Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ1978 r Það er skiljanlegt að svartur vilji stinga upp í biskupinn, en leikur þessi hefur þó alvarlegar veikingar i för með sér. Skárra virðist t.d. 13. — Kh8, þó svartur hafi eftir sem áður erfitt tafl. 13. — Dd7? væri hins vegar afleikur vegnal4. Bxf6 Bxf6 15. Rcxd5 Bxd4 (15. — Rxd4 16. Rxf6+ Hxf6 17. Bxe6+ Hxe6 18. c3 og vinnur) 16. c3 Bxe3 17. Rf6+! Hxf6 18. Dxd7 og hvitur vinnur. 14. Bg3 Ra5 15. Be5c6. 16. f3! Leikið á réttu augnabliki. Nú koma veilurnar í svörtu stöðunni vel í Ijós. 16. — Rxb3 17. axb3 exf3 18. Hxf3 Dd7? Leiktap. Betra er 18. — De8 strax. 19. Dd3 De8 20. RB Bxf5 21. DxfS. Hvíta staðan er vægast sagt ógn- vekjandi. 21.—Hd8 Hvitur vinnur einnig eftir 21. — Df7 22. Hafl Kg7 23. Ra4! ásamt 24. c3og25. Rc5. 22. Hafl Kg7 23. De6 Df7 24. Hxf6! — svartur gafst upp. Að lokum skulum við renna yfir eina skák í 19. aldar stij, þegar ekkert skipti máli nema máta and- stæðinginn. Þeir sem hafa gaman af kóngaveiðum ættu ekki að láta þessa fram hjá sér fara! Hvftt: Bragi Kristjánsson (T.R.) Svart: Björn Höskuldsson(S.H.). Spánski leikurinn. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5.0—0 b5 Nákvæmari leikmáti er fyrst 5. — Be7 6. Bb3 Be7 7. d4! Notfærir sér ónákvæmni svarts i 5. leik. Nú er 7. — exd4 svarað með 8. e5 Re4 9. Bd5! Rc5 10. Rxd4 og 7. — Rxe4 er svarað með 8. dxe5 Rc5 9. Bd5! Bb7 10. Rc3 0-0 11. Be3, með betri stöðu á hvitt í báðum tilvikum. 7. — d6 8. c3 0—0 9. h3 Ra5? Ógæfulegur leikur. Nú fer mikilvægt vald af e-peði svarts og hann lendir fljótlega í erfiðleikum vegna þess. Vænlegra til árangurs virðist 9. — h6 ásamt — — He8 o.s.frv., en hins vegar ekki 9. — Rxe4?? 10. Bd5. 10. Bc2 Bb7 11. Rbd2exd4? Gefur eftir á miðborðinu. Reynandi vare.t.v. 11. — Rd7. 12. cxd4 d5 13. e5 Re4 14. Hel f5 15. exf6 fr. hl. Rxf6 16. Rg5 Bc8 Þessi vandræðalegi leikur gefur vel til kynna hve svarta staðan er slæm. 17. Rdf3 h6 18. Re6 Bxe6 19. Hxe6 Rc4 20. Dd3 Re4 Hvitur hótaði m.a. 21. Bxh6! gxh6 22. Dg6 + Kh8 23. Hxf6! og mát á h7. 21. Hxe4! Með þessari snjöllu skiptamunsfórn tekst hvitum að koma svarta kóngnum úr fylgsni sinu, svo ekki sé meira sagt. — Nú fer veiðitiminn í hönd. FÓRNIN SEM VANNST 21. - dxe4 22. Dxe4 Hfö 23. Re5!' Bb4 Ekki mátti leyfa 24. Dh7+ Kf8 25. Dh8 mát. 24. Dh7+ Kf8 25. Dh8+ Ke7 26. Dxg7+ Ke6 27. Rc6 Df8 28. d5 + ! Kd6. 28. — Kxd5 29. Rxb4+ Dxb4 30. Dxf6 er einnig vonlaust. 29. Dg3 + Kxd5 Eða 29. - Kd7 30. Dg4+ Kd6 31. Rxb4. 30. Rxb4+ Dxb4> 31. Dd3+ Kc5 32. Be3+ Rxe3 33. Dxe3+ Kc6 34. Be4+ Kd7 35. Hdl + Hd6 36. Hxd6 cxd6 37. Bxa8. Ekki verður annað sagt en hvitur endi meistaraverkið svívirðilega. Saklaus hrókur, sem einungis var áhorfandi að hildarleiknum, er drepinn eins og ekkert sé sjálfsagðara. — Framhaldið þarfnast ekki skýringa. 37.------xDxb2 38. Bd5 b4 39. De6+ Kc7 40. De7+ Kc8 41. Be6+ Kb8 42,Dxd6+ Ka8 43. Dxa6+ og svarturgafst upp. Jón L. Árnason. Eskifjarðarsveit Aðalsteins varð Austurlandsmeistari Um hvítasunnuna var haldið á Egils- stöðum Austurlandsmót i bridge. Keppt var um veglegan farandbikar, sem Aðal- steinn Jónsson, forstjóri á Eskifirði, gaf til keppninnar. Ellefu sveitir mættu til leiks. Fyrst voru spilaðar tvær umferðir með hrað- keppnisfyrirkomulagi en síðan spiluðu efstu sveitirnar til úrslita. Sigurvegari i keppninni varð sveit Aðalsteins Jónssonar, Eskifirði, með 45 stig. 1 sveitinni spiluðu auk hans Sölvi Sigurðsson, Kristmann Jónsson, Bogi Nílsson og Kristinn Jónsson. í öðru sæti varð sveit Kristjáns Krist- jánssonar, Reyðarfirði, með 38 stig. t þriðja sæti sveit Þórarins Hallgrims- sonar, Egilsstöðum, með 37 stig og í fjórða sæti sveit Bergs Sigurbjörnssonar, Egilsstöðum. Eftir umferðirnar tvær i hraðkeppn- inni var sveit Kristjáns efst með 1159 stig. Sveit Aðalsteins i öðru sæti með 1181 stig. Sveit Þórarins i þriðja sæti með 1153 stig og sveit Bergs í fjórða sæti með 1089 stig — en eins og áður segir hófu 11 sveitirkeppni. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Lokaumferðin í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavikur fór fram sl. miðvikudag. Sveit Hjalta Eliassonar sigraði i mótinu en með honum í sveit eru Ásmundur Pálsson, Einar Þorfinns- son, Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson. Úrslitin urðu þessi: 1. Svert Hjaha Efiassonor 111 stig 2. Guömundur T. Gtolason 102 stig 3. SigurflurB. Þorsteinsson 94stig 4. Stefán Guðjohnsen 90 stig 5. Jön Hjaitason 68 stig 6. Óiafur H. Ólafsson 56stig 7. Steingrímur Jönasson 17 stig 8. Eiríkur Helgason 9stig Þá er þessari vertíð lokið hjá Bridge- félagi Reykjavíkur á þessum vetri. Eins og getið var um í síðasta þætti, þá eru hér á landi þessa dagana Færey- ingar í boði Bridgedeildar Breiðfirðinga. Þetta eru 26 spilarar, en i hópnum eru 31 í allt. Þessir spilarar eru frá „Nyggja Bridgefélaginu” i Þórshöfn. Þegar þetta er skrifað eru Færeyingamir búnir að taka þátt í tveggja kvölda barómeter- keppni og úrslitin í þeirri keppni urðu þessi: A-riðll 1. Sigrún ísaksdóttir — Sigrún Ólafsdóttir 189 stig 2. Magnús Halldörsson — Magnús Oddsson 169 stig 3. Þörarínn Ámason — Gísli Viglundsson 161 stig 4. óskar Þráinsson — Guðlaugur Karisson 88 stig B-riðHI 1. Ingunn Bemburg — Gunnþórunn Halldörsdóttir 161 stig 2. Þorvaldur Matthíasson — Sva va Ásgeirsdóttir 119 stig 3. Sveinn Sigurgeirsson — Sigríður Rögnvaldsdóttir lOOstig 4. Guðríður — Ósk Kristjánsdóttir 99 stig Eins og sést á þessum úrslitum þá eru konurnar hjá Bridgedeild Breiðfirðinga „karlmönnunum sterkari”. Sl. þriðjudag fóru Breiðfirðingarnir með Færeyingana upp í Borgarnes og Borgarfjörð, en í gærkvöld var spiluð sveitakeppni við þá. Ferð Færeyinganna lýkur í kvöld með lokahófi i Átthagasal Hótel Sögu og eru allir velkomnir. Að lokum kemur svo eitt spil frá baró- meterkeppninni. Það sýnir okkur að tölvugefin spil geta veriðskemmtileg, en um leið óvenjuleg. Nordur 4 1073 V ÁG1098752 O enginn * ÁI0 Au>tur A enginn V 643 ó DG109532 + 732 Sumjii * ÁKG9862 7KD 0 enginn * G985 Eins og við sjáum þá standa sex hjörtu í norður-suður. Sex spaðar standa ekki með laufkóng út. Á einu borðinu fórnuðu austur og vestur í sex tigla yfir fimm spöðum og þeir stóðu eftir að lauf- ás kom út. Sumarspila- mennska Tafl- og bridgeklúbburinn mun gangast fyrir sþilamennsku á fimmtu- dögum i sumar í Domus Medica og Bridgefélagið Ásarnir i Kópavogi munu spila á mánudögum í Hamra- borg 1. VlSTUK a D54 v ekkert ö ÁK8764 + KD64 Frá heimsókn Færeyinganna. Séð yfir spilasalinn. Listahátíð í Norræna húsinu Laugardagur 3. júní kl. 17.00 Sunnudagur 4. júní kl. 20.30 Mánudagur 5. júní kl. 20.30 í sýningarsölum í kjallara: í bókasaf ni: Opnun listsýninga Strokkvartett Kaupmannahafnar leikur verk eftir Mozart, Þorkel Sigurbjörnsson og Schub. Grieg-Dúóið leikur verk eftir Jón Nordal, Grieg og Beethoven. Seppo Mattinen og Helle-Vibeke Erichsen málverk og grafík- myndir, opið kl. 14—19. Vigdís Kristjánsdóttir „íslenskar jurtir og blóm", vatnslitamyndir, opið kl. 14-19. N LISTAHÁTÍÐ Ö 1978 NORRÆNA HUSIÐ

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.