Dagblaðið - 20.07.1978, Side 3

Dagblaðið - 20.07.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978. 3 Heimilisfangið var ekki til Ritsíminn svarar lesendabréf i Margrétar Halldórsdóttur Hafsteinn Þorsteinsson, simstjóri i Reykjavik, skrifan í Dagblaðinu 15. júlí si. birtist bréf frá Margréti Halldórsdóttur, þar sem hún kvartar yfir óréttlæti í viðskiptum sínum við ritsímaafgreiðsluna í Reykjavik vegna símskeytis, sem hún sendi 10. maí sl. Hér gætir nokkurs misskilnings og skal það skýrt í stuttu máli. Umrætt símskeyti var móttekið á ritsímanum 10. maí sl. kl. 21.40 og sent áfram samdægurs kl. 21.48. Þann 16. maí sl. barst ritsímaafgreiðslunni tilkynning frá ákvörðunarstöðinni, Los Angeles, þess efnis að símskeytið væri óafhent, uppgefið húsnúmer væri ekki til. Þetta var tilkynnt sendanda og honum jafnframt gefinn kostur á leið- réttingu. Margrét taldi að heimilis- fangið væri rétt. Hér stangast á stað- hæfing Margrétar Halldórsdóttur um rétt heimilisfang og tilkynning frá ákvörðunarstöð Los Angeles um að hús með uppgefnu númeri sé ekki til. í reglum um alþjóðafjarskipti er gert ráð fyrir því að tilkynningar frá símstöðvum varðandi afdrif símskeyta skuli teknar gildar. í þessu tilfelli er því ekki við ritsímaafgreiðsluna í Reykjavík að sakast, uppgefið heimilisfang á símskeytinu er samkvæmt endurteknum upplýsing- um frá Los Angeles ekki til, það eru því mistök þar, ef um mistök er að ræða. Margrét segist hafa sent fjöldann allan af skeytum og bréfum á þetta heimilisfang, að fengnum þessum upp- lýsingum, hafa verið gerðar ráðstaf- anir til að komast að hinu rétta um heimilisfangið hjá símaþjónustunni í Los Angeles og mun Margréti verða tilkynnt nánar um niðurstöður. Niðurfelling á gjaldi fyrir símskeyti kemur því aðeins til greina að um mis- tök símaþjónustunnar sé að ræða, og er það samkvæmt alþjóðareglum um fjarskipti. „Ekki er við ritsimaafgreiðsluna í Reykjavik að sakast. Uppgeflð heimilisfang á simskeytinu er ekki til,” segir símstjórinn í Reykjavik, i svari til Margrétar Hall- dórsdóttur. Það skal upplýst, aðgefnutilefni, að að langmestu leyti til símastjómar gjald fyrir símskeyti til útlanda rennur ákvörðunarlands símskeytisins.” Laun heimsins eru van- þakklæti Landsmenn kalla Neskaupstað „Litla Rússland” segir bréfritari. Lionsmenn og bæjarféiagið á Norðfirði Óskar Björnsson, Nesgötu 13, Neskaupstað, skrifar: Þann 6. júlí komu hingað til Neskaupsstaðar norrænir ferðamenn, allstór hópur (nokkurs konar vina- bæjarmót). Maður hefði getað búizt við því að öllum bæjarbúum væri frjálst að bjóða þá velkomna, hver á sinn hátt. „Nei, takk” sagði bæjar- stjórinn. Lionsmenn létu gera mjög fallegt skilti, sem tveir listamenn unnu að, og settu það upp innan umdæmis „ríkisins”. Þar stóð á einföld kveðja: Velkomin til Neskaupsstaðar. Þetta skilti skipaði bæjarstjórinn þeim að rífa niður, og var það gert. (Það er þó komið upp aftur, en utan landamæra „litla ríkisins”). Hvernig færi svona mál fyrir dóm- stólum? Er ekki troðið þama freklega á tjáningarfrelsi einstaklinga. Lögfræðingar hefðu gott af að velta þessu fyrir sér. (Þar með talinn lög- fræðingur bæjarstjóra!) Það eina sem auðvitað átti að gera í þessu tilviki, það var að standa vörð um merkið þar til norræni hópurinn var kominn, en ekki rifa það niður. Lengi lifi lýðræðið á Neskaupstað!! Ég sjálfur gerði einum úr hópi gest- anna grein fyrir atburðinum og skýrði satt og rétt frá öllu. Hann rak upp stór augu og sagði: „Já, en við erum ekki austantjalds.” Jú, það erum við einmitt, því aðrir landsmenn kalla þetta „litla Rússland”. Þá hló hann. Vonandi hafa einhverjir Lionsmenn verið í þessum hópi, Nú skulum við athuga markmið Lionsfélaga um heim allan. 1. Að skapa og efla drengilega tillits- semi með þjóðum heims, með þvi að afla þekkingar á vandamálum þjóða í milli. 2. Að vinna fylgi kenningum og framkvæmd meginregla góðra stjórnarhátta og holls borgaralegs anda. 3. Að hafa vakandi áhuga og starfa fyrir velferð bæjarfélasins á sviði félagsmála og almenns siðgæðis. 4. Að tengja meðlimi böndum vináttu, góðs félagsanda og gagn- kvæms skilnings. 5. Að vera vettvangur fyrir ítarlegar og frjálsar umræður um öll mál, sem almenning varða, að undanteknúm einhliða umræðum um stjórnmál og sértrúarbrögð. 6. Að hvetja til dugnaðar og gera miklar kröfur til siðgæðis í athafnaUfi og menningarmálum, en klúbbamir skulu gæta þess, að fjárhagslegur hagnaður félaganna verði ekki markmið þeirra. Svo mörg voru þau orð. Að lokum spyr ég: Hvað hafa Lionsmenn gert fyrir bæjarfélagið? Svari nú aUir fyrir sig. Laun heimsins eru stundum vanþakklæti. V Utflutningsbannið grefur und- an stoðum efnahagslífsins Raddir lesenda Hringið í síma 27022 Austurbæingar skrifan Er það ekki mikill misskilningur af forvígismönnum verkalýðsins að hætta ekki útflutningsbanninu? Það skaðar alvarlega efnahagslíf þjóðar- innar, sem nú stendur valtari fótum með hverjum degi. Ríkisstjórnin, sem banninu var beitt gegn, er búin að segja af sér. Með því að halda áfram að grafa undan stoðum efnahagslífsins eins og gert er með áframhaldandi út- flutningsbanni, er aðeins verið að koma í veg fyrir að ný ríkisstjórn geti skapað verkalýðnum bætt kjör. Nú þurfa allir að leggjast á eitt um að efla þjóðarhag. Það verður ekki gert ef einstakar stéttir ætla sér að taka fram fyrir hendur þjóðkjörinna fulltrúa. Þvert á móti þurfum við að sýna nýrri ríkisstjórn hollustu — hver svo sem hún verður — og byrja strax að búa í haginn, svo að hún geti rækt sitt hlutverk með árangri. Stöndum öll saman um að styrkja þjóðarhag! Útflutningsbanninu vcrður að aflétta, segir bréfritari. / Afhverju ertu með skegg? Dagur Ásgeirsson skrifstofumaður: Ég veit það ekki. Það er einhver della að láta það vaxa. Eitthvað verð ég að hafa. Kristinn Sigmundsson kennari: Ég gleymdi að raka mig i morgun. Þetta hlýtur að vera mjög kynæsandi fyrir stelpurnar. Guðmundur Einarsson kennari: Það er þægilegra en að raka sig. Vilhjálmur Tómasson sundlaugarvörð- un Raunverulega ástæðan er sú að ég er að byggja. Ég er að vinna upp tímann sem fer í það með þvi að sleppa að raka mig. Svo er þetta stór sparnaður i blöð- um. Baldur Jóelsson innanhússarkitekt: Af því að aft minn var myndarlegur með skegg. Ég veit svo sem ekki hvort mér fer það betur eða verr en honum. Jens Baldursson strætiáVagnastjóri i sumar: Af hverju ekki?

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.