Dagblaðið - 18.09.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 18.09.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978. „HÆPIN HEIMILDARSAGA” — Um bókaf lokkinn Þrautgóðir á raunastund ef tir Steinar J. Lúð víksson og Lof t Guðmundsson Frásagnir af slysförum eða farsæl- um björgunarstörfum eru af mörgum eftirsótt lestrarefni. Var það því ekki nema að vonum að saga slysfara og björgunarstarfa yrði efniviður i mik- inn bókaflokk. Þegar eru komin 9 bindi þess bókaflokks, sem ber nafnið Þrautgóðir á raunastund og fjallar um slysfarir i sjó og vötnum og ekki síður um björgun úr þeim háska. Með stofnun Slysavamafólags íslands urðu mikil þáttaskil i slysa- vörnum hér við land. Sagt er að heim- ilda sé, meðal annars, aflað i skýrslum Slysavarnafélagsins og nafn þess og óeigingjarnt áhugastarf deilda þess og velunnara hefur verið notað til að selja þennan bókaflokk um allt land. 1 formála I. bindis er þess getið að ekki hafi áður verið ráðizt i að „safna og skrá frásagnir af öllum slíkum at- burðum síðustu 40 ára. Má því ljóst vera að ætlunin hafi verið að efna til heimildarrits er fullskrái og geymi sjó- slysa- og björgunarsögu þessara ára- tuga. Fimm fyrstu bindi bókaflokksins fjalla um fyrstu þrjá áratugina af Ólafsfjörður Vikan óskar eftir umboðsmanni á Ólafsfirði. Upplýsingar í síma 27022. HARGREIÐSLUSTOFAN Piro/a Njálsgötu 49 Sími 14787 Permanent Giansvask Opið laugardaga JIJDO Innritun á hyrjunarnámskeið virka daga kl. I3 til 22 í síma 83295. Japanski þjálfarinn Yoshihiko Iura kennir. Judodeild Ármanns starfstima Slysavarnafélags íslands, eða árin 1928—1958. Frásögnin er að mestu slysaannáll en þó er fjallað ítar- legar um nokkra atburöi, þannig að árið 1928 er aukin frásögn um sjö af þeim 37 atburðum sem getið er það ár, og 1932 er aukin frásögn af 4 þeirra 47 atburða sem skráðir eru það ár. Auðvitað er það og verður matsat- riði hvað telja má frásagnaverðast hvert ár og mjög eru árin misjöfn um þessa sem aðra atburði og sizt ástæða til að ætla öllum árum jafna frásögn. Um of þykir þó spöruð frásögnin þegar ekki er getið nafna þeirra er farizt hafa af slysum, svo sem sjá má allvíða, t.d. 15. mai I928, I0. júlí 1929, 11. nóv. 1930, 5. júní 1931 eða 9. janúar I935 er vélbáturinn Njáll fórst með 4 mönnum. í lok 5. bindis eru nokkrir viðaukar og leiðréttingar á þeim bindum er þá voru komin. Er þó vafalaust að ekki eru allar villur leið- réttar eða getið allra þeirra sjóslysa er urðu á greindum tíma. Vaknar sú spurning hvort mjög sé áfátt um skráningu sjóslysa í skýrslum Slysavarnafélagsins frá þessum árum eða um of hafi verið flaustrað með þær heimildir. Er gefin höfðu verið út fimm bindi þessa bókaflokks urðu þáttaskil um út- gáfuna. Fjallar 6. bindið um sögu briggja ötulla forystumanna slysa- varna hér við land. Höfundur þess bindis er Loftur Guðmundsson og er sú bók um margt frábrugðin þeim fyrstu fimm er Steinar J. Lúðvíksson skráði. Á árunum 1975—77 komu enn út þrjú bindi af sjóslysa- og björgunarsög- unni og var þar fjallað um árin 1916— 1927. Þá er svo komið að ekki munu á einum stað samfelldar slysaskýrslur til stuðnings við skráningu en draga verður efnið saman eftir heimildum úr ýmsum áttum. Hér á eftir er ætlunin að fjalla nokkuð nánar um frásagnir þess tima- bils sem skráð er í 7., 8. og 9. bindi þessa ritverks. Sjöunda bindið er saga áranna 1925—1926 og 1927. Árið 1925 varð eitt af mestu slysa- árum aldarinnar. Hefur löngum verið vitnað til þeirra ógurlegu veðurham- fara er þá urðu og segir lengsti kafli bókarinnar frá Halaveðrinu. Veruleg- ur fengur er að fá heillega frásögn um þá mörgu atburði er urðu samtímis hjá hinum ýmsu veiðiskipum i Halaveðr- inu mikla. Slægur er einnig í köflum um strand Veiðibjöllunnar. Eiríks rauða, mannsköðum i marz 1926 og björgun bátanna frá Stokkseyri og Eyrarbakka. Fróðleg er frásagan af skipinu Ametu og furðuleg er hrakningasaga þess. Um endalok þess skips hafði áður verið fjallað í I. bindi þessa ritverks og bein tilvitnun hefði mátt vera til þess sem áður var skráð um þetta sama skip. Einnig mætti tilgreina fjölda óná- kvæmra frásagna. 8. bindið er ritað um árin 1920— 1924 að báðum meðtöldum. í formáls- orðum þess bindis er þessi setning: „Eftir að saga fyrstu fjörtiu ára félags- ins hafði verið rakin ...” í formála fimmta bindis var þess skilmerkilega getið að með því sé lokið frásögnum um bjarganir og sjóslys á fyrstu 30 starfsárum Slysavarnafélags íslands. Og þau bindi sem á milli eru fjalla bæði um önnur timabil. Hér er þvi hvimleitt ósamræmi og staðreyndin er sú að ekki hafa enn verið birtar frá- sagnir nema frá fyrstu 30 starfsárum Slysavamafélagsins. Ekki verður varizt þeirri hugsun að of mikill og vaxandi flaustursbragur sé á þessu ritverki. Mörg og mannskæð sjóslys urðu á árunum 1920—1924 og er stuttaraleg frásögn af þeim flestum. Einna mest er þó rætt um þá atburði er oftast og mest hefur áður verið ritað um, svo sem er Valtýr fórst, Talis- mann strandaði og Krossmessugarð- inn 1922, enda auðveldast að afla þess efnis. Flestar eru hinar frásagnirnar i stuttorðum annálastil, þó ærið mis- jafnar. í frásögninni um kútter Valtý er t.d. sagt (bls. 23): „Þrjátíu manna áhöfn fórst með Valtý” og er það sjálfsagt rétt. Síðan eru nafngreindir skipstjóri, stýrimaður, vélstjóri, matsveinn og 24 hásetar, eða alls 28 skipverjar, og vantar því tvo á fulla tölu. Myndaörk er í þessu bindi. Ærið er það misgott efni, bæði myndir og text- ar. Skal þóaðeins minnzt á fátt eitt: 1) „Vélbátur frá ísafirði á leið á mið- in.” Sýnilegir eru einkennisstafir bátsins, ÍS 364. Bátur þessi hét Freyja og var 34 brúttólestir að stærð, vel þekkt aflaskip og var for- maður þess lengi einn af Stór-Guð- mundum vestra. 2) Færeyskar skútur með einkennis- stafi TG-631 og VN-197. Fallegar skipamyndir, enda birtar bæði i 7. og 8. bindi, en með mismunandi myndskýringum, og tvívegis i Skútuöldinni. 3) Mynd sem sögð „er tekin meðan Djúpavík var og hét”. „Svo sem glöggt má sjá á myndinni voru þar mikil umsvif og mannvirki á þess- um árum,” segir ennfremur í mynd- texta. Mynd þessi er alls ekki frá Djúpuvik á einum tíma eða neinum, heldur er hún frá Siglu- firði. í yfirliti um árið I923 segir m.a.: „Mesta skaðaveður sem gekk árið 1923 gerði 4. og 5. maí og strönduðu þá þrjú þilskip á Hornvík” (bls. II7). Kjallarinn Eyjólfur Jónsson Nánari frásögn af þessu skaðaveðri er á bls. I26—130. Þar segir frá því að auk þilskipanna, sem rak á land i Hornvik, hafi vélbáturinn Björninn strandað þar líka. „Í þessum óveðurs- garði strönduðu þvi fjögur skip og eyðilögðust á Hornvik (bls. 130). Og fimmta skipið er strandaði var Flink frá Akureyri er leitað hafði vars á Haganesvik. Nokkuð vantar hér á samræmi i yfirlit og frásögn, þótt ekki séu hér beinar mótsagnir. Sama er að segja um frásagnir af bátunum Rask, Leifi og Nirði frá ísafirði. Hér á undan hefur verið fjallað um efni 7. og 8. bindis ritsafnsins Þraut- góðir á raunastund, sem skráð hefur Steinar J. Lúðvíksson. Dálitlu hefur þar verið aukið við og gerðar athuga- semdir eða leiðréttingar við annað, sem frá er sagt. Næsti kafli mun hins vegar fjalla um þætti sem þar eru ekki skráðir en talið að þar ættu að vera nefndir. Það vantar i söguna. Þegar blaðað er i bókum, sem ætlað er að vera heimildarrit um sjóslys og björgunarstörf, vænta menn þess að ekki séu það mörg atriði, sem tímabil- inu tilheyra, er að engu sé getið. Fyrir- heit sem er i formála l. bindis og ámálgun i siðari bindum hafa vakið vonir um að allvel væri til verksins vandað og nokkur alúð lögð við efnis- öflun en ekki aðeins gripið til þess sem nærtækast var. Vonbrigðum hefur þvi valdið er nokkur könnun leiddi í ljós að þessu var að ýmsu farið á annan veg. Þótt aðeins sé litið til næsta um- hverfis virðist vera fjölmargt sjóslysa við Vestfirði, sem ekki er getið i um- ræddum tveimur bókum, en falla þó til þess tímabils sem um er ritað. Hef ég tekið saman lista yfir 15 nöfn sem vantar. Sú upptalning ætti að nægja sem rök fyrir þvi að allmargt vantar í bók- ina af sjóslysum við eða á Vest- fjörðum á nefndu tímabili. Fyrst svo er um einn hluta landsins, hvað skyldi þá ef farið væri kringum landið? Eða skyldi ekki hafa verið kíkt í kirkju- bækur eða héraðsblöðin þegar dregið var að efni í slysfarasögu áranna 1920-1927? 9. bindid tekur til atburða áranna 1916—1919 að báðum meðtöldum. Langlengsta og ítarlegasta frásögn þessa bindis er af strandi Goðafoss við Straumnes í nóvemberlok 1916. At- burður þessi varð á styrjaldarárunum fyrri þegar siglingar islenzkra kaup- skipa voru að byrja að nýju eftir stofn- un Eimskipafélags Íslands. Öll þjóðin fylgdist í ofvæni með hörmulegum ör- lögum hins nýja skips sem miklar vonir voru bundnar við. Frásögnin er rakin eftir ýmsum heimildum, þar á meðal skýrslum og svörum gefnum í sjórétti. Af öðrum allgóðum þáttum má nefna sögu selveiðiskipsins Kóps;- mannskaðaveðrið 24. marz 1916 og björgunarafrek Guðbjarts Ólafssonar og skipverja lians, svo og afrekssögu Magnúsar Guðbjörnssonar. Flestir aðrir þættir eru stuttorðir, jafnvel snubbóttir, misjafnir að gæðutn og traustleika. Þykir mér enn gæta þess hroðvirknisbrags, sem áður er ræddur. um tvö næstu bindi á undan. Myndaörk er í niu bindum. Ekki þykir nú þar allt nógu gott. Mynd er af glæsilegu seglskipi. Þess hefði mátt geta að þar væri skonnortan Guðrún frá Patreksfirði, er Markús Snæbjörns- son skipstjóri og kaupmaður átti, og er myndin tekin þará höfninni. Önnur ágæt mynd sýnir er skútur voru settar á land. Mynd þessi er sögð frá Patreksfirði en hún er frá Þingeyri og sér þar i baksýn bæinn og fjallið Höfða norðan Dýrafjarðar. Mynd þessi er lika i Skútuöldinni og þar með réttum skýringatexta. „Skúta á leið inn ísafjarðardjúp með linubát í togi," stendur undir enn einni mynd. Mynd jressi er lekin á Skutulsfirði. Þegar vindkul er út Prestabugtina. svo sem seglin sýna, og» stefnið snýr til hafs, væri nær að segja að skipið væri á leið út fjörðinn. Ætla mætti að þessar villur teldust til hroð- virkni, þar sem myndin er líka i Skútu- öldinni sem gefin var út af sama for- lagi á sama ári. Það vantar lika frásagnir af slys- förum á árunum 1916—1919. Sem dæmi skulu nefnd eftirtalin atriði: Guðmundur Þorgeir Sumarliðason, 18 ára. vinnumaður í Keflavík, drukknáði af mótorbát i Faxaflóa 24. marz 1916. Guðmundur Guðnason bóndi á Bræðrabrekku í Bitru, 15 ára sonur hans, Guðmundur, ásamt Bjarna Björnssyni húsmanni i Broddanesi drukknuðu allir á heimleið frá Stein- grimsfirði 27. okt. 1917. Guðmundur Þeófilusson á Hesteyri féll út af vélbáti á Látralægi 24. marz 1917ogdrukknaði. Fleira mætti nefna. Lokaorð Ritsmíð þessi ef orðin mikið lengri en í upphafi var ætlað. Við athugun komu æ fleiri atriði I Ijós. Fjarri mun þó að öll kurl séu komin til grafar, jafnvel á þeim slóðum sem fyrst og fremst hefur verið ritað um hér að framam Þótt verulegur fengur sé að útgáfu ritsafnsins Þrautgóðir á rauna- stund hef ég viljað sýna fram á að mun betur verður til verksins að vanda ef það á að teljast traust heimild um sjóslys og björgunarstörf á þeim árum sem það fjallar um. Væri nú ekki athugandi að fara sér ögn hægar í bili, leiðrétta og bæta við þvi er finnst að vanti i sögu þeirra ára sem þegar er um skrifað? Síðan mætti taka fyrir nýtt timabil sögunnar en vanda yrði þá betur til verksins en verið hefur í síðustu bindum þess. ísafirði í júní 1978, Eyjólfur Jönsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.