Dagblaðið - 26.05.1978, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAt 1978.
Mobuto
Zaireforseti
sáttur við
Belga
Belgíumönnum viröist hafa tekizt
að sættast við Mobuto Zaireforseta
þegar Tindemans forsætisráðherra
ræddi við hann á óvæntum fundi
þeirra i Paris í gær.
Þar lagði belgiski forsætisráðherr-
ann til að Vestur-Évrópurikin styddu
að stofnun hers Afríkjurikja sem hefði
það að verkefni að koma í veg fyrir
árásir á hvíta menn eins og gerðist fyr-
ir hálfum mánuði í Shaba.
Belgia sem réð yfir Zaire, sem var
kallað Congo til 1960, hefur mikilla
fjárhagslegra hagsmuna að gæta í
landinu enn og þá ekki sízt i Shaba,
syðsta hluta landsins sem er auðugasta
koparsvæði heimsins.
Mobuto hafði gagnrýnt Belgíu-
stjórn mjög fyrir seinagang og tregðu
til að senda herlið til hjálpar í Shaba,
þegar beiðni barst. Lagði hann einmitt
áherzlu á óánægju sína þegar hann
þakkaði sérstaklega Frökkum fyrir
framlag sitt til að reka innrásarliðið á
flótta en minntist ekki á Belgiumenn.
BLACKLIGHT
skemmtilegt
í myrkri.
RAR'ÖRUR Sli
LAUGARNESVEG 52 - SlMI 86411
LAWN-BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN
Þaö er leikur einn aö
»lá meö LAWN-BOY
garösláttu vélinni,
enda hefur allt verið
ger* til aö auövelda
þér verkiö.
Rafeindakveikja. sem
tryggir örugga gang--
setningu.
Grassafnari, svo ekki
þarf aö raka.
3,5 hö, sjálfsmurö tví-
gengisvél, tryggir lág-
marks viöhald.
Hljóölát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp aö veggjum.
Auöveld hæöarstilling.
Ryöfri.
Fyrirferöalitil, létt og
meöfærileg.
VELDU GAROSLATTUVEL, SEM GERIR MEIR
EN AD DUGA
Ítalía:
Ástin leiddi mann-
ræningjann í glötun
Ástfangin Frakki, sem átti stefnu-
mót viö stúlku sem hann rændi fyrir
nokkru var í gær ákærður fyrir
mannrán, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Róm. Mun hann hafa
mælt sér mót við stúlkuna við
fjölfarna götu I Róm en var þá hand-
tekinn af vörðum sem fylgdu henni
eftir án þess að hún eða Frakkinn
vissu.
Fransmaðurinn, sem er Daniel
Nieto frá Marseilles var félagi í glæpa-
flokki, sem rændi Giovanna Amati
dóttur efnaðs Ítala og hélt henni í
gíslingu í sjöutíu og fjóra daga. Munu
þau hafa fellt hugi saman á meðan á
gislingunni stóð.
Hafði Nieto samband við Amati
sína símleiðis og vildi hitta hana þrátt
fyrir áhættuna sem þvi fylgdi. Stúlkan
féllst á hugmyndina, en hvorugt þeirra
mun hafa gert sér grein fyrir því að
fylgzt var með öllum símtölum til
heimilis hennar. Var henni síðan fylgt
eftir en þegar á stefnumótsstaðinn
kom var enginn Nieto svo Amati sneri
heim aftur.
Skömmu síðar hringdi sá franski
aftur og sagði elskunni sinni að hann
hefði ekki þorað annað en athuga
hvort henni væri fylgt eftir og því ekki
gefið sig fram en bað hana að koma
aftur.
Þegar aftur kom á stefnumóts-
staðinn urðu fagnaðarfundir en það
stóð ekki lengi, verðirnir sem fylgt
höfðu stúlkunni eftir gripu Nieto og
færðu hann burtu þrátt fyrir hávær
mótmæli piltsins og stúlkunnar, sem
hrópaði í örvæntingu. — Ég vil fá að
snerta hann einu sinni enn. —
Að sögn lögreglunnar er þetta eitt
af nokkrum dæmum þess að mjög
sterkt samband hafi myndazt milli
mannræningja og hinna rændu.
Perú:
Þúsund
handtekin,
26 myrtir
í óeiibum
Líkur eru taldar aukast fyrir því, að
herstjórnin I Perú muni hætta við eða
fresta fyrirhuguðum allsherjar-
kosningum sem fara eiga fram 18. júni
næstkomandi. Er jafnvel rætt um að í
stað kosninga verði mynduð sérstök
stjórn skipuð óbreyttum borgurum og
hermönnum.
Miklar óeirðir hafa verið i Perú
undanfarna daga og hafa i það
minnsta tuttugu og sex manns fallið,
stór hópur særzt og tala handtekinna
nemur nokkrum þúsundum.
Þrettán . stjórnmála- og
blaðamönnum var í gær visað úr landi
og flogið með þá til Buenos Aires.
Meðal þeirra var Hugo Blanco, fyrr-
um skæruliðaforingi, sem sneri aftur
til Perú eftir að hafa verið í útlegð um
langan tima.
Óeirðirnar komu i kjölfar tveggja
daga allsherjarverkfalls, sem allar
verkalýðshreyfingar landsins stóðu að
til að mótmæla miklum verðhækkun-
um á matvælum og öðrum lífnauð-
synjum.
Perústjórn lét neyðarlög ganga i
gildi í fyrri viku, nam úr gildi
mannréttindaákvæði stjórnarskrár-
innar, bannaði stjórnmálafundi og út-
gáfu stjórnmálarita. Einnig var sett á
útgöngubann í Lima höfuðborg
landsins frá klukkan tíu á kvöldin
fram til fimm að morgni.
Nokkrir þeirra stjórnmálamanna
sem sendir voru í útlegðí gær höfðu
boðið sig fram i fyrirhuguðum
kosningum. Vitað er um tólf aðra, sem
öryggislögregla landsins hefur kyrrsett
og nokkrir stjórnmálamenn munu
vera í felum.
Herforingjastjórnin í Perú hefur
verið talin vinstrisinnuð og hefur beitt
sér fyrir þjóðnýtingu fyrirtækja i eigu
erlendraaðila.
nokkrum mánuðum en var handtekinn fyrir nokkrum dögum og sendur aftur I
útlegð I gær, ásamt nokkrum öðrum stjórnmála- og blaðamönnum. Á myndinni
sést hann ásamt dóttur sinni en Blanco er kvæntur sænskri konu.
FRAKKAR STYDJA
AFRÍKUHER
Frakkar ætla að styðja byrjun átakanna ásakað Sovétríkin og
uppbyggingu afrískra hersveita sem Kúbu um að standa að baki innrásinni
gæta eiga öryggis í Shabahéraði í Zaire i Zaire og i gær tók Carter Bandaríkja-
og annars staðar þar sem innrásir eru forseti undir þá staðhæfingu.
gerðar í Afríku, að þvi er heimildir í Valery Giscard D’Estaing Frakk-
Paris sögðu i gær. landsforseti er sagður hafa tjáð
Eiga þessar hersveitir i fyrstu að Mobuto forseta það i viðræðum þeirra
koma í stað hinna frönsku sveita, sem fyrr í vikunni að Frakkar sendu ekki
rekið hafa innrásarliðið frá Zaire inn í aftur hersveitir Zaire ríki til bjargar.
Angóla og Zambiu. Mobuto Zaire-1 Þrátt fyrir vonbrigði með að frönsku
forseti hefur lýst óánægðu sinni með hersveitirnar væru að hverfa á brott
að hafa ekki verið með í ráðum, þegar hrósaði Mobuto Frökkum fyrir að
ákveðið var að hefja heimflutning hafa verið eina vestræna rikið sem
frönsku sveitanna. Hefur hann frá kom Zaire til hjálpar.
Erlendar
fréttir
Pms; VINSTRIMENN
MÓTMÆLA ZAIRE
OG KNATTSPYRNU
í ARGENTÍNU
Um það bil fjögur hundruð manns
þrömmuðu um götur Parísar í gærkvöldi
og mótmæltu harðlega afskiptum
Frakka af styrjöldinni í Zaire. Einnig
vildu þeir andmæla þátttöku Frakka í
heimsmeistarakeppninni sem fram fer i
Argentínu í næsta mánuði.
Að sögn lögreglu brutu göngumenn
rúður og skemmdu bifreiðir máli sinu til.
undirstrikunar. Voru tuttugu og sex
handteknir.
Frönsku vinstri stjórnarflokkarnir
hafa harðlega gagnrýnt afskipti af Zaire-
málinu, sem þeir telja innanrikismál
þess. Hvað varðar heimsmeistarakeppn-
ina í Argentinu náði baráttan gegn þátt-
töku Frakka þar hámarki á þriðjudaginn
var, er menn vopnaðir byssum réðust að
liðsstjóra franska liðsins og ætluðu að
ræna honum. Tókst honum að komast
undan og flaug áleiðis til Argentínu með
liðinu á miðvikudaginn.
Fyrr í þessum mánuði var knatt-
spyrnuvöllurinn í Toulouse eyðilagður
með eitri rétt áður en landsleikur átti að
hefjast milli Frakklands og Iran. Bréf
hafa verið send til leikmanna frá mann-
réttindanefndum þar sem þeim er bent á
að nærri leikvöllunum í Argentínu séu
fangabúðir þar sem fórnardýr stjórn-
málakúgunarinnar í ríkinu rotni.