Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
16
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrótti
Bobby Moore of dýr
Danska knattspyrnufélagið Herning, sem leikur
1 3ju deild, hefur ríft samningi sinum við Bobby
Moore, fyrrum fyrírliða enska landsliðsins en
Norðmaðurínn Richard Olsen hefui
sett nýtt Norðurlandamet unglinga 1
sleggjukasti. Kastaði 6734 metra. Eldra
metið átti Finninn Juha Taianen 65.12
metra.
hann leikur i stjörnuliði Bobby Charlton á Laugar-
dalsvelli á mánudag.
Herning „keypti” Moore i vor, þegar atvinnu-
mennskan höfst i dönsku knattspyrnunni og
samningurinn var dýr fyrir danska félagið. Það
segist nú ekki getað staðið við hann lengur — og
félagið er I hættu að falla úr 3ju deild. „Það er ekki
hægt að kenna Moore um slakan árangur liðsins,”
sagði þjálfarí liðsins, Helge Sander, í gær og I
þeim niu leikjum, sem Moore lék með Herning var
alltaf metaðsökn.
Lasse Viren keppir á ný
Finnski hlauparínn heimsfrægi, Lasse Viren, sem vann tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum bæði f
Miinchen og Montreal, er byrjaður að keppa á ný eftir landvarandi meiðsli.
f gær hljöp hann 3000 metra á Maf-leikunum f Helsinki og varð þriðji. Markku Laine sigraði á 7:54.3
mfn. Ari Paunonen var annar á 7:55.1 mfn og Viren þriðji á 7:57.2 mín. og hann var eftir hlaupið ánægður
með árangur sinn.
Skotar kvaddir með pomp og prakt
Skozka HM-liðið f knattspyrnu hélt til
Argentfnu f gær — og önnur eins kveðjuhátfð og
átti sér stað á Hampden Park hefur sjaldan eða
aldrei átt sér stað f Glasgow. Borgarbúar eru þö
ýmsu vanir f þeim efnum. Skozki landsliðseinvald-
Námskeið
íGarðabæ
Leik- og fþröttanámskeið á vegum
Æskulýðsnefndar Garðabæjar verða í
júni og júli i sumar fyrír börn á aldrínum
6—13 ára. Innritun hófst sl. miðvikudag
og stendur út mánuðinn f fþröttahúsinu
Ásgarði frá 9—12. Þátttökugjald er kr.
tvö þúsund.
urínn Ally McLeod og hinir 22 leikmenn hans
gengu um vöUinn ásamt 200 sekkjaplpuieikurum
— og 20000 manns á Hampen Park kvöddu leik-
mennina með pomp og prakt. Önnur eins hröp
og köll hafa sjaldan heyrzt þar — og litadýrð var
hreint ótrúleg.
Leikmennirnir veifuðu til fjöldans og hlupu
sfðan á enda vaUaríns og veifuðu eins og sigurveg-
ari f hnefaleikahríng. Meðal þeirra var Gordon
McQueen, miðvörðurinn sterki hjá Man. Utd.
sem meiddist f landsleiknum við Wales á dögun-
um, og haltraði með félögum sfnum. Miklar Ifkur
eru þó taldar á að hann geti leikið fyrsta leik Skota
gegn Perú 3. júni.
Skotlandsmálaráðherran Bruce MUIan, sem
verður meðal áhorfenda, þegar Skotar leika við
Holland á HM, hélt ræðu og sagði meðal annars
„að af þessarí kveðjuhátfð mætti ráða, að aUt
Skotland stæði að baki liði sfnu f Argentinu.”
Stjórn og varastjórn hins nýstofnaða fþróttafélags þroskaheftra á Akureyri ásamt fulltrúa ISÍ. Sitjandi: Pétur Pétursson og
Aðalheiður Pálmadóttir, en þau eru úr hópi þroskaheftra. Standandi f.v.: Jósteinn Helgason, Svanfríður Larsen, Guðrún
Bergvinsdóttir, Stefania Guðmann, Margrét Rögnvaldsdóttir formaður og Sigurður Magnússon skrifstofustjórí tSf. Á
myndina vantar Þorgerði Fossdal.
r
Iþróttafélag þroskaheftra
— stof nað á Akureyri og hlaut naf nið Eik
„Það er áformað að stofna fleiri
fþróttafélög þroskaheftra á þessu árí,
bæði f Reykjavik og vfðar úti á landi,”
sagði Sigurður Magnússon, skrífstofu-
stjórí tSf eftir að fyrsta fþróttafélag
þroskaheftra hér á landi var stofnað á
Akureyri fyrr f þessum mánuði. Það
hlaut nafnið iþróttafélagið Eik. Margrét
Rögnvaldsdóttir fþróttakennarí var kjör-
in formaður félagsins.
Félagið er stofnað að frumkvæði
íþróttasambands ísalnds í nánu sam-
starfi við Landssamtökin þroskahjálp,
en að stofnuninni á Akureyri stóðu
Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi
og Foreldrafélag bama með sérþarfir á
Akureyri.
Fundarstjóri var Hörður Ólafsson
skóiastjóri en á fundinum mætti Sigurð-
ur Magnússon skrifstofustjóri ÍSt og
greindi frá aðdraganda stofnunar félags-
ins, skýrði lög þess og sýndi nýja norska
kvikmynd um likamsrækt þroskaheftra,
sem Fræðslumyndasafn rikisins hefur
keypt og er til útlána.
Tæplega 50 manns sátu fundinn.
HM-UÐ SVÍA í ARGENTÍNU
í vor kjörinn í úrvalslið 1. deildarliðanna
þýzku — þ.e. bezti markvörðurinn í V-
Þýzkalandi (Nr. 1).
Göran Hagberg, 31 árs, markvörður, sem
lengi hefur verið 1 skugga Hellström. Var
varamarkvörður á HM 1974. Leikur með
öster, liðinu, sem Teitur Þórðarson leikur
með i Svíþjóð. Hefur leikið 13 landsleiki.
Hinn fyrsta gegn Íslandi 1973 (Nr. 12).
Jan MöUer 25 ára. Leikur með meistara-
liðinu Malmö FF og sýnt þar stórleiki þó
hann sé aðeins þriðji markvörður sænska
HM-liðsins. Hefurekki leikiö landsleiki. (Nr.
17).
Magnus Andersson, tvitugur vamar-
maður, sem leikið hefur fjóra landsleiki.
Leikur með Malmö FF — en meiðsli í baki
háðu honum mjög í fyrra. Hefur nýlokið
herþjónustu(Nr. 13).
Roland Andersson, 28 ára, varnar-
maður hjá Malmö FF. Hefur leikið 14
landsleiki og einn af sterkustu varnarmönn-
um Svia. Átti við slæm meiðsli að stríða í
fyrra en hefur sýnt mjög góða leiki í vor.
(Nr. 20).
Roy Andersson, 29 ára gamall varnar-
maður hjá Malmö FF — þrir Anderssynir i
vörn meistaraliðsins — og hefur leikið 15
landsleiki (Nr. 3).
Hans „Hasse” Borg 25 ára, sem leikur
með Eintracht Braunschwig í V-Þýzkalandi.
Hefur leikið 13 landsleiki. (Nr. 2).
Ingemar Erlandsson, 21 árs, varnarmaður
hjá Malmö FF. Hefur leikið tvo landsleiki
og er talinn mjög efnilegur nýliði. (Nr. 5).
Björn Nordquist, 35 ára, varnarmaður
hjá Gautaborg. Hefur leikið 108 landsleiki
—jafnaði landsleikjamet Bobby Moore,
Englandi, þegar Svíar léku við Tékka í
vikunni. Setur þvi nýtt met á HM ef hann
sleppur við meiðsli. Fyrirliði sænska
landsliðsins — og einn af lykilmönnum
liðsins. Lék á HM 1970 og 1974. Lék um
tima með PSV í Hollandi. (Nr. 4).
Ronald Amman, 21 árs varnarmaður hjá
örebro. Hefur leikið einn landsleik, þegar
Svíar unnu heimsmeistara V-Þýzkalands í
4C
George „Aby” Ericson, sænski landsUðsein-
valdurinn, óskar Birni Nordquist til
hamingju fýrir leik Svia og Tékka á dögun-
um. Þá lék Björn sinn 108. landsleik.
gpríl i Stokkhólmi, 3—1. Lék þar mjög vel
og einn af efnUegustu leikmönnum Svía.
(Nr. 14).
Kent Karlsson, 33ja ára varnarmaður hjá
Eskilstuna. Hefur leikið 38 landsleiki. SnjaU
leikmaður, sem lék á HM 1974. (Nr. 19).
Bo Larsson, 34 ára framvörður hjá
Malmö FF. Hefur leikið 66 landsleiki og
hefur enginn leikið fleiri landsleiki nema
Nordquist. Enn lykilmaður 1 liði Malmö.
(Nr. 8).
Lennart „Lie” Larsson, 25 ára fram-
vörður, sem leikur með Schalke 04 i Vestur-
Þýzkalandi. Fæddur 1 Malmö og hefur leikið
13 landsleiki. (Nr. 9).
Anders Linderoth, 28 ára framvörður.
Leikur með Olympique Marseilles í
Frakklandi við góðan orðstir. Hefur leikið
26 landsleiki. (Nr. 7).
OUe Nordin, 29 ára framvörður hjá
Gautaborg, sem leikið hefur ellefu lands-
leiki. (Nr. 18).
Steffan Tapper, þritugur framvörður hjá
Malmö FF. Einn af kunnustu leikmönnum
Svía, sem lék á HM 1974. Hefur leikið 33
landsleiki. (Nr. 6).
Conny Torstensson, 29 ára. Einn
kunnasti sóknarmaður Svía á síðari árum.
Leikur nú með Zúrich í Sviss og hefur leikið
36 landsleiki. Lék á HM 1974 og lék þá með
Bayern Munchen. Leikur nú sem fram-
vörður. (Nr. 16).
Ralf Edström, 26 ára sóknarmaður, sem
gat sér mikinn orðstír með PSV Eindhoven í
Hollandi. Leikur nú með Gautaborg og
hefur leikið 31 landsleik. Einn af beztu leik-
mönnum Svía á HM 1974. — en meiðsli
hafa mjög sett strik í reikninginn hjá
honum. Á enn við meiðsli að stríða. Fer þó
til Argentínu en engan veginn er víst að
hann geti leikið þar. (Nr. 22).
Thorbjöm Nielsson, 24 ára sóknarmaður,
sem leikur með Gautaborg. Hefur leikið átta
landsleiki. (Nr. 15).
Thomas Sjöberg, 26 ára framherji hjá
Malmö FF. Mjög hættulegur sóknarmaður,
sem leikið hefur 28 landsleiki. (Nr. 10).
Benny Wendt, 28 ára framherji, sem nú
leikur með Kaiserslautern í V-Þýzkalandi,
hefur leikið 13 landsleiki. Lék áður með
Köln. (Nr. 11).
Sanny Aaslund, 26 ára framherji hjá AIK
í Stokkhólmi. Hefur leikið tvo landsleiki.
Val hans kom mjög á óvart, en hann sýndi
góða takta í landsleikjum við Pólland og
Austur-Þýzkaland í ár. (Nr. 21).
Nú er aöeins tæp vika þar til heims-
meistarakeppnin i knattspyrou heEst i
Argentinu. Fyrst leikurínn verður milli
heimsmeistara Vestur-Þýzkaiands og Pól-
lands 1. júní á River Plate-leikvanginum i
Buenos Aires. Sá leikur er i 2. riðU og eini
leikurinn fyrsta dag keppninnar. Daginn
eftir verða þrir leikir. Ungverjaland-
Argentina i Buenos Aires og Frakkland-
ttaUa i Mar Del Plata. Þessir tveir leikir eru
i 1. riðU og i 2. riðU leika Túnis og Mexikó I,
Rosarío. Leikimir i 3. og 4. riðU hefjast 3.
júnL
DB mun i dag og fram að heimsmeistara-
keppninni kynna leikmenn 1 nokkrum
liðum, sem leika á HM. Við byrjum á
Svium — og vissulega verður mjög fylgzt
með árangri þeirra á HM hér á landi. Við
höfum áður birt nöfn sænsku leikmannanna
hér I iþróttaopnunni en fyrst skulum við llta
á leikina. í 3. riðli þar sem Svíar leika.
3. júni
Svíþjóð-Brasilia
(Mar del Plata)
Spánn-Austurriki
(Buenos Aires, Velez)
7. júní
Spánn-Brasilía
(Mardel Piata)
Austúrríki-Sviþjóð
(Buenos Aires, Velez)
11. júní
Brasilia-Austurríki
(Mar del Plata)
Svíþjóð-Spánn
(Buenos Aires, Velez)
Þá eru það sænsku leikmennirnir og nr.
þeirra á HM.
Ronnie HeUström, 29 ára markvörður,
sem leikur með vestur-þýzka 1. deildarliðinu
Kaiserslautern. Hefur leikið 65 landsleiki og
lék í HM 19701 Mexikó og 19741 V-Þýzka-
landi. Einn albezti markvörður heims og var
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAt 1978.
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
„Stefni á úrslit
í Evrópumótinu”
— sagði Óskar Jakobsson eftir að hann stórbætti árangur
sinn í kringlukasti á Vormóti ÍR í gær. Kastaði 61.74 metra
„Ég hef sett stefnuna á að setja nýtt
Íslandsmet f kringlukasti i sumar — og
einnig á að komast i úrsUt á Evrópu-
meistaramótinu i Tékkóslóvakíu i sept-
ember,” sagði Óskar Jakobsson, kastar-
inn ungi i ÍR 1 gær eftir að hann hafði
stórbætt árangurinn sinn i kringlukasti.
Kastaði lengst 61.74 metra og það er I
þríðja sinn, sem hann kastar kringlunni
yfir 60 metra á móti 1 sumar. Þá er Ósk-
ar Íslandsmethafi i spjótkasti og hefur
náð mjög athygUsverðum árangri i kúlu-
varpi. Er þó aðeins 22ja ára.
Þó íslandsmet Erlends Valdimarsson-
ar, ÍR, sé 64,32 m er ég ekki frá þvi, að
afrek Óskars í gær sé enn betra. Að vísu
eru 64.32 metrar lengra kast en 61.74
metrar en aðstöðumunurínn, þegar af-
rekin voru unnin, mjög mikill. Nánast
logn á Laugardalsvellinum í gær, þegar
Óskar kastaði 61.74 m en rok, þegar Er-
lendur vann afrek sitt. Og það er mikill
munur að kasta kringlu í logni eða roki.
Getur munað nokkrum metrum hvað
rokárangurinn er betri 1 metrum. Það
EÓP-mótið
EÓP-mótið i frjálsum íþróttum — til
minningar um Eriend Ó. Pétursson, sem
lengst aUra var formaður KR — fer fram
31. mai á LaugardalsveUinum. Keppt
verður i niu greinum. Þátttaka tilkynnist
í sima 24032 til Jóns Péturssonar — og
einnig er hægt að tilkynna þátttöku á
LaugardalsveUinum.
Finnieston
tilSheff.Utd.
Skozki leikmaðurinn Steve Finnieston
hjá Chelsea var i gær seldur til Sheff.
Utd. fyrir 80 þúsund pund. Salan kemur
á óvart þvi Steve hefur verið einn af aðal-
markaskorurum Chelsea. Skoraði þó
ekki nema 5 mörk i 16 leikjum á siðasta
leiktimabUi. Chelsea er i miklum fjár-
hagskröggum og það er skýríngin á
sölunni. Þá hefur Middlsbrough keypt
markvörð KUmarnock, Stevart, sem um
tima var i HM-hópi Skota. West Ham
hefiir sett Frank Lampard á söluUsta.
Hann vUdi ekki undirríta nýjan samning
hjá félaginu.
Óskar Jakobsson.
gerir afrek Óskars enn meira í gærkvöldi
1— og sjaldan keppt á stórmótum erlend-
is við þær rokaðstæður, sem geta skap-
azt hér á landi. Óskar er því með þessu
afreki kominn í hóp betri kringlukastara
Evrópu.
„Ég er í litilli keppnisæfingu nú —
stefni að toppárangri tvívegis í sumar.
Fyrst í kastkeppninni gegn Dönum í
Kaupmannahöfn síðast I júni og síðan á
EM i byrjun september,” sagði Óskar,
hinn viðfelldni og hlédrægi afreksmaður
i gær. Þrívegis flaug kringlan hjá honum
yfir 60 metrana í gær. Auk 61.74 átti
hann 60.20 og 60.02 metraog fjórða kast
hans var tæpir 60 metrar. Það sýnir mik-
ið öryggi. Samkvæmt þeim tölum, sem
liggja fyrir, mun afrek hans annað bezt á
Norðurlöndum í sumar. Norðmaðurinn
Valvik hefur kastað 63.50 metra.
Hreinn Halldórsson, KR, fyrrum
Evrópumeistari, er að ná sér á strik í
kúluvarpinu á ný eftir meiðslin slæmu.
Hann varpaði lengt 19.45 m og sagði,
„þetta er allt að koma hjá mér-en ég efa
þó að ég verði orðinn góður i
sumar. Það kemur næsta sumar — en
ýmislegt er að nú bæði hvað kraft,
snerpu og stíl viðkemur.” Óskar varð
annar I kúluvarpinu með 17.75 metra.
Að öðru leyti var frekar fátt um fína
drætti á mótinu. Sigurður Sigurðsson,
Á, hljóp 100 m á 10.1 sek. en brautin
reyndist nokkrum metrum of stutt.
Greinilegt þó á hlaupi Sigurðar að hann
verður betri í sumar en nokkru sinni
fyrr. Þórdís Gisladóttir, ÍR, stökk 1.68
m í hástökki, Friðrik Þór Óskarsson, lR,
6.63 m í langstökki, Stefán HaUgrims-
son, UÍA, sigraði Gunnar Pál Jóakims-
son í tvisýnu 400 m hlaupi 50.9 sek. og
51.0 sek. og Guðrún Ámadóttir, FH,
hljóp 800 m á 2:20.2 mín. Guðrún Ing-
ólfsdóttir, USU, varpaði kúlu 12.02 m,
EUas Sveinsson stökk 4.10 m i stangar-
stökki og Lára Sveinsdóttir, Á, hljóp 100
má 12.4 sek. .hsim.
íslandsmótið II. deHd
í kvöld kl. 20
leika á Hvaleyrarho/tsvel/i (gamla vellin-
um) í Hafnarfirði
HAUKAR - KR
KNATTSPYRNUSAMBAND
ÍSLANDS
J
HANDBOK
S jr
B£ V M f* MJT Æk
MOT ASKRA
1978
HANDBÓK KSÍ
- gífurlegur fróðleikur á 225 blaðsíðum
Knattspyrnusamband tslands hefur
gefið út sina árlegu mótaskrá, fyrir sum-
aríð. GlæsUegt rit, 224 blaðsiður að
stærð. Þar finnur kanttspyrnuunnandinn
flest við sitt hæfi.
Þar eru tiunduð úrslit leikja i l. deild
frá 1959, auk íslandsmeistara frá upp-
hafi. Einnig finnast þar úrslit leikja í 2.
deild frá 1970. Allir sigurvegarar 3.
deildar svo og hvar bikarinn hefur hafn-
að. islandsmeistarar yngri flokkanna og
þannig mætti halda áfram.
Þá eru miklar upplýsingar um lands-
leiki Íslands. Úrslit allra landsleikja og
hvar þeir fóru fram. Þá er skrá yfir alla
landsliðsmenn. Leikir þeirra svo og hve
mörg mörk þeir hafa skorað. Já, allt frá
a-landsliðsmönnum í unglingalið, 14—
16 ára.
Þá eru að sjálfsögðu allir leikir sum-
arsins, reglur KSÍ, myndir af sigurvegur-
um og fleira og fleira. Mótaskráin er til
sölu á öllum íþróttavöllum. Á skrifstofu
KSÍ. Hjá Ingólfi Óskarssyni og Bóka-
verzlun Lárusar Blöndal. Biblía knatt-
spyrnuunnandans — veglegt rit og KSÍ
til sóma í alla staði.
ð^hummel
Hummel æfingargallar úr
Top efnl aðsniðnir, út-
sniðnir. Fást i öttum
hebrtu sportvörubúðum
iandsins
STJÖRNULIÐ BOBBY CHARLTON GEGN ÚRVALSLIÐIKSÍ
á Laugardalsvelli, mánudaginn29. maíkl. 20.00
Bobby Charlton, Tony Towers, Bobby Moore, Joe Royle, David Harvey, Mike Doyle,
PeterLorimer, TerryHibbit, FrancisBurns, FrankWorkingtono.fi.
Einstakt tækifæri til að sjáþessa heimsfrægu knattspyrnumenn leika samaní /ið/.
Síðastsigraði úrvalsliðið. Hvernig fer nú?
Forsala vid Utvegshankann ídag kl. 13-18. — Tryggid ykkur miða í tíma.
Verö aðgöngumiða: Stúka kr. 1500.-Stæðikr. 1000.- Börnkr. 300.-KKR