Dagblaðið - 26.07.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 26.07.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ197B. — gagnkvæmar ásakanir Sýrlendinga og hægri manna ingar orðið fyrir nokkru manntjóni í bardögunum. Fréttamaður Reuters, sem fór um hverfi kristinna hægri manna í Beirut í gær sagði að foringjar hersveita þeirra væru vígreifir mjög þrátt fyrir skothríð Sýrlendinga. Vinstri menn munu einnig vera fúsir til að halda borgarastríðinu áfram svo framarlega sem þeim yrði séð fyrir vopnum. í borgarastyrjöld- inni eða þeim hluta þess sem stóð árin HÚSTIÖLD Verð frákr.88þús. Sólskýli kr. 9.300.- Sóltjöld kr. 19.500.- Stráteppi 91X182 kr. 2300136X182 kr. 3.300. Tjaldbúðir h/f Geithálsi sími 44392 Sprengjum og sprengjubrotum rigndi yfir suðaustur hluta Beirut i gær. Þar áttust enn við gæzlusveitir Sýrlendinga og skæruliðar hægri sinn- aðra Libana. Margar byggingar stóðu í björtu báli og skógar nærri bústað lib- anska forsætisráðherrans Elias Sarkis loguðu. Útvarpsstöð hægri manna sagði í gærkvöldi að minnsta kosti tuttugu og fimm óbreyttir borgarar hefðu fallið i skotárás Sýrlendinga á eitt hverfi Beir- ut. Kallaði útvarpsstöðin bardaganna glæpsamlega árás á hverfi kristinna. Gæzlusveitir arabarikjanna en þar ráða Sýrlendingar lögum og lofum sögðu í gær að skotið hefði verið á til- tekna ákveðna staði í hverfi kristinna. Hefðu þeir staðir orðið fyrir valinu þaðan sem skothríð og sprengjukasti hefði verið beint að hersveitum þeirra. Að sögn sjónarvotta hafa Sýrlend Líbanon: SPRENGJUM RIGNIR YFIR HVERFIKRISTINNA MANNA Belgrad: Fundi seinkaði vegna Vestur-Sahara máls 1975 og 1976 er talið að sextiu þúsund hafi fallið. Brauzt það út vegna óánægju fátækari hluta þjóðarinnar, mest meðal múhameðstrúarmanna, með kjör sin. Trúarbragðadeilur blönduðust að nokkru inn í málið en tæpur helmingur landsmanna er tal- inn kristinn. Fram að borgarastyrjöld- inni var forseti landsins kristinn og múhameðstrúar á víxl. Sýrlendingar bældu borgarastyjöld ina loks niður í fyrra með nokkurri hjálp Ísraelsmanna. Aldrei hefur þó legið við sættum á milli deiluaðila og bardagar ávallt blossað upp öðru hvoru. Á síðustu mánuðum hefur stöðugt gengið á gagnkvæmum ásökunum milli Sýr- lendinga og hægri sinna um að þeir séu að reyna að sölsa undir sig öll völd i landinu. — Titoskammar Sovétríkin ogKúbuf setningarræöu Fyrsta ágreiningsefnið á þingi samtaka óháðra rikja sem haldið er í Belgrad varð um Vestur-Sahara. Þar vilja nágrannarikin Marokko og Máritania ná völdum en Alsír styður frelsishreyfingu íbúanna. Töfðust fundarhöld í meira en fjórar klukku- stundir frá áætlun. Að lokum var sam- þykkt að hætta umræðum um málið en í orði kveðnu er það enn á dagskrá. Rikin áttatíu og sex á Belgrad ráð- stefnunni skiptast nærri í jafna hluta í afstöðu sinni til Vestur-Sahara. Málið var rætt á fundi Einingarsam taka Afríkjurikja sem haldin var i Kartúm fyrir nokkrum dögum. Var þar ákveðið setja á stofn sérstaka nefnd til að fjalla um málið. Tító Júgóslavíuforseti setti ráð stefnuna í gær. Hann gagnrýndi Sovétríkin og Kúbu harðlega fyrir hemaðarihlutun þeirra í Afriku. Hvatti hann riki í samtökum óháðra að vera á verði gagnvart þessum rikjum því þau reyndu að ala á sundrungu meðal þeirra. Tiió gagnrýndi einnig nýlendu- stefnu Bandaríkjanna viða um 'neim en höfuðáherzlan var þó á Kúbu og Sovétrikin. IMámsmenn erlendis Sumarráðstefna Sambands námsmanna er- lendis verður haldin í Félagsstofnun stúdenta laugardaginn 29. júlí kl. 13.00. Dagskrá sam- kvæmt lögum. Athygli skal vakin á að hin nýja staða í lánsmálum verður reifuð. Fundar- gögn liggja frammi á skrifstofu SÍNE í Félags- stofnun. Stjórn SÍNE Laus staða Staða forstjóra Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 8. ágúst. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. Umsóknir sendist Sjúkrasamlagi Hafnarfjarð- ar, Strandgötu 33, Hafnarfirði. Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar. Peningamenn Lán að upphæð ca 3—4 milljónir óskast gegn 35% vöxtum og veði í fyrirtæki eða góðri fast- eign. Algjörri þagmælsku heitið. Tilboð sendist til DB fyrir laugardag merkt „Beggja hagur 99”.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.