri og annað. sem
upptökustjóra þykir henta. ÆRK.
Fjörefnismeðlimir að loknum fyrsta vinnudeginum i Hljóðrita. 1 stólnum
situr höfundur fréttarinnar, Ævar Rafn Kjartansson frá Vestmanna-
eyjum, sem um þessar mundir er i starfskynningu hjá Dagblaðinu. DB-
mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Fleetwood Mac til Sovétríkjanna?
Jkur eru á því að Fleetwood Mac
;i á þrennum tónleikum i Sovétríkj-
jm á sumri komanda. Allur ágóði
þessu tónleikahaldi svo og sjón-
pskvikmynd sem tekin verður í
5inni rennur til UNESCO, Menn-
ar- og fræðslustofnunar Sameinuðu
ðanna.
cf af ferð Fleetwood Mac til Sovét-
ianna verður mun hljómsveitin ein-
tgu leika í höfuðborg landsins,
tskvu. — Hugmyndin er runnin
lan rifjum lögfræðilegs ráðgjafa
hljómsveitarinnar, Michael Shapiro.
Hann nefndi möguleikann á að
komast austur fyrir járntjald við þá
Mick Fleetwood og John McVie i júni
á siðasta ári.
„Þeim tveimur leizt vel á hugmynd
mina og hvöttu mig til að kanna málið
betur," sagði Shapiro. „Sovézka sendi-
ráðið í Washington er mjög jákvætt,
svo og bandaríska utanrikisráðuneyt-
ið.”
Fulltrúar frá báðum þessum stofn-
unum hafa siðan heilsað upp á með-
limi Fleetwood Mac og er hljómsveitin
lék á hljómleikum i Washington DC á
síðasta ári voru þeir viðstaddir. Síðar
var Alexi Ustin fulltrúa sovézka
hljómleikasambandsins send sjón-
varpskvikmynd með leik Fleetwood
Mac. Hann varð mjög hrifinn.
„Álit Ustins hafði úrslitaáhrifin,”
sagði Shapiro. „Hann hafði aðeins við
eittaðathuga, — aðJohn McViespil-
aði ber að ofan, enda voru hljómleik-
arnir haldnir utan dyra að sumarlagi.
Hins vegar tjáði Alexi Ustin okkur
nokkrum sinnum að honum litist vel á
Stevie Nicks."
Shapiro skrapp til Sovétríkjanna í
byrjun þessa árs og kom til baka með
opinbera staðfestingu þess efnis að
Fleetwood Mac væri velkomið að
halda þrenna hljómleika i Rossia
hljómleikahöllinni í Moskvu —
dagana 8., 9. og 10. júli. Höll þessi
þykir sérlega vel úr garði gerð og
hljómburður góður. Hún tekur þrjú
þúsund manns i sæti.
„Á þessari stundu yrðu mér það
mikil vonbrigði. ef hætt yrði við allt
saman," sagði Michael Shapiro. „Að
sjálfsögðu þarf ekki mikið að gerast til
að allt fari úr böndunum og að sjálf-
sögðu veltur allt fyrst og fremst á
heimsfriðnum. En nú er rétti tíminn
til að gera hlut sem þennan. Fleet-
wood Mac er einnig að minum dómi
heppileg hljómsveit til að heimsækja
Sovétrikin. Hún er bæði brezk og
bandarísk og meðlimir hennar eru af
báðum kynjum."
ÚrROI.t INGSTONE
iAGUR 1. APRÍL 1978.
Linda Ronstadt, Dolly Parton og Emmylou Harris saman í stúdíói:
Leyndardómsfull
plata i sitirðum
Hvernig skyldi útkoman verða
ef David Bowie, Jon Anderson og
Paul McCartney tækju sig saman
og syngju inn á svo sem eina stóra
plötu? Nú eða þær Linda Ron-
stadt, Dolly Parton og Emmylou
Harris? Yrði það ekki áreiðanlega
dúndurplata?
Svarið fæst áður en langt um
líður, því að Linda, Dolly og
Emmylou eru einmitt þessa dag-
ana að syngja saman inn á plötu.
Hún kemur líklega á markaöinn
snemma í sumar, en þó er ekki vert
að fullyrða neitt, því að ákaflega
mikil leynd hvílir yfir verkinu öllu.
Það sem þegar er vitað um plötu
söngkvennanna þriggja er að þær
komu i upphafi saman á heimiii
Dolly Parton i Nashville 16. janú-
ar síðastliðinn dg réðu ráðum sín-
um. Hverjar niðurstöður þess
fundar eru er litt vitað um, nema
að upptökur hófust nokkru siðar í
Enactron Truok Studio i Los
Angeles og eiginmaður Emmylou
Harris, Brian Ahern, var upptöku-
stjóri.
Það er Asylum hljómplötufyrir-
tækið, sem gefur plötu þessa út.
Forseti fyrirtækisins, Joe Smith,
vélritaði samninginn við söngkon-
urnar þrjár sjálfur með sleikiputt-
unum, til að ekkert vitnaðist um
efni hans. Þeir fáu hjá Asylum
sem eitthvað vita um plötuna hafa
Aö sjálfsögðu eru mynda-
tökur stranglega bannaðar
af söngkonunum þremur
á meðan upptökur plötu
þeirra fara fram. Þessi
verður því að nægja að
sinni. Höfuðið er af Lindu
Ronstadt, líkamann á
Dolly Parton og striga-
skórnir eru úr skóskáp
Emmylou Harris.
verið látnir sverja þagnareið. Sama
er að segja um hljóðfæraleikarana,
sem leika undir hjá söngkonunum
þremur. Þegar Jerry Brown ríkis-
stjóri Kaliforníu heimsótti stúdíóið
fyrir nokkru, sá hann að vopnaðir
verðir voru á við og dreif i kring,
svo að engir óviðkomandi styngju
neftnu inn.
En þrátt fyrir þessa gífurlegu
leynd hefur það samt lekið út að á
plötunni verða tólf lög, þar af
nokkufeftir Dolly Parton. Hljóð-
færaleikarar úr hljómsveitum
Emmylou Harris og Lindu Ron-
stadt sjá um undirleik. Engin söng-
kvennanna þriggja fer með eigin-
legt sólóhlutverk á plötunni,
heldur skipta þær söngnum
bróðurlega — eða eigum við að
segja systurlega — á milli sín.
Með allar framangreindar upp-
lýsingar fyrir framan sig settist
blaðamaður Rolling Stone tíma-
ritsins við simann og hugðist fylla
upp í myndina. Eftir 27 símtöl út
um hvippinn og hvappinn gafst
hann upp, þvi að enginn gat upp-
lýst um neitt. Blaðafulltrúi Lindu
Ronstadt svaraði aðeins, þegar
spyrja átti hann út úr:
„Þið vitið meira en ég. Stelpurn-
ar þrjá ákváðu, að ekkert skyldi
fréttast um plötuna fyrr cn hún
kæmi út.” — Og þar við situr.
Úr ROLLING STONE
Fjörí Hljóðrita þessa dagana:
Fjörefni er byrjaö
á nýrri hljómplötu
Hljómsveitin Fjörefni byrjaði í
morgun á upptökum fyrir nýja
breiðskifu. Að sögn útgefanda, Steina
h/f, verður útgáfu plötunnar flýtt eins
og mögulegt er og má búast við henni
á markaðinn um mánaðamótin
apríl/mai. Platan verður í allt öðrum
stíl en sú fyrri og ætla Fjörefnismenn
svo sannarlega að standa undir
nafninu i þetta sinn. Fyrri platan, A +
stóð engan veginn undir sér. fjárhags-
lega séð. þar sem má segja að hún hafi
svo til drukknað í jólahljómplötu-
flóðinu.
Tvö frumsamin lög — samin af Jóni
Þór Gislasyni og Páli Pálssyni, verða á
plötunni, auk nokkurra erlendra laga
sem ekki er búið að ákveða öll ennþá.
Öll lögin verða með islenzkum text-
um.