Dagblaðið - 03.06.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNt 1978
3
SÖGUR AF KÓNGULOM í JÓHANNESARBORG
Viggó Oddsson skrifar frá Jóhannes-
arborg:
Elztu skráðar heimiidir segja frá
baráttu mannkynsins við pöddur. Alls
staðar eru pöddur. Heimskautafarar
segja frá óþolandi mývargi ogá „dauð-
ustu” eyðimörkum heims, eins og
Namib i SV-Afríku er fjölbreytt skor-
dýralif. Sjálfur er ég alla daga að reka
kóngulær út úr húsinu mínu í Jóhann-
esarborg, þótt innfæddir hafi ekkert á
móti húsakóngulóm „því þær borða
mýflugur”. Mýflugur eru plága víða í
I Skjalda kónguló er á stærð við tvær
I sveskjur og með 8 fætur. Vefur hennar
I er á stærð við regnhlif.
Afriku, einkum á regntimanum. Oft
koma lófastórar bólgur eftir nætur-
árásir þeirra. Stór landsvæði í Afríku
eru óbyggileg vegna malariu sem mý-
flugan ber, ásamt svefnsýki frá ann-
arri flugu.
Risakóngulær
Þótt kóngulær séu flestar mein-
lausar eru þær samt ein óvinsælasta
padda I heimi, einkum hjá kvenfólki.
Skáldsagnahöfundar skrifa mikið um
risakóngulær og Japanir gera kvik-
myndir af risakóngulóm sem eru
hlaupandi um holt og hæðir á eftir
Ijóshærðu kvenfólki i baðfötum.
Fyrsta risakónguló, sem ég sá, var
uppstoppuð á Þjóðsafninu i Pretoriu,
apakónguló, álíka stór og útglenntur
lófi eða hönd. Svipaða ló fann ég í bað-
herbergi á móteli í S-Afríku. Ég gisti
þar eina nótt og var að hugsa um að
þvo mér vel eftir mörg hundruð km
akstur. í baðkerinu fann ég lófastóra
risakónguló, með búk á stærð við stóra
kokkteilpylsu og stórar loðnar lappir í
allar áttir. Nú fannst mér að ég væri
ekki lengur neitt skítugur og lét mér
vist nægja að gera eins og segir í vis-
unni: „Hendur þvoði og hálft andlitið,
/ hitt varekki mjög útskitið.”
I kofanum við mótelið háttaði ég,
setti föt og skó upp áborð og hlustaði á
óhugnanleg hljóð úr skóginum, þar
sem andatrú, galdrar og kukl svert-
ingja leikur lausum hala.
Skjalda kónguló
i rósagarðinum meðfram götunni
við húsið mitt hefur feikna stór kóngu-
ló ofið sér vef sem er álíka stór og
regnhlíf. Hef ég látið hana vera í friði
enda mjög óvenjuleg, með skrautlegan
búk á stærð við 2 sveskjur, svartan
skjöld og eru skjaldarrendurnar gular
og 4 þverrákir. Nú koma fullir bílar af
fólki til að skoða viðundrið. Paddan
veiðir flugur og hengir þær snyrtilega í
röð á tvo strengi. Ég yrði ekki hissa þó
kóngulónni yrði stolið. Ég hef lesið
margar bækur um kóngulær (á safni)
og finn engin deili á henni, svo ég kalla
hana Skjöldu.
í miðri sögu
Einhvem tíma las ég hryllisögu frá
Cape Town. Þar var einhver frúin að
tala við vinkonu sína i síma og var í
miðri sögu þegar hún sá einhverja
brúna flygsu í trektinni á simtólinu.
Hún hélt að þetta væri fjöður úr af-
þurrkunarkústi og ætlaði að fara að
taka hana í burtu. Þá tekur „fjöðrin” á
sprett, reyndar stór, meinlaus húsa-
kónguló. Eins og nærri má geta kross-
brá aumingja konunni. Hún rak upp
Raddir
lesenda
skaðræðisóp, henti símtólinu og hljóp
út úr húsinu. Vinkonan við hinn end-
ann náði i lögregluna og sagði að ógur-
legt morð hefði verið framið og sagan
komst i blöðin.
Einkennileg eldspýta
Til að slá botninn i pöddusögur I bili
er hér ein frá góðum heimildum frá
Ródesíu, þar sem mikið er af kóngu-
lóm. Einhver borgarkona fór til að
hitta ættingjana á einum búgarðin-
um. Fólkið sat i notalegum kvöldsval-
anum á verönd hússins. Þá skáskýtur
stór kónguló sér yfir veröndina. Allir
horfa á og velta því fyrir sér hver ætli
að sópa kvikindinu i burtu. Þá kemur
heimilishundurinn og stígur með löpp-
inni á kóngulóna. Borgarkonan grams-
aði i veskinu, tók pödduna og stakk
henni í eldspýtustokk og ætlaði að
gefa frænda sínum fundinn, því hann
átti skordýrasafn. Eins og nærri má
geta fór þessi gjöf öðruvisi en til stóð.
Konan var að segja sveitafólkinu
sögur og þurfti að ná sér í sígarettu og
ætlaði að fara að kveikja i, rótaði i
veskinu, tók upp stokkinn með kóngu-
lónni. Paddan hafði þá raknað úr rot-
inu og var fljót að smeygja sér úr
skúffunni. Mér var sagt að stokkur-
inn, sígaretturnar, veskið og allt sem í
þvi var hefði flogið út um allan garð
og ópin í konugarminum heyrzt á
næstu bæi. Viggó Oddsson
Jóhannesarborg
PÓSTSENDUM
vHamrííbora
Fataverzlun, Hamraborg 14, K6p. Sími 43412.
Gallabuxur
3—6 ára kr. 3.900.-
7— 11 ára kr. 4.350.-
Flauelsbuxur
3— 7 ára kr. 3.850.-
8—12árakr. 4.300.-
Denim-jakkar , -
5-IOám' ‘
ICr 3.940.-
Þaðer
hagstætt
að verz/a í
Prjónakjólar
Stærðir 5—12 ára
Verð kr. 3880.- til kr. 4.200.-
Denim-kjólar
3ja-7árakr. 3.750.-
8-12 árakr. 3.940.-
Spurning
dagsins
Stundarþú
morgunleikfimi?
Helga Veturliðadóttir, forstöðukona
fyrir fjölskylduheimili: Nei, ég hef aldrei
stundað morgunleikftmi. Krakkarnir hjá
mér gera það annað slagið.
Magnús Eliasson fisksali: Nei, ég stunda
ekki neina leikfimi.
Dóra Gisladóttir nemi: Nei, ég iðka ekki
morgunleikfimi, en hún mamma
stundar morgunleikfimi á hverjum
morgni.
Anna Soffia Hauksdóttir háskólanemi:
Nei, ég stunda aldrei morgunleikfimi og
þekki engan sem gerir það.
Jón Einar, II ára: Ég stunda aldrei
morgunleikfimi. Ég þekki heldur engan
sem er i henni. Ég er i leikfimi í skólan-
um.
Eirikur Ólafsson, 14 ára: Nei, ég er ekki
í morgunleikfimi. Móðir mín stundar
morgunleikfimi og er hún nokkuð liðug.
Ég er í leikftmi I skólanum og er litið
liðugur.