Dagblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 23
23
Sjónvarp
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978.
Utvarp
Sjónvarp annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30: Á vorkvöldi
„MÁ ÉG TJALDA í
GARÐINUM ÞÍNUM?”
Magnús Eiríksson sem leiðbeinir hér s.vni sinum, Stefáni, við pianóleik er meðal
gesta í þættinum Á vorkvöldi i kvöld. DB-mvnd Jim Smart.
Þáttur Ólafs Ragnarssonar og Tage
Ammendrup, Á vorkvöldi erá dagskrá
sjónvarpsins annað kvöld, laugardags-
kvöld.kl. 20.30.
Brunaliðið, sem kom i heimsókn í
fyrsta þáttinn, kemur aftur og flytur
fyrir okkur 2 ný lög.
Þá mun Ólafur rifja upp gamlar og
góðar minningar frá árinu 1941. Að
því tilefni mun hann ræða við Maríu
Markan óperusöngkonu. Sagði Ólafur
Maríu alltaf jafnhressa en hún er nú
komin á áttræðisaldur og hefur vafa-
laust frá mörgu skemmtilegu að segja.
Þá munu þeir sjónvarpsmenn enn
fara á kreik með falda kvikmynda-
tökuvél. Að þessu sinni er ætlunin að
kanna viðbrögð fólks við manni, sem
kemur með tjald og svefnpoka og
biður um leyfi til þess að tjalda i húsa-
garði þess. Benti Ólafur réttilega á að
ef við förum í útilegu út fyrir bæinn
finnst okkur sjálfsagt að tjalda á land-
areign einhvers bóndans, förum jafn-
vel heim að bæ hans og biðjum um
vatn eða að fá að nota salerni, svo ekki
sé minnst á eggja- og mjólkurkaup.
Verður gaman að sjá hversu margir
vilja leyfa þessum ferðalang að gista i
garðinum sínum.
1 siðasta þætti var okkur kennt að
nota tæki sem hefur hlotið nafnið
„simi” og þar sem okkur eru nú orðnar
kunnar notkunarreglur þessa undra-
tækis er ætlunin að nota þaö ofurlítið í
þessum þætti. Ætlar Ólafur að hringja
i nokkur númer, valin af handahófi I
símaskránni, og leggja spurningar
fyrir þá sem svara. Sagði Ólafur að
fólk þyrfti ekki að vera hrætt við þess-
ar spurningar. Þær væru léttar og
skemmtilegar og skipti ekki nokkru
máli hvort fólk gæti yfirleitt svarað
þeim eða stæði á gati.
íslenzkufræðingurinn er upptekinn
þessa dagana við nýjar rannsóknir á
orðaforða okkar tslendinga, þannig að
hann kemur ekki með neitt spaklegt
fyrr en í 4. þætti og svo aftur i 6. þætti.
Er ekki að efa að þessi spaki
fræðingur vinnur þarft verk þar sem
hann rannsakar mál okkar svo djúpt
niður í kjölinn og meira að segja öllum
til mikillar ánægju.
t þættinum mun Ólafur einnig
ræða við Magnús Eiriksson, sem er
aðallega þekktur fyrir lög sin, m.a. á
Vísnaplötunni. Hann hefur verið
meðlimur hljómsveitarinnar Manna-
korn og kemur einnig fram með
Brunaliðinu. Magnús er mjög fær
tónlistarmaður en mun litið hafa gert
af þvi að koma sjálfur fram. t þættin-
um að þessu sinni ætlar Magnús að
syngja eitt til tvö lög eftir sjálfan sig.
Nú stendur yfir Búlgörsk vika á
Hótel Loftleiðum og hefur Ólafur
fengið þá búlgörsku til þess að koma í
þáttinn og munu þeir dansa nokkra
þjóðdansa, vitatilega frá heimalandi
sinu.
Ólafur sagði að þeir Tage legðu
áherzlu á að hafa atriöin öll stutt en
skemmtileg þannig að þættirnir yrðu
sem fjölbreyttastir og við allra hæfi.
Þættirnir eru i litum og eru tæplega
klukkustundar fangir.
RK.
SST4* Móðursýkislegar
undirfargí ittans kommúnistaofsókttir
„Myndin fjallar um McCarthy-tima-
bilið en á þvi timabili var alls konar fólk
ofsótt, t.d. listamenn og fréttamenn,”
sagði Óskar Ingimarsson okkur, en hann
þýðir myndina „Undir fargi óttans” sem
er á dagskrá sjónvarpsins laugardaginn
22. april.
Gerist myndin i Bandaríkjunum á
6. áratug aldarinnar, þegar komm-
únistaofsóknir ná hámarki þar. John
Henry Faulk er útvarpsfréttamaður og
er hann ofsóttur eins og svo margir
aðrir. Hann gefst þó ekki upp og berst'
eins og hann getur gegn þessum ofsókn-
um.
John H. Faulk er leikinn af William
Devane, en það er sá hinn sami og lék
Kennedy i myndinni um Kúbudeiluna.
Lögfræðingur Faulks er leikinn af
George C. Scott sem er vel kunnur
leikari.
Sagði Óskar að það kæmi fram að
sumir leikaranna lékju sjálfa sig, þannig
að myndin er að einhverju leyti byggð á
sönnum atburðum.
Myndin er einnar og hálfrar
klukkustundar löng og er i litum.
-RK.
William Devane (til hægrí) leikur ofsótta fréttamanninn, John Henry Faulk, en John Houseman leikur vin hans, Mike
Collins.
Sjónvarpámorgun,
kl. 18.00:
Stundin
okkar
Stundin okkar er á dagskrá á morgun
kl. 18.00, og er það fyrsti barnatimi
sjónvarpsins á sumrinu.
Sýndur verður 5. hluti kvikmynd-
arinnar um Siðasta bæinn í dalnum en
þættirnir eru alls 7, þannig að þeim fer
nú senn að Ijúka og við fáum að vita
hvernig fer fyrir systkinunum og bæn-
um þeirra.
Þá mun Rósa Ingólfsdóttir syngja tvö
lög en hún hefur oft áður skemmt okkur
í stundinni okkar og þá aðallega með
söng sinum.
í haust fór fram könnun i Lækjar-
skóla í Hafnarfirði á því, hvað
nemendur vildu helzt gera í tómstund-
um sínum. Kom í Ijós að um IS
krakkar á aldrinum 12—13 ára höfðu
mikinn áhuga á kvikmyndagerð. Skóla-
yfirvöld brugðust vel við þessum áhuga
krakkanna og keyptu tæki til kvik-
myndagerðar, svo sem klippara og
skoðara. Gerði það krökkunum kleift að
stunda þetta áhugamál, en þau verða
sjálf að greiöa fyrir filmurnar. Ásdis
Emilsdóttir umsjónarmaður Stund-
arinnar fer i heimsókn til krakkanna i
Hafnarfirði og fylgist með upptöku á
kvikmynd sem nefnist Dagur i lifi skóla-
pilts. Gífurlegur áhugi er fyrir þessari
tómstundariðju og til merkis um það má
geta þess að' 10 nýir meðlimir hafa
bætzt í hópinn siðan í haust.
Þá verður sýnd teiknisagan Hag-
barður og hvutti og er þetta islenzk saga
eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.
Hagbarður á hvutta og hefur hann alið
hvutta þannig upp að hann gerir allt
öfugt við það sem Hagbarður segir. T.d.
ef Hagbaröur segir hvutta að standa,
básezt hann.
Þá mun verða sagt frá spurninga-
keppni sem fram fór i Austurbæjar-
skólanum ekki alls fyrir löngu. Eru það
krakkar i 12 ára bekk, sem svara um-
ferðarspurningum og keppa í góðakstri á
reiðhjólum. Þannig keppni fór einnig
fram á Akureyri.
Sjónvarp
i
er byggð á sönnum atburðum og gerist I
Bandarlkjunum á sjötta áratug aldarinnar,
McCarthy-tímabilinu. þegar móðursýkislcgar
kommúnistaofsóknir nái hámarki í landinu.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
Laugardagur
22. apríl
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
17.4S Skidasefmgar (L).
18.15 On We Go. Enskukennsla. 23. þáttur
18.30 Skýjum ofar (L).
19.00 Enska knattspyman (L).
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 A vorkvöldi (L). Umsjónarmenn Ólafur
Ragnarsson og Tage Ammendrup.
21.20 Þjóðgarður i Þýskalandi (L). Landslag og
dýralíf I Berchtesgadenþjóðgarðinum i þýsku
ölpunum. Þýðandi og þulur Óskar Ólafsson.
22.05 Undir fargi óttans (L). (Fcar on Trial).
Bandarisk sjónvarpsmynd. Aðalhlutvcrk
Georgc C. Scott og William Devane. Myndin
23.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
23. apríl
18.00 Stundin okkar. (L).
20.00 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Húsbcndur og hjú (L). Breskur mynda-
flokkur. Hrunið mikla. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.20 Guðrún og Þuríður (L). Ámi Johnsen
blaðamaður ræðir við söngkonurnar Guðrúnu
Á. Símonar og Þuriði Pálsdóttur um lif þeirra
og listferil, og þær syngja nokkur lög. Stjórn
upptöku Egill Eðvarðsson.
22.50 Að kvöldi dags (L). Séra Kristján Róberts
son, sóknarprestur í Kirkjuhvolsprestakalli i
Rangárvallaprófastsdæmi, flytur hugvekju.
23.00 Dagskrárlok.
EFasteignasalan
EIGNABORG sf.
Hamraborg 1 — Símar 43466 — 43805
Kóngsbakki
2ja herb. 47 ferm góð íbúð. Verð 8
miRj.
Ef stihjalli
2ja herb. íbúð, 65 ferm, vönduð
innréttíng. Verð 8 1/2 millj.
Efstaland
2ja herbergja 50 ferm góð ibúð.
Verð 8 1/2 millj.
Kópavogsbraut
2ja herb. 80 ferm. Verð 7,5 millj.
Þinghólsbraut
3ja herbergja 96 ferm, bllskúrs-
réttur. Verð 12^ millj.
Holtagerði
3ja herb. 80 ferm I tvibýlishúsi,
efri hsð, bilskúr. Verð 13 millj.
Víðihvammur
3ja herb. 95 ferm I tvibýlishúsi,
jarðhxð, þarfnast viðgerðar.
Verð 9,5 millj.
Ásbraut
3ja herb. 95 ferm bflskúr I fjölbýlis-
húsi, góð ibúð. Verð 12 millj.
Ásbraut
4ra herb. 102 ferm i fjölbýlishúsi.
Verð 14 millj.
Álfhólsvegur
4ra herb. ibúð, 90 ferm, jarðhæð.
Verð 13 millj.
Hlégerði
4ra herb. 100 ferm sérhæð I
þribýiishúsi, bilskúrsréttur. Verð
14.5 millj.
Asparfell
4ra herb. 124 ferm stórglæsileg
ibúð. Verð 15,5 millj. eða skiptí á
einbýli.
Grenigrund
5 herb. 100 ferm raðhús í eldra
húsi. Verð 12 millj.
Áifhóisvegur
5 herb., 125 ferm góð jarðhæð I
þri býlishúsi. Verð 14 millj.
Bjamhólastfgur
Forskallað einbýlishús, 7 herb.
Verð 14 millj.
Hlíðarvegur
Erfðafestuland
10 þús. ferm, 80 ferm fbúðarhús er
á landinu. Verð 15 miilj.
Sumarbústaður
við Þingvallavatn. Verð 2,5 millj.
Engjasel
Fokhelt raðhús, múrhúðað að
utan, gler I gluggum, einangrun og
ofnar fylgja, ca 210 ferm. Verð
14,5 millj.
Seljabraut
2 st. fokhelt raðhús, múrhúðað að
utan, gler I gluggum, jöfnuð lóð.
Verð 12 niiilj., útb. 7 millj.
Kópavogur
Iðnaðarhúsgrunnur, 450 ferm
steypt plata, góð lóð. Uppl. á skríf-
stofunni.
Garðabœr
Stórglæsilegt einbýlishús á
Markarflöt, ca 200 ferm með
bflskúr, skipti möguleg á sérhæð
eða minna einbýlishúsi.
Auðbrekka
Iðnaðarhúsnæði á efri hæö, 100
ferm fullfrágengið. Verð 10 millj.
Vilhjálmur Einarsson
sölustjóri.
Pétur Einarsson lögfræðingur.