Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ1978 9 V-Þýzkaland: Verkalýðs- þingið vill 35 KÍNVERJAR SAKA - <3* klukkutíma vinnuviku . Vesturþýzk verkalýðssamtök vilja stefna að þrjátíu og fimm klukkustunda vinnuviku, segir i samþykkt þings þeirra, sem haldið er í Hamborg þessa dagana. Einnig vilja samtökin þjóðnýta helztu atvinnugreinarnar en þar fór þingið þvert gegn tillögum æðstu stjórnar sam- takanna, sem mun vilja fara sér hægt í þjóðnýtingaráformum. í samþykktinni var ekki nefnt hvaða greinar atvinnulífs- ins ætti að þjóðnýta en tekið var fram að þar undir kæmi bæði banka- og trygg- ingastarfsemi. Hertóku skakka VIETNAMA UM OF- SÓKNIR = Kínverskir íbúar reknir úr landi Kínverska stjórnin ásakaði Víetnamstjórn harðlega í morgun um að ofsækja fólk af kinverskum ættum. sem byggi i landinu. Segja Kínverjar að sjötíu þúsund manns hafi verið reknir frá Víetnam með illu eða góðu. Hafa fregnritarar jafnvel sagt að fjöldahandtökur og morð hafi verið framin á Kínverjum sem búið hafi i Ho Chi Minh borg, sem áður hét Saigon. Kínverskur fréttaritari sem segist hafa komið til héraðs á landamærum Kína og Vietnam um miðjan mái siðastliðinn greindi frá þvi að viet- namskir hermenn og lögreglumenn hafi rekið og barið kinverskt fólk áfrani yfir fljótið sem skilur rikin að. Þarna hafi bæði verið um að ræða börn og gamalmenni sem ekki hafi fengið betri meðferð en fullfrískir. Hafi hermennirnir jafnvel rænt fólkið eigum sinum. Haft er eftir Kinverjum sem áður bjuggu i Vietnam en komnir eru til Kina, að meðferð á þeim hafi verið mjögslæm i Vietnam. Sendiherra Vietnam í Peking hefur borið á móti því að frásagnir Kinverjanna séu sannleikanum sam- kvæmar. Sagði hann að vísu væri erfitt að leiða sannleikann i Ijós fyrr en að löngum tima liðnum. Ekki hefur neitt verið minnzt á bar- daga á landamærum Kina og Vietnam siðustu daga en orðrómur hefur verið um skærur þar. Að venju féllu fleiri óbreyttir borgarar I styrjöldinni í Shaba héraði í Zaire en hermenn. A myndinni sjást líkin liggja á götum Kolwezi. turninníPisa Hópur starfsmanna i postulinsverk- smiðju hertók i gær hinn fræga skakka turn í Písa og hélt honum i fjóra klukku- tima. Að sögn lögreglu voru mennirn- ir með þessu að leggja áherzlu á mót- mæli sin vegna yfirvofandi uppsagna á vinnustað þeirra. Carter skammar Sovétríkin og Kúbu Léleg frammistaða Sovétrikjanna í mannréttindamálum og hernaðarihlut- un i Afriku gæti tafið fyrir árangri i af- vopnunarviðræðum og komið í veg fyrir að Bandaríkjaþing féllist á samkomulag í þeini efnum sem kynni að nást. Carter gagnrýndi einnig harðlega þátt Kúbu í þjálfun herliðsins sem réðst inn i Zaire fyrir tveim vikum. Einnig sagði hann Kúbumenn hafa séð innrásarsveitunum fyrir vopnum. Carter forseti sagði á blaðamanna- fundi i gær að hann hefði engin áfqrm uppi um að senda bandarískt herlið til Afriku til mótvægis við kúbanskt og sovézkt herlið þar í álfu. Aftur á móti tók hann fram að lög sem sett voru fyrir nokkrum mánuðum hindruðu hann í að aðstoða riki þar eða jafnvel veita þeim efnahagslega hjálp. einum Hún grét af gleði þegar hún tók á móti sex ára gömlum bróður sínum, ei þeirra sem sluppu heilir á húfi I hildarleiknum i Zaire. Drengurinn kom ásamt þúsundum annarra Belgiumanna til Brussel fyrr I þessari viku. Hársnyrting Vffla Þórs KOSIÐIBRETLANDIIHAUST Ármú/a26 2. hæð Sími34878. Talið er vist að kosningar verði haldn- ar á Bretlandi næsta haust eftir að Frjálslyndi flokkurinn hefur hætt stuðn- ingi við verkamannaflokksstjórn Callaghans. Er stjórnin þá komin í tiu sæta minni- hluta i Neðri deild þingsins, sem hingað til hefur verið varinn með atkvæðum hinna 13 þingmanna Frjálslynda flokksins. David Steel formaður flokksins til- kynnti i gær að verkamannaflokks- stjórnin gæti ekki reiknað með stuðningi frjálslyndra eftir að þingið lyki störfum siðarí sumar. Callaghan forsætisráðherra getur samkvæmt brezkri venju rofið þing hvenær sem er en eigi síðar en i okóber á næsta ári. Talið er að góð vísbending um fylgi flokkanna muni fást í væntanleg- um aukakosningum, sem halda á i Glasgow næstkomandi miðvikudag. Verkamannaflokkurinn hafði þingsætið og skoðanakannanir í gær bentu til þess að meirihluti hans yrði um það bil 5% fram yfir frambjóðanda íhaldsflokksins. Pantíð tíma ísíma 34878 Dömu- og y herraklippinga Armu/a 26

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.