Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 20
24 Umboðsmaður óskast Hera Modestrik, sem er með eitt mesta úrval í Danmörku af prjónavörum og bolum (T-shirts) á konur og börn, óskar eftir umboðs- manni búsettum á íslandi. Vinsaml. sendið svar til Hera Modestrik ApS „Heragárden" Lind. DK—7400 Herning Danmark Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík vegna alþingiskosninga 1978 hefst sunnudaginn 28. maí nk. Kosið verður í Miðbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22, sunnu- daga og 17. júní kl. 14— 18. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Blikkval s.f. Höfum opnað nýja blikksmiðju að Smiðjuvegi 54, sími 76655, Kópavogi. Önnumst hvers konar blikksmíði, svo sem loftræstikerfi, þakrennur og niðurföll. Einnig þakkanta, ventla, túður o. m. fl. Tökum einnig að okkur viðgerðir á bensíntönkum. Reynið viðskiptin. L MnurDrauosTOTan BJORNINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 Sumarbústaðir til sölu Höfum til sölu sumarbústaði i öllum stærðum á margs konar byggingarstigi. 2ja til 3ja mán- aða afgreiðslufrestur. Teikningar á skrifstof- unni. Einnig er fyrir hendi sýnishorn af einum sumarbústað. Okkur vantar leigulönd fyrir marga sumarbú- staði ekki mjög fjarri Reykjavík. EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA HAFNARGÖTU 57 — KEFLAVfK — SlMI 3868 Hannes Ragnarsson Hamragarði 3, Keflavik, simi 3383. Ragnhildur Sigurðard. sökim. Reynir Ólafsson viðskfr. AUGLÝSING frá Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð Afhending prófskírteina fyrir vorönn 1978 og sýning prófúrlausna fer fram laugardaginn 27. þ.m. klukkan 10.00. Skráning og val fyrir þá sem eru við nám fer fram sama dag klukkan 10.00— 13.00. Brautskráning stúdenta verður klukkan 14.00. Innritun og námsgreinaval nýnema fyrir haustönn 1978 fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð þriðjudag 30., miðvikudag 31. og fimmtudag 1. júní klukkan 16—19.00 alla dagana. Skráningargjald er kr. 8.000.00 og skal gre'ití við innritun. Rektor. DAGBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978. CUDO hættir starfseminni: „KROFUHAFAR VERÐA AÐ SNÚA SÉR BEINT TIL MÍN” — segir stjórnarformaður fyrirtækisins „Nei, fyrirtækið er ekki gjaldþrota, það hefur hins vegar hætt starfsemi sinni,” sagði Hilmar Vilhjálmsson, stjórnarformaður Cudoglers h.f. í sam- tali við DB. Blaðinu hefur borizt fjöldi fyrir- spurna frá lesendum, sem telja sig eiga óafgreidd rúðugler hjá Cudo, og óttast nú að meintar skuldir fyrir- tækisins séu glataðar. Hilmar Vilhjálmsson sagði í samtalinu við blaðið, að hann teldi fyrirtækið hafa afgreitt allt það gler, sem það hefði átt að afgreiða — einkum vegna galla sem fram hefðu komið i upprunaleg- um afhendingum — en væru ein- hverjir, sem teldu sig eiga gler hjá fyrirtækinu, þá „verða menn að snúa sér beint til min, og ég mun reyna að leysa úr vanda þeirra,” sagði hann. Cudo-gler hætti rekstri um síðustu áramót. Staða fyrirtækisins hafði verið mjög erfið um nokkurt skeið og seldu nokkrir hluthafar sig út úr fyrirtækinu seint á árinu 1975. í júlí 1976 gerðu viðskiptabankar fyrirtækisins kröfu um nýjan prókúruhafa í fyrirtækinu og var hann ráðinn, en þá var orðið of seint að halda fyrirtækinu gangandi. Þess má og geta, að Cudo-gler var eitt þeirra fyrirtækja, sem átt hafa viðskipti við Alþýðubankann og gerð var krafa um að þau viðskipti yrðu rannsökuð þegar Alþýðubankamálið svokallaða kom upp. Verulegur hluti framleiðslunnar síðustu misserin fór til að bæta gölluð gler, en m.a. vegna lélegs þéttiefnís skemmdist mikið af þeim glerrúðum, sem fyrirtækið framleiddi og seldi í heilar blokkir. ÓV. K en ekki g 1 blaðinu á þriðjudag misritaðist nafn leikflokksins Grimu sem kemur til landsins á menningar- viku. Flokkurinn er færeyskur og heitir Leikbólkurinn Gríma, en i orðið leikbólkurinn slæddist g i stað k. Er beðizt velvirðingar á þessu. Leiðrétting ' á fyrirsögn Fyrirsögn á viðtali við Jón Sigurðsson. formann stjórnar ' Lánasjóðs tslenzkra námsmanna, í DB í fyrradag átti að vera: „Markverð almenn skerðing námsaðstoðar” en ekki „Markmið almenn skerðing....” Þetta leiðrétt- ist hér með. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar. -GM. Mikið vetrarríkiá fjöllumíkringum Eskifjörð: Bátaraflað minnaíár enáður Afli Eskifjarðarbáta hefur verið minni þetta árið en fyrri ár. Til dæmis hefur Sæljónið ekki aflað eins lítið og núna í 10 ár. Það fékk alls 500 tonn frá áramótum til lokadags en hefur yfirleitt haft þetta 6—700 tonn og einu sinni komst aflinn upp í 800 tonn. Hólmanesið hefur veitt talsvert meira, 1250 tonn, Hólmatindur 801 og Vöttur406. Slæmt veður bæði í janúar og febrúar ásamt lélegu fiskiríi þá hefur gert þetta aflaleysi ársins að verkum. En það er ekki bara á sjónum sem veturinn hefur verið erfiður. Upp til fjalla hefur verið óvenju snjóþungt. Lét Guðmundur Sigurðsson hóndi á Engjabakka svo ummælt við Regínu frétta- ritara að hann myndi ekki eftir öðru eins vetrarriki um þennan tima árs, og er hann þó 76 ára. En núna virðist einhver bót ætla að verða á þvi síðustu örfáa daga hefur hlýnaö i veðri. Á Eskifirði hefur sólin skinið og blettir eru famir að grænka. Þó er andkalt þegar sólin hverfur á bak við ský. ^ •DS/Regina.^ MárElíssonfor- maðurfiskimála- nefndarOECD Már Elísson fiskimálastjóri er fyrsti Islendingurinn, sem kjörinn hefur verið formaður fiskimála- nefndar OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Nefnd þessi er til komin vegna tillögu Islendinga árið 1960 og hefur ýmis þýðingarmikil verkefni með höndum. Már var kjörinn á fundi nefndarinnar nýlega, til eins árs. <r>iB.CA 3 rli -'t mvma 1|||p v- i, () <-■■ Lifandi leita friðsældar meðal látinna Stúlkurnar á myndinni fundu sælureit I bliðviðrinu I fyrradag, því hvar er friðsælla en I kirkjugarði? Ljósm. DB: Ragnar Th. Keflavíkurflugvöllun 3000 manns hreinsuöu 300 bflfarma af rusli „Það verður að segjast eins og er, að það er hreint ótrúlegt hvað svona vorhreingerning getur breytt miklu,” sagði Lt. Comm. Howard Matson, blaðafulltrúi bandariska hersins á Kefla- víkurflugvelli, i samtaii við DB um mikla hreinsunarherferð, sem þar fór fram í síðustu viku. Um þrjú hundruð bilfarmar af drasli og rusli voru hreinsaðir á herstöðvar- svæðinu. Var ruslið ýmist grafið eða brennt og brotajárn, sem viða var að finna, var sett í sérstaka jámmulnings- vél. „Við gerum þetta tvisvar eða þrisvar á ári,” sagði blaðafulltrúinn. „Við skipt- um svæðinu niður í minni svæði og siðan fara allir út með plastpoka, um þrjú þúsund manns i allt, og hirða allt drasl, sem sjáanlegt er. Það er óneitan- lega mikill munur að sjá þetta núna.” ÓV. Humarveizlan kostar peninga: 1700 krónurkostar kflóið við skipshlið Humarinn, sem trúlega flestir munu telja mesta hnossgæti, sem upp úr sjó fæst við íslandsstrendur, er i háu verði. Verðlagsráð sjávarút- vegsins hefur nú náðsamkomulagi um lágmarksverð á humrinum á humar- vertíð 1978, þ.e. ferskum ogslitnum. Fyrir 1. flokks óbrotinn humarhala, 25 grömm og stærri fást 1700 krónur fyrir kílóið. Fari humarinn aftur á móti í 2. flokk, 10—25 grömm óbrotinn og brotinn 10 grömm og yftr fást 820 krónur. Ekki mun sjaldgæft að bátar komi með allt að tonn eða þar yfir af þessum eftirsótta fiski, þannig að ef vel veiðist ættu sjómennirnir á humar- bátunum að fá gott fyrir sinn snúð. -JBP-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.