Dagblaðið - 15.09.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978.
7
Fyrsta
kolaflökunar-
vélin
komin til
landsins:
ÞYDDISTORFELLDA
VERDMÆTASKÖPUN
J —ef ráðamenn leyfðu auknar veiðar eins og f iskif ræðingar leggja til
— eT raoamenn leyi
Fyrsta kolaflökunarvélin hérlendis til þessa hefur nú verið reynd i frystihúsi Sjöstjörnunnar í Ytri-Njarðvík í 3 vikur með góðum árangri að sögn Gunnþórs Kristjánssonar verkctjóra i viðtali við DB i gær. Skarkoli, eða rauðspretta, eins og margir kalla hann, þykir herramanns- matur viða um heim og er greitt hátt verðfyrir hann. Hins vegar hefur honum litill sómi verið sýndur til þessa hér og aðallega
DB-myndir Guðni Halldörsson, fréttaritari, Akranesi.
unninn þannig að hann er haus- og
sporðklipptur, siðan heilfrystur og
sendur þannig út fyrir lágt verð. Aðeins
örlitið brot hefur verið handflakað og
sent á vestrænan markað. Þá fæst marg-
falt verð.
Baader-verksmiðjurnar þýzku fram-
leiða þessar kolaflökunarvélar, sem
gjörbylta öllum forsendum kolaveiða,
þegar vinnubrögð verða orðin þróuð við
pökkun og frágang í neytendaumbúðir.
Að sögn Gunnórs flakar vélin a.m.k.
700 kg af kola á klukkustund og vinna
aðeins þrjár manneskjur við hana. Þetta
eru margföld afköst miðað við hand-
flökun auk þess sem vélin nýtir kolann
betur en handflökun, að sögn Gunn-
þórs.
Of lítill koli hefur borizt fyrir vélina
að vinna úr að undanförnu þar sem
bátarnir tveir, sem leggja þar upp til
vinnslu, fá aðeins að veiða á Hafnar-
leirnum en ekki í Faxaflóa þrátt fyrir að
fiskifræðingar séu meðmæltir veiðiskap
þar á grundvelli itarlegra rannsókna
ppdanfarin ár. Auk þess telja þeir
kolann stórlega vannýttan fiskistofn um
leið og baráttan stendur uni að verja
aðraofnýtta stofna.
Afli hvors báts á Hafnarleirnum nú
hefur verið frá 250 til 900 kg á dag, en
þegar annar fékk að gera tilraunir á
Faxaflóa fyrir skömmu var aflinn frá 1,3
tonnum upp í 5,6 tonn þrátt fyrir að tals-
verðum tíma væri þá eytt í að flytja sig
milli svæða i tilraunaskyni. -G.S.
ALLT Á FLEYGÞ
FERDíTANGANUM
Á Grundartanga er unnið af kappi Skipinu var siglt upp að bakka, sem
við að rcisa Járnblendiverksmiðjuna útbúinn hafði verið I þessum tilgangi.
fyrir Norðmenn og íslendinga. Á Þar var stefnið galopnað og vagnarnir
dögunum komu spennarnir miklu í dregnir á land. Var spennunum siðan
land og gekk greiðlega að renna vögn- ekið á sína staði i verksmiðjuhúsinu
unum upp á land úr norska skipinu mikla og gekk allt samkvæmt áætlun.
sem kom með þá hingað.
GUÐRUN
SÍMONAR
Oóal
i kvöld
-
Nú erujúdóœfingarað hefjast.
Hristið af ykkur slenið og iðkið göfiiga íþrótt. Æfingar
verða sem hérsegir:
Byrjendur Mánudaga og miðvikudaga kl. 19—20.
Drengir: Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30—18.20.
Framhaldsflokkur Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19—20.30.
Innritun að Brautarholti 18 (efstu hœð) á ofannefndum tíma. Sími 16288.
Júdófélag Reykjavíkur.