Dagblaðið - 20.07.1978, Side 11

Dagblaðið - 20.07.1978, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ1978. 11 annan flokkinn um kommúnisma og hinn fyrir að vilja snúa aftur til þess ástands sem ríkti í Egyptalandi fyrir stjórnarbyltinguna árið 1952. Hann beitti sér fyrir allsherjaratkvæða- greiðslu þar sem hann vann mikinn sigur. Rúmlega níutíu af hundraði kjósenda heimiluðu stjórnarskrár- breytingu þar sem andstöðuflokkamir voru nánast bannaðir. Sadat lofaði fyrir nokkru þjóð sinni að brátt mundi hann tilkynna merkar ákvarðanir. Ekki er mönnum ljóst við hvað hann átti en helzt er búizt við þvi að málið snúist um stjórn Egypta- lands. Sumir Egyptar gera sér einnig vonir um að Sadat hyggist gera ein- hverjar umbætur í efnahagsmálum. Þar stendur ríkið mjög illa og hefur Sadat gengið mjög illa að bæta lífskjör almennings í landinu. Svo illa að þeir eru til, sem telja það geta orðið honum aðfalli. svæði á vesturbakka árinnar Jórdan og á Gazasvæðinu. tsraelsmenn hafa ekki viljað fallast á þessar kröfur Sad- ats. Palestínuflóttamennirnir hafa verið stöðugt vandamál i þessum heims- hluta siðan í styrjöldinni 1948. Sam- einuðu þjóðirnar og Bandaríkjamenn hafa fætt þá og klætt alla tíð en tsrael- ar eða arabar hafa hvorugir viljað taka þá undir sinn vemdarvæng. Tilkynnig Sadats um stefnubreyt- ingu gagnvart ísrael olli mUdu fjaðra- foki meðal annarra arabaleiðtoga. Byltingarafmæhð á laugardaginn verður haldið í skugga þess að araba- ríkin eru mjög klofin í afstöðunni í þessu höfuðmáli. tsraelsför Sadats aflaði honum mik- illar virðingar og vinsælda víða um heim. Margir Evrópumenn köUuðu hann mann friðarins og jafnvel í ísrael var sérstök friðarhreyfmg stofnuð. Vildi hún umsvifalaust ganga til samninga við Sadat. VUdu fylgismenn hreyfingarinnar ganga mun lengra í samkomulagsátt heldur en Begin for- sætisráðherra ísrael og fylgismenn hans. Fyrirlitning og reiði nokkurra arabaleiðtoganna vegna yfirlýsingar Sadats.virðist aftur á móti ómæld og ósvikin'. Alsir, Sýrland, Líbýa, trak og Suður-Jemen kalla Sadat svikara við hinn arabíska málstað. Sovétmenn, sem lengi höfuð verið helztu stuðningsmenn Egypta brugðust ókvæða við þessu frumkvæði Sadats, sem alls ekki var eftir þeirra kokkabókum. Bandarikjamenn tóku fregnunum aftur á móti með fögnuði. Snemma á þessu ári samþykktu þeir að sjá Egyptum fyrir herþotum i fyrsta skipti. Hafa þeir þá leyst Sovétmenn af hólmi í því að sjá þeim fyrir vopnum. Friðarviðræður hafa aftur á móti ekki gengið jafn vel og Sadat og fleiri höfðu gert sér vonir um. Hefur hann því ekki notið eins mikils byrs heima fyrir og hann hefði þurft. Tveir stjóm- málaflokkar egypzkir Jýstu yfir and- stöðu við Sadat. Annár þeirra taldi frumkvæði hans í ísraelsmálinu hafa verið frumhlaup. Hinn flokkurinn sneri sér aftur á móti að innanlands- málum en þar er Sadat síður en svo í sterkri aðstöðu. Sadat brást við þessari andstöðu með mikilli hörku. Sakaði Beðið eftir athöfnum — en ekki vangaveltum yfirtafli sóknarflokkurinn hefir mun minna fylgi með þjóðinni en Sjálfstæðisflokk- urinn, svo að flest ber að þeim brunni, að samstjórn Alþýðuflokksins, Al- þýðubandalagsins og Sjálfstæðis- flokksins virðist mundu verða líklegri til röggsamlegri stjórnunar en sé Framsókn inni i stað Sjálfstæðis- flokksins. En svo fór, að Alþýðubandalagið neitar að gerast aðili að samstjórn Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags og Sjálf- stæðisflokks, og er þá sá stjórnar- myndunarmöguleiki úr sögunni að sjálfsögðu. Alþýðuflokkurinn hefir mér vitan- lega alls ekki neitað hinum þriflokka- möguleikanum, sem hér hefir verið nefndur, aðeins lýst þeirri skoðun að hann væri veikari til ákveðinna úr- lausna. Kommúnisti forsætisráðherra? Líta mætti svo á að eðlilegt væri, að Alþýðubandalagið hefði forsæti slíkr- ar stjórnar fremur en Alþýðuflokkur- inn, fyrst það knúði slíka stjórnar- myndun fram, og yrði þá Alþýðu- bandalagið fyrsti kommúnistfski flokkurínn á Vesturlöndum, sem myndaði þar stjórn. Eftir er að sjá, hvort Framsóknarflokkurinn játaði slíku og hvort Alþýðubandalagið ját- aðist undir, að vamarliðið sæti, en Al- þýðuflokkurinn gekk til kosninga með þá stefnuyfirlýsingu, að hann teldi enn ekki tímabært vegna öryggis landsins að vamarliðið væri, að óbreyttu ástandi heimsmála, og frá því mun flokkurinn ekki hvika. Rétt er að vekja athygli á, að forseti Islands virðist lita likt á stjórnarmynd- un og Alþýðuflokkurinn að líklegasta leiðin til sterkrar ríkisstjómar sé sam- stjórn Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Sjálfstæðisflokks, annars hefði hann tæpast falið formanni Alþýðu- flokks stjómarmyndunartilraunir fyrstum manna, vitandi vel hver af- staða hans og skoðun er. Stjórn allra f lokka? Eins og Alþýðuflokkurinn lagði þjóðmálin fyrir kjósendur i kosninga- baráttunni, liggur á borði, að hann hlaut ekki kjörfylgi út á það að mynda samstjórn með sjálfstæðinu einu ell- egar Sjálfstæði og Framsókn. Þeir stjórnarmyndunarmöguleikar eru því ekki fyrir hendi og frá sjónarhóli Al- þýðuflokksins er þá aðeins einn mögu- leiki enn fyrir hendi, náist hvorki sam- staða um samstjóm þriggja flokka, en það er stjórn allra flokka, sem réttlæta mætti á þeim grundvelli, hve efna- hagsmál okkar hafa faríð úrskeiðis. Galli við slika stjórn er hins vegar sá, að þá skorti andstöðu innan þings til gagnrýni, sem hverri stjórn er lýð- ræðisleg nauðsyn. Þó gæti þessi úr- lausn verið réttlætanleg í eitt til tvö ár, meðan verið væri að taka til og gera hreint, ef aðrar lausnir nást ekki, til dæmis vegna innbyrðis vanda sumra stjórnmálaflokkanna. Hollt er forystumönnum stjórn- málaflokkanna að hafa rikt i huga, að almenningur fylgist grannt með hverju útspili þeirra: Vinna þeir af ein- lægni eða er hver athöfn byggð á ein- hverjum annarlegum bakþanka og út- reikningi varðandi ímyndaða flokks- hagsmuni framyfir þjóðarhag? Ég tala ekki út i bláinn, þegar ég fullyrði, að refshyggjan á ekki upp á pallborðið nú hjá alþjóð manna. Það er beðið eftir athöfnum, en ekki vangaveltusetum yfir tafli. Bragi Sigurjónsson alþingismaður Ný stjórnarskrá? með sér, var þetta einvalalið dugnað- ar- og gáfumanna, sem flestir höfðu mikla reynslu í stjórnmálum. Sam- starfið í nefndinni var með ágætum. Ýmislegt olli því.að nefndinni vannst ekki verk sitt sem skyldi. Hún var of sjaldan kvödd saman. Nefndar- menn voru margir stjórnmálamenn á kafi í öðrum störfum og því erfitt að ná nefndinni saman. Venjulega eru lagafrumvörp samin af fagmönnum, sérfræðingum á því sviði, sem um er að ræða. Þótt stjórn- arskrá sé lagabálkur sérstakt eðlis — afdrifaríkari um stjórnmálaframvindu en önnur lög — tel ég ekki rétt að snið- ganga sérfræðinga, þegar vinnunefnd er valin til að semja stjórnarskrá. Þess vegna tel ég eiga að velja í stjórnar- skrárnefnd nokkra duglega lögfræð- inga, sem sýnt hafa áhuga og getu á sviði stjórnskipunarréttar. Er ég þess fullviss, að þá ynnist verkið bæði fljótt og vel. í þess stað hafa önnur sjónar- mið hingað til ráðið vali í nefndina, t.d. sú virðing að fá nafn sitt tengt gerð nýrrar stjómarskrár. Ég tel þingmenn hafa alltof mikilla hagsmuna að gæta um gerð stjórnar- skrár til að geta unnið rétt að málinu. Alþingi er t.d. tekið að sliga niður meginreglu 2. gr. stjórnarskrárinnar um þrískiptingu ríkisvaldsins, þegar það og ráðherrar skipa þingmenn til að gegna alls kyns störfum á vegum fram- kvæmdavaldsins, svo sem störfum í bankaráðum, ríkisfyrirtækjum og byggingarnefndum. Það getur því naumast lengur gegnt aðhaldshlut- verki því, sem því er ætlað í stjórnar- skránni gagnvart framkvæmdavald- inu. Alþingismenn eru með störtum sínum á vegum framkvæmdavalds teknir að toga í reipið í þveröfuga átt við það, sem þeim er ætlað sem alþing- ismenn. Árið 1973 var lagt fyrir Alþingi frumvarp að lögum um umboðsmann Alþingis. Hlutverk hans er auk þess að gæta réttar einstaklingsins gagnvart stjórnarvöldum framkvæmdavalds að vera trúnaðarmaður Alþingis og auð- velda því að halda uppi aðhaldi gagn- vart framkvæmdavaldinu. Alþingi hefur látið frumvarp þetta liggja i salti. Verður heldur vart séð, hvernig umboðsmaður á að gegna aðhaldshlut- verki sínu gagnvart framkvæmda- valdi, þegar hann hittir fyrir innst inni á gafli í annarri hverri stofnun fram- kvæmdavaldsins þá menn, sem hann er bundinn trúnaði við sem alþingis- menn. Valddreifing og verkaskipting Að mínu viti eru mikilvægustu verkefni við gerð nýrrar stjórnarskrár auk kjördæmamálsins efling þrískipt- ingar rikisvaldsins, valddreifing og meiri verkaskipting en nú er innan rik- isvaldsins. Eins og nú er komið eru sjónarmið valddreifingar og verkaskiptingar virt að vettugi. Stjórnmálamenn okkar eru allt mögulegt menn, þúsundþjala smiðir, sem eru alls staðar og hvergi, allt í öllu og ekkert í neinu. Þeir sóa tima sínum á hlaupum milli ótal nefnda og ráða, hafa aldrei frið til að leggjast undir feld og hugsa út fyrir bráðabirgðaráðstafanir um stóru mál- in: HVERNIG Á AÐ STJÓRNA .....—................................ LANDINU? Að stjórna er að velja. Við gerð nýrrar stjórnarskrár ber að hafa í huga aðminni hyggju: Ráðherrar séu ráðherrar og hafi all- an sinn tíma til að gegna þeim störf- um. Þeir séu ekki jafnframt alþingis- menn, en hafi leyfi til að taka þátt i umræðum Alþingis og leggja fram stjórnarfrumvörþ. Ríkisstjórn yrði efld í störfum sinum á þann veg. Alþingismenn séu alþingismenn, en láti störf á geira framkvæmdavalds í ' friði. Þannig yrðu einnig fleiri virkir sem stjórnmálamenn, og alþingismenn ekki forréttindaaðall, eins og nú er, sem flest gleypir. Þannig yrði þátt- töku-lýðræðið aukið, sem er afar mikilvægt nú á timum. Sett yrðu inn í stjórnarskrá ákvæði um kjördæmamál þann veg gerð, að þingmannatala milli kjördæma breytt- ist sjálfkrafa, ef fólksflutningar milli þeirra ættu sér stað umfram viss takl- mörk. Þannig yrði bægt frá ofsafengn- um deilum, sem gjósa nú upp á nokk- urra ára fresti út af mismunandi vægi atkvæðis í hinum ýmsu kjördæmum. Sigurður Gizurarson í sýslumaður.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.