Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978. 13 AlbertGuðmundsson, D-lista: VELFERÐARMÁL ÆSKUNNAR OG ELUNNAR „Velferð æskunnar og ellinnar eru mín aðaláhugamál. Ég er alinn upp í íþróttahreyfingunni og mun áfram vinna að uppbyggingu hennar og öllum þeim málum er mega verða henni til framdráttarsagði Albert Guðmunds- son framkvæmdastjóri, 3. maður á D- lista. Gömul, fátæk kona ól mig upp svo ég veit hvar skórinn kreppir hjá gamla fólk- inu. Það hefur verið mitt áhugamál að borgin mæti þörfum þess á sem flestum sviðum og meti með þvi framlag þess til borgarsamfélagsins. Við búum i nota- legu umhverfi vegna þeirra sem á undan okkur hafa gengið og myndað slóðir gegnum árin sem nú eru orðnar að mal- bikuðum strætum með gjörólikum vistarverum á báða bóga, miðað við sem var fyrir tiltölulega fáum áratugum. Þá legg ég áherzlu á atvinnuuppbygg- ingu þvi á traustri almennri atvinnu grundvallast framþróun borgarsam- félagsins. Hér er ég fæddur og uppalinn og hef fylgzt með uppbyggingunni. Hér búa flestir minna beztu vina og ættingja og sem bornum Reykvikingi, sem notið hefur trúnaðar og trausts þessara vina, er mér enginn málaflokkur óviðkomandi sem borgarfulltrúi þeirra. Eins og félagar mínir á borgar- stjómarlista Sjálfstæðisflokksins býð ég mig fram til samstarfs og þjónustu við fólkið i borginni í öllum sameiginlegum hagsmunamálum okkar.” -G.S. Albert: „Gömul kona ól mig upp svo ég veit hvar skórinn kreppir hjá gamla fólkinu. Gerður Steinþórsdóttir, B-lista: DAGVISTUNAR- OG BARNA- HEIMILIVERÐI REIST OG REKIN EINS OG SKÓLARNIR „Þessu er fljótsvarað,” sagði Gerður Steinþórsdóttir er Db spurði hana fyrir hverju hún ætlaði að beita sér í borgar- stjórn. „Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ítarlega stefnuskrá i borgar- málum og þeirri stefnumörkun mun ég fylgja. Ljóst er að atvinnumál og skipu- lagsmál verða gildur þáttur í störfum þeirrar borgarstjómar sem kemur saman til fyrsta fundar hinn 1. júni.” Hvað er þér þess utan efst í huga? „Ég vil að gömlu hverfin haldi svip- móti sínu og ný hús, sem byggð verði, aðlöguð umhverfinu. Brýnt er að ibúðar- húsnæði verði fjölbreytilegra svo að það henti mismunandi þörfum og lifsvenjum fólks. Nauðsynlegt er að auka leiguhúsnæði' og byggja meira á félagslegum grund- velli. Ég vil, að ungu fólki verði gert kleift að búa i eldri hverfum með því að veita rifleg lán til kaupa og viðhalds íbúða, og eldra fólki auðveldað að minnka við sig.” Þú hefur i ræðum talað um dagvist- unar-ogskólamál. „Já, i þeim þarf að gera stórt átak. Ég tel aðeina raunhæfa lausnin í dagvistar- málum sé að ríki og sveitarfélög stofni þau og reki eins og skóla, svo að öll börn eigi aðgang að þeim. Ég vil vinna að þvi að skólar verði ein- setnir svo að skóladagur vtrði samfelld- ur, nemendur fái máltíðir og vinna fari fram i skólanum. Ég vil stuðla að því að auka útivist og íþróttir meðal almennings, og að iokum: í öllum störfum mínum mun ég hafa i huga að hér á landi eru lög utn jafnrétti kynjanna,” sagði Gerður Steinþórsdótt- ir. K „Ég mun ekki gleyma jafnrétti kynjanna,” segir Gerdur Steinþórsdóttir (B). ■ VIÐBYGGINGAR BORGARSPÍTAL- ANS MARKA ALGER TÍMAMÓT — segir Páll Gíslason læknir sem líka vill auka stuðning við frjálsa félagsstarfsemi „Mér eru efst í huga heilbrigðismál- in,” sagði Páll Gíslason yfirlæknir og skátahöfðingi, sem skipar 6. sæti á D. listanum. „Þetta er víðtækur málaflokk- ur sem snertir marga. Flestir telja sig heilbrigða, en ef að er gáð þurfa flestir á þjónustunni að halda fyrir sig og sína. Heilbrigðismálin eru umfangsmikil og dýr og þvi mikið atriði að koma þeim haganlega fyrir, án þess að þjónustan sé skert.” Páll kvað skóinn mest hafa kreppt að slysadeildinni hvað húsnæði snerti. Starfsemi hennar hefði tvöfaldazt á 10 árum. Nú er unniö að byggingu nýrrar þjónustuálmu við Borgarspítalann, þar sem verður ný slysadeild, allar göngu- deildir spítalans og hin nýja heilsugæzlu- stöð fyrir Fossvog og nágrenni. Þar verður einnig, að sögn Páls, móttaka allra bráðra sjúkdómstilfella annan sól- arhringinn. Gjörbreytir það viðhorfum þar sem móttakan er í tengslum við sjúkrahúsið og alla möguleika þess. Páli kvað „frjálsa aðila”, bæði Hrafn- istu og Grund, hafa gert mikið átak i vandamálum fullorðinna. En ennþá væru margir meðal aldraðra sem þyrftu meiri hjúkrunar við en hægt væri að veita í heimahúsum, en um 1000 manns nytu nú aðstoðar borgarinnar hvað snertir hjúkrun og umönnun. „Til lausnar þessum vanda er byrjað á nýrri álmu við Borgarspítalann, sem ætl- uð er gömlu fólki. Vonandi verður fyrsta deildin tekin I notkun árið 1980 og siðan koll af kolli þar til 200 rúm verða i álmu hinna öldruðu,” sagði Páll. Annað aðaláhugamál Páls læknis er Páll Gislason yfirlæknir við dyr Landspitalans. — DB-mynd Höröur. • pr æskulýðsstarfsemi. Hann vill hlúa að frjálsri félagsstarfsemi, þar sem menn njóta hæfileika sinna og telur viðkvæmt að borgin reki skipulagða æskulýðsstarf- semi í samkeppni við frjálsu félögin, sem ekki þola slíka samkeppni við fjármagn og sérfræðinga. „Ég tel peningunum betur varið til að •styrkja frjálsu félögin til starfs. Þau skortir húsnæði og fé til rekstrar og til að koma upp forystuliði. Á þetta við um íþróttafélögin, skátahreyfinguna, KFUM og K, stúkurnar o.fl. Nú fá frjálsu félögin 160 milljónir í styrk frá borginni en æskulýðsráð rúmlega 100 milljónir. Hlutfallið hefur breytzt félög- unum í hag og tel ég mig í þeim efnum hafa haft nokkurn árangur af erfiði mínu,” sagði Páll Gíslason. —ASL

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.