Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 3

Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 3
O-ní. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978. N Morgunblaðið gegn inn- flytjendum og kaupmönnum jHorcmuliliiínö niiiíiifiiiríiTr greinar einstaklinga sem vilja taka upp hanzkann fyrir þá. Oft eru slíkar greinar ritskoðaðar vandlega og ósjaldan styttar eða kaflar felldir burt af ritstjórn og eru fyrir þessu sannanir frá aðilum sem fyrir þessu ofríki hafa orðið en sætt sig við það frekar en koma ekki að greinum sinum. 1 Mbl. miðvikudaginn 13. sept. er þannig enn ein árásin á ofannefndar stéttir, innflytjendur og kaupmenn og núna i formi napurs háðs. í skopmynd þeirri sem blaðið birti þennan dag eru innflytjendur sýndir sem einhvers konar „mafíu-glæpamenn” (með hatt, sólgleraugu og digran vindil), en yfir þeim trónar hinn nýi viðskiptaráðherra, sem látinn er segja með meðfylgjandi mynd: „Ég var orðinn úrkula vonar um að mér tækist nokkurn tima að komast i aðstöðu til þess að læra svinariið.” Auðvitað er skopmynd tekin sem slík og oft eru þessar myndir Mbl. góðar, þær sem „Sigmund” teiknar, en hér er vegið nokkuð djarft að einni ákveðinni stétt í landinu og það af blaði sem margir eru svo fávísir að halda að styðji einkaframtak og frelsi i viðskiptum og verzlun. Með mynd þessari er beinlinis verið að gefa i skyn að þessar stéttir, innflytjendur og kaupmenn, séu stéttir, sem stundi„svínarí” og hinn nýi viðskiptaráðherra sé sá, sem það muni uppræta. Allar skopmyndir hafa gildi, sumar jafnvel boðskap að flytja, og eru þær oft ekki ómerkari en heil grein í blaði og geta þess vegna valdið deilum, ekki síður en greinar. Og ef slikar skopmyndir hefðu ekki þessa eiginleika, væru þær þar með einskis nýtar, og varla myndu teiknarar viðurkenna slíkt! Auðvitað er þess að vænta að þeir aðilar sem fylla stétt innflytjenda og kaupmanna láti bjóða sér þetta þegjandi eins og annað sem að þeim er rétt, því nú gildir það að styggja ekki viðskiptaráðherrann. Undir honum er komið hvort þessar stéttir i landinu verða þurrkaðar út eða fáaðskrimta. Og taki ekki einhverjir úr þessum stéttum undir þessi orð sannar það bara það sem ég held fram að atvinnu- rekendur yfirleitt, sem hafa þó heilt samband, Vinnuveitendasamband islands, sem bakhjarl, eru orðnir kúg- uninni svo vanir, hvort sem vinstri stjórn hefur setið hér eða ekki, að þeir hreyfa ekki legg né lið þegar heng- ingarólinni verður loks brugðið um háls þeim og hert að. Morgunblaðshöllin I hjarta borgarinn- ar. Grandvar skrifar Ekki er þeim Morgunblaðsmönnum vandi á höndum þegar gripa þarf til ófrægingar um hið frjálsa framtak. einstaklingsfrelsi og þess konar utangarðshugtök og um þær stéttir sem helzt starfa á þessum vettvangi, svo sem innflytjendur, kaupmenn og atvinnurekendur hvers konar. Sjaldan hefur sézt að Mbl. sjálft styddi við bakið á þessum aðilum, þótt einstaka sinnum Ijái það rúm fyrir Raddir lesenda Vörurnar merktar upp á nýtt. DB-mynd Ari. Gaf sölu- skatturinn aura í vasann? Einar S. Jónsson hringdi: „Kaupmenn með Gunnar Snorra- son i broddi fylkingar hafa á undan- förnum árum verið að óskapast yfir kostnaði á innheimtu söluskatts. Þeir hafa jafnan haldið þvi fram að það kæmi sér betur bæði fyrir kaupmanninn og viðskiptavininn að söluskatturinn yrði felldur niður. En nú snýst þetta skyndilega við og kaupmenn finna þvi allt til foráttu að söluskatturinn sé tekinn af. Því er ekki óeðlilegt að sú spurning vakni hvort söluskatturinn hafi gefið kaup- mönnunum fleiri aura i vasann.” FRÁBÆR UPPLESTUR ÆVARS R. KVARAN Svanfríður Sveinsdóttir hringdi og vildi koma á framfæri þakklæti til Ævars R. Kvaran fyrir frábæran upplestur á miðdegissögunni Brasiliufararnir. „Upplestur hans á sögunni er i einu orði sagt frábær. Ævar er án efa einn alfremsti lista- maður islenzku þjóðarinnar. Hann hefur frábært vald á islenzkri tungu og ég legg til að Rikisútvarpið ráði hann til að lesa fleiri sögur. Einnig væri mjög vel til fundið hjá Sjónvarpinu að fá Ævar til að lesa texta með ýmsum fræðslumyndum. Vald og túlkun Ævars R„ Kvaran á islenzku máli er svo stórkostleg að ég geri það að tillögu minni að hann verði hækkaður um einn flokk þegar út- hlutun listamannalauna fer fram næst. Hann hefur sannarlega unnið til þess. Ævar R. Kvaran leikari. Viftureimar FAG Kúlu- og rúllulegur TIMKEN vicistmi v ie»oi«*e« Keilulegur HÍH precision “ Hjöruliðir Einnig eru tímareimar og tímakeöjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla. Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum urri^ land allt. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ® Árni Hannesson, 13 ára: Nei. ég fer ekki oft á 3 sýningar. Mér finnst myndir með eltingaleikjum skemmtilcgastar. Þæreru yftrleitt alltaf á 5 sýningum. þess vegna vel ég þær frekar en hinar. Spurning dagsins Ferðu oft ð þrjú bíó? Mickaei E. Reynis, 11 ára: Já, til dæmis er ég að koma úr Austurbæjarbiói núna. Myndin sem ég sá hcitir Amcrikurallið. f.g fer tvisvar til þrisvar i mánuði á bió. l.inda Björfc Gnðnmndsdóttir, II ára: átundum. Helzt reyni ég að komasbinn á myndir sem bannaðar eru innan 12 ára. Það eru glæpamyndir sem eru bannaðar. Þæreru skemmtilegastar. HaMis Hafsteinsdóttir, 11 ánu Nei, ég fer ekki oft I þrjú bió. Ég reyni frekar að komast inn á bannaðar myndir. Þær eru yfirleitt skemmtilegri en barna- myndirnar klukkan þrjú. Röbert Ólafsson, 12 ára: Já. ég reyni að komast á hverjum sunnudegi á bió. Ég vil helzt sjá kúrekamyndir. Þórir Signrgeirsson, 11 ára: Nei, ég fer að meðaltali þrisvar i mánuði á bió. Helzt vil ég fara á fimm bió. Sakamála myndir og glæpamyndir ftnnst mér mest gaman aðsjá.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.