Dagblaðið - 18.09.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 18.09.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978. vera neinn ágreiningur um að mikill grundvöllur er fyrir þeirri gagnrýni sem stjórnendur þessara tveggja rikja hafa orðið fyrir vegna brota á alls kyns mannréttindum. Bandarikjastjórn fer sér hins vegar mjög hægt i þessum efnum eins og áður segir. Með það eru stjórnarand- stæðingar I tran og Nicaragua auð- vitaðekkiánægðir. Forustumenn i andstöðuflokknum gegn Somoza forseta i Nicaragua segja hreinlega að stuðningur Bandaríkja- stjórnar við forsetann hafi valdið þvi að ákveðið var að taka þinghúsið í Managua og nokkur þúsund gísla þar. Einnig hafi þessi óvelkomni stuðn- ingur Bandarikjamanna valdið alls- herjarverkfallinu í landinu, sem síðan hafi leitt af sér það ástand sem nú er og ekki verður kallað annað en borg- arastyrjöld. Hvernig geta andstæðingar Somoza kennt Bandaríkjamönnum um þessi átök? Þeir grundvalla þá skoðun sina á að í júli síðastliðnum tilkynnti Somoza forseti að hann múndi heimila sér- stakri nefnd á vegum Samtaka Ameríkuríkja að koma til Nicaragua og kanna þar meðferð mannréttinda- mála. Þessari ákvörðun sá Jimmy Carter Bandarikjaforseti ástæðu til að fagna sérstaklega. Jafnhliða hóf öld- ungadeild Bandaríkjaþings að heimila ýmiss konar fyrirgreiðslu við Nicara- gua. sem ekki hafði verið heimilað um' nokkurt skeið. Hafði það verið vegna óánægju Carters og stjórnar hans með stjórnarfari landinu. Af þessu drógu andstæðingar Somoza og fjölskyldu hans þá ályktun að Bandaríkjastjórn ætlaði að stuðla aö því að hann sæti við völd i það minnsta þar til kjörtimabil hans rynni út árið 1981. Valdatök forsetans hafa stöðugt verið að veikjast siðan þar urðu miklir jarðskjálftar fyrir nokkr- um árum. í Ijósi þessarar ályktunar um stefnu Bandarikjanna þótti stjórnarandstæð- ingum i Nicaragua ekki eftir neinu að biða og lögðu til atlögu. Framhaldið er öllum í fersku minni. Stjórnarandstæðingar i Nicaragua hafa heldur bitra reynslu af afskiptum Bandarikjanna af málefnum þar i landi. Algjör yfirráð Bandaríkjanna í raun eru ekki ný saga i Mið-Ameríku. Bandariskir landgönguliðar aðstoðuðu föður Somoza, núverandi forseta Nicaragua, við að ná völdum. Síðan hefur fjölskylda þeirra haft bæði tögl og hagldir. Hafa ráðamenn lika gætt hagsmuna hinna raunverulegu ráða- manna dyggilega. En það eru ýmis fjölþjóðafyrirtæki, flest af bandarisk- um uppruna. Vandi Carters Bandaríkjaforseta er verulegur hvað varðar afstöðuna til Nicaragua. Af henni ræðst mjög öll samvinna og afskipti Bandaríkjanna við Mið- og Suður-Amerikuriki. Kunnugir telja þó að forsetanum sé enn meiri vandi á höndum varðandi íran. Rikið er einn mesli oliuútflytj- andi heimsins og því mikilvægt fyrir Bandaríkin og önnur vestræn riki að afstaða keisarans þar sé þessum rikjum hagstæð varðandi olíuverð og dreifingu. Bandarikin hafa á undan- förnutji árum aðstoðað íran mjög á hernaðarsviðinu og stöðugt stefnt að þvi að gera það að hernaðarlegum. sterkum aðila i Miðausturlöndum sem haft geti tök á málum þar. Allir síðustu forsetar Bandarikjanna og einnig Carter hafa mjög reynt að vingast við íranskeisara vegna þessara tveggja nefndu atriða. Hann hefur. eins og Somoza forseti Nicaragua. komið á móts við Bandarikjastjórn með loforðum um bætt stjórnarfar og þróun i lýðræðisátt. Pólitískur órói og itrekaðar óeirðir og hefndarverk hafa hins vegar sett keisarann í þá stöðu að þurfa að taka afstöðu til þess hvort hann ætlaði að halda áfram með boðaða stefnu i frjálsræðisátt eða gripa aftur til hinnar alræmdu öryggislögreglu sinnar. sem þekkt er fyrir hrottaskap við pólitiska andstæðinga keisarans. Frá Washington hafa. af þessu til- efni og fregnum af harkalegum að- gerðum lögreglunnar í íran. aðeins borizt mjög hófsamlega orðaðar til- kynningar um að þar vonuðust menn til að málin héldu áfram að stefna í lýðræðisátt og takast megi að setja deilur í Íran niður á friðsamlegan hátt. NY MENNING- ARPÓUTÍK 11 N Því er ekki fyrir að synja að nýja „vinstri stjórnin” okkar ætlar að slá flestar fyrri stjórnir út í hugvitssam- legri pólitík. Hún byrjar aðdáanlega frumlega með því að hækka brennivín og tóbak. Það kom mér á óvart. Ég hélt að stjórnin ætlaði ekki að feta gamlar slóðir til fjáröflunar. Fyllibyttur og þeir sem nota „lungun sem sorppoka” eiga því eins og fyrri daginn að stiga fyrsta skrefið til aö „rétta við hag ríkissjóðs”. Margra milna ferð hefst á einu skrefi segir Lao Tze. Á hvers konar mannfyrirbærum ætla stjómin að byggja vonir sínar og traust? Nú hefur það spurzt að henni sé meinilla við að landsmenn séu að grufla út í það skásta sem manns- andinn hefur upphugsað í tónum. Það á að leggja sérstakan munaðarskatt á músík heimsins — álíka háan og brennivinsskattinn. Það er sum sé skoðun „vinstri stjórnar” að gervallar tónbókmenntirnar séu ómerkilegri lúxus og óþarfi en golfkúlur, svitalyktaeyðir og rallýdekk. Þetta er anzi nýstárleg menningar- og viðskiptapólitík. En Alþýðubanda- lagið — flokkur vinnandi alþýðu — hefur lagt undir sig þau ráðuneyti er snúa að menningu og viðskiptum á Islandi. Það er liklega kominn timi til að stugga almúgafólki frá því að hnýast í jafn borgaralega afturhalds- rassa og Bach og Beethoven. Slikir eiga auðvitað að vera forréttindi æðri stétta og ríkra iðjuleysingja eins og á miðöldum. Passiur og kantötur Bachs eru trúarþrugl sem ruglar verkalýðinn í baráttunni fyrir brauðinu. Óratóríur Hándels eru básúnugaul hátt uppi i himninum sem aðeins skýjaglópar og flón finna sálu sinni fróun. Óperur Mozarts barnaglingur sem fullorðið fólk er löngu uppúr vaxið. Sinfóniur og kvartettar Beethovens sérvizku Jútl broslegra grúskara. Píanómúsik Schumanns aðeins fyrir nótnalesara. Sönglög Schuberts og Hugo Wolfs þjóðhættulegur leirburður en gæti opnað hugi einfeldninga fyrir óhollum straumum í lifsskoðunum og hugsunarhætti sem rústað gæti forna islenzka menningararfleifð. Tónspeki Mahlers skapar taugaveiklun og geðveiki. Og ameriski jazzinn veldur úrkynjunogsiðleysi. Eitthvað i þetta áttina er tónninn i Kjallarinn Sigurður Guðjónsson herferð ríkisstjórnarinnar gegn því að almenningur á Islandi fái að kynnast tónlist umheimsins. Kannski er „vinstri stjórnin” svo ótrúlega ómúsíkölsk og vitlaus að rugla áður- töldum mcisturum saman við popp- afþeyingariðnað kapitalismans. Það væri i ajmræmi við blindni hennar og vegvillur á öðrum sviðum. Svavar minn Gestsson og Ragnar Arnalds! Eruð þið með öllum mjalla? Hefur ráðherratignin svifið svo á ykkur að þið hefjið heilaga krossferð gegn því bezta í evrópskri menningu? Mennirnir lifa ekki af brauði einu saman, sagði einhver borgaralegur. Og þeir eru til sem eru svo undarlega innréttaðir að vera hæstánægðir með eina eða tvær heitar máltíðir i viku ef þeir fá frelsi til að svala andlegu hungri og andlegum þorsta. Nú er stefnt að upprætingu slíkra vand- ræðamanna. Andlaust púl fyrir kjafti og kvið! Það og ekkert annað! Þetta er guðspjall „vinstri stjórnarinnar". En ef menn stafa a verða þeir líka að stauta b. Íslenzk menning er aðeins dropi i hafinu. Þó er hún dropinn sem að lokum holar bergið. Það vill svo til, að hún er að mestu leyti bókmenning en ekki tónmenning. en það er næstum þvi alveg hið sama. Mér finnst því liggja i augum uppi að rikis- stjórnin sanki sjóðum sinum skildinga með þvi að skattleggja islenzka bókmenningu. Það gæti ef til vill bjargað „uppbyggingu atvinnuveg- anna." Fornritin skal skattleggja með sérstökum þungaskatti. Passíusálmarnir séu undanþegnir skatti sem bætt skal upp með viðauka- skatti á Jónas, Bólu-Hjálmar og Þor- stein Erlingsson. Á kvæði Steins Steinars komi gengisaukaskattur. Á sögur Gunnars og Kiljans skal leggja viðreisnarskatt. Á rit Þórbergs áhættuskatt. Bækur núlifandi höfunda skulu tollast háum fjörefna- skatti. Með þessum skattaálögum — ásamt brennivinsskattinum — ætti að vera unntaðefla hagatvinnuveganna, rétta við rikissjóð og ráða niðurlögum verðbólgunnar. Óska ég svo ráðherrum — og alveg sérstaklega Alþýðubandalagsins — til hamingju með nýtt og raunhæfara gildismat á þeim verðmætum sem mölur og ryð fá grandað og ekki grandað. Sigurður Guðjónsson rithöfundur. SOVÉTMENN KOMUSTINN UM PÓUTÍSKAR BAKDYR — og gerður var íþróttasamningur án vitundar íþróttasamtakanna furðulegu samningsgerðar við sovésk stjórnvöld? Athæfið ber keim af skuggaverkum þar sem samnings- gerðinni er haldið leyndri fyrir íþrótta- hreyfingunni, og ætla má að ríkis- stjórninni hafi verið ókunnugt um hana þó að fyrrv. menntamála- ráðherra hafi trúlega gefið henni samþykki sitt. Skýring kann að finnast á þvi hvers vegna undirbúningi og gerð samningsins var haldið í skugganum. en hins vegar er óskiljanlegt hvers vegna íslenskir embættismenn tóku þátt i þessu laumuspili. Þeim hefur áreiðanlega ekki verið ókunnugt um að hinn sovéski samningsaðili átti og á enn óbætta sök við íslenska iþrótta- hreyfingu. 1 hittifyrra varifjölmiðlum hér og erlendis fjallað mikið um þann fáheyrða atburð er islenska judolands- liðið var kyrrsett í Kiev að loknu Evrópumeistaramótinu sem þar var haldið. Þessi valdníðsla var framin í nafni samningsaðila íslenska mennta- málaráðuneytisins, þ.e. íþróttaráðs Sovétríkjanna og íþróttaráðherrans Pavlovs. Yfirskin þessarar kyrr- setningar var smávægileg skuld islensks túristahóps sem búið var að semja um greiðslu á áður en til hennar varstofnað. Þetta atvik kærði JSÍ að sjálfsögðu tii Judosambands Evrópu. Margar aðrar kærur og kvartanir bárust vegna framkomu sovéskra yfirvalda við mótsþátttakendur og gesti. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir hefur stjórn Evrópusambandsins (EJU) ekki tekist að fá neinar viðhlitandi skýringar. og að sjálfsögðu þolir sovéska kerfið ekki viðurkenningu á neinum mistökum. Lygarnar afhjúpaðar En þar með er ekki sögð öll sagan af viðskiptum iþróttaráðs Sovétríkjanna (viðsemjanda menntamálaráðu- neytisins) við islenska íþróttahreyf- ingu. Fyrir um tveimur árum lét íþróttaráð Sovétríkjanna dreifa til islenskra fjölmiðla einstæðri óhróðurs- grein um íslensk íþróttasamtök. Það var áróðursfréttastofnun sovétstjórn- arinnar APN sem annaðist verkið. Þeim óhróðri svaraði ég fyrir hönd JSÍ Plagg sovéska iþróttaráðsins var yfirfullt af fáránlegum lygum, sem ég hrakti lið fyrir lið í svargreinum minum. Lygarnar voru raunar allar léttvægar nema ein sem var verulega ærumeiðandi, enda skutum við henni til umsagnar æðri aðila. 1 plaggi sovéska iþróttaráðsins stóð: „Reyndar lýsti formaður júdósamtaka Evrópu, André Ertel. einnig yfir undrun sinni á hegðun yfirmanna íslenska liðsinseftir samtal við þá. þar sem hann skýrði þeim frá ýmsum atriðum í lögum þess- ara Evrópusamtaka.” (Sjá t.d. Þjóðviljann 15. júli 1976). Þetta var alvarlegasta lygi Sovétmanna í þessu máli eins og ég lagði áherslu á i svari minu fyrir tveimur árum. Hafi fram- koma íslenskrar iþróttaforystu einhvern tíma verið með þeim hætti að hún kallaði á ávitur af hálfu for- seta Evrópusambands, þá væri það alvarlegt mál. Undir slíku ámæli vildum við ekki liggja án þess að kalla réttan aðila til vitnis. Þess vegna sendi ég Ertel þessi málsskjöl sovéskra yfir- valda og bað um umsögn hans. Um fullyrðingu sovéska iþrótta- ráðsins isamningsbróður islenska menntamálaráðuneytisins) gaf André Ertel, forseti EJU. eftirfarandi yfir- lýsingu i bréfi til min: „Að þvi er varðar þau ummæli sem höfð voru eftir mér af APN-frétta- þjónustunni, vil ég enn á ný staðfesta það sem ég hef þegar sagt við þig. sem sé að ég hef aldrei látið mér neitt slíkt um munn fara og að ummælin sem voru birt, virðast orðin til fyrir hreinan hugarburð. Þessu til stuðnings má að sjálfsögðu benda á þá einföldu staðreynd að meðan ég dvaldi i Kiev átti ég alls enga fundi með forystumönnum íslenska judosam- bandsins, þar sem þetta mál bæri á góma." Bakdyrastefna Þarna getur íslenska menntamála- ráðuneytið séð það enn einu sinni svart á hvitu að það hefur samið við óheiðarlegan aðila sem ekki hikar viö að beita stórlygum og ærumeiðingum til að reyna að sverta isl. íþrótta- hreyfingu. Og þennan aðila virðist ráðuneytið ætla að skikka íslenska iþróttahrcyfingu til að skipta við. án þess að hann sýni einu sinni þá lág- marksmannasiði að biðjast afsökunar á lygaóhróðrinum og ofbeldi sínu gagnvart islensku iþróttalandsliði. Þess er að vænta að nýr mennta- málaráðherra stöðvi vinnubrögð af þessu tagi i ráðuneytinu. íslenskir iþróttamenn hljóta að sinu leyti að binda miklar vonir við það að stofnuð hefur verið sérstök íþróttadeild i ráðuneytinu sem ætti að tryggja það að haft verði samráð við íþróttasam- tökin i landinu í stað þess hneykslis sem hér hefur orðið. i grein sem ég skrifaði um þetta mál í Morgunblaðið 11. október i fyrra lét ég í Ijósi þá ósk að stefna forsætisráöherrans fyrrver- andi i þessu máli yrði látin ráða og skoraði á alla íslenska aðila að „leyfa sovéskum yfirvöldum ekki að svíkjast að islenskri íþróttahreyfingu inn um pólitískar bakdyr." Þeim tókst það 'samt. Eftir er hins vegar hlutur hinnar íslensku iþróttahreyfingar. Ég trúi þvi ekki að hún láti bjóða sér þá fram- komu sem samningsgerðin felur i sér. Eysteinn Þorvaldsson menntaskólakennari.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.