Dagblaðið - 20.07.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978.
Seladrápi mótmælt
Gylfi Ægisson skrifan
Mig langar að taka undir það sem
Guðrún Á. Runólfsdóttir skrifaði í
Dagblaðiö þann 17. júlí sl. í sambandi
við seladrápið á dögunum. Eða
orustuna miklu eins og ég vildi öllu
heldur kalla það, af þvi að hefði ég
verið í sporum selsins þennan dag þá
hefði það litið þannig út i mínum
augum.
Að hugsa sér ég væri búinn að busla
alla þessa leið, bara til að ná mér i
svanginn. (Ekki er nú of mikið um fisk
í sjónum. Alls staðar hættur, gömul
net sem fiska ár eftir ár án þess að
nokkur hafi gagn af því sem I þeim er.
Nú, nú svo verður maöur að passa sig
á trollum, nótum og fleira sem er allt
af mannavöldum).
Jæja, ég ætla mér bara að gera smá
strandhögg í staðinn fyrir allt hitt. Þá
birtist mér risavaxið ferlíki, sem
byrjar að kasta i mig grjóti. Ég er
orðinn gamall og seinn í snúningum
og auk þess óviðbúinn slikum
viðtökum, þar sem ég er bara að veiða
mér í svanginn til þess aö lifa eins og
hann. (Ég á enga frystikistu). Brátt fer
ég að dasast af höggum steinanna, en
viti selir, þá ræðst hann á mig, og
byrjar að stinga mig og skera, með því
sem manndýrin kalla hníf, og
brjálæðið skín úr augunum á honum.
Ég finn nú að ég get ekki mikið
meir, en samt get ég ekki annað en
hugsað. Af hverju er ekki hægt að
berjast heiðarlega? Af hverju er alltaf
ráðist aftan að okkur selunum? Af
hverju notaði hann ekki munninn, af
því að hann vildi slást? Skyldi hann
einhvern tímann hafa verið skorinn
eða grýttur?
Ég finn að ég er að deyja, og sé
sigurglampa i augum dýrsins, er það
gengur ánægt burtu til að kynna
alþjóð hreystiverk sitt. Og til að taka
við af mér, og drepa lax!
Níi það sannast sagna bezt
sama er mér hvort það rímir.
Það leggur af þeim ijóta pest
er læðist að rass og glimir.
Það eru fleiri en Birgitte Bardot sem mötmæla seladrápi.
vikan á ótrúlega lágu kynningarveröi:
LEYFILEGT 7f KYNNINGAR VERÐ 1
vikan á neytendamarkaði
Vikan er aldeilis spræk þessa dagana. Hún er á fullri ferð með Dagblaðinu
í neytendamálum.
í hverju blaði birtast verð og gæðakannanir á ýmsum vörutegundum eða aðrar mikils-
verðar upplýsingar fyrir neytendur.
Áskrifendur fá stórt og fallegt veggspjald til að færa inn heimilisútgjöldin og kannað
verður hver séu meðalútgjöld fjölskyldna, sundurliðuð eftir fjölda fjölskyldumanna.
Þannig fá áskrifendur samanburð á sínum mánaðarlegu útgjöldum við stóran hóp annars
fólks í landinu.
Gríptu símann, hringdu í 27022 og pantaðu kynningaráskrift. Þá kostar mánaðaráskrift
þig aðeins kr. 1.440 og eintakið kr. 330 til áramóta.
Upphæðin verður innheimt í einu lagi.
Einnig flytur Vikan efni fyrir alla fjölskylduna:
Forsíðuviðtölin frægu, framhaldssögur, smásögur eftir íslenska sem erlenda höfunda,
myndasögur fyrir bqrnin, bílaþætti, poppþætti, getraunir, heilabrot, draumaráðningar
og margt, margt fleira.
Gríptu gæsina meðan hún gefst. Hringdu strax og pantaðu kynningaráskrift
til áramóta. Síminn er 27022.
WMm
Af hverju
mæðurnar,
sr. Þórir?
Dóra Stefánsdóttir skrifar
Séra Þórir Stepensen.
í prédikun þinni sl. sunnudag sem
útvarpað var yfir landslýð talaðir þú
mikið um þann skaða sem börn hlytu
af þvi að vera á dagheimilum allan
daginn. Þau yrðu einn múgur i stað
þess að vera margir ólíkir einstakl-
ingar. Ráðið til bóta taldir þú að
mæður yrðu heima og hugsuðu um
börn sín fyrstu árin og féngju fyrir það
laun. En af hverju mæður séra Þórir?
Eiga börnin ekki feður líka? Ég man
ekki í bili eftir nema einu barni sem
ekki hefur verið talið eiga jarðneskan
föður.
Þú hefur ef til vill ekki fylgzt með
þróun hlutanna siðustu aldir séra
Þórir? En það þykir ekki lengur vera
einkahlutskipti kvenna að ala upp og
umgangast börn. Meira að segja hafa
verið leidd að þvi rök að börn hlytu
skaða af þvi að umgangast ekkert
nema kvenfólk fyrstu ár ævinnar. Það
þykir ekkert lengur benda til þess að
konur séu þegar á heildina er litið betri
uppalendur en karlmenn. Allir sem vit
hafa á þessum málum álíta þvert á
móti að það sé einstaklingsmunur á
hæfni til uppeldis, ekki munur á milli
kynja.
Feður hafa i aldaraðir komizt upp
með það að skilja böm sín eftir hjá
mæðrum þeirra en fara sjálfir út til
þess að taka virkan þátt í atvinnu-
lifinu, eins og það er svo fagurlega
orðað. Vill séra Þórir aö feður haldi
þessari hegðun sinni áfram enn um
aldir? Getur verið að sjálfur
presturinn telji börnin ekki svo góð að
þau eigi skilið góða feður en ekki bara
ókunna menn sem eru i svefnher-
berginu hennar mömmu á sunnu-
dögum?
Nei það getur ekki verið að
presturinn sé svo þröngsýnn. Hann
hlýtur að hafa mismælt sig. Hann
hlýtur að hafa ætlað að segja að gera
ætti foreldrum kleift fjárhagslega að
vera heima og hugsa um börn sín. En
þá er ég hrædd um að við yrðum að
breyta þjóðfélagskerfmu töluvert. Séra
Þórir verður að horfast i augu við það
að íslenzka þjóðfélagið getur ekki með
núverandi formi verið án vinnu beggja
foreldra langflestra barna. Dag-
heimilin, og við skulum láta liggja á
milli hluta hvort þau eru góð eða
vond, eru eina lausnin, sem þetta sama
þjóðfélag getur boðið þessum foreldr-
Ökukennsla
Kennslubifreiðin er
Toyota Cressida ’78
ogennaðekki
Geir P. Þormar
ökukwNwri.
11MM og 21772 (sknavarO.