Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
5
Shell
Barbecue
*
uppkveikjulögur fyrir
glóöar og arinelda
„Málin hafa þróazt svo að eftir að við
fórum nokkrar ferðir til Bandarikjanna
höfum við hreinlega ekki losnað út úr
flutningunum þaðan og þvi getum við
ekki sinnt fyrirhuguðum Evróþuferðum
að sinni,” sagði Þórir Jónsson, formaður
skipafélagsins Bifrastar, er DB spurði
hann m.a. hverju það sætti að ekki yrðu
farnar þær ferðir til Evrópu sem auglýst-
ar höfðu verið og fólki boðið að flytja
þannig einkabila sina til meginlandsins
og koma sjálft fljúgandi.
Sagði Þórir að greinilega væri grund-
völlur fyrir aðra bílferju en íslenzkar
reglugerðir kæmu I veg fyrir að unnt
yrði að kaupa aðra að sinni. Fela þær í
sér að séu skip keypt erlendis frá þurfi að
greiða a.m.k. 33% kaupverðs út. Hins
vegar eru skip fáanleg með allt niður i
10% útborgun og jafnvel minni. Þvi
munu frekari skipakaup biða fram á
næsta ár, vonandi ekki lengur, að
sögn Þóris.
Það kom fram á blaðamannafundi er
kaupin á Bifröst voru kynnt á sinum
tíma að með tilkomu skipsins myndi
flutningskostnaður bíla hingað lækka
verulega.
Þórir var spurður hvort það hefði
staðizt og þvi til staðfestingar benti hann
á að Bifröst sparaði kaupanda á meðal
ameriskum bíl liðlega 300 þúsund,
miðað við það verð sem Eimskip tók
fyrir flutningana áður en Bifröst kom til.
Nú hefur E.i. lækkað gjöld sín til sam-
ræmis við Bifröst. - G.S.
Fæst í 1 Itr. brúsum á flestum útsölu-
stööum Shell. Kviknar fljótt — Brennur
hreint og lyktarlaust — Inniheldur
ekki steinolíu
Olíufélagið Skeljungur hf
Bifröstin lækkaði
amerísku bílana
um rúm 300 þúsund
— reglurkomaíveg
fyrirkaup
annarrarbílferju
strax til að anna
Evrópumarkaði
Cargolux
fær ekki
breiðþotuna
— yfirvofandi
hafnarverkföllí
USA margfalda
flugvéla-
eftirspumina
Flutningaflugfélagið Cargolux
gekk fyrir nokkru frá leigusamn-
ingum við bandariska flugfélagið
World Airways um leigu á B-747
Júmbó breiðþotu og átti hún að
koma til félagsins í júlí og brúa
bilið þar til Cargolux fær eigin B-
747 í febrúar á næsta ári.
Skyndilega gengu þessir samn-
ingar til baka fyrir stuttu og var
það WA sem rifti þeim. Mun það
liklegast hafa verið gert þar sem
yfirvofandi eru verkföll hafnar-
verkamanna viða i Bandarikjun-
um og því geysileg eftirspurn eftir
flutningaflugvélum þar.
Eftir þvi sem Sveinn Sæmunds-
son blaðafulltrúi Flugleiða vissi
nýjast I málinu i gær hyggjast
Cargoluxmenn leigja tvær Boeing
707 þotur til að geta staðið við
gerða samninga um flutninga. G.S.
Kanadískir bormenn
bora við Reyðarfjörð
Um mánaðamótin er væntanlegur
kanadískur bor, ásamt bormönnum, en
ætlunin er að bora um 2 kílómetra djúpa
holu við Reyðarfjörð og taka borkjarn-
ann. Alþjóðlegur visindahópur stendur
að þessari borun sem er liður i rannsókn-
um á jarðskorpu úthafanna. Jarðlögin á
Austfjörðum eru einmitt mjög hentug til
þessara rannsókna. Jarðlagastaflinn þar
er meðal elztu jarðlaga íslands og is-
aldarjökullinn hefur skafíð ofan af jarð-
lögunum. Þannig þyrfti að bora um 2
kílómetra holu áður en komið væri að
samsvarandi jarðlögum á Reykjanesi.
ísland tekur þátt i þessum rannsókn-
um og hefur Orkusjóður veitt fé til rann-
sóknanna. „Við höfum áhuga á að
kanna hitastuðul á Austfjörðum með
hitaveituvatn í huga. Hingað til hafa
aðeins verið boraðar um 100 metra
holur og hitinn í þeim mældur,” sagði
Ingvar Birgir Friðleifsson hjá Orku-
stofnun i viðtali við DB. Astæða þess að
Reyðarfjörður varð fyrir valinu er að
svæðið milli Reyðarfjarðar og Eski-
fjarðar upp á Hérað er vænlegra til að
gefa hita en svæði bæði sunnan þess og
norðan.
Borunin tekur um fjóra mánuði og
hefst nú þegar í júní. Áætlaður
kostnaður er allt upp undir 100 milljónir
króna og veitti Orkusjóður 15 milljónir i
verkefniö.
íslenzkur bormaður mun verða með
kanadísku bormönnunum, bæði til ráð-
gjafar um svæðið svo og til að læra af
þeim.
Eins og áður sagði stendur alþjóð-
legur vísindahópur að boruninni og er
kostnaður greiddur af Kanadamönnum,
Bretum, Bandarikjamönnum. Þjóðverj-
um, Dönum og Íslendingum.
H Halls.
íþróttaskóli
Sigurðar
lOára
iþróttaskóli Sigurðar R. Guð-
mundssonar er 10 ára á þessu ári
og starf skólans hefur vaxið mjög
ár frá ári. í sumar verða nokkur
námskeið I Íþróttaskólanum. Þar
má nefna jassfímleikanámskeið
sem hefst nú um helgina. Kennar-
ar verða Monica Beckman og
dóttir hennar Pia Beckman. Fim-
leikasamband Íslands og Iþrótta-
skólinn standa saman að nám-
skeiðinu.
Þá verður trampolínnámskeið
25. júlí til 30. júli. Námskeið
einkum ætlað fyrir leiðbeinendur,
rétt eins og jassfimleikarnir. Kenn-
arar verða Ejvind Hansen, Páll
Ólafsson og Guðmundur Sigurðs-
son. í samvinnu við Borðtennis-
samband Íslands verður námskeið
19.—31. ágúst og aðalkennari
verður finnski landsliðsmaðurinn
Nickel Grunstein. Þessi námskeið
þrjú eru einkum ætluð fyrir leið-
beinendur. Þá verða námskeið
fyrir fatlaða þann 4.—13. júlí. Þá
má og nefna að A-námskeið, sem
gefur undirstöðumenntun fyrir
hinar ýmsu grcinar iþrótta verður
4.—13. júií. HHalls
Rétt eftir að DB kom á götuna:
KAPPREIÐAHJÓUÐ FUNDIÐ
Það leið ekki langur tími frá þvi að selt Dagblaðið og lagt fyrir til að
Dagblaðið kom út i gær þar til lögregl- kaupa gripinn.
an i Árbæjarhverfí hafði samband. Á myndinni er Hilmar að prófa
Þeir voru búnir að fínna reiðhjólið hjóliðen Guðmundur lngi bróðir hans
góðasemnáungieinnhafðistolið. og Svava systir hans horfa hugfangin
á.
Þarf vart að lýsa gleði Hilmars litla Lögreglumönnunum var þakkað
Skúlasonar, eiganda reiðhjólsins, fyrir árveknina og siðan lá leiðin aftur
þegar hann endurheimti aftur stolt heim með hjólið sem trúlega verður
sitt. Metro-kappreiðahjólið sem er 10 rammlega læst þegar óráðvandir
gira og kostar um 100 þúsund krónur. girnast það næst. — DB-mynd Ragnar
Drengurinn hefur mánuðum saman Th. Sig.