Dagblaðið - 11.09.1978, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 11.09.1978, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. SEPTEMBER 1978. íþróttir Iþróttir 14 I Iþróttir Iþróttir Lokastaðan í l.deild Úrslit í leikjum í 1. deild um helgina urðu þessi: Keflavfk-Vikingur 3—1 FH-Breiðablik 1—3 IBV-Fram 3—2 Vaiur-Akranes 1—0 Lokastaðan varð þannig: Valur 18 17 1 0 45-8 35 Akranes 18 13 3 2 47—13 29 Keflavik 18 8 4 6 31—25 20 ÍBV 18 8 3 7 29—24 19 Vikingur 18 9 1 8 27-31 19 Fram 18 7 2 9 23—31 16 Þröttur 18 4 6 8 23-27 14 KA 18 3 5 10 14—39 11 FH 18 2 6 10 22—37 10 Breiðablik 18 3 1 14 19—45 7 Markahæstu leikmenn: Pétur Pétursson, Akranes, 18 lngi Björn Alb'ertsson, Val, 15 Matthías Hallgrimsson, í A, 11 Atli Eðvaldsson, Val 10 Sigurlás Þorleifsson, lBV, 10 Guðm. Þorbjörnsson, Val, 8 Gunnar Örn Kristjánsson, Vík. 8 Góð þátttaka ÍÍSAL — hjá GR. um helgina Mjög góð þátttaka var i Isal-keppn- inni sem GR hélt um helgina. 116 hófu keppni á laugardag í hávaðaroki og varð árangur frekar lélegur hjá mörgum. Seinni dag keppninnar urðu þvi nokkur forföll og luku keppninni mun færri en þeirsem hófu hana. Keppt var í 4 flokkum karla og kvcnnaflokki með forgjöf. Úrslit urðu þessi: Meistaraflokkur: 1. Magnús Halldórsson GK 161 2. Július R. Júliusson GK 164 3. Eiríkur Þ. JónssonGR 167 1. flokkur: 1. Björgvin Hólm GR 165 2. Sigurður Sigurðsson GS 167 3. GunnarÓlafssonGR 169 2. flokkur: 1. lngólfur Bárðarson GOS 172 2. Ásgeir Nikulásson GK 176 3. Reynir Þorsteinsson GL 179 3. flokkur: 1. Gunnar Haraldsson GR 172 2. Þorsteinn Þorslcinsson GR 176 3. Björgúlfur Lúðvíksson GR 179 Konur m/forgjöf: I. Ágústa Guðmundsd. GR 149 2. Sólveig Þorsteinsdóttir GK 152 3. Ágústa Dúa Jónsdóttir GR 156 Ragnar Halldórsson forstjóri Ísal af- henti vcrðlaunin i mótslok. HBK. KEFLAVÍK í UEFA-KEPPNINA Keflavikurvollur, 1-deild, IBK—Víkincur.3—1 (3—01 Keflvikingar tryggðu sér þriðja sætið og réttinn til þátttöku i Evrópukeppninni með þvi að sigra Víking i Keflavik á laugardaginn með þrcmur mörkum gegn einu. Guðna Kjartanssyni, þjálfara liðsins, hefur þvi tekizt að hefja liðið frá botni, eftir slæma byrjun, og upp í „bronssætið” i scinni umferðinni. Guðni tók sjálfur beinan þátt I lokaorrustunni í ár með þvi að spila með lærisveinum sin- um, samkvæmt þeirra ósk, sina gömlu miðvarðarstöðu og sýndi að þrátt fyrir áralanga fjarveru og þrálát meiðsl hefur hann engu gleymt af kúnstum knatt- spyrnunnar. Aðöllum öðrum ólöstuðum var Einar Ásbjörn Ólafsson maður dagsins. Eftir innkast Þórðar Karlssonar i leikbyrjun og fádæma klaufaskap Diðriks Ólafs- sonar, markvarðar Víkings, að góma ekki knöttinn, kom Einar Ásbjöm á rétt- um tíma og skoraði fyrsta mark leiksins. Hann átti lika allan heiðurinn af þriðja markinu á seinustu minútu fyrri hálf- leiks — skaut hörkuskoti að marki sem varnarmaður Víkings gat ekki stöðvað nema með hcndi. Vitaspyrna — um annað var ekki að ræða af hálfu hins ágæta dómara leiksins Ciuðmundar Haraldssonar, sem Einar Ásbjörn skoraði örugglcga úr. Áöur hafði Guðmundur dómari orðið að grípa til flautunnar þegar Þórði Karlssyni út- hcrja iBK, var illa brugðið innan víta- teigs Vikinga. Ólafur Júlíusson tók víta spyrnuna cn Diðrik varði eftir að hafa komið einum of fljótt til móts við knöttinn. Knettinum var því stillt öðru sinni á vítapunktinn og nú var það Stcinar Jóhannsson, en hann hefur átt hvern leikinn öðrum bctri með ÍBK að undanförnu.sem spynti rakleitt i netið. Þrjú mörk undir í hléi er ckki óbrúanlegt bil, — sérstaklega þcgar Kári gamli tckur virkan þátt i lciknum með blæstri sinum. Með norðanstrekkinginn i bakið og heilræði Youri llitchev i kollinum, hófu Víkingarnir stórsókn í seinni hálflcik, scm fjaraði ekki út fyrr cn á scinustu mínútunum, þegar vonin um jöfnun eða sigur var brostin cn þeim tókst ekki að reka fleyg í vamarmúr ÍBK liðsins. Voru þar helzt að fótakefli. bakverðirnir Óskar Færseth og Guðjón Guðjónsson, Sigurbjörn Gústafsson og svo Guðni. Einnig greip Þorsteinn Bjarnason markvörður ávallt vel inn í leikinn og var það aðalmunurinn á liðunum hvað Þorsteinn var virkari i tcignum en Diðrik, markvörður Víking- Liverpool og Anderlecht hafa ákveðið leikdaga í „Super-eup” í Evrópu. Fyrri leikurinn I Brussel veröur 4. desember en hinn síðari 19. desember í Liverpool. Dr. Havclangc, formaður FIFA, skýrði frá því í gær, að hann ntundi ekki verða í kjöri sem formaður FIFA, alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, 1981. Ilins vegar mundi hann styðja formann UF.FA, ítalann Franchi, i það starf. anna, scm getur varið ótrúlegustu skot en svo misst fram hjá sér knctti. sem byrjendur ráða auðveldlega við. Bczta og nánast sagt cina góða tækifæri Víkinganna átti Jóhann lórfa- son um miðjan seinni hálfleik, þegar hann fékk knöttinn r^tt við vitapunkt, — en skaut himinhátt yfir. Það átti þó fyrir honum að liggja að skora mark ársins í Kcflavík. Eftir árangurslausar tilraunir við að spila gegnum ÍBK- vörnina, reyndi Jóhann skot af um 35 metra færi. Knötturinn sveif i fallegum boga, yftr Þorstein markvörð, rétt sncrti þvcrslána og í netið, 3—1, og þar með var punkturinn settur yfir i-ið i marka- skoruninni i I-deildinni i Keflavík sumarið 78. mcð óvenjulega glæsilegu marki. Víkingarnir hafa oft vcrið ÍBK erfiður Ijár i þúfu, þegar leikið cr syðra. Að þessu sinni voru heilladísimar með Kefl- víkingum. Leikurinn var alls ckki eins ójafn og markatalan gefur til kynna, cn tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungnum drógu mjög kjarkinn úr Víkingunum, auk þcss sem þeir gerðu sig seka um að lyfta knettinum i stað þcss að rcyna að spila „mcð jörðinni" — og það gcrðu Kcflvikingar reyndar cinnig. Knötturinn gekk þvi oft mótherja á milli. þar scm hlaup voru mikil cn litil kaup. Róbcrt Agnarsson. Magnús Þorvaldsson. Gunnar Örn Kristjánsson og Jóhanncs Bárðarson voru virkastir Vikinganna. -emm. Knötturinn stefnir aö marki Vikings — en fór framhjá stöng i þetta sinn. DB-mynd Bjarnleifur. Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn. Vistleg salarkynni fyrir stör og smá samkvæmi. Veisluföng og veitingar aó yðar ósk. Hafiö samband tímanlega. HÓTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 ÞRÁTT FYRIR ÓSKABYRJUN FÉLL FH NIÐUR í 2. DEILD FH skoraði á 1. minútu gegn Breiðablik en tapaði samt. 1-3 FH féll i 2. dcild á laugardag i Kapla- krika. Þrátt fyrir að FH skoraði i sinni fyrstu sókn gegn Breiðabliki þegar á fyrstu mínútu leiksins dugði það ekki gegn Blikunum, sem náðu að jafna fyrir leikhlé og skora tvö mörk á siðustu fimm mínútum leiksins. Óvænt og það hefur ef að Ukum lætur verið mikill glaumur og gleði á Spáni en þar dvelja nú flestir leik- manna KA — þeir höfðu gefið alla von frá sér. Þess i stað voru það daprir FH- ingar er gengu af Kaplakrikavelli — 2. deildin biður þeirra. Það hlýtur þó að vera Hafnfirðingum sárabót að hitt Hafnarfjarðarliðið, Haukar, tekur sæti FH-inga i 1. dcild — FH-ingum þó ekki. Viðureign FH og Breiðabliks, fallliðanna, i Kaplakrika var ekki burðug, knattspyrnan slök og auð- séð hvers vegna liðin leika í 2. deild næsta ár. Knötturinn gekk lengst af and- stæðinga á milli, varnirnar voru opnar og illa dckkað upp. Þó hefðu FH-ingar verðskuldað sigur gegn Blikunum, þeir sköpuðu sér mörg góð tækifæri vcgna slakrar markvörzlu og lélegrar varnar Blikanna. En í opnum marktækifærum tókst FH-ingum ekki að skora'— þess i stað virtist vonlcysi grípa um sig meðal lcikmanna FH eftir því sem lcngra leið á leikinn, og Blikarnir komu inn í mynd- ina. FHdngar fengu óskabyrjun, — skor- uðu í sinni fyrstu sóknarlotu þegar á fyrstu mínútu. Janus Guðlaugsson brauzt upp hægri vænginn og sendi fyrir. Knötturinn fór framhjá þremur leikmönnum Blikanna, öllum mistókst á furðulegan hátt að hrcinsa og Viðar Halldórsson sendi knöttinn i autt mark- ið, I—0. FH-ingar fögnuðu og virtust slaka nokkuð á. Næstu minútur voru tiðindalitlar, þar til á 12. mínútu að Blik- arnir skoruðu óvænt, úr sinni fyrstu raunverulegu sóknarlotu. Friðrik Jóns- son markvörður FH hálfvarði skot frá Hákoni Gunnarssyni útherja Blikanna af stuttu færi, Hákon fylgdi vel eftir og sendi knöttinn í netið, 1 — 1 — óvænt. FH-ingar vöknuðu til lifsins og sóttu mun meir það sem eftir var fyrri hálf- lciks, og hefðu átt að skora mark — já, mörk. En leikmcnn voru ckki á skot- skónum, ótrúleg deyfð rikti yfir liði FH í þcssum þýðingarmikla leik. Liðin skiptust á að sækja i síðari hálf- leik og Janus Guðlaugsson misnotaði mjög gott færi — stóð einn á markteig. opið markið, en hann skaut framhjá. Höfuð FH-inga sigu eftir þvi sem á leið- inn leið og það stefndi i aukalcik FH og KA. En svo átti ekki að verða. Á 85. mínútu var Sigurjón Rannvcrsson skyndilega einn á auðum sjó i vítateig FH — vörn FH opnaðist illa, eins og svo oft áður i sumar og Sigurjón skoraði framhjá Friðriki — 1 — 2. FH-ingar virt- ust gefa alli upp á bátir.n og cinni min- útu fyrir leikslok opnaðist vörnin aftur upp á gátt, Birgir Tcitsson á auðum sjó og hann átti ekki í erfiðleikum með að koma kncttinum framhjá Friðriki mark- vcrði, 1—3 — örlög FH voru ráðin. Blikarnir drógu FH með sér niður i 2. deild. Fáir hafa áreiðanlega átt von á því i vor að FH og Breiðablik mundu falla i 2. deild. Bæði félög virtust hafa fest sig i sessi í 1. deild. Blikarnir byrjuðu afleit- lcga i 1. deild í vor, náðu sér aldrei á strik og fljótlega varð Ijóst að hlutskipti Blik- anna yrði að leika í 2. deild næsta sum- ar. FH átti í baráttu við KA og Þrótt um að halda sæti sinu. og í sannleika sagt áttu fæstir von á. að FH-ingar misstu sæti sitt. FH hcfur sannað að liðið getur leikið vcl — en þess á milli dettur allt spil liðsins niður, vörnin hriplck og stig hafa tapazt. FH hefur i sumum leikja sinna verið mcð góða stöðu, já allt upp i þriggja marka forustu en glatað henni, — á siðustu minútum leikja sinna. Þess vegna cr FH i 2. deild. Róbert Jónsson dæmdi leikinn, heldur var yfirfcrð hans lítil cn góð tök hafði hann á leiknum. H. Halls.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.