Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 6
Ritari óskast Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Keldnaholti, óskar að ráða ritara. Vélrit- unar- og enskukunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist fyrir 10. júní. V-listinn Reykjaneskjördæmi Höfum opnað skrifstofu að Hamraborg 7 í Kópavogi, símar 44199 og 44792. Skrifstofan er opin frá kl. 13—22 alla virka daga, sunnudaga frá kl. 13—17. Ritari óskast Opinber stofnun óskar að ráða ritara. Starfs- reynsla nauðsynleg. Umsókn er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 7. júní merkt 6031. Lausar stöður við embætti ríkisskattstjóra: Nokkrar stöður fulltrúa við embætti ríkis- skattstjóra eru lausar til umsóknar. Lögfræði-, viðskiptafræði- eða endurskoðunarmenntun er nauðsynleg. Fulltrúar sem gegna þessum stöðum mega vænta þess að verða sendir til starfa utan embættisins hvenær sem þörf krefur. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir sendist embætti ríkisskattstjóra fyrir 30. júní 1978. Reykjavík 2. júní 1978.1 Ríkisskattstjóri. HJÓLBARÐA ÞJÓNUSTAN HREYFILSHÚSINU SÍMI 81093 Nýir og sólaðir hjólbarðar. Allar stærðir fyrir fólksbifreiðir. Aðeins hjá okkur. Jafnvægisstillum hjólbarðana án þess að taka þá undan bifreiðinni. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1978 LISTAHÁTÍÐ || 1978 Hvað er í boði á sunnudag? íslenzki dansflokkurinn með 3 balletta: „Allir dansarar hata hver annan” Danshöfundarnir þrir, Ingibjörg, Yuri og Anton ásamt Erni Guðmundssyni á sviði Þjöðleikhússins. DB-mynd Bjarnleifur. íslenzki dansflokkurinn og Þursaflokkurinn á sviði Þjóðleikhússins. — DB-mynd- R.Th.Sig. Framlag íslenzka dansflokksins til Listahátíðar er frumsýning á 3 ballett- um, einum islenzkum, öðrum íslenzk- um að hluta og þeim þriðja útlendum. Sá útlendi er Pas de Quatre eða Fjórdans. Er hann eftir hinn fræga dansara Anton Dolin sem hingað er kominn sérstaklega til að stjórna upp- færslu hans. Dolin samdi ballettinn undir áhrifum frá öðrum frægum ball- ett frá 1845. Þennan ballett dönsuðu eitt sinn 4 frægustu ballerínur i heimi og voru áhrifin gífurleg. Vissum erfið- leikum var bundið að færa upp ballett- inn enda „hata allir dansarar hver annan” eftir því sem Dolin segir. Ballerínurnar gátu hreint ekki komið sér saman um hver þeirra ætti að dansa fyrsta og veigaminnsta sólóið. Það var ekki fyrr en leikhússtjórinn sagði ákveðið að það ætti að vera sú yngsta að lausn fékkst og sú var ekki litið ánægð með að vera yngst, enda voru þær stöllurnar allár örlítið við aldur. Pas de Quatre dansa Ásdis Magnúsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir og Misti McKee og fer röð þeirra ekki eftir aldri. Sá ballett sem teljast má hálfíslenzk- ur er eftir ballettmeistara Þjóðleik- hússins, Yuri Chatal. Hann er saminn við tónlist með þjóðlagaívafi eftir Jón Ásgeirsson. Yuri sagði að hann notaði viss form sem hann hefði séð i is- lenzkum þjóðdönsum en þó væri ball- ettinn ekki beint byggður á þeim. Alpo Pakarinin frá Finnlandi og Þórarinn Baldvinsson dansa sem gestir ásamt ís- lenzka dansflokknum í þessum ballett sem nefndur er íslenzk danssvita. Tón- listin verður flutt af kammersveit sem stödd verður á sviðinu. Þriðji ballettinn er eftir Ingibjörgu . Björnsdóttur skólastjóra Listdansskóla Þjóðleikhússins við tónlist eftir Þursa- flokksmeðlimi. Nefnist ballettinn því undarlega nafni Sæmundur Klemens- son. Sæmundur þessi var uppi á Suðurnesjum á 18. öld og eru einu minjarnar um hann grafskrift sem varð Ingibjörgu neisti að verkinu. Hún fór að hugsa um hvers konar maður þessi Sæmundur hefði verið. Þursaflokkurinn lagði síðan til tónlist- ina og verður á sviðinu með dans- flokknum. Þeir Þórarinn og Alpo dansa einnig gestadans i þessu verki. Frumsýning á dansinum er á sunnudagskvöldið klukkan átta. önnur sýning er á mánudagskvöldið á sama tima. . jyg Gísli og Halldór leika saman í Þjóðleikhúsinu: Tvö verk sem fyrrum hneyksluðu fólk 1 fyrsta sinn í mörg ár verða tónleikar á sviði Þjóðleikhússins nú á þessari lista- hátíð. Það eru píanóleikararnir Gisli Magnússon og Halldór Haraldsson sem þar leika saman með aðstoð tveggja slag- verksleikara, þeirra Reynis Sigurðssonar og Odds Björnssonar. Gísli og Halldór eru hvor í sínu lagi mjög þekktir píanóleikarar og það að ágætum. Hin síðari ár hafa þeir svo leikið töluvert saman og hefur það vakið hrifningu áheyrenda. Vissir erfiðleikar fylgja samspilinu því ekki eiga öll sam- komuhús á landinu tvo flygla. Á efnisskránni i Þjóðleikhúsinu eru tvö mjög viðamikil verk. Hið fyrra er Vorblót eftir Stravinsky. Það var samið árið 1912 og þá upphaflega sem ballett fyrir hljómsveit. En Stravinsky breytti því seinna sjálfur þannig að það er til fyrir tvö píanó einnig. Frumflutningur Gísli Magnússon. Halldór Haraldsson. ....... '' Önnumst hvcrs knnar matvælareykingar fyrir verslanir, mötuneyti og einstaklinga. REYKIÐJAN HF. SMIÐJUVEGI 36 '2 7 63 40 verksins vakti gífurlegt hneyksli. Eins og á nafninu sést fjallaði verkið um trúar- siði -heiðingja og mannfórnir. Stravinsky hafði skömmu áður dreymt eitthvað þessu að lútandi. Áhrif verksins á tón- bókmenntir hafa verið mjög mikil en þó hefur það aldrei fyrr verið flutt hér á landi. Seinna verkið er Sónata fyrir tvö pianó eftir Béla Bartók. Hún vakti i fyrstu ákafa reiði manna vegna nýstár- leika síns en eftir að menn fóru að hlusta betur á hana vann hún hug þeirra og hjörtu. Núna telst hún til snilldarverka Bartóks.Sónatan er mjög erfið i flutningi og leggja ekki margir í hana. Reynir Sigurðsson er fyrsti slag- verkari Sinfóníunnar en Oddur Björns- son er ennþá í námi. Oddur er sonur Bjöms R. Einarssonar svo hann á ekki langt að sækja hæfileika. -DS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.