Dagblaðið - 26.05.1978, Qupperneq 19
DAGBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAl 1978.
23
AFSTAÐA FÓLKS TIL KJARA-
SKERÐINGARINNAR MUN
KOMA FRAM
— segir þriðji maður á G-lista Alþýðubandalags, Þór Vigfússon konrektor
Þór Vigfússon, sem skipar þriðja sæti
G—lista Alþýðubandalagsins, er Ámes-
ingur að ætt og uppruna en hefur verið
búsettur í Reykjavík undanfarin átta ár.
Undanfarin þrjú ár hefur hann verið
konrektor Menntaskólans við Sund.
„Ég er fyrst og fremst í framboði vegna
þess að flokksmenn lögðu að mér að
gera það,” sagði hann í samtali við DB i
vikunni. „Ég hef í flokknum ekkert sér-
staklega haft mig í frammi um borgar-
mál, en ég hef áhuga á stjórnmálum og
þar með töldum borgarmálum. Ég hef
að vísu ekki mikið eða djúpt vit á þeim
enn, en vona að það lagist.”
Þór sagðist eiga von á, að fyrst í stað
myndi hann „líta á skólamálin, enda hef
ég verið kennari í fimmtán ár og haft
gaman af því. Þar vil ég sérstaklega
vinna að því að í framhaldsskólum borg-
arinnar, þar sem áfangakerfið hefur ver-
ið tekið upp, þar geti fólk sem náð hefur
vissum aldri gengið inn í þetta áfanga-
kerfi burtséð frá fyrri menntun og fengið
þar sín starfsréttindi. Ég vil einnig að i
skólum geti nemendur fengið mat, al-
mennilegan mat, þannig að eilífar og
óhollar sjoppuferðir leggist niður.”
Þór Vigfússon sagðist ekki telja vafa
á, að í borgarstjómarkosningunum á
sunnudaginn yrðu margir til að láta i
ljós afstöðu sína til kjaraskerðingar rikis-
valdsins í vetur. „Ég vil að borgin taki
upp aðra stefnu í kjaramálum en verið
hefur, stefnu sem er hliðhollari verka-
mönnum.”
Mest aðkallandi málin á komandi
kjörtímabili taldi Þór vera húsnæðismál.
„Borgin ætti að okkar viti að beita sér
fyrir félagslegum íbúðabyggingum og
byggingu leiguhúsnæðis, þar sem t.d.
ungt fólk getur hafið búskap án þess að
sligast undan leigunni.”
DB spurði Þór hvað hann teldi hafa
farið bezt í málefnum borgarinnar á því
kjörtímabili, sem nú er að líða. „Ja, ég á
vont með að svara þessu,” sagði Þór.
„Ég er ekki svo nákvæmlega inni í öllum
hlutum. Ég er sannfærður um að margt
hefur verið ágætlega gert af starfsfólki
borgarinnar, þótt ég sé ósammála þeirri
grundvallarstefnu, sem fylgt hefur ver-
ið.”
„En hvað hefur farið verst?”
„Ég get ekki svarað þessu nema mjög
persónulega. Ég sé afskaplega mikið eftir
Oddgeirsbæ hér á Framnesveginum og
þykir slæmt að sjá þetta stóra hús, sem
byggt var í staðinn. Þetta er þó liklega
ágætis hús og ég vona að fólkið sé ham-
ingjusamt i því, en mér þótti þetta fal-
legra áður.”
„Viltu spá einhverju um úrslitin?”
„Ég ætti kannski að svara að Sunnlend-
inga hætti og segja sem svo að varla gæti
nokkur álpazt til að fara að kjósa mig, en
ég er bjartsýnn og hef mikla von um að
við náum fjórða manni, Guðrúnu
Helgadóttur, inn.” _ÓV
Þór Vigfússon á hlaðinu heima hjá sér: „Persónulega þótti mér verst að sjá Oddgeirs-
bærifinn.” —DB-mynd: Hörður.
Davið Oddsson: „Fjármál borgarinnar hafa ekki farið úr böndunum eins og hjá ríkis-
valdinu.” DB-mynd Hörður.
meginLoforðið að fjár-
MÁL BORGARINNAR FARI
EKKIÚR BÖNDUNUM
— segir fjórði maðurá lista Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson
„Ástæðan fyrir þvi að ég er í fram-
boði er fyrs.t og fremst sú, að ég hef
áhuga á borgarmálum og sveitar-
stjórnarmálum yfirleitt. Þau standa
raunar öllum nærri. Ég ímynda mér alls
ekki að ég sé ómissandi, en vil auðvitað
— eins og flestir stjómmálamenn —
reyna að koma góðu til leiðar,” sagði
Davíð Oddsson skrifstofustjóri sem
skipar fjórða sætið á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins.
Davíð kvaðst telja stærsta verkefni
næsta kjörtimabils þegar hafa verið
'mótuð: „Það eru framkvæmd atvinnu-
áætlunar, bygging stórs og mikils
ibúðahverfis NA af bænum, seinni hluta
útivistaráætlunar og svo framvegis.”
Hann kvaðst ánægðastur með trausta
fjárhagsstöðu borgarsjóðs. „Fjármál
borgarinnar hafa ekki farið úr
böndunum eins og hjá ríkisvaldinu og
einhverjum sveitarfélögum. Ég tel
einnig að vel hafi farið með fyrsta hluta
áætlunar um umhverfi og útivist. Hvað
varðar þenn málaflokksem ég vinn mest
að, æskulýðsmálin, þá er ég mjög
ánægður. Tvær félagsmiðstöðvar hafa
tekið til starfa, og tvær aðrar eru vel á
veg komnar.”
„En hvað telur þú hafa farið verst?”
„Ég man ekki eftir neinu sérstöku í
svipinn. Verðbólgan hefur gert sveitar-
félögum mjög erfitt fyrir. Fram-
kvæmdir þeirra miðast við tekjur ársins
á undan og því er útilokað að allt fari
eftir áætlun. En þetta eru ekki kosninga-
svik, eins og einhverjir vilja halda.
Meginloforð sjálfstæðismanna er og
verður að fjármál borgarinnar fari ekki
úr skorðun. Við verðum að sníða okkur
stakk eftir vexti og það tel ég að haft
verið gert.”
Davíð taldi kosningarnar á
sunnudaginn tvísýnar. „Ég vona og trúi
því að okkur takist að verja meiri-
hlutann. Ég treysti í því á dómgreind
Reykvikinga,” sagði Davíð Oddsson.
-ÓV.
Magnús L Sveinsson, D-lista:
EINKAFRAMTAKIÐ
IL - l
BRAGI W*' ■ l
SIGURÐSSON te ■ ■ ’ i
\ i líi Ja
’jggggg s|
„Sem borgarfulltrúi og borgarráðs-
maður verður maður að fylgjast náið
með öllum málaflokkum. En þau mál
sem ég hef sérstaklega látið til mín taka
eru atvinnumálin, húsnæðis- og heil-
brigðismál. Á þessa málaflokka mun ég
einnig leggja sérstaka áherzlu á næsta
kjörtimabili,” sagði Magnús L. Sveins-
son, skrifstofustjóri, 5. maður á D—
lista.
„Einnig vil ég leggja áherslu á hraða
uppbyggingu margs konar þjónustu-
stofnana í Breiðholtshverfum og bætt-
um samgöngum við þau með byggingu
brúar yftr Elliðaárdalinn sem ég vona að
geti hafizt á næsta ári.
Reykjavíkurborg er með fallegri
borgum sem maður sér og hún hefur
byggzt upp með uridraverðum hraða
síðustu áratugina. Þar hefur framtak
einstaklinganna skilað sér i ótrúlegum
afrekum þeirra mörgu handa, sem hér
hefur af samhentum meirihluta verið
sköpuð aðstaða til athafna og uppbygg-
ingar.
Það sem nú skiptir máli fyrir Reykvik-
inga er að þeir tryggi framhald þessarar
uppbyggingar með þvi að kjósa sam-
hentan meirihluta sjálfstæðismanna en
ekki sundrungaröfl þriggja ósamstæðra
flokka, sem myndu setja allar
framkvæmdir og stjórn borgarinnar á
pólitiskt uppboð strax að kosningum
loknum, fengju þeir meirihluta.
-GjS.
stofnbraut milli Árbæjar- og Breiðholtshverfa.
NJÓTISÍN ÁFRAM
Magnús: „Framkvæmdir borgarinnar færu á pólitiskt uppboð i höndum þriggja ó-
samstilltra flokka.” DB-mynd H.V.