Dagblaðið - 20.07.1978, Síða 1
4. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978— 155TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI 27022.
f
„Framsókn hefur raunveru-
legan áhuga á vinstri stjóm”
— segja f ulltrúar viðsemjenda þeirra — engin ströndunarmál ennþá
„Viöræðurnar hafa sýnt, að Fram-
sókn hefur raunverulegan áhuga á
vinstri stjórn,” ;agði einn þingmaður
Alþýðuflokksins í morgun. Annar
komst svo að orði, að þetta væru ,* 1-
vöruviðræður” en ekkert sjónarspil.
„Það er þokkalegur tónn i þesspm við-
ræðum,” sagði einn þingmaður Al-
þýðubandalagsins. „Engin
ströndunarmál hafa komið uppenn.”
Stefnt er að því að ljúka viðræðum
um vinstri stjórn fyrir helgi, þannig að
þá liggi fyrir, hvort grundvöllur sé
fyrir slíka stjórn. Fyrirkomulagið
hefur verið þannig, að hver flokkur
ber fram þau mál, sem hann hefur sér-
stakan áhuga á. 'Þau mál eru síðan
tekin fyrir. Næst er farið nánar ofan á
ágreiningsmál og þriðja stigið verður,
að menn taki formlega afstöðu til mál-
anna. Undirnefndir hefja störf í dag og
fjalla um einstaka þætti. Viðræðunum
var haldið áfram klukkan níu í morg-
un. Utanríkismálin, þar sem ágreining-
ur er mikill, verða tekin fyrir í dag.
Framsókn og Alþýðuflokkur báðu
Alþýðubandalagið í gær að gera
nánari grein fyrir úrræðum sínum i
efnahagsmálum. Verður það væntan-
lega gert í dag.
Ágreiningur er i vaxtamálum, þar
sem Alþýðubandalagið vill lækka
vexti. Talið er, að samkomulag gæti
náðst í vaxtamálum með lækkun
vaxta afurða- og rekstrarlána en auk-
inni verðtryggingu á annað.
Kárí Jónasson fréttamaður ætíaði sannar-
lega ekki að láta moldarhnausinn fara
forgörðunt.
r DB-mynd Ari
Utvarpsmenn
hirtu
hnausinn úr
fyrstu skóflu-
stungunni
— þegar Vilhjálmur
beitti loks gullnu
rekunniígær
„Loksins, loksins,” hugsuðu útvarps-
menn og jafnvel sögðu í gær þegar Vil-
hjálmur Fljálmarsson menntamálaráð-
herra notaði hina gullnu reku sem þeir
höfðu fært honum í upphaft ráðherra-
tiðar hans. Gullnu rekuna átti hann að
nota til þess eins að taka fyrstu skóflu-
stunguna að nýju útvarpshúsi. Og það
gerði hann í gær, enda ekki seinna
vænna, ef hann átti að Ijúka þvi af á
kjörtimabilinu.
Vilhjálmur stakk skóflunni niður við
hom Háleitisbrautar og Hvassaleitis þar
sem miðja hússins er áætluð. Honum
fórst þetta búmannlega úr hendi og fékk
að launum gott klapp. í stuttu ávarpi
hans á eftir kom fram að húsið verður
fljótt komið í það horf að eitthvað verði
hægt að nota af því. Og jafnframt
þjónar það um langa framtíð þegar það
er allt komið i gagnið. Til þess að fjár-
magna húsið á að hækka afnotagjöld
allra neytenda, sem að sönnu eru allir
íslendingar að sögn ráðherra.
Að þessum orðum hans mæltum kom
griðarstór jarðýta og spændi upp
jörðina, þar sem ráðherra hafði áður
mokað. Kári Jónasson fréttamaður var
þó fyrri tjl að hirða hnausinn sem Vil-
hjálmur halöi stungið upp. „Eiga hann,
auðvitað,” sagði Kári þegar hann var
spurður að þvi hvað hann ætlaði að gera
við hnausinn. „Við gáfum Vilhjálmi
rekuna og þá er sanngjarnt að við fáum
hnausinn.”
- DS
Samvinnubanka
stjóri svarar
Halldóri um
Guðbjartsmálið
- sjá bls. 15
Slökkviliðsmenn kæfa eldinn við hús
Sveins Egilssonar i gær.
DB-mynd Sv. Þorm.
í gærkvöldi var einmitt kveikt í rusli
við húsið.
Þar sem öll hús í Skeifunni eru stór-
hýsi kynni geysilegt tjón að hljótast af
þessum gráa leik auk þess sem flest
húsin eru byggð úr strengjasteypu og
stórhættulegt er að fara inn i þau til
björgunarstarfa, nái steypan að hitna
aðmarki.
Hvernig horfir
um myndun
vinstri stjórnar?
- rætt við þingmenn
allra flokka á bls. 9
Herbragð Fram-
sóknarmanna
— telur Albert
Guðmundsson (S)
„Góóur hershöfðingi notar aldrei stærstu kan-
ónurnar í upphafi styrjaldarinnar,” sagði
Albert Guðmundsson og vildi ekki hafa fleiri
orð um líkurnar á vinstri stjórn.
GAJ
solskmsdagur
Það var fjölmennt 1 Læragjá í Nauthólsvík I
blfðunni I gær. Sleikti fólk sólskinið, lét heita
vatnið leika um sig og skolaði af sér grámyglu
sólarleysisins undanfaríö. Veðurstofan spáði I
morgun skýjuðu um allt land — nema helzt á
Vesturlandi. Hitinn verður hins vegar 12—14
stig. DB-mynd: Ari.
*
íkveikjufaraldur í Skeifunni
— Munaði hársbreidd að eldur læsti sig í stórhýsi þar í gær
Enn ein ikveikjan var framin í Skeif-
unni í gærkvöldi, sú þriðja á örfáum
dögum, og munaði aðeins hársbreidd
að eldurinn næði að læsa sig í stórhýsi
Sveins Egilssonar. Menn sem þar voru
að vinna náðu að halda eldinum í
skefjum með litlum slökkvitækjum
þar til slökkviliðið kom á vettvang.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar að-
stoðarslökkviliðsstjóra. eru likur á að
sömu aðilar standi að öllum þessum
íkveikjum, sennilega unglingar.
Virðist verknaður þessi vera úthugs-
aður og er kveikt í á hvaða tíma sem er
og án tillits til að menn séu að vinnu
nærri. Svo lítur út sem brennuvarg-
arnir noti einhver hvetjandi efni á eld-
inn og vildi Gunnar beina þeim til-
mælum til seljenda úðabrúsa með eld-
fimum efnum að gefa frekari gaum að
kaupendum þeirra.
Þá vildi hann einnig hvetja eigendur
fyrirtækja í Skeifunni til þess að skilja
ekki rusl eftir fyrir utan fyrirtækin, en