Dagblaðið - 18.09.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978.__13
„ÓEÐULEGT AÐ AÐAL-
STEINN VÆRIÁFRAM”
Hússtjóm Kjarvalsstaða svarar fyrir sig:
„Hússtjórn Kjarvalsstaða dregur
ekki í efa að Aðalsteinn Ingólfsson
hafi unnið margt þarft í þágu Kjar-
valsstaða og fyrir það ber að þakka.
Hins vegar harmar stjórnin að hann
kjósi að kveðja staðinn með þeim
hætti sem hann gerir er hann kemur á
framfæri við fjölmiðla ósönnum upp-
lýsingum á samskiptum sinum við
hússtjóm ásamt órökstuddum gifur-
yrðum og ósannindum um nýkjörinn
formann hússtjórnar og starfsmenn
Kjarvalsstaða,” segir i frétta-
tilkynningu frá hússtjórn Kjarvals-
staða.
Er fréttatilkynningin komin til
vegna blaðamannafundar Aðalsteins á
fimmtudaginn sem skýrt var frá í
blaðinu fyrir helgi. Gagnrýndi
Aðalsteinn þar mjög bæði starfsað-
stöðu á Kjarvalsstöðum, hússtjórn og
borgarstjórn.
Í hússtjórn sitja Guðrún Helga-
dóttir. Davið Oddsson og Sjöfn
Sigurðardóttir sem er formaður.
í fréttatilkynningunni segir meðal
annars að ráðningarsamningur
Aðalsteins hafi runnið út þann I. júlí
og hefði ekki þótt óeðlilegt að hann
hætti á meðan' hin nýja hússtjórn
hcfði nokkurn umþóttunartima til
þess að skipuleggja safnið upp á nýtt.
Meðal annars að kanna hvort verka-
skiptingunni á milli hinna tveggja
nefnda er húsinu stjórna væri ekki
hægt að haga á betri veg.
Óeðlilegt þótti að Aðalsteinn gegndi
áfram störfum eftir að ráðningar-
samningur hans var útrunnin og var
þvi rætt um það við vinnumálastjóra.
sem siðar tók Aðalstein út af launa-
skrá. fullum mánuði seinna.
Kannski pólitískur
barnaskapur
Aðalsteini Ingólfssyni var lesin
fréttatilkynningin og hann spurður
álits á henni. Hann sagði: „Batnandi
manni er bezt að lifa og ég vona að
það sé rétt að hin nýja hússtjórn sé
komin fram með hugmyndir. En það
tók hana þrjá mánuði. Mestan þann
tíma hefur formaður hennar verið í út-
löndum og þessi tími er akkúrat sá
krítískasti á þessum stað.
Ég get ekki túlkað viðræður Sjafnar
Sigurbjörnsd., við mig sprottnar af
neinu öðru en óvild hennar i minn
garð. Eitthvað er viðhorf hennar að
minnsta kosti skrítið.
Mér finnst lika skritið að ekki var
rætt neitt við mig um það hvað við
tæki i framtíðinni, þó ég hefði mesta
reynslu irinan húss.
Það er kannski pólitískur barna-
skapur af mér að taka góða og gilda
beiðni tveggja fulltrúa. annars í borg-
arstjórn og hins varamanns i borgar-
stjórn um að vera áfram. Ég hafði að
þvi vitni fjölda listamanna sem sátu
með okkur á fundum og taldi það nóg
en liklega hefði ég átt að fara fram á
eitthvað ábyggilegra. Á þessum fundi
ræddi ég meira að segja sérstaklega
um hættuna á því að ég yrði tekinn út
af launaskrá. Það sagðist Guðrún ekki
telja liklegt en bað mig þó að fylgjast
með því og tala við embættismenn
borgarinnar um að það yrði ekki gert.
Davíð veit það ósköp vel og þær
stöllumar Sjöfn og Guðrún ættu að
gera það lika. að í júlíbyrjun var
komin á hafnarbakkann norsk farand-
sýning. Og hver átti svo sem að setja
hana upp annar en ég. Átti kannski að
senda hana úr landi óséða?
Ég stend á þvi fastar en fótunum að
af viðræðum Guðrúnar og Þorbjarnar
við mig var ekki hægt að skilja annað
en að ég ætti að vera áfram. Mér
finnst það kjarkleysi af Guðrúnu að
viðurkenna þetta ekki og viðurkenna
um leið að þarna hafi hún gert niistök
þvi hún hafi ekki haft umboð til þess
arna."
DS.
ENNÞÁ ENGAR SAKADÓMSKÆRUR
í FINANSBANKAMÁLUNUM
Gjaldeyrisdeild Seðlabankans hefur
sent embætti rikissaksóknara skýrslu um
þau mál sem til meðferðar voru tekin
vegna gjaldeyriseignar allmargra manna
hjá Finansbanken i Kaupmannahöfn.
Rikissaksóknari. Þórður Björnsson.
ritaði rikisskatlstjóra bréf. þar sem
hann óskaði greinargerðar um það hvað
hafi verið að gert hjá hans embætti i
málum þeirra manna sem það fjallaði
um.
Greinargerð rikisskattstjóra hefur
borizt um hluta þeirra mála sem þar
hafa verið til meðferðar. i
Mál reikningshafanna hjá
Finansbanken voru að mörgu leyti mjög
ólík. bæði varðandi fjárhæðir og eins
hitt. hvernig til reikninganna var
stofnað. Hluta af þeim málum sem
komið hafa til meðferðar hjá skatt-
rannsóknardeild rikisskattstjóra hefur
embætti rikisskattstjóra afgreitt hjá sér.
Einhver mál hljóta að likindum lokaaf-
greiðslu hjá skattsektanefnd. önnur
verða send ríkissaksóknara til
umfjöllunar og ákvörðunartöku.
Ennþá hafa ekki nein þessara niála
hlotið efnislega afgreiðslu hjá ríkissak-
sóknara. Eins og fyrr segir eru þessi mál
talsvert ólik, þegar á heildina er litið.
Allmörg eru þó svo svipuð að þau fá
sennilega svipaða afgreiðslu. Er þess þvi
beðið að skattrannsókn og meðferð
skattyfirvalda liggi fyrir. Síðan verða
áþekk og hliðstæð mál látin fá
samræmda afgreiðslu. þegar kemur til
ákvörðunar um opinbera málshöfðun
fyrirsakadómi.
-BS.
Tilboð ílagningu
Vogaæðar:
Hæsta til-
boð 107
milljónir
en lægsta
60
— Véltækni með
lægsta boð
Á fimmtudag voru opnuð tilboð
i lagningu Vogaæðar á vegum
Hitaveitu Suðurnesja. Vogaæð
liggur frá Innri-Njarðvik að Vog-
um. Ellefu tilboð bárust og var hið
hæsta rúmar 107 milljónir króna
en hið lægsta 60.6 milljónir króna.
Kostnaðaráætlun var gerð áður en
verkið var boðið út og hljóðaði
hún upp á rúmar 81 milljón króna.
Lægsta tilboðið i verkið átti Vél-
tækni hf. i Reykjavik. 60.6 millj-
ónir króna.eins og áður greinir.
- JH
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
. _______ '
/Ii/aííteitthvaö
gott í matinn
^huour-
STIGAHLIÐ 45^47 SIMI 35645
INNRITUN HAHN
Kenndir verða:
Barnadansar
Táningadansar
Djass-dans
Stepp
Samkvœmisdansar
Tjútt, Rock og Gömlu dansarnir
Innritunarsímar
84750 kl. 10—12 og 13—19
53158 kl. 14—18
66469 kl. 14—18
Kennslustaðir:
Reykjavík
Kópavogur
Breiðholt II
Hafnarfjörður
Mosfellssveit
Veriö ávallt velkomin
DANSKENNARASAMBAND
ÍSLANDS