Dagblaðið - 26.05.1978, Síða 32

Dagblaðið - 26.05.1978, Síða 32
frjálst, áháð dagblað FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978. Uppgripa- vinnaá hálendinu í sumar — Landsvirkjun semur við verktaka um 1. áfanga Hrauneyja- fossvirkjunar 60 til 70 manns munu væntanlega komast í uppgripavinnu við Hraun- eyjafoss í sumar, þar sem Lands- virkjun undirritaöi i fyrradag samning um fyrsta áfanga virkjunarinnar við samtök fyrirtækjanna ístaks hf., Mið- fells hf., Loftorku sf, AB Skanska Cementgjuteriet og E. Phil og Sön Aft Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks sagði í viðtali við DB í gær að fyrst um sinn mundu verkamennirnir búa í vinnubúðunum við Sigöldu sem er í aðeins 5 til 6 km fjarlægð frá Hrauneyjafossi. Síðar i sumar verða svo væntanlega komnar upp vinnubúðir á staðnum er Landsvirkjun reisir. í fyrsta áfanga verður grafið fyrir stöðvarhúsi og þrýstivatnspípum. Tilboð þessara aðila var lægst og nemur samningsupphæðin 713.883 milljónum. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga verði lokið i haust. Erlendu fyrirtækin hafa bæði starfað hér áður. -G.S. Á lista hjá Framsókn og Alþýðuflokki „Nei, ég er ekki genginn í Framsóknarflokkinn. Ég er enn i Alþýðuflokknum,” sagði Egill Guðlaugsson útgerðarmaður á Fáskrúðsfirði í samtali við DB í morgun. Það hefur vakið athygli að Egill skipar sjötta sætið á lista Alþýðuflokksins i Austurlandskjördæmi í alþingiskosningunum og jafnframt fyrsta sætið á lista Framsóknarfélagsins á Fáskrúðsfirði. Egill sagði að ástæðan væri sú að Alþýðuflokkurinn á Fáskrúðsfirði hefði ekki bolmagn til sjálfstæðs framboðs við bæjarstjórnarkosningnar. Því hefði ver- ið ákveðið að samfylkja með framsókn- armönnum. Listinn væri borinn fram af f ramsóknarfélaginu og fleirum. -GM. Friðrikí öðrusæti Friðrik Ólafsson stórmeistari er í öðru >æti eftir fjórar Umferðir á skákmótinu, ;em nú stendur yfir á Kanarieyjum. Friðrik sigraði Spánverja í þremur fyrstu umferðunum m.a. Corral, en gerði i fjórðu umferð jafntefli við ítalska alþjóðameistarann Tatai. Tveirstórmeistarar— auk Friðriks — taka þátt í mótinu. Czom, Ungverja- landi, og Westerinen, Finnlandi. Að fjórum umferðum loknum var Czom í efsta sæti með fjóra vinninga. Hafði sigraðíöllumskákumsínum. -hsím. Nú ætti að færast líf í gamla bæinn: LÁN T1L KAUPA NOTAÐRA ÍBÚÐA HÆKKUD UM 800 ÞÚS. ForeldraríGarðabæ varaðirvid: Látið krakk- ana ekki komast í Heiðmörk Kennarar i Garðaskóla hafa sent foreldum barna úr 7., 8. og 9. bekk skólans bréf þar sem þeir vara við því að foreldrarnir hleypi börnunum I Heiðmörk um næstu helgar. Tilefnið er að sögn lnga Þorkelssonar skólastjóra það aö undanfarin vor hafa skólanemar i Garðabæ og viðar að hópazt í Heiðmörk. gjarnan með vín meðferðis og látið ófriðlega. Hafa jafnvel orðið stórslys þar upp frá og þeir kennarar sem þangað hafa skroppið til að líta eftir hafa verið felmtri slegnir. í fyrra var foreldrunum sent bréf eins og núna og kom þá í ljós að mun færri krakkar fóru i útilegu og læti urðu minni. Ingvi orðaði það svo að allt hefði runnið út í sandinn. Vilja menn nú reyna aftur að skora á foreldra að hafa vakandi auga með krökkunum þetta árið líka. Það eru ekki bara krakkar i Garðabæ sem hópazt hafa skipulega i Heiðmörk heldur líka Cjeldi úr Reykjavik og Kópavogi og mikið af krökkum úr Hafnar- firði. Fjöldinn hefur lika orðið mjög mikill og sjást þá unglingarnir ekki fyrir. Ingvi sagði að jjeir kennararnir i Garðabæ skildu það vel að próflok væru tilefni fagnaðar en slikt yrði að vera í hófi. Þeir vildu aðeins koma í ve&fyrirslys. -DS. Unga fólkið sækist margt eftir því að búa i húsunum þar sem afi og amma ólu pabba og mömmu upp á sínum tima. Gömlu borgarhverfin hafa flest hver orðið nokkuð mannfá síðari árin eftir að fólk tók að tínast upp í Breiðholt og í nágrannasveitarfélögin. Myndin var tekin I gærdag af ungu fólki að sóla sig í gamla bænum I Reykjavík. -DBmynd Ragnar Th. Sig. Frá vinstri: Agúst Fjeldsted hrl., Benedikt Sveinsson, hrl., Ingt R. Helgason hrl. Hæstiréttur ákveður í dag: Hvar kjósa 65 úr Garðabæ? Um 65 atkvæðisbærir Garðbæingar vöknuðu morgunn einn i nóvember við það, að þeir voru orðnir Hafnfirðingar án þess að hafa flutt búferlum. Hinn 17. nóvember samþykkti bæjar- stjóm Garðabæjar að hafa makaskipti við Hafnarfjarðarkaupstað á landspild- um. Við þessi skipti lét Garðabær af hendi við Hafnarfjarðarbæ land þar sem um 65 atkvæðisbærir menn bjuggu. Hinn 12. maí sl. samþykkti Alþingi frumvarp til laga þar sem kveðið er á um það, að bústaðir fyrrum Garðbæinga verði í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarð- ar. Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða skyldi taka áðurnefnt fólk á kjörskrá í Hafnarfirði. Lögin voru birt i Stjórnar- tíðindum hinn 18. maí. Hinir nýorðnu Hafnftrðingar vildu eftir sem áður greiða atkvæði I bæjar- stjórnarkosningum í Garðabæ, eins og fyrr, enda greitt þvi bæjarfélagi skatta ogskyldur. Hinn 16. maí sl. neytti Sigurður Gísla- son arkitekt atkvæðisréttar síns utan kjörstaðar og þá sem kjósandi í Garða- bæ. í gerðabók kjörstjóra er þess getið, að Sigurði haft verið kunnugt um bráða- birgðaákvæði um flutning sinn til Hafn- arfjarðar. Hinn 23. maí höfðaði Sigurður mál gegn bæjarstjóranum í Garðabæ, Garð- ari V. Sigurgeirssyni, f.h. bæjarstjórnar. Gerði hann kröfu til þess að vera á kjör- skrá í Garðabæ I sveitarstjómarkosning- unum 28. maí. Af hálfu stefnda var þess krafizt að þessari kröfu Sigurðar yrði hafnað. Dómkröfu Sigurðar Gíslasonar var hafnað I héraðsdómi Hafnarfjarðar, sem hefur sameiginlega þinghá með Garða- bæ. Þessum dómi áfrýjaði Sigurður til Hæstaréttar. Hæstiréttur brá hart við og tók málið til flutnings í gærkvöldi kl. 5. Lögmaður Sigurðar, Ingi R. Helgason hrl., taldi bráðabirgðaákvæði fara í bág við þá grundvallarreglu að allir eigi að vera jafnir fyrir lögunum. Auk þess hefðu lögin ekki tekið gildi fyrr en við birtingu i Stjórnartíðindum. Geti þau ekki haft afturvirkni, enda þótt sveitarstjórnir hinna tveggja bæja hefðu byrjað fram- kvæmd þeirra hinn 9. og 11. mai á lög- lausan hátt. Benedikt Sveinsson hrl. flutti málið fyrir bæjarstjórann i Garðabæ. Byggði hann á sömu rökum og héraðsdómur byggði á. Hæstaréttardóms er að vænta í dag. ÓV/BS Áhugi ráðandi manna á að bjarga eidri borgarhverfum frá algerri mannauðn virðist fara vaxandi. Til skamms tima var ekki lánað úr sjóðum húsnæðismálastjórnar til kaupa notaðra íbúða. Síðan var byrjað aö lána litilsháttar til slikra kaupa. í gær sendi Félagsmálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu þar sem boðuð er hækkun á slikum lánum. Sendi ráðuneytið húsnæðismálastjórn bréf 19. maí sl. t bréfinu er greint frá áhuga ráðu- neytisins á að auka lánin til kaupa á eldri ibúðum til þess að fá betri nýtingu á slíku húsnæði og til að greiða fyrir ungu fólki sem vill eignast tbúðiríeldrihverfum. Hækkun á lánum þessum hefur verið nokkuð ör og í marz sl. var það hækkað úr 600 þús i milljón. Og nú stendur fyrir dyrum að hækka enn og það verulega — i 1.8 milljónir, sem er helmingur af láni sem fæst til nýbyggingar. Ráðuneytið kastar boltanum til húsnæðismálastjórnar i bréfi sinu og óskar eftir nánari tillögum hennar um framkvæmd hækkunarinnar. Þá óskar ráðuneytið eftir umsögn húsnæðis- málastjórnar um það hvort ekki væri æskilegt að rýmka ákvæði um lán til endurbóta á eldra húsnæði þannig að heimildin sé ekki takmörkuð við hús- næði öryrkja og ellilífeyrisþega. -JBP-.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.