Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 24
Milljónaverðmæti ísúginn: Dauðastnðið heldur áfram að Laxalóni Regnbogasilungurinn keyiður í gúanó á sama ta'ma sem vottorö eru gefin um algert heilbrigði „Ég býð ykkur hingað að Laxalóni til að sjá þegar við færum tonn af móður- eða stofnfiski regnbogasilungs upp úr eldistjörnum og ökum með hann í gúanóverksmiðjuna að Kletti,” sagði Skúli Pálsson að Laxalóni er hann hringdi í DBi gær. Litlu siðar urðu blaðamenn vitni að áframhaldandi dauðastriði fisks að Laxalóni. Við sáum spriklandi fiskinn á bílpallinum. Þar fór gott efni I mjöl- vinnslu, dýr fiskur fyrir lítið verð. „Ef hrogn úr þessum fiski yrðu alin hér á landi mundu þau skila verðmæt- um sem næmu hundruðum milljóna króna,”sagði Skúli. „Leyfi til slíks fæst ekki. Ég hef barizt fyrir slíku leyfi síðan 1951 að ég fékk hingað hrogn frá Danmörku og hóf ræktun regn- bogasilungs. Upphaflegu hrognin voru dæmd heilbrigð og ósýkt eftir vand- lega skoðun. Aldrei hefur orðið vart nokkurs sjúkdóms I regnbogasilungi hér að Laxalóni og silungurinn hér er nú talinn einn af örfáum ósýktu stofn- um þessarar fisktegundar i Evrópu. Samt sem áður fæst ekki leyfi til eldis regnbogasilungs hér á landi umfram það sem er hér í stöðinni. Þetta eru slíkar og þvilíkar ofsóknir að með öllu er óskiljanlegt eða skýranlegt. Ég hef alvarlega hugleitt að biðja um rann- sókn dómstóla á öllu þessu máli,” sagði Skúli. Sá hluti Laxalónsstöðvarinnar sem geymir regnbogasilunginn fær vatn úr læk sem á upptök sín i Bullaugum, einu af vatnsbólum Reykvíkinga. Það vatn er gott til fiskeldis. Sá hluti Laxalónsstöðvarinnar sem geymdi laxaseiði og laxfisk fékk hins vegar vatn úr uppsprettu á öðrum stað. Sjúkdómar sem vart varð í laxa- seiðum stöðvarinnar i fyrra urðu til þess að úrskurðað var að allur lax- fiskur skyldi drepinn. Var það gert undir eftirliti og stjórn dýralækna sem til þess voru skipaðir. Nákvæm skoðun á regnbogasilungi Skúla sýndi heilbrigðan stofn og heil- brigði seiði og var honum þyrmt í niðurskurðinum í fyrra. Skúli hefur alltaf flutt út nokkuð af hrognum. Hefur hann þá fengið vottorð yfirdýralæknis um algjört heilbrigði þeirra ásamt yfirlýsingu um að aldrei hafi komið upp smitnýrna- sjúkdómur af völdum sýkla i regn- bogasilungsstofninum í Laxalóns- stöðinni. í vor hefur söluverð hrognanna verið sem næst helmingi hærra en markaðsverð hrogna í Evrópu. Stafar það af því að heilbrigðir regnboga- silungsstofnar eru orðnir fátíðir i Evrópu. Skúli getur ekki annað eftir- spurn eftir hrognum. í gær var hann t;d. beðinn um 10000 hrogn á sýningu í Nice í Frakklandi. Þau á hann ekki til. Hann getur ekki stækkað stöðina á Laxalóni og aukið framleiðsluna og leyfi til að flytja annað fær hann ekki. „Ég er fórnardýr manna sem taka geðþóttaákvarðanir varðandi fiskeldi. Þetta eru hreinar ofsóknir opinberra embættismanna gegn mér þótt þeir sjálfir hafi lýst þvi yfir að þá skorti þekkingu til töku ákvarðana, sem þeir þó hafa tekið,” sagði Skúli. Skúli kvað það undarlegt hve sér hefði verið haldið niðri. Fiskeldi væri viðurkennd atvinnugrein um allan héim. Hann sagði að Danir flyttu út regnbogasilung fyrir andvirði 7 milljarða isl. króna á ári. Það væri svipuð upph. og fengist fyrir mjólk- urframleiðslu á öllu svæðinu frá Hornafirði til Snæfellsness. 1 flestum eða öllum lækjum á allri suðurströnd íslands mætti koma upp regnboga- silungsrækt. Fengju bændur fiska í ákveðinni stærð frá stórri sameigin- legri eldisstöð mætti breyta búskapar- háttum islenzkra bænda til miklu betri og traustari fjárhagsafkomu en þeir Skúli Pálsson og starfsmaður hans við slátrun laxanna. — DB-mynd R.Th. Sig. hafa nú af umdeildri offramleiðslu landbúnaðarvara. Sjómannadagurinn hátíðlegurhaldinn Sjómannadagurinn er á morgun. Verður hans minnzt viðast hvar um landið en mestu hátiðahöldin verða trúlega í Nauthólsvík i Reykjavik. í Keflavík verður minnismerki Ásmundar Sveinssonar afhjúpað og i Hafnarfirði verður mikil hátíð sem stendur frá morgni til kvölds. Um kvöldið munu sjómenn og konur þeirra skunda á dansleiki víða og munu fagna yfirstaðinni vertið enda þótt hún hafi ekki reynzt þeim öllum mjög affarasæl. Dagblaðsmenn óska sjómönnum til hamingju með daginn. Hvareru riddararnir? Þessar ungu dömur voru að bardúsa við hjólbarðaskipti efst á Laugaveginum i sólskininu í gxrdag. Furðulegt. Enginn „riddari” átti leið um götuna til að rétta ungu stúlkunum hjálparhönd. Liklega trúa allir karlmenn þvi nú til dags að bless- uðum konunum þurfi ekki að hjálpa. DB-mynd R. Th.Sig. Efla hjörgunar- starfá Garóskaga „Tíð skipströnd á Garðskaganum og önnur óhöpp sköpuðu þörfina fyrir björgunarsveit hérna í Garðinum,” sagði Ólafur Björgvinsson, varafor- maður björgunarsveitarinnar Ægis í Garði, þegar við hittum hann að máli fyrir utan reisulegt hús ásamt nokkr- um öðrum piltum sem voru I óða önn að raða timbri, „en það er ekki nóg að hafa þjálfaða sveit, hún verður að búa við góðar aðstæður, eignast tæki og húsnæði fyrir starfsemina." Eins og aðrar björgunarsveitir á Suðurnesjum kappkosta Ægismenn að vera sem bezt undir störfin búnir. Einn liðurinn er bygging húss sem að miklu leyti er unnið i sjálfboðavinnu og fyrir fé sem aflað er með mörgu móti. „Við ætlum að hefja sölu á leik- fangahappdrættismiðum á laugardag — þar geta Suðurnesjamenn eignazt t.d. reiðhjól fyrir 200 kr. og eflt björg- unarstarfsemina um leið,” sgði Ólafur, „einnig munum við selja bílrúðu- merki, teiknað af Kristjönu Kjartans- dóttur. Ef vel gengur gerum við okkur vonir um að geta gengið frá húsinu að utan fyrir haustið og unnið i innrétt- ingum í vetur.” Varla þarf að efa að Suðurnesja- menn taka þeim Ægismönnum vel þegar þeir ganga í hús á næstunni til að bjóða merki og miða til að efla öryggi i héraðinu. Formaður Ægis er Þórarinn Guðbergsson. frýálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR3. JÍJNÍ 1978. Stal fjórum ökutækjum sömu nóttina Tæplega sautján ára Hafnfirðingur játaði i gær hjá rannsóknarlögreglu- mönnum í Hafnarfirði tvo bilþjófnaði, stuld á dráttarvél og tilraun til að stela einum bíl í viðbót. Pilturinn var undir áhrifum áfengis og jafnframt er hann ökuréttindalaus. Bilarnir sem hann stal voru gamall Chevrolet og Fiat árgerð 1973. Fundust þeir báðir nokkuð skemmdir, annar á Áfltanesi og hinn við Hvaleyrarvatn. Vinnuvélin sem pilturinn stal var í eigu Rafveitu Hafnarfjarðar. Hún fannst óskemmd. Stuttar gönguleiðir fór pilturinn frá þeim stöðum þar sem hann skildi stolnu farartækin eftir til næsta ökutækis er hann réðst að. Loks labbaði hann frá Hvaleyrarholti og heim að loknum næturleiknum. Hann var i fangageymslu í gær eftir játninguna.ASt. Ungir Reykjavfkurstrákar að leik með flugdreka á götu úti i gærdag. — DB- mynd Ari. Fljúga skal flugdrekinn... Flugdrekar eru aftur i tizku, jafnt meðal yngri sem eldri. Á morgun verða félagar úr Lionsklúbbnum Tý i Reykja- vík með árlega sölu á flugdrekum en ágóðanum verja þeir til að styrkja grein- ingarstöðina í Kjarvalshúsi á Seltjarnar- nesi. Hafa þeir unnið þar gott starf í sjálfboðavinnu og með fjárframlögum. Drekarnir eru seldir í Hafnarhúsinu, við Hlemmtorg og í Breiðholti. Án efa munu Týsmenn verða áberandi og ekki fara fram hjá neinum vegfaranda. Aðförað hunda- fangelsi þeir staöráðnir i því að byggja yfir starfsemi sina hjá björgunarsveitinni Ægi 1 Garði, með aðstoð almennings. Á myndinni standa nokkrir þeirra fýrir framan björgunar- sveitarhúsið, en þeir eru Ólafúr Björgvinsson, Andrés Jónasson, Tryggvi Einarsson og Sigurgeir Torfason. -DB-mynd emm. Það þekkist víða meðal stórþjóða að gerð sé atlaga að húsum þar sem þeir sem lögreglan hefur tekið til fanga eru geymdir. Slíkt er fátítt hér. En i fyrradag var gerð atlaga að „hundafanga- geymslum” gæzlumanns lögreglunnar i Blesugróf. Þar innan dyra var hundur sem tekinn hafði vcrið úr umferð er hann var einn i leyfisleysi á göngu í Árbæjar- hverfi. Hundurinn var svo leystur úr prísundinni í gær og er ekki vitað hverjir voru að verki. Innbrot var þó framið til að ná i hundinn. „Ef við sjáum hann aftur lausan verður hann ekki geyntdur 'lengi,” sagði lögreglumaður í gær. Hundar mega ekki ganga lausir á almannafæri, allra sizt i Reykjavik, þar sem hundabann er ríkjandi. -ASt. »-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.