Dagblaðið - 11.09.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR ll.SEPTEMBER 1978.
«
Iþróttir
Iþróttir
15
Iþróttir
Iþróttir
I)
Lið Hauka, sem tryggði sér sæti i 1. deild nxsta keppnistimabil. 1 leikhléi á Laugardalsvelli I gær afhenti Jens Sumarliðas.
varaformaður KSÍ, þeim verðlaun sfn.
DB-mynd Bjarnleifur.
ÆmÆm; í ^ /■****
T 1 ; i«f;' . *-
JBSsgm | i'lti 13 '
iwHflHR ^ ‘ ' ‘
ji ; jjg gEyi L fC / 8111222«
,vl1 ■SETtTfDfl
5 ? jj ySp'i'-V'Wk I
Jón L. Árnason skrifar um heimsmeistaraeinvfgið
Kortsnoj hélt jöfnu á stöðu sem
„sérfræðingar” hefðu gefið!
20. einvfgisskák þeirra Karpovs og
Kortsnojs var tefld á laugardaginn og för
i bið eftir 42 leiki. Staða Karpovs var þá
mjög vænleg og töldu „skáksérfræðing-
arnir” á Filippseyjum að Kortsnoj myndi
jafnvel gefast upp f biðstöðunni. Það virt-
ist þö vera fullsterkt til orða tekið, þvf
hann var ekki án allra gagnfæra. I gær,
þegar tekið var til við skákina að nýju,
kom sfðan f Ijös að Karpov hafði ekki
leikið bezta biðleikinn, þrátt fyrir hálf-
tfma umhugsun. Staða Kortsnojs varð
skyndilega teflandi, þö hann mætti hafa
sig allan við ef hann ætlaði að halda jafn-
tefli. En honum tökst á undraverðan hátt
að smjúga úr greipum heimsmeistarans
og þvingaði fram jafntefli með skemmti-
legri leikfléttu I 61. leik. Staðan f einvig-
inu er þvf enn 4—1, Karpov f vil, ásamt
15 jafnteflum.
Það gengur ýmislegt á utan skák-
borðsins á Filippseyjum. Kortsnoj hefur
fengið liðsauka, þar sem cru skötuhjú
nokkur, sem styrkja hann með and-
lcgum kröftum sinum. I skákinni á laug-
ardaginn settust þau svo nálægt hcr-
búðum Sovétmanna, að þeim varð um
og ó. Það er kannski ekki nema von, þar
sem skötuhjú þessi voru fundin sek um
tilraun til að myrða indverskan sendi-
ráðsmann á götu úti í Manilla. Þau voru
látin laus úr fangelsi gegn tryggingu og
gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til
hjálpar áskorandanum.
Að sjálfsögðu mótmæltu Sovétmenn
veru þeirra í skáksalnum ogCampoman-
es, forseti Skáksambands Filippseyja, lét
gcra það opinbert, að framvcgis yrði
fólki mcðóhrcina sakaskrá mcinaðurað-
gangur aðskákunum.
Einkaritari Kortsnojs, Petra Lceuwcr-
ick, hafði þá á orði að fá úrskurð dóm-
stóla um, hvort þau mættu fylgjast með
skákunum i framtíðinni. Verðursannar-
lega gaman að fylgjast með framvindu
þessa máls.
20. Einvigisskákin. Caro-Kann vörn
Hvftt: A. Karpov Svart: V. Kortsnoj
I.e4c6!
Það er svo sannarlega óvenjulegt að
sjá Kortsnoj beita Caro-Kann vörninni.
Hann virðist hafa undirbúið sig vel fyrir
einvígið og aukið mjög við byrjanakunn-
áttuna. i 16. skákinni lék hann 1. — e6 í
18. I. — d6 og nú leikur hann 1. — c6.
Það þarf scnnilcga ekki að taka það
fram, hvcrju „sérfræðingarnir” búast
við af honum i 22. skákinni...
2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4 Rf6
4. — Bf5 og 4. — Rd7 eru aðrir mögu-
lcikar, en þeir eiga það sameiginlegt að
Karpov hcfur unnið auðvelda sigra gcgn
þeim undanfarið. Það er því ósköp skilj-
anlegt að Kortsnoj skuli velja textaleik-
inn.
5. Rxf6 exf6
Öllu skarpara er 5. — gxf6, en þannig
hefur Larscn teflt með góðum árangri.
6. Bc4 Rd7!?
Að öllum líkindum nýr leikur í stöð-
unni. Áður hefur verið reynt 6. — Be7,
6. — Bd6 og 6. — De7 H 7. De2 Bc6, en
þannig tefldist m.a. skák Gaprindashvili
og Anderssons i Dortmund 1978.
7. Re2 Bd6 8.0—0 0—0
8. — Dc7 kom einnig til greina.
Argentínski stórmeistarinn Oscar
Panno, sem kvaðst hafa athugað þessa
stöðu mcð Kortsnoj kvöldið áður, sagði
að Kortsnoj hafi fundizt báðir leikirnir
góðir.
9. Bf4 Rb6 10. Bd3 Be6 11. c3 Rd5 12.
Bxd6 Dxd6 13. Dd2 Had8 14. Hfel g6
15. Hadl
Pcðameirihluti hvits á drottningar-
væng gcrir það að verkum að hann
hcfur örlitið bctri möguleika. En svarta
staðan cr traust og hvcrgi snöggan blctt
að finna, svo erfitt gæti orðið að gcra sér
mat úr yfirburðunum. Þegar hér var
komið við sögu, hafði Karpov notað 45
mínútur, Kortsnoj 35.
15. — Kg7 16. Be4 Rc7 17. b3 Hfe8 18.
Bbl Bg4 19. h3 Bxe2
Kortsnoj reynir að létta á stöðunni
með uppskiptum. Hvitur fær nú biskup
fyrir riddara, sem gæti orðið afdrifaríkt i
framhaldinu ef taflið opnaðist.
20. Hxe2 Hxe2 21. Dxe2 Rd5 22. Dd2
Rf4 23. Be4 f5 24. Bf3 h6 25. h4 Re6 26.
De3 Rc7 27. c4
Eftir langan undirbúning fer peða-
meirihluti hvíts af stað. Hann hefur
góða mögulcika á að mynda sér fripcð,
svosvartur verður að vera vel á verði.
27.-Í4 28. Dc3 Df6?
Afgerandi afleikur. Kortsnoj, sem var
eins og fyrri daginn í kappi við klukk-
una, misreiknar sig hér herfilega. Betra
er 28. — Kh7, þó hvitur hafi samt scm
áður betra tafl.
29. Da5!
Eins og þruma úr heiðskiru lofti.
Hvitur hótar bæði riddaranum á c7 og
peðinu á A7.
29. - Re6 30. d5 cxd5 31. cxd5 b6 32.
Da4!
Ef til vill hefur Kortsnoj yfirsést þessi
leikur. Sjálfsagt hefur hann aðeins rcikn-
að með 32. Dxa7? Rd4! og svartur hefur
hættulegt frumkvæði. Nú hefur svarti
riddarinn hins vegar ekki aðgang að d4-
reitnum og hvítur getur hirt peðið án
nokkurraráhættu.
32. — Rc5 33. Dxa7 Rd7 34. d6 Dxh4
35. Dc7 Df6 36. b4
Hvítur er á góðri leið með að mynda
sér annað fripeð, sem myndi endanlcga
gera út um taflið. Það eina sem gæti
hugsanlega bjargað svörtum er kröftug
gagnsókn á kóngsvængnum.
36. — h5 37 a4 Kh6 38. b5 g5 39. Bc6
Rc5 40.d7Kg7 41.Hel Re6
Hér fór skákin i bið og lék hvítur bið-
lcik. Almennt voru menn vantrúaðir á
það að Kortsnoj myndi halda taflinu.
„Sérfræðingarnir” bjuggust meira að
segja við þvi að Kortsnoj myndi gefast
upp!! En þcgar biðskákin var tefld i gær,
kom i Ijós að heimsmeistarinn hafði ekki
leikið bezta biðleiknum og vonir áskor-
andans glæddust.
42. Dd6?
Aö sögn Rcutcrs, létti aðstoðarmönn-
um Kortsnojs mjög cr þeir sáu þennan
leik. Þeir höfðu óttast 42. Dxb6! sem
þeir sögðu gefa hvítum unnið tafl.
Hvitur hefur þá þrjú (!) fripeð og ætti
auðveldlcga að geta varizt sóknartil-
raunum svarts á kóngsvængnum. En
Karpov er samur við sig — hann tekur
enga óþarfa áhættu.
42. — g4! 43. KD g3
Sókn svarts er nú að komast á hættu-
legt stig svo hvítur gripur til þess ráðs að
þvinga fram drottningakaup.
44. De5 h4 45. a5
Svartur fær nú að glima við annað fri-
peð.
45. — bxa5
Kortsnoj hugsaði sig svo lengi um
þennan ieik, að hann var þegar kominn í
timahrak!
46. b6 Dxe5 47. Hxe5 Hb8 48. b7 Rd8
49. He8
Svörtu mennirnir geta sig nú hvergi
hrært, þvi ef 49. — Rxc6? þá 50. Hxb8
Rxb8 51. d8D. Hvitur getur hins vcgar
með cngu móti bætt stöðu sina. því
hann verður að hafa vakandi auga með
peðum svarts.
49. - Kf6 50. fxg3 fxg3 51. Ke2 Kg7
52. BD a4!
53. He4 Kf6 54. Hxa4
Nú losnar svartur úr klemmunni og
kóngur hans kcmst að d-peöinu. Hins
vegar er erfitt að benda á bctri mögu-
leika.
54. -Ke7 55.Hxh4
Ef 55. Ha8. þá 55. — Hxb7! 56. Bxb7
Rxb7 og svartur heldur auðvcldlega
jafntcfli.
55. - Kxd7 56. Hf4 Kd6 57. Hb4
Hvitur hefur enn örlitla vinnings-
möguleika vegna fripcðsins á b7, en með
nákvæmri taflmennsku ætti svartur að
halda jafntefli.
57. - Kc7 58. Hc4+ Kd7 59. Bg4+
Ke8 60. He4+ Kf8 61.Bd7
Nú þvingar svartur fram jafntefli á
skemmtilegan hátt.
61. - Hxb7! 62. He8+ Kg7 63. Hxd8
Hb2 +
Vilji hvítur halda sinu síðasta pcði, '
verður hann að leika 64. Kf3, en cftir
64. — Hd2, lendir hann í eilífðarleppun.
Keppendur undirrituðu pappirana þvi
þegjandi, sem á máli þeirra mcrkir víst
jafntefli.
HAUKARí FYRSTA
SINN í 1. DEILD!
— eftir sigur gegn Ármanni 5-3
Haukar leika á næsta ári í 1. deild í
fyrsta sinni i sögu félagsins, glæsilegur
árangur, og næsta sumar verða Haukar
eina félagið frá Hafnarfirði I 1. deild —
Haukar eru ekki lengur litli bróðir í
Hafnarfirði. Haukar sigruðu á föstu-
dagskvöldið falllið Ármanns i Laugar-
dal 5—3, eftir að Ármann hafði komizt i
2—Oá fyrstu 15 mínútum leiksins.
Þráinn Ásmundsson og Smári Jósa-
fatsson skoruðu tvivegis og vonir Hauka
um sæti í 1. deild virtust vcra að hverfa.
En i stað þess að leggja árar í bát tóku
Haukar sig saman í andlitinu og náðu að
jafna fyrir leikhlé, 2—2. Þeir Ólafur
Jóhannesson (viti) og Guðjón Sveinsson
skoruðu. 1 síðari hálfleik var algjör ein-
stefna að marki Ármanns — og þrjú
mörk fylgdu í kjölfarið. Lárus Jónsson
náði forustu fyrir Hauka, Guðjón
Sveinsson bætti við fjórða markinu og
Sigurður Aðalsteinsson hihu fimmta,
5—2 — undir lokin tókst Smára Jósa-
fatssyni að skora fyrir Ármaþn, 5—3 —
lokatölur leiksins, og Haukar leika í 1.
deild á næsta ári. Athyglisvert að Hauk-
ar lögðu ekki árar i bát, í tveimursíðustu
leikjum sinum voru þeir tvelmur mörk-
um undir en sigruðu að lokum.
Róðurinn verður vafalítið þungur
fyrir Hauka á fyrsta ári i I. deild — cn
mcð baráttu og samstöðu ætti Haukum
að takast að halda sæti sinu.
Portisch efstur
Lajos Portisch, Ungverjalandi, er Sosonko-Hort 1/2—1/2
nú einn cfstur á stórmótinu I Tilburg í Brownc-Miles I—0
Hollandi eftir sjö umferðir. Hefur Biðskák Larscns og Ljubojevic úr
timm vinninga. Tony Miles, Englandi, sjöttu umfcrð ,auk mcð jafnteflj
sem var efstur eftir sex umferðir, tap- staðan á mðtinu er nú þannig:
aði fyrir Waltcr Brownc, USA, i sjö- i
undu umfcrð, sem tcfld var á laugar- Portisch 5, Timman, Hollandi,
dag. Önnur úrslit þá urðú þessi. Milcs 4 1/2, Larsen 4, Spassky, Hort,
Dzhindzhindashvili. Israel, 3 1/2,
Ribli-Portisch 1/2—1/2 Ribli, Ungverjalandi, Sosonko, Hol-
Ljubojevic-Spassky 0—1 landi og Browne 3, Hllbner, V-
Dzhindzhindashvili-l.arsen 1/2-—1/2 Þýzkalandi. 2 1/2 og Ljubojevic, Júgó-
HObncr-Timman 1/2—1/2 slaviu, 2 vinningar.
.E CAf m Gl IE
m MS. 1 1
Kynningarfundur
verður haldinn 14. september — fimmtudags-
kvöld — kl. 20:30 að Síðumúla 35 uppi.
Námskeiðið getur hjálpað þór að:
* Öðlast meiri trú á sjálfan þig og hæfileika þína.
* Koma hugmyndum þínum örugglega til skila.
* Sigrast á ræðuskjálfta.
* Þjálfa minni þitt — skerpa athyglina.
* Auka eidmóðinn — meiri afköst.
* Sigrast á áhyggjum og kviða.
* Eignasr vini, ný áhugamál og fleiri
ánægjustundir í lifinu.
Hjón hafa náð góðum árangri saman, við hin
ýmsu vandamál, og unga fólkið stendur sig
betur í skóla og sjóndeildarhringurinn
stækkar. Þú getur sjálfur dæmt um það
hvernig námskeiðið getur hjálpað þér. Þér er
boðið, ásamt vinum og kunningjum, að líta
inn hjá okkur án skuldbindinga eða kostnaðar.
Þú munt heyra þátttakendur segja frá því
hvers vegna þeir tóku þátt í námskeiðinu og
hver var árangurinn.
Þetta verður fræðandi og skemmtilegt kvöld
er gæti komið þér að gagni.
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í
síma
82411
iM/í ÍT^L/lSTJÓRNUNARSKÓLINN
N. ÍM 'Kl 11> IN Konráð Adolphsson