Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 11
11 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1978 Fall borgarstjómarmeirihluta Sjálfstæðisf lokksins: Fráhvarf frá megin- stefnu helzta orsökin Hinn 25. maí 1929 gáfu þingmenn íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins út sameiginlega yfirlýsingu um að það hefði orðið að sam- komulagi þeirra í milli að ganga saman í einn flokk sem þeir nefndu Sjálf- stæðisflokk. Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokks'ins, hefur skýrt það sérstaklega að nafngift flokksins væri ekki einungis dregin af fyrra stefnuskráratriði flokksins, þvi að vinna að fullu sjálfstæði þjóðarinnar, heldur og ekki siður af öðru stefnu- skráratriðinu, til að gefa til kynna þjóðfélagsstefnu hins nýja flokks almennt. Með orðum Jóns Þorlákssonar var skýringin þessi: „í innanlandsmálum bendir sjálfstæðisnafhið allvel á þunga- miðju þess ágreinings sem skilur á milli flokksins og sósíalistanna...” Stefnumál og markmið Þau sjónarmið, sem koma fram i stefnuyfirlýsingunni frá 1929, eru í dag kjarninn í stefnu Sjálfstæðis- flokksins, sjálfstæðisstefnunni, enda voru þessi sjónarmið tekin upp í hina nýju stefnuyfirlýsingu flokksins á landsfundi hans árið 1963 — og ítrek- uð á landsfundum siðar. Það er því engin furða þótt þeim mönnum sem aðhyllast stefnu Sjálf- stæðisflokksins komi það spánskt fyrir þegar Sjálfstæðisflokkurinn leggur sig sérstaklega fram um að tileinka sér og kynna þau félagslegu viðhorf sem verkalýðsflokkar og sósíalistar hafa löngum talið sitt sérsvið, þótt barátta þeirra á þvi sviði hér á landi hafi sjaldnast höfðað til fjöldans. Þótt sjálfstæðisstefnan byggi fyrst og fremst á einstaklingum er hún ein^ konar heildarhyggja allrar þjóðarinn-' ar. Sjálfstæðisstefnan er því andsnúin hvers konar stéttarhyggju, einkum og sér i lagi kenningum sósíalista. komm- únista eða marxista sem stéttabar- áttu. — Jafnfráhverf er sjálfstæðis- stefnan þvi að viðurkenna starfsstéttir sem baráttuaðila mótsnúna og strið- andi hverja gegn annarri. innan sama þjóðfélags, með valdatöku einnar stéttar eða drottnun hennar yfir oðrum stéttum að markmiði. Stjórnmálastefna, sem byggir á frelsi og vinnur að heill heildarinnar, getur ekki keppt að neinu öðru stjórn- skipulagi en lýðræði. Starfsstétt er félagsfyrirbæri sem hefur gildi og felur i sér verðmæti en ofmat á henni er háskalegt, og ofurvald stétta á kostnað almenningsvalds og einstaklingsfrelsis, ásamt stéttabáráttu, stuðlar beint að upplausn þjóðfélagsins og hefur heldur engan annan tilgang. Þetta má gjarnan hafa i huga, ein- mitt nú, þegar kvartað er yfir þvi af ábyrgum aðilum innan stærsta stjórn- málaflokks þjóðarinnar að kjósendur eða réttara sagt fylgjendur Sjálfstæðis- flokksins hafi ekki skilað sér sem skyldi á kjörstað i nýafstöðnum borgar- og sveitarstjórnarkosningum. — Margir þeirra sem ekki mættu nú á kjörstað til þess að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn og kusu fremur að sitja heima eru síður en svo ánægðir með þá þróun sem upp á síðkastið virðist dafna í „félagsmálaforystu” Sjálf- stæðisflokksins, flokks sem engan rétt eða rök hefur til þess að bæta hinum félagslegu markmiðum sósialista við stefnumörkun sína Neikvæður áróður —og málflutningur Sá linnulausi áróður sem settur var i gang fyrir kosningar af einstökum aðilum í forsvari borgarstjórnarmeiri- hluta Sjálfstæðisflokksins og fólginn var í því að flokkurinn stæði „mjög tæpt”, og „að engan veginn væri víst að hann héldi meirihluta”, ásamt þeirri bábilju að halda þvi fram að andstæðingarnir væru að „telja fólki trú um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði yfirburði og alla möguleika til að vinna á eða halda sínu fylgi” — gerði það að verkum að menn héldu sig heima — og slíkur áróður kom þvi raunar inn hjá mörgum að Sjálfstæðis- flokknum væri ekki akkur i því að halda fylgi sínu i borgarmálum. um lengri eða skemmri tíma. Má enda segja að sá málflutningur, sem hafður var i frammi af fulltrúum meirihlutans fyrir kosningar, hafi að uppistöðu til verið einn og sá sami, sem sé aukin félagsmál I ýmsum myndum, dagheimili, upptökuhéimili og félagsmálastofnanir sem flest eiga að stuðla að því að losa heimilin und- an því „fargi” sem reykvisk börn virðast vera orðin foreldrum sinum og torvelda þá jarðnesku alsælu að for- eldri geti „bæði verið föl á markaði vinnunnar. ' Það er eins og ýmsir þeirra sem komizt hafa til áhrifa innan Sjálf- stæðisflokksins og þreyta kappræður um félagsmál af slikum ákafa að þeir mega vart vatni halda geri sér enga grein fyrir þeirri staðreynd að sú félagsmálastefna, sem vinstri flokkarnir og kommúnistar beita sér fyrir, á ekkert skylt við þá stefnu Sjálf- stæðisflokksins sem leggur höfuðáherzlu á samhjálp til handa þeim sem um stundarsakir eða varan- lega standa höllum fæti I lífs- baráttunni, ýmist vegna vanheilsu, örorku, aldurs eða vinnuskorts. Slík samhjálp er í þvi fólgin og á að vera með þeim hætti að hún sljóvgi ekki sjálfsbjargarhvöt einstaklinganna heldur auki hún á vilja þeirra, sem hennar njóta, til þess, eins og kostur er, að sjá sér að einhverju leyti sjálfir farborða og efli löngun þeirra til lifs- baráttunnar. Ennfremur hefur sá áróður verið magnaður af mörgum innan Sjálf- stæðisflokksins, og raunar tekinn upp eftir andstæðingunum, að „lands- málin” og þá rikisstjórnin hafi úrslita- áhrif um það hvort Sjálfstæðis- flokkurinn haldi meirihluta i borgar- stjórn Reykjavikur! — Slíkt hefði þá átt að ske áður á hálfrar aldar stjórnar- timabili Sjálfstæðisflokksins i Reykja- vik. Minnisstæðust allra setninga úr kosningabaráttunni hér í Reykjavík er þó sennilega sú sem höfð er eftir ein- um af frambjóðendum „félags- málanna” I Sjálfstæðisfiokknum: „Ég er fædd i Tjarnargötu, í gömlum leigu- hjalli frá Reykjavikurborg, og er sennilega eini frambjóðandinn i borg- arstjórnarkosningunum sem fyrst hefur litið dagsins ljós i slíku hús- næði,” (leturbr. gr.höf.) — Hvaða skoðun skyldi þessi frambjóðandi hafa á leiguhúsnæði Reykjavikurborgar? — Eiga sjálfstæðismenn að trúa því að fleiri frambjóðendur, fæddir i „leigu- hjöllum” Reykjavikurborgar, hefðu dugað til þess að halda meiri- hlutanum? Hvað verður um öll málin? Sjálfstæðismenn hafa á liðnu kjör- tímabili fiutt á Alþingi fjölmörg mál sem til heilla horfa. Hins vegar eru mörg þeirra mála, sem I brennidepli eru um stundarsakir, vegna eðlis sins og mikilvægis, oftar en ekki afgreidd þannig á Alþingi að þau virðast hrein- lega „gufa upp”, ef svo má segja, vegna þess að þau fá ekki náð hjá kommúnistum eða vinstri fiokkunum! — þótt fyllilega sé meirihlutafylgi fyrir framgangi þeirra. Frumvarp Guðmundar H. Garðarssonar um breytingu á útvarps- lögum — afnám einkaréttar Ríkisút- varpsins — er dæmigert um slík mál. — Á þessari stundu veit enginn úr röðum hins almenna borgara hvar þetta frumvarp hafnaði. Mörg þau mál, sem sjálfstæðismenn hafa fiutt á siðasta kjörtímabili og höfðu skilyrði til þess að ná fram að ganga, hefði vilji verið fyrir hendi, hafa verið svæfð vegna hræðslu og undanlátsemi við andstæðingana. Má hér til nefna mál eins og „verzlun með erlendan gjaldeyri", tillögu til þingsályktunar flutta af Guðlaugi Gislasyni og Ellert B. Schram. Tillagan hlaut ekki af- greiðslu. — Þjóðaratkvæðagreiðslu um áfengt öl, tillögu til þingsályktunar fiutta af Jóni G. Sólnes. Þessi tillaga var eins og endranær gerð útræk úr Alþingi og mun sennilega ekki heyrast þarframar. önnur mál, sem áhugaverð eru en hafa ekki fengið hljómgrunn, eru t.d. tillögurnar um hundraðföldun verðgildis krónunnar, um staðarval til stóriðju á Norðurlandi og Austur- landi, um breytingu á stjórn Inn- kaupastofnunar rikisins, um sam- ræmingu og efiingu útfiutningsstarf- semi, o. fl. o. fl. Þegar á allt er litið verður að ætla að það sé á valdi þeirra manna sem kosnir hafa verið til þess að gegna trúnaðarstöðum innan Sjálfstæðis- fiokksins og á valdi þeirra einna, hvernig til tekst með fylgi flokksins frá einum tíma til annars en ekki undir þvi hvort andstæðingarnir leggja flokknum til áróðurstæki eða slagorð sem taka megi upp og gera að sínum, eins og raunin varð i kosningabar- áttunni nýafstöðnu. Kúvending frá meginstefnu Sjálf- stæðisfiokksins til þess að geta veitt ör- fá atkvæði í gruggugu vatni vinstri- mennskunnar er ekki það haldreipi sem bindur fylgjendur sjálfstæðis- stefnunnar fastari böndum. Ihalds- semi við upprunalega stefnumörkun er hið eina, sem fær fylgjendur Sjálf- stæðisfiokksins til þess að koma I veg fyrir frekari þáttaskil i íslenzkri stjórn- málasögu. Tafarlausar ráðstafanir Það er alkunn staðreynd að Sjálf- stæðisfiokkurinn sem slíkur hefur ekki á sínum snærum nein þau málgögn sem líkja má við þau sem aðrir flokkar hafa stofnað sérstaklega til framdrátt- ar sinum stefnumálum. Það er og staðreynd, hvort sem einstakir forsvarsmenn Sjálfstæðis- flokksins vilja trúa því eður ei, að ■stjórnmálaöfl, sem hafa beinan og ótakmarkaðan aðgang að fjölmiðli, hvort sem er i töluðu eða rituðu máli (og hér á landi er eingöngu um þá rit- uðu að ræða), hafa þar með fengið þau réttindi fram yfir önnur félagasamtök að geta byggt upp og stjórnað með auðveldum hætti hvers konar fróðleik og fræðslu, aukið eða dregið úr, allt eftir því hvað við á hverju sinni. Kjallarinn Geir R. Andersen Stjornmálafiokkur sem ekkert slikt málgagn á er illa settur, og ef til vill verr settur ef hann þarf að „fá inni" hjá þeim aðilum, sem lita á stjórn- málastarf og fréttir af þvi sem eins konar „liknarstarf’ og fréttir af sliku starfi megi alltaf geyma — þar til rúm á siðum blaðsins leyfi. Það verður varla annað sagt en að þau tvö dagblöð, sem hingað til hafa helzt verið talin málsvarar Sjálfstæðis- fiokksins, Morgunblaðið og Visir, séu meira en ófullnægjandi til þess að gegna hlutverki sem pólitiskir mál- svarar. — Ekki er vitað til þess að neinn eða neinir aðilar í nánum tengslum við Sjálfstæðisflokkinn sjái um daglegan rekstur hinnar stjórn- málalegu hliðar, likt og gerist með alvörumálgögnum fyrir stjórnmál og jafnvel er til staðar hjá Timanum, Al- þýðublaðinu, svo að ekki sé nú minnzt á Þjóðviljann. Að visu hefur Morgunblaðið tekið sprett við og við með þvi að leyfa einstaka greinarhöfundum að birta rit- smiðar um stjórnmálaleg efni en það er einungis óreglulega og illa kynnt af blaðinu sjálfu, t.d. vantar kynningu á sliku á útsiðum blaðsins eða annars staðar. — Vísir hefur enn sjaldnar birt greinar eða sjálfstæðar hugleiðingar um pólitísk efni en hefur þess I stað fengið sér „Svart höfuð” sem uppbót á vanhæfi sinu og þurfa þá endilega að koma frá dyggu málgagni and- stöðufiokks — en genginn af þeirri trú hefur hann verið eina haldreipi þess dagblaðs I pólitiskum skrifum. Það fer ekki hjá þvi að vilji sjálf- stæðismenn i raun og sannleika halda sínu á markaðstorgi stjórnmála þarf meira að koma til en góð grein sem send er af einhverjum stuðningsmanni inn í biðsal Morgunblaðsins, þar sem greinin biður eftir hentugu tækifæri til þess að verða úrelt þegar efnið birtist. Með hliðsjón af úrslitum siðustu borgarstjómarkosninga hér í Reykja- vík er vart hægt að komast hjá því að álykta að Sjálfstæðisfiokknum sé það nauðsynlegt að koma sér upp eigin málgagni sem hefur það að meginmarkmiði að kynna stefnu fiokksins, ásamt því að vera almennur frétta- og fræðslumiðill. — Þvi fyrr sem slíkt getur gerzt þvi betra, vegna þess skipulagsstarfs sem nú hlýtur að verða stefnt að innan Sjálfstæðis- fiokksins. AUÐIR OG ÓGILDIR KJÖRSEÐLAR Mjög var á reiki hjá fréttaþulum útvarps og sjónvarps í kosningunum siðastliðinn sunnudag, hvernig þeir til- kynntu um kosningaúrslit. Eftir að hafa talið upp atkvæðin og hvernig þau skiptust, var bætt við tölu þeirra kjörseðla, sem ekki komu fram í at- kvæðatölunum og var þá ýmist talað um auða og ógilda seðla i einu lagi, eða i sitt hvoru lagi, auðir seðlar — ógildir seðlar. 1 Morgunblaðinu, sem út kom þriðjudaginn 30. mai, er sagt frá loka- niðurstöðum um land allt, og í öllum kjördæmum er talað um auða og ógilda seðla i einu lagi, ein tala. í Reykjavík segir blaðið að þetta hafi verið samtals 810 seðlar en greinir ekki í sundur hverjir af þeim voru auðiroghverjirógildir. . í Þjóðviljanum sem kom út I dag, þ. 31. mai, eru birtar heildarniður- stöðutölur úr Reykjavik og i þeirri frétt eru auðir seðlar tilgreindir 688 en ógildir 132. Verða þessar tölur samtals 820, hvernig svo sem á því stendur að hér munar 10 atkvæðum, eftir því sem Morgunbl. segir. Það er ekki nýtt, en engu að siður stórfurðulegt fyrirbæri að telja saman auð og ógild atkvæði og verður tæpast hjá því komist að álíta að þeir sem slíkt láta sig henda, hafi ákafiega tak- markaðan skilning á lýðræðislegum kosningum og þeim boðskap sem fólginn getur verið í einum atkvæða- seðli, jafnvel þó hannséauður. Ef við virðum fyrir okkur þessa tvenns konar atkvæðaseðla, auða og ógilda og íhugum hvers konar kjósendur standa að þeim, þá ætti mönnum fijótlega að verða ljóst, að þeir eiga óskylt mál saman. Ógildu seðlarnir benda til fávitaháttar, sem jaðrar við að þeir séu óábyrgir gerða sinna, sem þeim skila. Hvers konar kjósendur eru svo hinir sem skila auðu seðlunum? Þeir mæta á kjörstað til að nota rétt sinn, kosningarréttinn, sem ekki er bara fólginn í í samsinningu einhvers málstaðar, heldur einnig I því að geta með kjörseðlinum mótmælt gerðum þess flokks, sem hann kaus síðast eða þeirra manna, sem þar áttu hlut að máli. Það ætti að vera auðsætt, að mikill munur er á fyrir kjósandann að nota atkvæði sitt á þennan hátt eða greiða það einhverjum öðrum fiokki, sem er enn fjarri skapi hans. Kjallarinn Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum Ef þessu er á þann veg farið, sem hér hefur verið sagt, ætti að vera fylgni á milli auðu seðlanna og þess fylgistaps sem viðkomandi flokkar verða fyrir. 1 Reykjavik voru auðu seðlarnir 688 eftir þvi sem Þjóðviljinn segir, og ef þeim væri skipt niður á þá tvo fiokka, sem mest afhroð guldu, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknar- fiokkinn, eftir atkvæðahlutfalli í kosningunum 1974, hefðu 525 komið í hlut Sjálfstæðisfiokksins, sem hefði nægt honum til að halda meirihluta sinum i borgarstjórn Reykjavikur. Það eru því þessir auðu seðlar, mótmxlaat- kvæðin, sem réðu úrslitum, en ekki áhugaleysi þeirra sem heima sátu, eins og haldið hefur verið fram. Þessa staðreynd er hverjum stjórn- málamanni hollt að hugleiða, og væntanlega draga fjölmiðlar af þessu réttar ályktnir, svo þeir eftirleiðis láti það ekki henda sig að telja i einum fiokki þá, sem i fávitaskap vita ekki hvað þeir eru að gera, og hina sem gera sér máski betur grein fyrir því, en jafnvel þeir sem skila óaðfinnanlegum atkvæðaseðlum i kjörkassana. Þessir kjósendur eru hornsteinar hvers lýðræðisþjóðfélags sem máski meira mark er takandi á en gagnýnis- litlum jábræðrum, þegar kosninga- dæmin eru gerð upp hverju sinni. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.