Dagblaðið - 11.09.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 11.09.1978, Blaðsíða 10
10 Útgefandi jblaðiÖ'hf. • Framkvœmdiaitjórí: Svoinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjénsson. FréttastjóH; Jón Birflir Pétursson. RitstjAmarfultrúi: Haukur Halgason. Skrifstofustjórt ritstjómar: Jóhanne i Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aðstoíarfréttastjórar Adi Stainarsson og Omar Valdimarssor . Handrít: Ásgrímur Pólsson. 'BÍaöamenn: Anría Bjamason, ÁsgeiPf'ómasson, Bragi SigurÖsson, Dóra Stefónsdóttir, Gissur Sigurðs^ son, Guömundur Magnússon, Hallur HaHsson, Helgi Pétursson, Jónqs Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónssoi^ Ragnar Lór., Ragnhaiður Krístjónsdóttir. Hönnun: Guðjón H. Pólsson. Ljósmyndir; Arí Krístinsson Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur BjamleHsson, Höröur VHhjólmsson,. Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Pormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHssorí. Gjaldkeri: Próinn PoríeHsson. Sökistjórí: Ingvar Sveinsson. DreHing- arstjórí: Mór E.M. Halldórsson. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiösla, óskríftadeild, auglýslngar og skríf stófur Pverholti 11. Aöalsimi blaðsins er 27022 (10 Ifnuri. Áskríf12000 kr. ó mónuöi innanlands. í lausasöki 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Siöumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Síöumúla 12. Prentun: ÁfvqÞur hf. SkeHunni 10. Vafasamur grautur Margt er vafasamt í meira lagi í aðgerðum vinstri stjórnarinnar, sem nú hafa verið kynntar. í fyrsta lagi er í hæsta máta óréttlátt að leggja enn skatta ofan á tekjur, sem fólk hafði fyrir ári. Þessir afturvirku skattar stríða gegn anda stjórnarskrár og kunna að dæmast ólög- legir fyrir dómstólum. Þegar tekna er aflað, á fólk að geta vitað nokkurn veginn, að hverju það gengur, hvaða skattahækkun hinar auknu tekjur valda. Skyldusparnaðurinn, sem gamla stjórnin lagði á tekjur á þessu ári, var harla vafa- söm aðgerð, sem átti sér formælendur fáa. Nú er enn lagt ofan á þetta. Skatturinn, sem ríkisstjórnin leggur á það, sem að hennar dómi eru lúxusvörur, er ennfremur vafasamur. Slíkir skattar eiga í rauninni engan rétt á sér, þegar um ræðir jafnsjálfsagðar vörur og hljómtæki, plötur, útvarps- og sjónvarpstæki. Næst mun væntanlega koma í ljós, að vinstri stjórnin telur það mikinn „lúxus”, að maður eigi bifreið. Hugsunarhátturinn á bak við þetta heyrir til öðru tímabili en við nú lifum. Skattar á aðrar stærðir hjá fyrirtækjum en hagnað orka mjög tvímælis. Sannarlega eru skattsvik víða í kerfinu, og mörg fyrirtæki, sem komast undan réttum skattaálögum með því að nota smugur laga til hins ýtrasta og jafnvel með beinu svindli. En skattur á annað en hagnað hittir jafnt réttláta sem rangláta. Mörg fyrir- tæki hafa ekki af neinum leyndum hagnaði að taka. Hætt er því við samdrætti af þeim sökum. Með sérstöku álagi á ferðamannagjaldeyri er tekið upp tvöfalt gengi, þar sem ferðafólk greiðir erlendu myntina á hærra gengi en aðrir. Aðferðir ríkisstjórnarinnar i launamálum eru ekki síður vafasamar. í rauninni er ríkisstjórnin að falsa vísitöluna með því að láta niðurfærsluna koma til lækkunar verðbótavísi- tölu en taka ekki með neinar þær verðhækkanir, sem orðið hafa allt frá fyrsta ágúst. Það er ekki aðeins, að gamalkunna aðferðin, sem fjöl- margar stjórnir hafa beitt, að hækka gífurlega áfengi og tóbak, sem er utan við vísitöluna, sé í algleymi. Með sér- stökum kúnstum á nú að greiða kaup í september sam- kvæmt vísitölu, sem er í reyndinni alls óraunhæf og tekur ekki mið af verðhækkunum síðustu fimm vikna. Þessum aðferðum er beitt til að draga úr kauphækk- unum, sem það mundi valda, að kjarasamningarnir ganga nú í gildi að hluta. Ennfremur stefnir í halla á ríkisbúskapnum á þessu ári, þar sem ekki innheimtist nægilega af hinum nýju álögum til að mæta auknum útgjöldum fyrir áramót. Miðlungslaunþegar eru skattpíndir meira en áður. Margar hinar nýju álögur eru beinlínis ranglátar. Ekki er mikils að vænta af þeim graut öllum, sem ríkis- stjórnin hefur nú mallað. Flokkar hennar geta ekki búizt við auknu fylgi út á þær. Þjóðfélagið hefur ekki batnað við þær. Ríkisstjórnin kom ekki að fullum sjóðum. Hún horfði fram á mikinn vanda og stöðvun mikilvægra atvinnu- greina. Henni er nokkur vorkunn. En landsmenn munu krefjast mikilvægari aðgerða og réttlátari i náinni framtíð. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR ll.SEPTEMBER 1978. Ráðgátan um Hillside morðin í Los Angeles: M0RDINGINN GENGUR LAUS — tilgátur um að hann sé í fangelsi fyrir aðrar sakir eða jafnvel dauður Margir muna e.t.v. eftir fjölmörgum morðum, sem framin voru i Los Ang- eles seint á síðasta ári og fram á þctta ár. Talið var að einn og sami maður- inn hefði orðið 13 ungum stúlkum að bana með því að kyrkja þær. Morðingi þessi var gjarnan nefndur Hillsidc morðinginn, því fórnarlömb hans fundust flest í hllðunum um- hverfis Los Angeles. En spurningin er hvort morðingi þessi sé enn á ferli i Los Angeles í leit að tækifæri til þcss að fremja 14. morðið, eða hvort hann sé þegar dauður. Möguleiki er einnig að hann sé í fangelsi, sitji inni fyrir annað afbrot, ótengt morðunum, en hefji sama leikinn er hann losnar á ný. Undarlega langt hléfjölda- morðingja Ár er nú liðið síðan morðingi þessi, sem talið er að hafi ávallt verið einn, framdi fyrsta morðið. Og síðasta morðið, sem talið er að hann hafi á samvizkunni, framdi hann I7. febrúar sl. Þá fannst nakið lik Cindy Lee Hudspedt falið í farangursgeymslu bíls hennar, sem lagt hafði verið í skógi í grennd við Los Angeles. Þrettán lögreglumenn vinna enn að máli þessu og reyna að hafa hcndur í hári þessa manns. En eftir þvi scm tíminn líður getur lögreglan i Los Ang- elcs æ minna sinnt þessu máli, þannig að mönnum sem vinna að rannsókn málsins fækkar stöðugt. Enginn hefur verið ákærður i máli þessu og lítið er vitað um hinn hugsanlega morðingja, sem hélt Los Angeles í greipum óttans í marga mánuði. Margir sálfræðingar undrast það að fjöldamorðingi af þessari gerð skuli ekki hafa dreipið í 6 mánuði samfleytt. Er lcitin aö morðingjanum stóð scm hæst unnu 96 manns stöðugt að því að reyna að hafa hendur í hári hans. 150 þúsund dollara verðlaunum heitið Ungar konur voru heima að kvöld- og næturlagi vegna ótta við Hillside- morðingjann og mörg fyrirtæki tóku upp sérstakar varnir fyrir stúlkur úr starfsliði sínu og útveguðu þeim fylgd- armenn hvert sem þær fóru. Lögreglan rannsakaði um I00 þús- und ábendingar, sem fram komu í mál- inu, en almenningur var sérstaklega beðinn að aðstoða lögrcgluna. Yfir- völd buðu þeim 150 þúsund dollara verðlaun, sem komið gæti með upplýs- ingar sem leiddu til handtöku morð- ingjans. En morðinginn hélt áfram að drepa. Fyrsta fórnarlamb hans var Laura Collins, 26 ára gömul sýningarstúlka. Þetta morð vakti ekki sérstaka athygli lögreglunnar. Talið var að hér væri að- eins um enn eitt Los Angeies morðið að ræða. En athyglin var vakin, er annað morð var framið sex vikum siðar með svipuðum hætti. í þetta skipti var fórnarlambið Yolanda Washington, tvitug stúlka, er átti tveggja ára gamla dóttur. Og á næst- unni bærði morðinginn heldur betur á sér. I nóvember sl. myrti hann sjö stúlkur. Eitt sameiginlegt öllum morðunum Öll fórnarlömbin voru ung, hið yngsta Dollie Cepede, sem var aðeins 12 ára að aldri. Allar voru stúlkumar kyrktar. Sum likin fundust nakin og höfðu verið svivirt og a.m.k. ein stúlk- anna hafði verið barin. Lögreglan hefur komizt að einu sameiginlegu i öllum morðunum og stendur í þeirri trú að einn og sami maðurinn hafi myrt allar stúlkumar. En lögreglan heldur þessu sameigin- lega atriði leyndu til þess aðgeta sann- reynt þctta atriði á þeim sem grunaðir eru. Flest likin fundust i fjallshlíðunum í kringum Los Angeles. Þetta eru fremur fáfarnar slóðir og í u.þ.b. 9 km fjarlægð frá Glcndale úthverfi Los Angclcs. Fómarlömbin eiga sér mis- jafnan bakgrunn. Sumar stúlkurnar hafa starfað sem sýningarstúlkur. Aðrar höfðu hlaupizt að heiman. Enn aðrar voru skólanemendur, sem bjuggu í firði og ró á heimilum for- eldra sinna og stunduðu kirkju reglu- lega. Nýr Jack the Ripper Allmargir menn hafa verið hand- teknir vegna Hillsidc-morðanna, en enginn ákærður. Þeir 13 menn, sem enn vinna að rannsókn málsins, trúa því þó statt og stöðugt að morðinginn náist. Yfirvöld í Kaliforníu hafa hcitið 54 þúsund dollara fjárvcitingu til þess að kaupa tölvu til samanburðar á fingra- förum. Akan Robbins öldungadeildar- þingmaður Kaliforniu, scm gekkst fyrir þessari fjárveitingu. sagði að án tækisins tæki það lögregluna þrjú ár að bera saman fingraför 80 þúsund þekktra kynferðisglæpamanna, cn sama vcrk tæki tölvuna aðeins sex vikur. En þrátt fyrir þctta hallast æ fleiri að því i Los Angeles, að borgin hafi nú cignazt sinn Jack the Ripper, en þá er vísað til illræmds fjöldamorðingja er var uppi í London á 19. öld, en sá morðingi fannst aldrci. Margir játuðu á banabeði að hafa verið hinn eini sanni Jack the Ripper. Það gæti þvi allt eins farið svo, er stundir líða i Los Angeles, að margir muni viðurkenna á banabeði að hafa verið Hillside-morðinginn illræmdi. .osAngeles: m ■ Hillside morðinginn sennilega f undinn — myrti 12 stúlkur ogsvívirti iglan i Los Angeles í ikjunum er nú að yfir- 7 ára gamlan leikara, sem vera ábyrgur fynr n á 12 ungum konum arna fjóra mánuði. Mikil ur staðið yfir að morðingja mna, en þessi morð vöktu skelfingu. Morðingmn verið kallaður Htllside rinn, en allar stúlkurnar vrktar og sumum nauðgað fundust síðan í hæðunuro í mn Los Angeles og voru Leikarinn, Yorke að nafni var hanritekinn á heimili sinu eftir a Hillside-mordin vöktu mikla athygli á sínum tíma. Þessi frétt birtist í DB 9. febrúar sl„ en þá var talið að mordinginn væri fundinn. Svo reyndist þö ekki vera. Skömmu síðar var 13. morðið framið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.