Dagblaðið - 20.07.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978.
9
HVERNIG
HORFIR UM
VINSTRI
STJÓRN?
Dagblaðið hafði samband við nokkra- formann sinn, varaformann né ráð-
alþingismenn og spurði um horfumar, herra. — Þá hafði einnig komið fram að
eins og málum var komið í gær, eftir að Snorri Jónsson, forseti Alþýðusam-
framsóknarmenn höfðu valið viðræðu- bandsins hafði tekið illa í tilmæli Al-
nefnd sina. Framsókn sendir í vinstri þýðuflokksins um samstarf.
viöræðurnar þrjá þingmenn en hvorki
Ekki um klofning
að ræða
— segir Vilhjálmur
Hjálmarsson
menntamálaráð-
herra (F)
„Nei. Ég tel það alls ekki,” sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson menntamálaráð-
herra er DB spurði hann hvort hann ótt-
aðist ekki að fjarvera ráðherra Fram-
sóknarflokksins spillti fyrir vinstri við-
ræðunum. „Nei. Þetta sýnir ekki klofn-
ing í okkar röðum. Það er afdráttarlaust
svar.”
-GAJ- Vilhjálmur Hjálmarsson, F.
VERÐUR VÍKKAÐ
ÚT SÍÐAR
„Ég held að ekki sé efni til að draga r1
miklar ályktanir af þessari afstöðu fram-
sóknarmanna,” sagði Finnur Torfi Stef-
ánsson alþingismaður (A) um val Fram-
sóknar á mönnum i vinstri viðræður.
„Þarna er einungis um að ræða
umræðunefnd,” sagði Finnur Torfi.
„Siðar í umræðunum verður þetta
vikkað út og fleiri koma inn í
viðræðurnar. Skipt verður niður í
vinnuhópa eftir málefnum.
Þá er þess að gæta, að heyrzt hefur að
í það minnsta sumir ráðherrar Fram-
sóknarflokksins muni ekki gefa kost á
sér til ráðherradóms.”
Finnur Torfi sagði að Alþýðuflokkur-
inn hefði lagt áherzlu á að geta ráðfært
sig við forystumenn launþegasamtak-
anna. Það væri einn liður í hugmyndinni
um kjarasáttmála.
—HH.
— segirFinnurTorfi
Stefánsson (A)
Sighvatur Björgvinsson, A.
— segir Ellert B. Schram (S)
„Það er erfitt um það að segja. Það er
útilokað fyrir mig að segja til um hvaða
innbyrðis átök eiga sér stað þarna hjá
Framsóknarmönnum. Það er þeirra
eigið vandamál,” sagði Ellert B. Schram
er DB hafði samband við hann. „Það er
náttúrlega ekki traustvekjandi varðandi
framhaldið að ráðamenn flokksins séu
ekki þátttakendur í þessum viðræðum.”
Er Ellert var spurður hvort þetta
sýndi klofning í Framsóknarflokknum
sagði hann: „Mér er það ekki Ijóst. Þetta
vekur óneitanlega athygli. Ráðherrarnir
virðast ekki spenntir. Þeir sýna ekki mik-
inn áhuga en sjálfsagt eru nýir menn
komnir til valda. Þá er eftir að sjá hvað
þeir ráða miklu.”
-GAJ-
Ellert B. Schram, S.
EFTIR AÐ SJÁ HVAÐ
NÝJU MENNIRNIR
RÁÐA MIKLU
Hefðum kosið að
sjá Ólaf
Jóhannesson með
— segirKiartanÓlafsson (AB)
„Ég vil svara þessu á þann hátt að ég
tel það miður farið að formaður Fram-
sóknarflokksins og varaformaður, Einar
Ágústsson, skuli ekki hafa séð ástæðu til
að taka þátt i þessum viðræðum,” sagði
Kjartan Ólafsson þingmaður Alþýðu-
bandalagsins er DB spurði hann hvort
hann teldi að fjarvera ráðherra Fram-
sóknarflokksins frá vinstri viðræðunum
svonefndu drægi úr líkunum á vinstri
stjórn. „Það vekur með manni grun-
semdir um að vilji Framsóknarflokksins
sé e.t.v. ekki eins ákveðinn og við hefð-
um gjarnan kosið.
Ég vil þó taka fram að um þetta veit
maður ekki neitt með fullri vissu og við
vonum að þetta boði ekki að þeir gangi
að þessum umræðum með hangandi
hendi. Við hefðum gjarnan kosið að sjá
Ólaf Jóhannesson með í þessum við-
ræðum.”
-GAJ-
Kjartan Ólafsson, AB.
Svava Jakobsdóttir, AB.
Ber vott um einhvern
ágreining
— segirSvava Jakobsdóttir(AB)
„Nei. Ég get ekki imyndað mér það,”
sagði Svava Jakobsdóttir þingmaður Al-
þýðubandalagsins er DB spurði hana
hvort hún teldi að fjarvera ráðherra
Framsóknarflokksins drægi úr líkunum
á myndun vinstri stjórnar. „Mér sýnist
þetta bera vott um einhvern ágreining
varðandi stjórnaraðild yfirleitt. Það má
segja, að það komi nokkuð furðulega
fyrir sjónir að formaður flokksins skuli
ekki taka þátt í þessum viðræðum úr því
að hann samþykkti þær á annað borð.
Ég veit ekki annað en hann hafi fallizt á
að reyna þessar umræður. Sé um ein-
hvern klofning að ræða innan Fram-
sóknarflokksins, þá hafa þeir orðið ofan
á sem vilja reyna að koma á vinst:í
stjórn.” —GAJ-
Kom mér spánskt fyrir sjónir
— segirSighvaturBjörgvinsson(A)
„Mér kom þetta spánskt fyrir sjónir.
Allir hinir senda forystumenn sinna
flokka,” sagði Sighvatur Björgvinsson
(A) um þá ákvörðun Framsóknar að
senda í viðræður um vinstri stjórn aðra
en formann flokksins og ráðherrana.
„En við verðum að líta svo á að sé full
alvara með viðræðunum telji framsókn-
armenn vænlegra til árangurs að senda
þessa menn.
Alþýðuflokkurinn hefur óskað eftir
viðræðum við forystumenn bæði Al-
þýðusambandsins og annarra launþega-
samtaka. Við viljum fá þá inn í viðræð-
urnar um stjórnarmyndun. Ef þeir
hafna þvi þýðir það að þeir setja sína
flokksaðild ofar hagsmunum launa-
fólks,” sagði Sighvatur. —HH.
Finnur Torfi Stefánsson, A.
Okkur vantar bí/a á skrá.
Hjá okkur se/jast allir bí/ar ef
þeir eru á staðnum.
G/æsi/egur og bjartur sýning-
arsalur.
BILASALAN SKEIFAN
SKEIFUNNI11 - SÍMAR 84848 OG 35335