Dagblaðið - 15.09.1978, Síða 14

Dagblaðið - 15.09.1978, Síða 14
14 d DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15.SEPTEMBER 1978. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15.SEPTEMBER 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir 19 Iþróttir íþróttir HalldórHalldórsson: HÆTTUM FUSKIMEÐ UNGLINGAFLOKKANA Árangur Vals og ÍA í sumar fær mann til að velta því fyrir sér hvort það séu bara tvö 1. deildarlið til á íslandi í dag. Stigatafla skýrir það bezt. Þar munar niu stigum á öðru liði og því sem er i þriðja sæti og 28 stigum á efsta liðinu og þvi neðsta. Hver er svo ástæöan fyrir þcssum mikla framúrakstri þessara tveggja liða? Það er öllum kunnugt aö þessi tvö lið hafa haft göða þjálfara und- anfarin ár. Það segir sina sögu en er þó ekki einhlitt — en stórt atriði. Margt bendir til þess að Valur og ÍA séu drifin áfram af dugmiklum forustumönnum sem vita hvað þeir eru að fást við. Styrk stjórn knattspyrnudeilda getur gert marga góða hluti. Það hefur sýiit sig að svo er með þessi tvö félög. Þau hljóta m.a. að gefa yngri flokkunum mikinn tíma þvi annars gæti árangur þeirra ekki verið jafnsamfelldur og spannað yfir jafnlangan tima og raun ber vitni. Eflaust gætu þó bæði Valur og ÍA eflst sitt unglingastarf mikið frá því sem nú er þó þar hljóti að vera unnið hvað mest miðað við önnur íslenzk félög. Einnig kemur annað til. Leikmenn þess- ara liöa hljóta að lúta ákveðnum aga. hlýðni, annars gætu þau ekki skorið sig svona úr. Allir vita að það er tómt mál að tala um knattspyrnu ef ekki fyrirfinnst agi og hlýðni leikmanna. Tækni á lágu stigi Það fer varla framhjá neinum, sem fylgist með knattspyrnu, að tæknilegum atriðum er mjög ábótavant hjá flestum 1. deildarliðun- um. Nánast furðulegt hvað þetta veigamikla atriði ætlar lengi að vefjast fyrir leikmönn- um 1. deildar. Hver skyldi ástæðan vera? Er hægl að samræma betur unglingaþjálfunina innan félaganna? Leggja heildarþjálfunar- plan fyrir unglingaflokkana og að fylgzt sé vel með piltunum alla leið upp i elzta aldurs- flokk svo að drengirnir séu nánast útskrif- aðir sem kunnandi knattspyrnumenn þegar jteir yfirgefa unglingaflokkana. Alveg sér- staklega að þeir uppfylli tækni, boltameð- ferð. Ljóst er að stór verkefni bíða úrlausnar og við verðum að vera menn til að vinna að þeim. Því fyrr — þvi betra. Mikil vinna Mikil vinna er nú þegar lögð fram í sam- bandi við þessa aldursflokka — en i flestum félögum er rangt að staðið, tæknilega hliðin látin lönd og leið —eða ekki sinnt nógu mikið — en hugsað meira um einhverja sigra í stórkarlaknattspyrnu þessara aldurs- flokka. í skugga þess sér heildarplan um þessa verðandi 1. deildarmenn hvergi dags- ins Ijós. Of seint er að kenna tækni þegar piltur nálgast tvítugsaldurinn. Grípa verður drenginn glóðvolgan þegar hann er hvað móttækilegastur. Þótt félög sýni góðan árangur hvað snert- ir sigra í yngri aldursflokkunum þarf það alls ekki að þýða að uppbyggingin sé rétt knatt- spyrnulega séð. Að minnsta kosti er alltaf skortur á meistaraflokksmönnum hjá þess- um félögum hvað svo marga sigra þau höfðu unnið i yngri flokkunum. Hvemig stendur á því? Berjast! — Berjast! Hvað ómar þetta ekki oft um allan völl þegar yngri leikmenn þreyta keppni. 1 þessum unglingaflokkum okkar er það aðall að berjast. Sýna hörku. Vera duglegur bar- áttumaður er aðalsmerkið. En aðalatriðinu, tækninni, er kastað burt. Vel á minnzt. Ef Halldór Halldórsson. DB-mynd Ari. Halldór Halldórsson, landsliðs- kappinn úr Val hér á árum áður, er í hópi sterkustu leikmanna íslands gegnum árin. Hann lék sinn fyrsta landsleik 1949 gegn Dönum í Árósum, skoraði eina mark íslands í leiknum og varð því fyrstur islenzkra landsliðs- manna til að skora mark i landslcik á erlendri grund, þá nýorðinn 18 ára. Halldór lék 11 iandsleiki — og var lengi aðaldriffjöður Vals. Fjölhæfur leikmaður sem gat sér þó mestan orð- stir sem fram- eða miðvörður. Þá hefur Halidór gctiö sér gott orð scm knattspyrnuþjálfari og í grein þeirri, sem hann skrifar nú i Dag- blaðið, fjallar hann um sitt hjartans mál, þjálfun í unglingaflokkunum í knattspyrnu — atriði sem þvi miður er litið fjallað um i islenzkum fjölmiðlum. —hsím. unglingur hefur góðan skilning á íþróttinni og uppfyllir viss tæknileg skilyrði ætti sigur- inn ekki síður að vera þeirra, eða hvað? Þessi vinnubrögð hefna sín herfilega jtegar lið eiga að fara að stilla upp sínu meistaraflokksliði í 1. deild og nota þessa sömu leikmenn þá. Mér finnst hér sé mál að linni og félögin fari að taka á þessu mjög svo brýna máli af meiri skilningi og festu. Með öðrum orðum: Hættið að fúska með ungl- ingaflokkana. KSÍ gæti ábyggilega unnið mikið meira að þessum málum og verið félögum til ráðu- neytis. Ljóst er að verði þáttaskil í þessum málum markar það tímamót I íslenzkri knattspyrnu. T ækni vankunnátta sprottin af röngu uppeldi „Ungur nemur — gamall temur”. Það sjáum við bezt á þeim mörgu 2. deildarliðum sem eiga nú sæti í 1. deild. Það er nánast furðulegt á stundum að sjá aðfarirnar hjá þessum I. deildarmönnum. Þar speglast bezt öll sú ranga meðferð sem þeir fengu í sínu knattspyrnu-uppeldi. Ég skora því á öll þessi félög að endurskoða rækilega stefnu sina varðandi unglingaflokkana. Kanna vel hvernig megi lagfæra hlutina til hins betra. Haft er eftir þjálfara I. deildarliðs hér að skortur sé á hugmyndaríkum leikmönnum I íslenzkri knattspyrnu. En er ekki undirstaða þess að vera hugmyndaríkur að hafa næga tækni til þess að vera síðan fær um að tjá hugmyndir sinar á litríkan hátt? Leikmaður, sem er í eilífri baráttu við knöttinn, kemst ekki á það stig að beita hugmyndaflugi. Landsliðið Oft gætir snefils af þessu hjá hinu annars ágæta landsliði okkar. Landinn á oft erfitt með að halda bolta. Yfirleitt beinist athygli leikmanna mest að þvi að missa ekki boltann of langt frá sér og annað þvíumlíkt. Oft sér maður ótimábæra sóknartilraun hjá lands- liði okkar, sókn byggða á sandi. Lið sem getur haldið knetti á margbreyti- legan hátt meðan sókn er undirbúin uppfyll- ir vissulega tæknileg atriði. Er ekki grundvallarástæðan í mistökum okkar brostinn hlekkur í uppbyggingunni (unglingaþjálfunin)? Þó íslenzka landsliðið hafi oft unnið góða sigra skortir stundum mikið á að leikmenn þess séu nógu sannfær- andi I návist knattarins. Að vísu eru undan- tekningar en heildarmyndin er ekki nógu góð hvað þetta snertir. Enginn getur krafizt mikilla sigra af is- lenzka landsliðinu. Öll landslið, jafnvel það bezta i heimi, geta tapað leik eða leikjum. En krefjast verður meiri tæknikunnáttu hjá okkur — og með þeim aukast sigurlikur. Það hlýtur að vera léttara hlutverk leik- manns sé tæknin fyrir hendi. Að sama skapi niðurdrepandi sé klaufalega staðið að — og þar með hljóta sigurlíkurnar að minnka að sama skapi. Landslið okkar hefur staðið og fallið að miklu leyti á dugnaði og náð undraverðum árangri. En hugsum okkur hver árangurinn hefði getað orðið ef tæknin væri að sama skapi góð. Ég held að þessum hlutum verði aldrei kippt i lag fyrr en unglingaþjálfun tekur al- gjörum stakkaskiptum frá því sem nú er. Það er það sem allt vcltur á um hvort við eignumst gott landslið en ekki hvort lands- liðsþjálfarinn heitir Youri eða Knapp. Halldór Halldórsson knattspyrnuþjálfari. Baccardi- keppni hjá GR Á morgun, laugardag heldur Golfklúbbur Reykjavíkur sina árlegu Baccardi-keppni sem er 18 holu högg- leikur með forgjöf. Keppnin hefst kl. 13 og verða allir ræstir út á öllum brautum á sama tima, þannig að allir keppendur hætta samtimis. Félagar í GR eru hvattir til að mæta þvi nú liður senn að lokum golfvertíðar og fri frá golfl framundan. Eftir keppnina eru á boðstólum veitringar i samræmi við heiti keppninnar ásamt ýmsu fleiru — einnig verða verðlaun veitt sem eru mjög glæsileg eins og alltaf í þessari keppni. Sem sagt allir GR-ingar, sem eru 18 ára og eldri i Baccardi-kcppnina kl. 13 á morgun. -HBK 15 í Hollandsleikinn Þeir Árni Þ. Þorgrímsson, formaður landsliðsnefndar, og Youri llitchev, lands- liðsþjálfari, völdu i gær 15 manna landsliðs- hóp i Evrópuleikinn gegn Hollandi hinn 20. september nk. Landsliðið heldur utan á sunnudag en leikið verður á miðvikudag i Nijmegen. Fjórir leikmenn frá erlendum liðum eru i hópnum, Ásgeir Sigurvinsson, Standard, Jóhannes Eðvaldsson, Celtic, Árni Stefánsson og Jón Pétursson, Jönköp- ing, og munu þeir koma til Nijmcgen á mánudag. Eftirtaldir leikmenn eru i hópnum. Markverðir: Þorsteinn Bjarnason, Kefla- vík, og Árni Stefánsson, Jönköping. Aðrir leikmenn: Janus Guðlaugsson, FH, Árni Sveinsson, Karl Þórðarson og Pétur Pétursson, allir Akranesi, Jón Pétursson, Jönköping, Jóhannes Eðvaldsson, Celtic, Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege, Atli Eðvaldsson, Dýri Guðmundsson, Guð- mundur Þorbjörnsson og Ingi Björn Alberts- son, allir Val, Ólafur Júliusson og Sigurður Björgvinsson, báðir Keflavik. I fararstjórn eru Ellert B. Schram, for- maður KSt, Friðjón Friðjónsson, Hilmar Svavarsson, Árni Þ. Þorgrímsson og Youri llitchev, þjálfari. Blaðamaður frá Dagblaðinu, Hallur Sím- onarson, verður með í förinni og strax á mánudag munu fyrstu fréttir af landsliðsför- inni verða í DB. Heimsmeistarinn Leon Spinks, til vinstri, og Muhammad Ali „léku sér” á blaðamannafundi, þegar þeir skrifuðu undir samning um leikinn i New Orleans. Endurheimtir Ali meistaratitilinn? — Leon Spinks og Muhammad Ali keppa um heimsmeistara- titilinn í þungavigt í nétt í New Orleans, Ali 10 kg þyngri Endurheimtir Muhammad Ali heims- meistaratitilinn í þungavigt í hnefa- leikum i nótt i New Orleans eða lýkur þar ferli mesta hnefaleikara allra tíma? Það er stóra spurningin i iþrótta- heiminum í dag. í nótt mætast þeir öðru sinni Leon Spinks, sem vann svo óvænt heimsmeistaratitlinn i keppni við Ali fyrir sjö mánuðum, og meistarinn mikli Ali. Það verður 15 lotu leikur á stærsta leikvangi heims innanhúss í New Orleans. Þar rúmast 85 þúsund áhorf- endur í sæti. Reiknað er með 50 þúsund — en milljarður víða um heim mun fylgjast með leiknum í sjónvarpi. Tekjur íslandsmót ísnóker íslandsmótið í snóker, 1. flokki, fer fram á Klapparstfg á mánudag og þriðju- dag —hefst bæði kvöldin kl. 8. 16 keppendur taka þátt i 1. flokki, keppt verður með úrsláttarfyrirkomulagi. Meðal keppenda verður núverandi is- landsmeistari 1. flokks, Guðni Halldórs- son, og íslandsmeistari 2. flokks, Óttar Felix Hauksson. Íslandsmótið i 2. flokki verður 8. og 9. október og i meistaraflokki 23. og 24. október. af aðgöngumiðasölu eru áætlaðar fimm milljónir dollara.— Aðaltekjurnar verða eins og áður af sjónvarpsréttinum. Þetta verður i fyrsta sinn, um langt árabil sem Ali fær minna í hlut en mótherjinn — eða frá fyrstu leikjum hans. Hlutur Spinks verður 3.75 milljónir dollara. Ali 3.25 milljónir. Ef Ali tapar leiknum er talið öruggt að hann leggi hanzkana á hilluna fyrir fullt og allt. Hætti. Hann er nú 36 ára — en Spinks er 25 ára og er aðeins heimsmeistari WBC — annars heimssambandsins í hnefaleiknum. Hitt svipti hann titlinum, þegar hann vildi frekar berjast aftur við Ali en keppa við Norton. Það gerði Norton að heims- meistara á pappimum og Norton tapaði pappírstitlinum í sínum fyrsta leik. Þegar Spinks og Ali voru vigtaðir i gær reyndist Ali tæpum 10 kg þyngri. 100.24 kg en Spinks 91.17 kg. Þegar þeir kepptu fyrir sjö mánuðum var Ali 101.72 kg. Spinks 89.47 kg. Ali hefur því létzt, sem lofar góðu fyrir aðdáendur hans — Spinks þyngzt. Ali er aðeins hærri, 1.90 sm. Spinks 1.87 —enAlier allurbreiðariumsig. Hjá veðmöngurum er Ali talinn sigur- stranglegri — eins og nær alltaf áður. Veðmálin standa honum 2—1 í hag. Þetta verður 59. leikur hans sem atvinnu- maður. Áður unnið 55 — tapað þremur. Fyrir Joe Frazier, Ken Norton og Spinks. Leon Spinks hefur keppt átta sinnum, sem atvinnumaður og ekki tapað. Þegar hann vann Ali 15. febrúar í Las Vegas stóðu veðmálin Ali 7—1 í hag. Spinks vann 178 leiki af 185 sem áhugamaður og varð ólympíumeistari í léttþungavigt 19761 Montreal. ' Vcstur-Þýzkaland sigraði Finnland 118—94 í landskeppni í frjálsum íþróttum i Liidensched i gær — eftir tvo keppnisdaga. t kvennagreinum unnu Þjóðverjar einnig 98—58. Brezka ólympiunefndin þingaði í Brighton á Englandi i gær og þar var samþykkt að Bretar taki þátt í Ólympiu- leikunuum i Moskvu 1980. Raddir hafa verið uppi á Bretlandi um það að taka ekki þátt í leikunum — en ólympíunefndin brezka sá enga ástæðu til að senda ekki keppendur þangað. Tveir aðrir Evrópuleikir voru í gær, báðir i UEFA-keppninni. í Aþenu sigraði Olympiakos Piraeus, Grikklandi, Levski, Spartak Sofía, Búlgaríu, 2—1. Staðan i hálfleik var 0—1. Áhorfendur voru 30 þúsund. Mörk gríska liðsins skoruðu Kritikopoulos og Kaltsas en Barsov fyrir Levski. í Búdapest sigraði Honved Andaspor frá Tyrklandi 6—0 að viðstöddum aðeins 6000 áhorfendum. Mörk ung- verska liðsins skoruðu Weimper, 2, Lukacs, Gyimesi, Bodonyi og Nagy. FIMM GAMLIR UVERPOOL- KAPPAR HJÁ SWANSEA CITY Ian Callaghan, einn af Evrópumeistur- um Liverpool, sem nú er 35 ára, skrifaði undir samning I gær við Swansea City i 3. deild — en lengi hefur staðið til að hann byrjaði að leika með liðinu. Fimm gamlir Liverpool-leikmenn verða þá I liði Swansea. Ekki þurfti John Toshack, framkvæmdastjóri og leikmaður Swan- sea, að greiða Liverpool fyrir Callaghan — aðeins leikmanninum, þegar hann undirritaði. Ian Callaghan hefur tvivegis leikið hér á Laugardalsvellinum. Fyrst með Liverpool gegn KR fyrir góðum áratug i Evrópukeppninni og síðan með Bobby Charlton. Hann lék 850 leiki með Liver- pool — þar af 640 deildaleiki. Hvort tveggja met leikmanns hjá Liverpool. Lék á síðasta ári i enska landsliðinu — eftir 11 ára hlé. Hann lék þó aðeins fjóra landsleiki í allt. Swansea er nú I efsta sæti ásamt Hull í 3. deild og eins og áður segir leika þar. nú fimm gamlir Liverpoolkappar. Þeir hafa komiö til félagsins eftir að John Toshack, sem um árabil lék með Liver- pool, tók við stjórn Swansea. Auk Toshack og Callaghan er Tommy Smith þar en hann var um langt árabil fyrirliði Liverpool á leikvelli. Hann lék einnig i liði Bobby Charlton á Laugardalsvelli. Þessir þrír leikmenn eru ailir komnir vel yfir þritugt. Hins vegar eru einnig komnir til Swansea tveir leikmenn, sem talsvert léku með þessum köppum hjá Liverpool þó þeim tækist ekki að ná föstum sætum í liðinu. Phil Boersma kom frá Luton eftir að hafa áður leikið með Middles- borough. Hann lék 83 leiki með Liver- pool og skoraði 18 mörk áður en hann var seldur til Middlesborough fyrir 70 þúsund sterlingspund. Þá er Alan Waddle einnig kominn til Swansea en hann lék aðeins um 20 leiki fyrir Liver- pool. Miðherji og skoraði fyrir Swansea á laugardag gegn Watford í Lundúnum. Þá skipti annar kunnur leikmaður um félag í gær. John Duncan var seldur frá Tottenham til Derby fyrir 150 þúsund sterlingspund. Sú sala kemur talsvert á óvart því Duncan hefur verið markhæsti leikmaður Tottenham undanfarin ár. Þó ekki getað unnið sér fast sæti í liði , Tottenham undanfarið. Hann er fyrsti leikmaðurinn, sem fer frá Tottenham eftir að félagið keypti tvo argentínska heimsmeistara fyrir tveimur mánuðum — þá Ardilesog Villa. D IBV í 2. umferð UEFA- keppninnar á útimarki Örn Óskarsson jafnaði fyrir ÍBV í 1-1 á lokamínútu leiksins við Glentoran í Belfast „Leikur ÍBV breyttist mjög til hins betra i síðari hálfleik, þegar varnar- maðurinn Örn Óskarsson var færður í framlínuna. Og það var hann, sem jafn- aði fyrir ÍBV í 1-1 á lokamínútu leiksins. Það nægði íslenzka liðinu til að komast i' 2. umferð UEFA-,keppninnar. Báðum leikjum Glentoran og ÍBV lauk með jafntefli, 0-0 á tslandi, og 1-1 i Belfast, en markið á útivelli réð úrslitum,” segir fréttastofa Reuters um leik Glentoran og ÍBV í Belfast í gær. Einnig segir þar, að irsku leikmennirnir hafi ráðið gangi lciksins í fyrri hálfleik og John Caskey skorað fyrir Glentoran nokkrum sek- úndum fyrir hálfleik. tBV er þvi þriðja íslenzka liðið, sem kemst í 2. umferð í Evrópukeppni, Vals- menn urðu fyrstir til þess á kostnað liðs frá Luxemborg — og siðan komust Akurnesingar í aðra umferð, þegar þeir unnu Omonia frá Kýpur I Evrópubikárnum — keppni meistara- liöa. Til átaka kom eftir leikinn í Belfast i gær. Þegar leikmenn voru að yfirgefa völlinn hlupu nokkrir áhorfendur niður á völlinn og einn þeirra réðst að Friðfinni Finnbogasyni, miðverði IBV, og stærsta manni liðsins. „Leik- maðurinn var sleginn niður og missti meðvitund. Var fluttur á sjúkrahús,” segðir George Skinner, þjálfari ÍBV, í viðtali við fréttastofu Reuters í gær- kvöld. Áhorfendur í Belfast voru um 5000 og var leikurinn heldur slakur. Glentoran mun betra liðið framan af en Ársæll Sveinsson, markvörður ÍBV, var þeim erfiður Ijár i þúfu. Varði snilldar- lega allan leikinn, og var bezti maður liðs síns. I síðari hálfleiknum sóttu Vest- mannaeyingar I sig veðrið þó svo bezti framlínumaðurinn Sigurlás Þorleifsson yrði að yfirgefa völlinn vegna meiðsla, Það var um miðjan síðari hálfleikinn. Örn var þá færður fram — og honum tókst að jafna í lokin. Varð á undan markverði Glentoran að knettinum, þeg- ar Valþór Sigþórsson hafði spyrnt inn i vítateiginn og skoraði. „Ekki verið á betra þingi” —sagði forseti alþjóðasambands handknattleiksmanna, Svfinn Paul Högberg—Frábær aðstaða á Lof tleiðahételinu „Við erum mjög ánægðir með hve þing alþjóðahandknattlcikssambands- ins tókst vel að Hótel Loftleiðum — og likur benda til, að það verði hagnaður fyrir Handknattleikssamband tslands af þinghaldinu. Það stafar nokkuð af gengissigi doliarans siðustu vikur og mánuði en þegar þinghaldið var ákveðið I upphafi var allur kostnaður miðaður við gengi dollarans,” sagði Gunnar Torfason, sem var fram- kvæmdastjóri þingsins, þegar blaðið ræddi við hann i morgun. t fram- kvæmdanefnd voru auk hans Axel Einarsson og Sigurður Jónsson. „Ég hef ekki verið á betra þingi,” sagði forseti alþjóðasambandsins, Sví- inn Paul Högberg, eftir það — og sovézku fulltrúarnir sögðu: „Það er aðeins hægt að halda jafn gott þing.” Næsta þing sambandsins verður i Moskvu 1980. Erlendir fulltrúar og gestir á þinginu voru 150 og voru þeir á einu máli um að einstaklega vel hefði verið að þeim búið á Loftleiðahótelinu — og hótelið væri mjög vel búið fyrir slikar ráðstefnur. Þá var fyrirgreiðsla Flug- leiða mikil. „Starfsfólk Loftleiðahótelsins létti mjög á okkur í sambandi við þing- haldið — og það var mikil vinna, sem það lagði á sig. Fánar allra þátttöku- þjóða voru á borðum fulltrúa og notuðu fulltrúar þá við atkvæða- greiðslur. Þeir voru margir fánarnir og í fyrstu vantaði sex eða sjö en því var strax kippt í liðinn. Á síðustu stundu bættist svo fulltrúi frá Bahrain við þingfulltrúa. Það er lítið olíuriki við Persaflóa — og Emil Guðmundsson, aðstoðarhótelstjóri, var ekki lengi að komast yfir fána frá þvi riki,” sagði Gunnar Torfason ennfremur. Þingfulltrúar sátu boð mennta- málaráðherra á sunnudagskvöld í hótelinu en þinginu lauk fyrr um dag- inn. Á mánudag var farið í boði Kynnisferða til Gullfoss og Geysis með þingfulltrúa og borðað að Flúðum. Sú ferð tókst mjög vel og ísland skartaði sínu fegursta. Veður frábært — og þátttakendur i sjöunda himni með boð Kynnisferða. HSÍ í stórri þakkarskuld við það fyrirtæki. Á þriðjudag héldu hinir erlendu fulltrúar heim. Eins og áður getur verður næsta þing i Moskvu 1980 í sambandi við ólympiuleikana og þá fer fram stjórn- arkjör. Þingin eru haldin á tveggja ára fresti — en stjórn kjörin á fjögurra ára fresti. 'l Ólafur H. Jónsson Handboltapunktar frá V-Þýzkalandi Axel Axelsson Erfiðasta og harðasta fyrstu deildar keppni heims byrjuð! Minden 11. september 1978. Um síöustu helgi hófst 1. deildar- keppnin i handknattleik hér i Vestur- Þýzkalandi. Það sem einkennir þessa keppni er hve mikil harka er leyfð og hve mikil áhrif áhorfendur geta haft á úrslit leikja. Ennfremur er áberandi hve dóm- arar geta verið hlutdrægir í dómum sinum og þá heimaliðunum i hag. Úrslit í fyrstu umferð — í allt verða leiknar 26 umferðir — urðu eins og flest- ir höfðu reiknað með. Það var því ekki um óvænt úrslit að ræða. Tólf þjálfarar af 14 í 1. deildinni spá því að Gummers- bach muni sigra í deildinni á leiktimabil- inu. Óneitanlega litur lið þeirra sterkast út á pappírnum en ekki er þó öll von úti enn fyrir þau lið sem ætla sér líka að vera I baráttunni um meistaratitilinn, eins og til dæmis Grossvallstadt (liðið varð meistari á siðasta keppnistimabili), GW Dankersen, Hofweier og Nettel- stedt. Flestir reikna með því að þau lið, sem komust upp úr 2. deild i vor. falli niður aftur. Það er Grambke, Rintheim, Leverkusen ogGensungen. Miklar breytingar hafa orðið á mörg- um 1. deildarliðum fyrir þetta keppnis- tímabil. Um 100 leikmenn hafa skipt um félög, annað hvort komið úr neðri deild- unum eða flutzt til milli I. deildarliða — og svo hafa nokkrir nýir leikmenn er- lendis frá hafið að leika með I. deildar- liðum. Aldrei hafa slikar breytingar veriðjafnmiklar og nú. Við skulum nú renna yfir úrslit ein- stakra leikja: Meistararnir frá í fyrra, Grosswall- stadt, byrjuðu vel, sigruðu Rheinhausen á útivelli 20—16. Lið Grosswallstadt lék mjög góðan varnarleik og útfærði hraða- upphlaupin fljótt og vel. 1 næstu umferð fær Grosswallstadt Dankersen í heims- ókn og verður það einn af úrslitaleikjum mótsins. Flest mörk Grosswallstadt skoruðu Freisler, 6, og Kliihspies. 4/2, en hjá Rheinhausen voru þeir Demiro- vic 3/2 og Salewski 3/2 markahæstir. Gummersbach átti ekki i erfiðelikum með nýliðana Gensungen, sigraði með 25—14, og var það hálfgerð kennslu- stund í handknattleik. Flest mörk Gummersbach skoruðti Deckarm 8/5 og Wunderlich 6/2 en hjá Gensungen var Wagner beztur með 4/2. Áhorfendur voru 1200. GWD mætti Göppingen í fyrstu umf- erð og sigraði 14—12. GWD hefur ekki tapað heima siðustu tvö árin þannig að fyrir leikinn var lið G WD talið mjög sig- urstranglegt. En ekki reyndist auðvelt að skora hjá markverði Göppingen, Jaschke. Hann hélt Göppingen á floti allan leikinn. GWD hefði átt að geta gert út um leikinn I fyrri hálfleik, komst I 7—3, en Göppingen gafst ekki upp og í hálfleik var staðan 7—5. Sigur GW Dankersen var aldrefí hættu en leikur- inn i heild einkenndist af taugaveiklun og lélegri nýtingu góðra tækifæra. Sókn- arleikur liðanna var mjög stirður og aug- Ijóst að samspil leikmanna þarf að fín- pússa betur. Einstaka leikmenn skáru sig ekki úr hvað góðan leik snerti, nema þá helzt markverðir liðanna. Markahæstur hjá Dankersen var Waltke með 4/1 en hjá Göppingen skoruðu fimm leikmenn tvö mörk hver. Meðal þeirra var Gunn- ar Einarsson sem skoraði bæði mörkin úrvítaköstum. Segja má að Grambke. liðið sem Björgvin Björgvinsson leikur með, hafi byrjað vel með jafntefli gegn Hutten- berg, 16—16. Við höfðum samband við Björgvin og sagði hann að Grambke hefði sýnt miklu betri leik en menn höfðu búizt við. Björgvin sagði að Hiitt- enberg hefði jafnað út frikasti eftir að leiktíma var lokið. Það var mjög klaufa- legt hjá Grambke-liðinu og þar fór dýr- mætt stig forgörðum. Björgvin sagði að hann væri smátt og smátt að komast inn I leik liðsins en slíkt tekur alltaf einhvern tíma. Þó hefði hann litið fengið aðjeyna sig i þessum leik. Flest mörjí*8rambke skoraði Preis eða sjö eaJija Húttenberg var Huth markahawtur með sex. Spengl- er 4/1 og Ðtín 4/3. Áhorfendur voru 3000. TUS Nettelstedt heimsótti „Ijóna- gryfjuna” I Kiel og náði að krækja í mikilvægt stig. Jafntefli 14—14. Hluti leiksins var sýndur í sjónvarpinu eða 15 mínútur og er greinilegt að Nettelstedt á eftir að slípa sóknarleikinn betur ef leik- menn liðsins ætla að reyna við efstu sætin í deildinni. Með hinum mikla stuðningi áhorfenda, sem voru 6500, er Keil helmingi sterkara heima en á úti- velli. En liðið verður í baráttunni um fallið eins og siðustu ár. Flest mörk Kiel skoraði Timko, 4/3, en hjá Nettelstedt var Pickel markahæstur, 5/1 og Möller var með 4/2. Hofweier virðist ætla að blanda sér í toppbaráttuna ef marka má fyrsta leik liðsins heima gegn Mitbertshofen, sigr- aði 20—14. Heimsmeistarinn Ehret var langbezti maðurinn á vellinum og skor- aði 9/2 mörk, Emrich 5/1 en hjá Múnch- en-liðinu var Frank 4/2 markahæstur. Nýliðarnir hjá Rintheim og Leverkus- en gerðu jafntefli innbyrðis, 17—17, eftir mikla baráttu. í heild virtust menn vera ánægðir með þá byrjun, sem liðin sýndu. og það má vænta óvæntra úrslita i vetur því mörg lið eru það jöfn. Að auki eru margir góðir leikmenn i „banni” i sex mánuði hjá nokkrum fé- lögum. Því er erfitt að segja um styrk- leika þeirra fyrr en liðin verða full- skipuð. Fréttir úr 2. deild 1 Liðið sem Ágúst Svayarsson leikur með, Spenge, vann sinn fyrsta sigur í 2. deild í haust gegn Hambeim, 24—22. Hefur Ágústi gengið ágætlega að laga sig að nýjum aðstæðum og er þegar orðinn einn af burðarásum liðsins. Þremur umferðum er lokið i 2: deild og í fyrsta sæti er lið Hansa Schmidt, Wúl- frath, hefur unnið alla sína leiki. 1 þessum riðli verður örugglega mikil bar- átta að komast upp i 1. deild en lið Ágústs hefur litla sem enga von um að ná efstu sætunum. Eins og þegar hefur frétzt mun Einar Magnússon ekki leika meir með PSV Hannover vegna meiðsla í fæti sem allt- af hafa tekið sig upp hjá honum af og til. Það er mikill missir fyrir Hannover. Kveðja, Ólafur H. Jónsson, Axel Axelsson.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.