Dagblaðið - 15.09.1978, Síða 28

Dagblaðið - 15.09.1978, Síða 28
Verktakastarf semi á Keflavíkurvelli endurskoðuð: Einokun Aðalverktaka af létt? „Þetta er flókið mál og auðvitað blandast inn í það hagsmunaárekstrar. Sumir hafa verið i ágætri aðstöðu á Vellinum, en aðrir vilja komast að,” sagði Páll ÁsgeirTryggvason i vamar- máladeild utanrikisráðuneytisins í samtali við DB. Málið sem um ræðir er endur- skoðun á starfsemi íslenzkra verktaka á Keflavíkurflugvelli. Fimm manna nefnd undir forsæti Páls Ásgeirs mun næstu vikur og mánuði vinna að könnun málsins og ræða við þá aðila er það varðar. Aðfir í nefndinni eru Gunnar Gunnarsson frá íslenzkum aðalverktökum, Ármann Örn Ármannsson frá Verktakasambandi íslands, Jón H. Jónsson frá Kcfla víkurverktökum og Jón B. Kristinsson frá Suðurnesjaverktökum. Frá 1954 hafa Islenzkir Aðalverk- takar haft einokunaraðstöðuá Kefla- víkurflugvelli. Þeir einir hafa mátt byggja fyrir bandaríska herinn þar. Eigendur fyrirtækisins eru þrir. Sameinaðir verktakar eiga 50%, Reginn hl'. 25% og íslenzka rikið 25%. Framk\æmdastjörar eru Thor Ó. Tliors og Gunnar Gunnarsson. 1'áU Ásgeir Tryggvason sagði að margv islegt hagræði væri að þvi að hafa aðeins einn verktaka við bygging- arframkvæmdir á Keflavikurvelli. Það skapaði visst öryggi og gerði Banda- ríkjamenn óháðari sveiflum á vinnumarkaði hérá landi. Páll Ásgeir sagði að Bandaríkja- menn hefðu aldrei kvartað yfir starfi íslenzkra Aðalverktaka og fyrirtækið ckki lent I neins konar útistöðum við þá. Þvert á móti hefðu Bandaríkja- menn hrósað vinnu aðalverktaka og lýst ánægju sinni með verkskil. Hann sagði að er aðalverktakar yrðu sviptir einkaaðstöðu sinni á Keflavikurvelli yrðu þeir að sjálfsögðu að fá rétt til að bjóða í verk á ai- mennum markaði. Þá kynni að verða þröngt I búi hjá ýmsum smærri verktökum. -GM. MIKIÐ TJÓN AF ELDI í HAFNAR- FIRÐI ÍGÆR Gluggi sprakk út og eldtungur léku um húsið FJdur kom upp í þvottahúsinu að Hraunbrún 161 Hafnarfirði um niuleytið í gærkvöldi. Magnaðist eldurínn óvenju- lega skjótt og er slökkviliðið kom á vett- vang nánast sprakk út gluggi á götuhæð og eldtungur leituðu þar út. Slökkvistarfið tók skamman tíma, 15—20 mínútur, en gífurlegt tjón varð af þessum skyndilega eldi. Eldurinn varð mestur í kringum þurrhreinsara og er líklegt talið að sprenging hafi orðið i eld- fimum efnum í honum. Fldurinn sveið og eyðilagði þunnar plötur loftklæðningar í salnum, skemmdi önnur tæki og komst I frágenginn þvott og fatnað. Er tjónið tilfinnanlegt. Eigandi þvottahússins býr á efri hæð hússins. Þangað komst eldur ekki en revkur varð þar mikill. - ASt. » Hætt er við að margir Hafnfirðingar hafi misst föt sín og annað sem i þvottahúsinu var. Skemmdir voru miklar eins og sést á þessari mynd. — DB-mynd R.Th. Sig. Launa- og verðstöðv- un í f immtán mánuði Frá Sigurjóni Jóhannssyni, frétta- ritara DB í Osló, I morgun: Í dag er búizt við að norska stjórnin gripi harkalega inn á svið frjáls samningsréttar um laun og kjör og ákveði svo til algjöra launa- og verðstöðvun I 15 mánuði. Ekki erenn séð hvort þessi ráðstöfun kemur harðar niður á þeim lægst eða hæst launuðu. Ríkisstjórnin hefur þegar kynnt stefnu sina fyrir Verkamanna- flokknum og LO norska alþýðusam- bandinn, og á næstu dögum mun hún leita eftir nánara samkomulagi meðal launþega og atvinnurekenda hvernig að framkvæmdinni skuli staðið í smærri atriðum, t.d. hvernig eigi að meta launahækkun vegna akkorðs- vinnu. Rikisstjórnin hefur lýst yfir að barnafjölskyldur muni fá bætur að vissu marki í formi skattafrádráttar og eftirlaunafólk einhverjar bætur. Aðrir verða að gera sér að góðu að standa i stað á þessum 15 mánuðum eða þola minni kaupmátt. Stórþingið kemur ekki saman fyrr en í okt. og er sjónvarpsmenn fóru á stúfana í gær til að heyra álit stjórn- málamanna á þessum tíðindum sagði formaður sósíalíska vinstriflokksins að flokkur hans gæti ekki staðið með þessum aðgerðum þar sem þær væru ólýðræðislegar og kæmu harðast niður á þeim lægst launuðu. Talsmaður hægri flokksins sagði að flokkur sinn hefði i mörg ár reynt að koma fram tillögum sem hefðu getað komið i veg fyrir þetta ástand. Nú er framleiðslukostnaður orðinn svo hár I Noregi að allar framleiðslugreinar eru i hættu og því miður yrði að segja að launaskriðsstöðvun kynni að geta lag- fært ástandið en þetta væri samt ógeðfelld neyðarráðstöfun. Talsmaður norska atvinnurekenda- sambandsins sagði að ríkisstjórnin væri nú að framkvæma það sem at- vinnurekendur hefðu lagt til að gera þyrfti fyrir mörgum mánuðum. Við erum á elleftu stundu með björgunar- aðgerðir, sagði hann. Jafnhliða þessum ráðstöfunum hefur stjórnin í hyggju að opna greiðari leiðir fyrir almenning og stofnanir til að festa fé í norskum fyrir- tækjum, m.a. með rúmari skatta og ágóðareglum. •GM. frjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 15. SEPT. 1978. Réttað í Lögbergs- rétt Liklega verða Reykvíkingar fjölmennir i réttunum við Lögberg um helgina að venju, enda stutt að fara þangað til að horfa á þennan -árlega viðburð. Lionsmenn úr Lionsklúbbi Kópavogs bjóða að venju til kaffidrykkju í barna- heimilinu Kópaseli í Lækjarbotnum á sunnudaginn frá kl. 2—6. Kópasel hefur nú verið stækkað og endurbætt. Ágóðanum verja Ljónin til styrktar börnum til sumardvalar í Kópaseli. Konurog karlar sam- tímis í guf u hjá TBR? — „ánsundfata að sjálfsögðu. Fólk hætt að kippa sérupp við ber brjóst eða strípaða rassa”, segirí TBR-fréttum TBR, Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur tekur á næstunni i notkun gufubað í hinu glæsilega iþróttahúsi félagsins við Gnoðarvog. „En hvernig á að starfrækja gufubað”, er spurt í TBR- fréttum. „Margir hafa minnzt á, að eðlilegast sé að hafa sérstaka tíma fyrir konur og aðra tima fyrir karlmenn. Aðrir hafa hins vegar talað um. að erlendis sé algengast að öll kynskipting sé látin lönd og leið og bæði karlmenn og konur fari í gufubað samtímis, án sundfata að sjálf- sögðu. Fólk sé löngu hætt að kippa sér upp við ber brjóst eða strípaða rassa. Ekkert skal um það sagt hver niður- staðan verður í þessu máli hjá TBR, en gaman væri að ræða um þetta á haust- fundinum, sem haldinn verður i september eða október". segir i TBR- fréttum. -H. Halls. Akureyri: Ökumenn mega núvarasig Nú ættu Akureyringar að fara gæti- lega I það að stiga á bensíngjöfina. Lög- reglan hefur verið i herferð gegn of hröðum akstri, þvi nauðsynlegt er talið að ná hraðanum niður fyrir haustið. Ótrúlega margir hafa verið staðnir að þvi að aka of hratt allt upp í 70—80 km hraða á götum bæjarins, þar sem viða leynast slysahættur. Einna flestir hafa verið teknir í Þórunnarstræti, en einnig margir á Þingvallastræti, Glerárþorpi og reyndar um allan bæ. . ASt. r^Kaupið\, ,5 TÖLVUR1 £1 I* OG TÖLVUUR »1 BAIMKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.