Dagblaðið - 26.07.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 26.07.1978, Blaðsíða 2
2 Möl er sett yfir tjörulagið og síðan valtað yfir. FRAMKVÆMDIR Á MNGVALLAVEGI l.esandi hringdi og spurðist fyrir um hvers konar malbikunarframkvæmdir það væru, sem staðið hefðu yfir á Þingvallaveginum undanfarið. DB hafði samband við Vegagerð ríkisins og spurðist fyrir um þetta at- Raddir lesenda riði. Þar varð Jón Rögnvaldsson yfir- verkfræðingur fyrir svörum og sagði hann að hér væri ekki um eiginlega malbikun að ræða. Nær væri að tala um rykbindingu. Aðferðin felst í því, að ákveðið tjörulag er borið á veginn og möl síðan sett ofan í og siðan valtað yfir. Jón sagði, að þessi aðferð hefði verið nokkuð notuð í Skandinavíu og hefði hún sérstaklega gefizt vel hjá Norðmönnum. Sagðist Jón vera von- góður um, að þessi aðferð gæti einnig heppnazt hér en hún væri tiltölulega ódýr. Varasamtað hafa plast á toppgrindum — nema vel sé f rá því gengið Æ.S. hringdi og kvaðst vilja benda bif- reiðaeigendum á hversu varasamt væri að breiða plast yfir toppgrindur bifreiða. Ef ekki væri þannig frá plast- inu gengið, að tryggt væri að það snerti ekki topp bifreiðarinnar þá gæti illa farið. Sagðist Æ.S. tala af biturri reynslu þvi plastið á toppgrind bifreið- ar hans hafi hreinlega hreinsað máln- inguna af toppi bifreiðarinnar. Hafði hann heyrt af fleiri bifreiðum er þannig hefði farið fyrir og vildi vara bifreiðeigendur við þessu. Er þeirri ábendingu hér með komið á framfæri. Ökukennsla Kennslubifreiðin er Toyota Cressída ’78 ogannaðekkL Geir P. Þormar ökuicnnarí. Simar 19896 og 21772 (slmsvari). DAGBLADIÐ. MIDVIKUDAGUR 26. JÚLt 1978. Næg formannsefni í Sjálfstæðisflokknum Tryggur sjálfstæðismaður um fertugt skrifan Það gengur aldeilis fram af mér sem góðum sjálfstæðismanni, hvernig þeir skrifa um flokkinn okkar sumir þessir Vísis-strákar og vikapiltar hans Geirs Hallgríms. Þeir segja að það sé enginn maður til í Sjálfstæðisfiokknum, sem sé fær um að vera formaður flokksins nema Geir. Þegar hann Geir hefur al- veg brugðizt og hvorki reynzt maður til að stjóma flokknum né heldur efna- hagsmálunum, þá segja þeir að'við verðum að hafa hann áfram af því enginn er annar til i heiminum. Þetta er vantraust á stærsta stjórnmálaflokk þjóðarinnar og svo mikil ósannindi, að ég er hissa að nokkur sjálfstæðismaður skuli láta þvílíkt og annað eins út úr sér. Sjálfstæðisfiokkurinn á marga ágæta hæfileikamenn, sem hafa meira til brunns að bera en Geir. Fyrst vil ég nefna Gunnar Thoroddsen. einn' snjallasta ræðumann og reyndasta stjórnmálamann þjóðarinnar, en flokkseigendafélagið svokallaða eða klika Moggans og Geirs hefur alltaf haft horn í siðu hans af öfund og af- brýði. Ólafur Thors og Bjarni Bene- diktsson völdu hann fyrir varafor- mann á sinum tima og vildu að hann tæki við flokknum, þegar þar að kæmi. Ég vil líka nefna bæði Birgi ís- leif og Albert Guðmundsson, sem mundu sóma sér vel sem fiokksfor- menn. KJARVALSSALUR LOKAÐUR Hvers vegna er Kjarvalssalur lokaður og hefur verið lokaður allan júlímánuð? Ég hefi ætlað að sýna út- Iendum vinum mínum safnið en það er eitt af því fyrsta sem maður sýnir útlendum gestum sínum. Auglýsing um Kjarvalssafn er í bæklingum Flug- félagsins og ferðaskrifstofa. Ég skora á borgaryfirvöld að ráða bót á þessu án tafar. Steinunn Magnúsdóttir DB sneri sér til Aðalsteins Ingólfs- sonar og spurðist fyrir um ástæður þessa. Hann sagði, að nú væri milli- bilsástand eftir borgarstjórnarkosning- arnar og breytingar á samningatima- bili nefndarinnar, sem tekur ákvarð- anir um sýningar. Vonandi stæði þetta allt til bóta. Dýr viðgerð á þvottavél Kona i Hliðunum varð fyrir því óhappi á dögunum að þvottavélin hennar vatnstæmdi sig ekki. Henni tókst þó að hleypa vatni af og kallaði á viðgerðarmann. Viðgerðarmaðurinn hreinsaði vatnsventil vélarinnar sem í höfðu setzt fáein rykkorn, og tók það verk örfáar minútur. Til að tryggja að vélin væri örugglega komin í lag lét hann hana ganga í rúman hálftima. Að þessu loknu lagði hann reikning fyrir konuna. Henni krossbrá. Reikn- ingurinn hljóðaði upp á kr. 7.782,- Sjálf vinnan var metin á kr. 5.876, þjónustugjald var kr. 596 og akstur I.310. Reikningurinn er i samræmi við taxta Landssambands islenzkra rafverktaka, skv. upplýsingum Ágústs Gíslasonar rafverktaka. Ágúst sagðist telja taxtann of lágan og þyrfti að hækka hann.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.