Dagblaðið - 20.07.1978, Blaðsíða 24
Ágreiningurinn um orlof smálin í Eyjum:
„UTUM A ÞETTA SEM
ÓGREITT ORLOF”
— segirforstöðumaður Póstgíróstofunnar— „Póstgíróstofan eína
stofnunin sem má annast innheimtu orlofsfjár”
„Samkvæmt orlofslögum teljum við
það alveg skýrt að það sé Póstgiróstof-
an sem áaðannast innheimtu og um-
sjón orlofsfjár en ekki aðrar stofn-
anir,” sagði Birgir Hermannsson for-
stöðumaður Póstgíróstofunnar. „Sú
túlkun ráðamanna í Vestmannaeyjum
á 2. grein orlofslaganna, aðsamningur
þeirra sé heimilaður með lögum á því
ekki við.
Við teljum að ákvæði annarrar
greinar eigi eingöngu við um það að
ekki sé bannað að greiða hærra orlof
en um er getið í orlofslögur.um. eða
veita mönnum lengra fri.
Aðalmál þeirra Vestmannaeyinga
er að halda orlofsfénu i Vestmanna-
eyjum. Hitt er ekki rétt sem fram
kemur í umsögn þeirra, að orlofsféð
hafi verið notað sem rekstrarfé
Póstsins. Það má segja að svo hafi
verið áður, en undanfarin tvö ár hefur
það ekki verið. Póstgíróstofan greiðir
féð beint til Seðlabankans.
Samkomulag sem þetta gæti e.t.v.
gengið á smástöðum,” sagði Birgir.
„En ég fæ ekki séð hvernig það gengi
t.d. með vertíðarfólk í Vestmannaeyj-
um, þ.e. aðkomufólk. Á það fólk að
eiga marga reikninga með orlofsfé
víða um land. Og það et; ekki Ijóst sam-
kvæmt þessu samkomulagi, hver á að
annast innheimtu orlofsfjárins? Og
hver á að reka á eftir ef vanskil verða?
Er það bankinn? Eða er það verkalýðs-
félagið?
Við litum á þetta sem ógreitt orlof.
Ef launþegi kemur og kvartar þá lítum
við svo á að greitt hafi verið
röngum aðila og munum reyna inn-
heimtu orlofsfjárins með venjulegum
hætti,” sagði Birgir Hermannsson for-
stöðumaður Póstgíróstofunnar.
• JH
„Ekki hafa allirskátar misstsjónará mark-
miðum og hugsjónum skátastarfsins”
— Landnemar reiðir Jóker
„Ekki hafa allir skátar misst sjónar
á markmiðum skátastarfsins og þeim
hugsjónum sem á bak við það búa og
helgað sig „sirkus-málefnum” eða
öðrum loddaraskap” segir í fréttatil-
kvnningu sem skátar úr skátafélaginu
' ^nemar hafa sent frá sér. Fréttatil-
k ngin fjallar að öðru leyti um
f - að afmælismót Landnema að
atni um næstu helgi.
r, . ’-m Landnema er augljós-
lega beint gegn umsvifum Jókers hf.
í skátahreyfingunni, en eins og komið
hefur fram i fréttum er það fyrirtæki í
eigu framkvæmdastjóra og fjármála-
stjóra Bandalags islenskra skáta. Jóker
hf. sá um sirkussýnífiguna i Laugar-
dalshöll á dögunum og hafði upp úr
þvi a.m.k. þrjár og hálfa milljón
króna.
DB er kunnugt um að skiptar
skoðanir eru um „Jókermálið” innan
skátahreyfingarinnar. Sumir sem
blaðið hafði tal af hrósuðu eigendum
Jókers, Steinþóri Ingvarssyni og
Þorsteini Sigurðssyni, fyrir dugnað og
eljusemi í skátastarfi.
Aðrir vildu meina að Jókermenn
misnotuðu aðstöðu sína innan skáta-
hreyfmgarinnar sér og sínu fyrirtæki
til framdráttar. M.a. fannst þeim
óeðlilegt að skátafélagið Garðbúar.
sem Þorsteinn Sigurðsson er fyrrver-
andi félagsforingi í, skyldi fá heila
milljón fyrir sjálfboðaliðastarf í
kringum sirkussýninguna.
„Ein milljón mundi leysa flest okkar
vandamál,” sagði einn skátinn í
samtali við blaðið.
í haust verður haldinn fundur
félagsforingja skáta og þá má búast
við aðsirkussýningin og umsvif Jókers
í skátahreyfmgunni verði til umræðu.
GM
Tollverðirá
Seyðisfiröi
eiga að fá
óáfengan
bjór
ÁsóknSeyðfirðingaí
veitingarum borðí
Smyrlimikil, segir
tollgæzlustjóri
„Það er mikil ásókn af hálfu Seyð-
firðinga að komast i veitingar um borð i
Smyril. Meðan skipið hefur þar viðdvöl
er það ekki tollafgreitt. heldur aðeins
farþegar sem i land fara. Veitingasalur
og bar er því opinn meðan viðdvöl er
höfð. Það er verkefni tollgæzlunnar að
sjá um að óviðkomandi hafi ekki aðgang
að ótollafgreiddu skipi.” sagði Kristinn
Ólafsson sem hafði samband við blaðið
vegna fréttar um „bjórstriðið" á Seyðis
firði.
„Það er rétt að ég hef fariö fram á það
við Færeyingana að tollgæzlumenn
fengju í skipinu veitingar og er þar átt
við brauð og gos eða öl, en sérstaklega er
beðið um að ekki sé um áfenga drykki að
ræða,” sagði tollgæzlustjóri.
„Afgreiðsla skipsins hefur verið
nokkrum vandkvæðum bundin, því það
hefur hér viðstöðu frá kl. 5—8 einu sinni
i viku. Fellur matartimi þeirra sem
skipsins gæta inn i þennan stutta
veitingatima og af því er óskin um
veitingar fyrir tollverði borin fram.
Greiðsla fyrir veitingarnar er í boði frá
Tollgæzlunni.”
Kristinn sagði að sér væri ekki
kunnugt um að verkamenn sem skipið
afgreiða hefðu notið veitinga um borð.
Það gæti þó hafa gerzt. En veitingar um
borð í ótollafgreiddu skipi væru ekki
ætlaðar verkamönnum sem við það
vinna og það væri tollgæzlunnar að
gæta skipsins á því lokaða svæði sem
það væri afgreitt við.
ASt.
Góðan
dag,
sólskin
Hún lá á tröppum Iðnó I bllðunni I gær
og sleikti sólskinið þegar Ijósmyndarinn
læddist að henni og smellti af mynd. Hún
hrökk upp: Agalegt kvikindi gat maður-
inn verið. En veðrið var svo indælt að
ekki tók því að gera rellu út af einni
mynd.
Þá tók hann aðra....
DB-mynd Sv. Þorm.
frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978
Það tókst
hjáJóniL.
Árnasyni
Það tókst hjá Jóni L. í síðustu um-
ferðinni á skákmótinu í New York gerði
hann jafntefli við bandaríska skákmann-
inn Rind, sem var í efsta sæti fyrir síð-
ustu umferðina. Jafnteflið nægði til þess
að Jón L. Árnason náði fyrri hluta al-
þjóðlegs meistaratitils. Jón á þvi eftir að
ná síðari hluta meistaratitilsins og eins
og DB skýrði frá í gær standa vonir til
þess að sá hluti verði samþykktur á þingi
FIDE i haust, fyrir heimsmeistaratitil
Jóns.
Jón hlaut því 7 vinninga og varð í
8.—15. sæti af 94 keppendum. Sigurveg-
ari varð rúmenski stórmeistarinn
Georghiu með 8.5 vinnmga. Árangur
annarra íslendinga varð sem hér segir:
Sævar 6.5, Margeir 5.5, Guðni og
Jóhannes 5^og Ásgeir og Bragi 4,5 vinn-
inga.
- JH
r
Islenzk kona
drukknarí
Kaliforníu
Fimmtug kona úr Njarðvík, Hrefna
Björnsdóttir, féll í á skammt frá Los
Angeles í Bandarikjunum um helgina,
ogdrukknaði.
Hrefna hafði verið ásamt manni
sinum í heimsókn hjá dóttur þeirra og
tengdasyni vestra í um hálfan mánuð.
Voru þau öll saman þegar þetta sviplega
slys varð. Lífgunartilraunir, sem reyndar
voru þegar Hrefna heitin náðist upp úr
ánni, báru ekki árangur.
Hrefna Björnsdóttir lætur eftir sig
eiginmann og tvö uppkomin börn.
ÓV/emm
Borgarstjórinn
valinná morgun
Umsóknarfrestur um stöðu borgar-
stjóra í Reykjavik rennur út á miðnætti
næstkomandi. Vitað er um nokkra
menn, sem hafa þreifað fyrir sér um
starfið en umsóknir verða lagðár fram á
fundi borgarráðs á morgun.
Nokkur nöfn hafa verið nefnd. Meðal
annarra þeirra Ingvars Ásmundssonar,
stærðfræðings, skákmanns og kennara,
og Egils Skúla Ingibergssonar, raf-
magnsverkfræðings. Ingvar er kunnur
maður að öllu góðu. Egill Skúli Ingi-
bergsson var meðal annars yfireftirlits-
verkfræðingur í Sigöldu og gat sér þar
sérstaklega gott orð. Hann er auk sér-
greinar sinnar mjög vel að sér um
rekstur og áætlanagerð.
Eins og menn muna var það yfirlýst af
meirihluta borgarstjórnar að ekki yrði
ráðinn maður með sterkan pólitískan
stimpil. Óstaðfest er, að 5 umsóknir
muni berast um starfið.
BS.
^þad“
' Kaupíð^v
TÖLVUR Z
OGTÖLVUUR B
BANKASTRÆTI8