Dagblaðið - 15.09.1978, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15.SEPTEMBER 1978.
Útvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 21,55: Kalahari
Misjaf nt er innrætið
þegar
á
reynir
Kalahari nefnist bandarisk bíómynd
sem sjónvarpið sýnir í kvöid kl. 21.55
og er myndin frá árinu 1965. Myndin
segir frá þrem körlum og einni konu,
sem taka sér flugvél á leigu og ætla til
Jóhannesarborgar, en það óhapp vill
til á leiðinni að vélin brotlendir i Kala-
hari-eyðimörkinni I Afriku. Fólkið
lendir í hrakningum en tekst að finna
vatn eftir nokkra leit. Fólkið sezt þar
að og reynir að bjarga sér eftir beztu
getu. Sundurlyndi gerir brátt vart við
sig og kemur þá í ljós hversu mann-
eskjurnar eru misjafnlega innrættar.
Einn farþeganna er sendur eftir hjálp
■ og annar gerir sig að foringja yfir hin-
um á meðan. Það má kalla þessa mynd
skemmtimynd og segir kvikmynda-
handbók okkar að Stuart Whitman
fari á kostum i þessari mynd og að hún
sé vel þess virði að horfa á hana, enda
fær hún þrjár stjörnur. Með aðalhlut-
verk í myndinni fara þau Stanley
Baker, Stuart Whitman og Susannah
York. Myndin er tæplega tveggja tima
löng og send út i lit. Þýðandi er Ragna
Ragnars.
- ELA
I
Susannah York fer með eitt hlutverk I myndinnl.
ELIN
ALBERTS
DÖTTIR.
Sjónvarp kl. 20,35
Prúðu leik-
ararnir
Hinir sívinsælu Prúðu leikarar eru á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl. 20.35.
Munu þá án efa margir setjast fýrir
framan tækin til að horfa á þessar
skemmtilegu dúkkur. Gestur þeirra i
þessum þætti er gamanleikarinn Zero
Mostel. Þáttur Prúðu leikaranna er
tæplega hálftimi að lengd og er i lit.
Þýðandi er Þrándur Thoroddsen.
ELA.
I
&
^ Sjónvarp
Föstudagur
15. september
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Prýöu leikararnir (L). Gestur i þessum
þætti er gamanleikarinn Zero Mostel. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.00 Mussolini. Hin fyrri tveggja brezkra
heimildamynda um Benito Mussolini. járn-
smiðssoninn sem um tveggja áratuga skeið var
einræðisherra á ítaliu . í þáttunum er lýst
æsku Mussolinis, stjórnmálaferli hansogfalli.
Einnig er gerð grein fyrir persónulegum
vandamálum hans. Fyrri þáttur: Á
framabraut. Þýöandi og þulur Gylfi Pálsson.
Siðari þáttur er á dagskrá föstudaginn 22.
september.
2I.55 Kalahari (L). (Sands of the Kalahari).
Bandarisk biómynd frá árinu 1965. Aðalhlut-
verk Stanley Baker, Stuart Whitman og
Susannah York. Lítil farþegaflugvél brotlendir
i Kalahari-eyðimörk i Afríku. Einn farþeganna
er sendur eftir hjálp, en hinir reyna að bjarga
sér eftir beztu getu. Þýðandi er Ragna
Ragnars.
23.50 Dagskrárlok.
Föstudagur
15. september
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.45 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00 Miðdegissagan: „Brasilíufararnir” ettir
Jóhann Magnús Bjarnason. Ævar R. Kvaran
leikari les (27).
15.30 Miðdcgistónleikar: Hans-Wemer Watzig
ogSinfóniuhljómsveit Berlinarútvarpsins leika
Konsert fyrir óbó og kammersveit eftir
Richard Strauss; Heinz Rögner stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir). Popp: Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
I7.20 Hvað er að tama? Guðrún Guðlaugs-
dóttir stjórnar þætti fyrir börn um náttúruna
og umhverfið; — XVI: Uppskerutími.
17.40 Barnalög.
17.50 Upphaf Sjálfsbjargar. Endurtekinn þáttur
Gísla Helgasonarfrásiðasta þriðjudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35' Undir beru lofti; annar þáttur. Valgeir
Sigurðsson ræðir við ólaf Jensson verk-
fræðing um útilíf og náttúruskoðun.
20.00 Sinfóniskir tónleikar. Hljómsveit franska
útvarpsins leikur Sinfóníu í g-moll eftir
Edouard Lalo; Sir Thomas Beecham stjórnar.
20.30 „Þú ættir að hugsa þig um tvisvar”, smá-
saga eftir Luigi Pirandello. Þorkell Jóhannes-
son þýddi. Jón Gunnarsson leikari les.
21.05 Ljóðsöngvar eftir Franz Schubert. Christa
Ludwig syngur, Irwin Gage leikur á píanó.
21.30 Úr visnasafni Útvarpstiðinda. Jón úr Vör
flytur.
21.40 André Watts leikur á píanó Paganini
etýðureftir Franz Liszt.
22.00 Kvöldsagan: „Líf í listum” eftir Kon-
stantin Stanislavskí. Kári Halldór les (10).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Kvöldvaktin. Umsjón : Jónas R. Jónsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Verzlunarhúsnæði
til sölu
Alls 1000 ferm á einni hæð, hentugt
bæði til verzlunar og hvers konar iðn-
rekstrar. Eignaskipti koma til greina.
Selst í einu lagi eða hlutum. Leiga
kemur einnig til greina.
Uppl. í síma 76222 og 26408.
tVcLWo ,
<0'^ a
* .' v7 ’
Sænskukennsla í stað dönsku.
Nemendur mæti til viðtals mánudaginn 18.
september, sem hér segir í Miðbæjarskóla, Frí-
kirkjuvegi 1 (hafið stundatöfluna með):
4. og 5. bekkurkl. 17.00.
6. og 7. bekkurkl. 17.00
8. og 9. bekkurkl. 18.30.
Nemendur á framhaldsskólastigi hafi samband
við skrifstofu Námsflokkanna í síma 14106
eða 12992.
Nemendur ath. að auglýsingin var röng í Þjóðvilj-
anum 14/9
Námsflokkar Reykjavíkur
Hólfaleiga
Þeir sem hafa frystihólf á leigu í Sænsk-ísl. frystihúsinu
eru vinsamlega beðnir að greiða leiguna nú þegar.
Þar sem mikil eftirspurn er eftir hólfum verða þau hótf,
sem ekki er búið að greiða leigu af fyrir 20. sept. nk.,
tæmd og leigð öðrum.
Matvæli i þeim hólfum sem verða tæmd eru ekki
geymd.
Sænsk-ísl. frystihúsið.
Af sérstökum ástæðum höfum við til sölumeð-
ferðar einn af þessum vinsælu bátum.
, , (Ath.: Afhend-
K ingartími frá
ý - ^ ~ verksmiðju júlí
CP®’ -a™ ’79I- í bátnum
« _ ''eru 2 raf-
magnsrúllur,
dýptarmælir,
. | -nniia'ílB sblóeldavél á-
jf ! samt mörgum
fleir! fylgihlut-
EIGNAVAL SF
Suðurlandsbraut 10.
Simi 85650.
Heimasfmi sölumanns 13542.
\W\V\
7ír