Dagblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978. Auglýsing um almennar reglulegar kosningar til Alþingis 25. júní 1978. Samkvæmt 57. gr. laga nr. 52 14. ágúst 1959 um kosningar til Alþingis skulu almennar' reglulegar kosningar til Alþingis fara fram 25.' júní 1978. Samkvæmt 1. málsgr. 19. gr. kosningalaganna skulu sveitarstjórnir hafa lagt kjörskrár fram eigi síðar en 25. apríl næstkomandi, og skulu kjörskrár liggja frammi til 23. maí næstkom- andi. Með heimild í 2. málsgr. 19. gr. laganna er hér með ákveðið að niður skuli falla frestur sá, sem þar er settur, til að auglýsa hvar kjörskrár við alþingiskosningarnar verði lagðar fram. Þetta birtist hér með til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. D6ms- og kirkjumálaráðuneytið, 22. apríl 1978. Hjallafískur Mvrkið s«m vann harðflsknum nafn Farst hjd: Víðir Austurstrœti Hjallur hf. - Sölusími 23472 Bifreiðastillingin Smiðjuvegi 38 Kópavogi. Sími 76400. Nú stendur yfir hin árlega bif- reiðaskoðun. Við búum bifreið- ina undir skoðun, önnumst líka allar aðrar viðgerðir. Björt og rúmgóð húsakynni, fljót og góð afgreiðsla. Bifreiðastillingin Smiðjuvegi 38 Kópavogi. Sími 76400. NVJIING Á ISLANDI Hrcinsum teppi og húsgögn meS nýrri tœkni sem fer sigurför um alfan heim Nýja vélin þrýstír losandi hreinsiefni djúpt niður í teppiS. Við þaS losnar um óhreinindi og sápu- leifar í botninum og þau koma upp á yfírborSið. Nuddar varlega hvern þráS í teppinu og lasar um föst óhreinindi og bletti. Sogar um leið öll blaut óhreinindi burt. Skilar teppunum eins og nýjum. Upplýsingar og pantanir Í síma 26924 Teppa- og húsgagnahreinsunin Reykjavík Skátum bannað að hafa loftriffla í tfvolfínu í Austurstræ ti: SK0TV0PN SAM- KVÆMT LÖGUM Margir ráku upp stór augu i miðbæn- um i Reykjavik i fyrradag þegar þeir hugðust skjóta af loftrifflum sér til ánægju. Við tjaldið, þar sem þeir voru kirfilega festir i keðjum, stóð: Fékkst ekki leyft. Þeir sem vanir eru útlendum tivolíum og jafnvel bara okkar gamla tívolíi urðu mjög hissa þar sem loftrifflar þykja jafnan sjálfsagðir við svona tæki- færi. Skátarnir sem stóðu fyrir hátiðinni sögðu að ástæðan til þess að mönnum var ekki leyft að reyna hæfni sina á þess- um tólum væri sú að enginn opinber aðili hefði fengizt til þess að gefa leyfi til FYRSTA ALVAR- LEGA SVIF- DREKA- SLYSIÐ Fyrsta slysið sem orðið hefur á svifdreka hér á landi varð í austurhliðum Þorbjarnarfjalls við Grindavík sl. sunnudag. Þar var tvítugur skólanemi frá Reflavik, Haukur Sigurösson að nafni, i svifi. Hafði hann svifið langar leiðir meðfram fjallinu og hugðist lenda. Heiftarlegur sviptivindur kom á svifdreka hans er hann var i 7—10 metra hæð og stakkst flugdrekinn harkalega til jarðar. Nef svifdrekans mun fyrst hafa snert jörðu og tekið mesta höggið af Hauki. Við höggið brotnaði þrihyrningurinn, sem „flugmaðurinn” hangir á. Þá brotnaði Haukur illa á hægri handlegg rétt ofan úlnliðs. Haúkur stakkst svo áfram og við það nefbrotnaði hann, hlaut skurð á höku og skrámaðist í andliti. Hann missti meðvitund stutta stund en var siðan fluttur í sjúkrahúsið í Keflavík- til aðgerðar með aðstoð lögreglunnar í Grindavík. Komið hefur fram gagnrýni á svifflug i dreka þennan umrædda dag, þvi veðuraðstæður hafi verið afar viðsjár- verðar við Þorbjörn, m.a. hafi ökumenn orðið að sýna mjög mikla aðgát vegna sviptivinda. Haukur Sigurðsson var nýlega byrjaður svifflug I svifdreka. -ASt. ' Flugdrekinn skall harkalega niður neðarlega i fjallshiíöinni. sp-----------> notkunar á þessum „skotvopnum”, jafn- vel þó allir væru sammála um að eins og skátarnir gengu frá rifflunum gæti engin hætta stafað af þeim. En í nýju lögunum.sem tóku gildi í fyrra, er það skýrt tekið fram að „Með skotvopni er i lögum þessum átt við vopn eða tæki sem hægt er með sprengi- ■ krafti, samanþjöppuðu lofti (feitt letur blm.) eða á annan þvílikan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum (feitt leturblm.).” Lögreglustjóri veitir siðan það sem kallað er byssuleyfi fyrir skotvopnum. Geta menn fengið þetta byssuleyfi séu þeir 20 ára eða eldri, hafi óflekkað mannorð og nægilegan andlegan þroska ásamt kunnáttu til þess að fara með vopnin. Dómsmálaráðherra getur þó veitt undanþágu frá þessu ákvæði. Getur hann einnig ákveðið nánar hvaða efni og tæki skuli teljast skotvopn og skotfæri. Baldur Möller ráðuneytisstjóri í dóms- málaráðuneytinu sagði að ástæðan til þess að dómsmálaráðherra veitti ekki undanþáguna væri sú að þá myndu fleiri aöilar vilja fá slika undantekningu líka og ómögulegt væri að fylgjast með því að fyllsta öryggis væri þá gætt. - DS .... '***«* %■' ■ Skagfirzka söngsveitin: SEX EINSÖNGVARAR Á TÓNLEIKUM í DAG Sex einsöngvarar taka þátt í flutningi Skagfirzku söngsveitarinnar á kantötunni Oliveti Calvari eftir J. H. Maunder, sem flutt verður tvivegis í kirkju Fíladelfíu um helgina. Þessir sex eru Margrét Matthías- dóttir, Rut L. Magnússon, Friðbjörn G. Jónsson, Halldór Vilhelmsson, Hjálmar Kjartansson og Hjálmtýr Hjálmtýsson. Stjórnandi er Snæbjörg Snæbjarnar- dóttir, eins og í öll þau átta ár sem Skagfirzka söngsveitin hefur starfað. Organleikari er Árni Arinbjarnar. Fyrri söngskemmtun söngsveit- arinnar verður laugardag 22. aprilkl. 17 og hin síðari mánudag kl. 21. Aðgöngumiðar fást hjá Eymundsson. ÓV/DB-mynd HV.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.