Dagblaðið - 18.09.1978, Síða 16
Ef þú kaupir iukkumiöann getur það orðiö þér til happs,
þú getur strax séð, hvort þú hefur unnið sjónvarp,
úr eða sælgæti, ef ekki, er það lítið glappaskot þvi lukkumiðinn kostar
aðeins 100 krónur og þú styrkir um leið gott málefni.
:«í4SR2*p
Arrribandsur
ÍS^asssr'
„•saar
ftsar
“"SSS
Uer« kr.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
HallurSímonarson
íNijmegen
Fjórir HM-
menn Hollands
ekkigegn
íslandi
— Johan Neeskens
í leikbanni og Jonny Rep
fékk ekki leyfi hjá Bastia
Frá Halli Simonarsyni,
Nijmegen i morgun:
Holland verður án fjögurra leik-
manna. sem léku í heimsmeistarakcppn-
inni í Argentinu í sumar. i Evrópuleikn-
um gegn íslandi hér i Nijmegen á mið-
vikudag. Ekki breytir það miklu hjá Hol-
lendingum. Þeir eiga svo mikið af góð-
um leikmönnum.
Þessir fjórir leikmenn eru Johan
Neeskens hjá Barcelona á Spáni. Hann
er I leikbanni. Johnny Rep hjá franska
liðinu Bastia fékk ekki leyfi hjá félagi
sínu til að leika gegn íslandi. Vamarmað-
urinn Rijsbergen er ekki í landsliðshópn-
um. Hann lék aðeins I byrjun með Hol-
landi á HM. Þá gefur markvörðurinr
Janbloed ekki lengur kost á sér i lands-
liðið.
I stað þessara leikmanna voru tveir
leikmenn valdir, sem ekki voru á HM.
Peters, sem mjög óvænt var ekki valinn í
HM-hópinn. er með á ný en hann vakti
heimsathygli, þegar hann skoraði tvö
mörk gegn Englandi áWembleyfyrir um
tveimur árum. Hinn er varnarmaðurinn
Dubabsa — kunnur leikmaður.
Holland stillir upp mjög sterku liði
gegn íslandi — nær öllum þeim leik-
mönnum, sem léku úrslitaleikinn á HM
gegn Argentínu. Þar má nefna Kerkhoff
— tvíburana Rene og Willie, Rensen-
brink og Arie Haain frá belgiska liðinu
Anderlecht. Krol, Brandts og Janssen
svo nokkrir séu nefndir. og Ruud Geels,
Anderlecht, kemur inní landsliðshópinn
en hann hefur ekki leikið með hollenzka
landsliðinu eftir að hann tilkynnti, að
hann mundi ekki fara til Argentínu.
Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hvort
allir hollenzku leikmennirnir i landsliðs-
hópnum sluppu við meiðsli í leikjum
hclgarinnar.
Ajax vann
Ajax, Amsterdam sigraði Utrecht
næsta auðvcldlega á útivclli í I. dcild í
Hollandi á laugardag, 4—1. Ajax tapaði
í siöustu viku á Spáni, gegn Atletic Bil-
bao, 2—0 I UEFA-keppninni. Siðara
mark Atletic var mjög umdeilt, leikmenn
Ajax töldu að knötturinn hefði farið í
gegn um hliðarnetið. Ajax hyggst kæra
markið til UEFA þó reglur UEFA segi
að ákvörðun dómara verði ekki breytt.
Forráðamenn Ajax halda þvl fram að
þetta mál sé einsdæmi og hyggja'st láta
reynaá.
Þrátt fyrir meiðsli lykilleikmanna
unnu meistarar PSV Eindhoven stór-
sigur á útivelli, sigruðu Venlo 5—0. Það
lið sem hefur komið hvaö mest á óvart i
Hollandi er Roda frá Kerkrade, hefur
unnið 5 leiki, aðeins gert eitt jafntefli. Á
laugardag sigraði Roda bikarmeistara
Hollands, AZ ’67 3—1 — og mark AZ
’67 var hið fyrsta sem skorað var hjá
Roda á keppnistímabilinu.
NEC frá Nijmegen — en þar leikur ís-
land við Holland á miðvikudag gerði
jafntefli, 2—2 við NAC frá Breda, á úti-
velli. Feyenoord vann stóran sigur í Rott-
erdam, sigraði Haarlem 5—0.
Sigurður Björgvinsson og Einar
Ásbjöm til B-1901 í Danmörku
—tilboð kom til þeirra á föstudag.
Keflvíkingarnir munu leika síðustu 10 leikina í Danmörku
Frá Halli Simonarsyni
í Nijmegen i morgun:
,.Ég fer til Danmerkur eftir EM-leik-
inn við Hollendinga hér i Nijmegen og
mun leika með B-1901 í 1. deild í Dan-
mörku það sem eftir er keppnistimabils-
ins i Danmörku,” sagði Sigurður Björgv-
insson í Nijmegen i gær. Sigurður Björg-
vinsson er aðeins 19 ára gamall og hann
lék sinn fyrsta landsleik á dögunum gegn
USA. Hann varð fyrsti íslendingurinn
til að leika í öllum landsliðum islands —
byrjaði I drengjalandsliðinu, þá ungl-
ingalandsliði — u-21 árs og á dögunum
gegn USA.
Annar Keflvíkingur fer einnig til B-
1901 — Einar Ásbjörn Ólafsson. Hann
heldur til Danmerkur í vikunni. B-1901
leikur í I. deild I Danmörku, er frá eynni
Falstri — bænum Nyköping. B-1901 á í
vandræðum nú í 1. deild vegna meiðsla
leikmanna. „Til okkar var leitað á föstu-
dag. Við höfum báðir áhuga á aö leika í
Danníörku en nú eru eftir 10 umferðir I
1. deild. Hvað við tekur er alveg óákveð-
ið. Það verður fljótlega gengið frá fé-
lagaskiptum en KSÍ setur það skilyrði að
ég muni geta leikið gegn A-Þjóðverjum
þann 4. október.
Þjálfari B-I90I er Bosse Hákanson.
fyrrum þjálfari Holbæk er Jóhannes
Eðvaldsson lék með félaginu. Milli-
göngumaður okkar er Kjartan L. Páls-
son. blaðamaður,” sagði Sigurður Björg-
vinsson — hinn efnilegi leikmaður
Keflvikinga er hefur hug á að ná árangri
í knattspyrnu I Danmörku.
Leikmenn streyma til Nijmegen
— ísland leikur gegn Hollandi á miðvikudag.
Frá Halli Simonarsyni, í Nijmegen í
thorgun:
íslenzku leikmennirnir streyma nú til
Hollands. Nijmegen. fyrir landsleikinn
hér á miðvikudag. Fyrstu leikmennirnir
komu til Nijmegen i gær. Það voru Vals-
mennirnir Dýri Guðmundsson. Atli Eð-
valdsson og Ingi Björn Albertsson en
Guðmundur Þorbjömsson kemur á
þriðjudag. kemst ekki fyrr vegna anna
við Háskóla Íslands. Keflvíkingarnir
Ólafur Júlíusson. Sigurður Björgvinsson
og Þorsteinn Ólafsson, Janus Guðlaugs-
son. FH. ásamt fararstjórum. Friðjóni
Þórðarsyni. Árna Þorgrímssyni. Hilmari
Svavarssyni og þjálfara liðsins. Youri
llitschev. Þegar komið var til Nijmegen
hittu þeir Ellert B. Schram. er þegar var
kominn. Flogið var til Luxemburg og
þaðan ekið til Nijmegen.
i dag koma Skagamennirnir Karl
Þórðarson. Árni Sveinsson og Pétur
Pétursson. Jóhannes Eðvaldsson kemur
frá Skotlandi. Ásgeir Sigurvinsson frá
Belgiu og Árni Stefánsson og Jón
Pétursson Jönköping. Það verður lands-
liðsæfing í Nijmegen í dag klukkan þrjú.
Forráðamenn KSÍ eru á einu máli um
að landsliðið gegn Hollandi á núðviku-
dag sé hið sterkasta er ísland getur stillt
upp I dag, þó vissulega sakni menn Teits
Þórðarsonar, en hann leikur með Öster á
miðvikudag. Þegar þetta er skrifað er
ekki vitað um nein meiðsli — ef allir eru
heilir þá tel ég liklegt að íslenzka liðið
verði skipaðeftirtöldum leikmönnum.
Þorsteinn Bjarnason í marki. Bak-
verðir Árni Sveinsson og Janus Guð-
laugsson. Miðverðir Dýri Guðmundsson
og Jón Pétursson — en Jóhannes Eð-
valdsson mun leika sweeper fyrir aftan
þá. Tengiliðir Atli Eðvaldsson. Ásgeir
Sigurvinsson og Karl Þórðarson. Þeir
Pétur Pétursson og Guðmundur Þor-
björnsson munu leika i fremstu viglinu.
Varamenn verða þvi Árni Stefánsson,
Ingi Björn Albertsson. Ólafur Júlíusson
og Sigurður Björgvinsson.
Knappi Noregií viku.
Janus í Noregi
hjáTony Knapp
—„hef ekki ákveðið hvort égfer
til Viking,” sagði Janus Guðlaugsson, FH
NYTT HAPPDRÆTTI
Frá Halli Simonars.vni í Nijmegen í
morgun:
„Ég er nýkominn frá Noregi þar sem
ég dvaldi i vikutíma hjá Tony Knapp.
fyrrum landsliðsþjálfara. Hann þjálfar
Viking. öflugasta lið Stafangurs.” sagði
Janus Guðlaugsson. FH. en Tony
Knapp hefur mikinn hug á að fá Janus
til Vikingsi Noregi.
„Mér leizt vel á aðstæður. mun meira
gert fyrir leikmenn en heima. Félagið er
nijög öflugt. á völl með gervigrasi auk
leikvangs félagsins er rúmar um 20 þús-
und manns. Ég hef ekki tekið ákvörðun
urn hvort ég fer til Vikings enn.
Elías fjórði
í Frakklandi
Elías Sveinsson hafnaði í fjórða sæti I
4 þjóða tugþrautarkeppni í Frakklandi
er lauk í gærkvöld. Elías hlaut 7218 stig
— en íslenzka sveitin hlaut 21004 stig —
í fyrsta sinn að ísland hlýtur yfir 7000
stig að meðaltali í tugþrautarlands-
keppni.
Svisslendingar sigruðu í Frakklandi,
hlutu 21957 stig, Frakkar urðu í öðru
sæti með 21256 og Bretar í þriðja sæti,
21025 — fast á hæla Bretum fylgdi
ísland með 21004.
Þráinn Hafsteinsson hafnaði í níunda
sæti, hlaut 7024 stig. í fyrsta sinn að
hann hefur náð árangri yfir 7000 stig.
Ekki höfum við fréttir af þeim Stefáni
Hallgrimssyni né Pétri Péturssyni en
Ijóst er að þriðji íslendingurinn hefur
hlotið 6762 stig.
Tap Dankersen
íGrosswallstadt, 15-12.
Meistarar Grosswallstadt sigruðu
Dankersen um helgina i þýzku Bundes-
ligunni, 15-12 . Dankersen fékk óska-
byrjun, komst í 5-1 — Dankersen spilaði
vörnina framarlega, og leikmenn Gross-
wallstadt áttu i erflðleikum.
En Dankersen gaf eftir. Grosswall-
stadt náði að jafna 5-5 og staðan I leikhléi
var 7-7. Grosswallstadt komst i 11-8 i
síðari hálfleik en næstu tvö mörk gerði
Dankersen. 11-10 og 10 mínútur eftir.
spenna mikil. En með Martin Hoffmann
hreint stórkostlegan i markinu — HM-
markvörður Þjóðverja — tókst Gross-
wallstadt að komast aftur I þrjú niörk.
14-11 ogsigra. 15-12.
HM-leikmaður Þjóðverja. Waltke.
skoraði 4 mörk fyrir Dankersen. Axel
Axelsson og Ólafur H. Jónsson skoruðu
hvor I mark.
Það kom á óvart að Göppingen náði
jöfnu gegn risurn Gummersbach. 11-11,
í Göppingen. Hörkuleikur og ljóst að
Ciöppingen verður sterkt á heimavelli í
vetur. Gummersbach er almennt spáð
mikilli velgengni i vetur — með 6 HM-
leikmenn innanborðs er þeim spáð v-
þýzka meistaratitlinum. Ekki höfum við
fréttir af Gunnari Einarssyni né Þor-
bergi Aðalsteinssyni. Grambke, lið
Björgvins Björgvinssonar hafði ekkert
að gera i Nettelstedt. 28-11 sigur Nettel-
stedt — en Björgvin lék litið með
Grambke.
Önnur úrslit urðu:
Huttenberg — Hofweier 22-24
Milbertshofen — Rheinhausen 17-9
Leverkrausen — Kiel 17-18
Gunesungen — Rintheim 12-14
Spenge — lið Ágústs Svavarssonar.
vann sinn annan sigur. 24-22, gegn
Haakeá útivelli.
Celtic misnotaði víti
og Hibernian sigraði!
— Fyrsti tapleikur Celtic í úrvalsdeildinni á leiktímabilinu
Celtic tapadi í fyrsta skipti í skozku
úrvalsdeildinni á þessu lciktírnahili á
laugardag. Fékk þá Hibernian frá Edin-
borg i heimsókn á Parkhead. Aöeins eitt
mark var skoraó í lciknum. Þaö var
Willie Temple, sem eitt sinn var hjá
Celtic, sem skoraði þetta mikilvæga
mark fyrir Edinborgarliðiö. Celtic fékk
góð tækifæri til að skora. Meðal annars
var dæmd vítaspyrna á Hibernian.
Ronnie Glavin tók hana en spyrnti knett-
inum í stöng. Veður var afleitt á Skot-
landi — stormur og rigning.
Þrátt fyrir þessi úrslit er C'eltic efst i
úrvalsdeildinni. Hefur átta stig eins og
Aberdeen en betri markamun. Aberdeen
hlaut óverðskuldað stig gegn Rangers á
Ibrox í Glasgow á laugardag. Rangers.
sem enn hefur ekki unnið leik I deildinni
á leiktímabilinu. virtist stefna i sinn
fyrsta sigur. Lék mun betur og Alex
51 árs varpaði kúlu 12.90
Lengi lifir i gömlum glæðum — það
sannaðist er old-boys keppni fór fram i
Laugardal á laugardag i kúluvarpi og
kringlukasti. Hallgrímur Jónsson, sá
kunni kappi, nú 51 árs, gerði sér lítið
fyrir og sigraði i kúluvarpinu, varpaði
12.90. Hallgrímur var raunar óheppinn,
hann varpaði kúlunni 13.30 en naumlega
utan geira. Annar í kúlunni varð Jón
Pétursson, 42 ára — en hann varpaði
12.20. Þorsteinn Alfreðsson, sem nú er
47 ára varpaði 11.35. Jón Þ. Ólafsson —
einn snjallasti íþróttamaður íslendinga,
er nú 37 ára, en hann varpaði kúlunni
10.09.
Í kringlunni kastaði Þorsteinn Al-
freðsson 42.42 og sigraði. Þar varð Hall-
grímur Jónsson i öðru sæti, 40.34, Jón
Pétursson í þriðja, 36.94, og Jón Þ.
Ólafsson kastaði 36.84. Ragnheiður
Pálsdóttir, þriggja barna móðir og 37
ára, kastaði kringlunni 30.60 metra —
og greinilegt var að miklu meira bjó i
henni.
Forsyth, lánsmaðurinn frá Man. Utd..
skoraði úr vítaspyrnu i fyrri hálflcik.
Rangers var mjög nærri að skora fleiri
mörk lokakafla leiksins en tókst ekki —
og þegar tvær ntin. voru kornnar yfir
venjulegan leiktíma jafnaði Aberdeen.
Það var eftir að Rangers hafði sótt hvað
rnest. Skyndisókn og Sullivan skallaði
knöttinn i niark Rangers.
Urslit á laugardag urðu þessi:
C'eltic — Hibernian 0 1
Hearts — Morton II
Motherwell — Dundee Utd. 0 I
Rangers — Aberdeen 1 1
St. Mirren — Parrick I ■() |
Staðan er nú þannig:
Celtic 5 4 0 1 14-4
Aberdeen 5 3 2 0 13-4
Hibernian 5 2 3 0 3-1
St. Mirren 5 3 0 2 5-3
Partick 5 2 2 1 5-4
Dundee Utd. 5 13 1 4-4
Rangers 5 0 3 2 5-5
Morton 5 113 6-10
Hearts 5 0 2 3 5-13
Mortherwell 5 10 4 2-11
Það er einnig möguleiki að ég haldi til
Köln. hef hug á að sérhæfa mig sem
þjálfari en ég er iþróttakennari að
mennt. Ég sá Viking sigra Brann 4-0.
Vikingsliðið er sterkt. Eftir 17 umferðir I
1. deild hafði Start forustu. með 26 stig,
Lilleström hafði 25 og Viking var i
þriðja sæti með 22 stig.” sagði Janus
Guðlaugsson. FH, — og vist má telja að
hann fari frá félagi sinu. FH. sem á dög-
unum féll i 2. deild. Það hefur mikið
breytzt undir stjórn Knapp i Noregi —
siðasta leiktímabili var Viking I fall-
hættu.
IJtilli stnlkn
var gefió 1000 kr. hlutabréf í flugfélagi fyrir 30 árum. Það
bréf er nú orðið aó 354.000 króna hlut í Flugleiðum h.f.
Gefðu börnunum hlutabréf í Flugleiðum h.f. í fæðingargjöf,
sem tannfé, í skírnargjöf, afmælisgjöf, fermingargjöf eða
af einskærri fyrirhyggju.
Verógildi bréfanna eru kr. 10.000, 50.000 og kr. 100.000.
Hafðu samband við næsta umboðsmann eóa skrifstofu
Flugleióa. Sími aóalskrifstofu er 27800.
FUJGLBÐIRHF
Hlutabréfadeild sími 2 78 00.
Muhammed Ali
endurheimti
titilinn
íNewOrleans
„Hvernig var ég? Þið sögðuð að þetta
væri vonlaust ... er ég ekki beztur ...
beztur ... mestur hnefaleikara allra
tíma,” spurði Muhammed Ali blaða-
menn eftir hinn auðvelda sigur sinn á
Leon Spinks í New Orleans í hnefaleik-
um. Og hann fékk svarið ... „já, já
.. núna,” svöruðu blaðamenn. Um fram-
tíðina sagði Ali eftir sigur sinn. „Ég veit
ekki hvað ég geri nú. Ég held titlinum í
átta mánuði og ákveð siðan hvort ég legg
hanzkana á hilluna eða held áfram. Ef ég
keppi aftur þá þarf mikla peninga...”
Muhammed Ali hafði hreint ótrúlega
yfirburði gegn sér miklu yngri manni I
New Orleans á föstudagsnóttina. Hann.
varð fyrsti maðurinn til að vinna heims-
meistaratignina þrívegis — aðeins Floyd
Patterson hefur unnið það afrek —
ásamt Ali — að endurheimta heims-
meistaratitilinn eftir að hafa tapað
honum. 70 þúsund manns í New
Orleans fylgdust með baráttu þeirra Ali
og Spinks. Ali 36 ára — Spinks 25 ára.
Ali sagði fyrir keppnina að hann ætlaði
að láta Spinks lita út eins og áhugamann
og það tókst honum. Tveir dómaranna i
New Orleans gáfu Ali sigur I 10 lotum.
Spinks í 4 — ein jafntefli. Hinn þriðji gaf
Ali sigur i 11 lotum, Spinks í fjórum.
Það var greinilegt að Ali hafði numið
lærdóminn frá i Las Vegas er hann tap-
aði fyrir Spinks. Hann beitti ekki þeirri
taktik frá I Las Vegas að reyna að þreyta
Spinks — og siðan vinna eftir að þreytan
var farin að segja til sín. Þegar frá upp-
hal'i sótti Ali — og það sem sérfræðing-
um kom mest á óvart að i lokin virtist
Ali óþreyttur, eins og hann gæti haldið
áfram. Leon Spinks vissi sig greinilega
sigraðan I lokin.
„Allah gaf mér styrk. Nú vitið þið
hver er mestur allra tíma.” sagði Ali.
Hann vann sinn 56. sigur í New Orleans
— hefur aðeins tapað þrívegis. Gegn Joe
Frazier. Ken Norton og Leon Spinks.
Ósigur Spinks i New Orleans var fyrsti
ósigur hans á keppnisferlinum — áður
hafði hann sjö sinnunt borið sigur úr
hýtunt.
Stutt og...
Bandarlska landsliðið gerði jafntefli
1 —I við Berchem, 1. deildarlið i Belgíu
á laugardag. Davis skuraði fyrir Banda-
rikjamenn á 35. minútu en Crocairts
jafnaði fvrir Berchem á 75. minútu.
Colin Todd, fyrrum enski landsliðs-
maðurinn, hefur verið seidur frá Derby
til F.verton. Hann horfði á hina nýju fé-
laga sína gera jafntefli við Aston Villa á
laugardag. Colin Todd er 29 ára gamall
og Evcrton greiddi fyrir hann 330 þús-
und pund. Reiknað er með að hann leiki
sinn fyrsta leik með Everton á Goodison
Park gegn Úlfunum. Todd valdi fremur
aö fara til Everton en Southampton.
Beerschot, Belgíu, sigraði Lodz frá
Póliandi 2—1 í vináttuleik liðanna en
Jan Tomaszewski, hinn kunni mark-
vörður Póllands, lék í báðum liðum.
Hann lék fyrri hálfleik með Lodz, hinn
síðari með Beerschot. Leikurinn fór
fram í Varsjá og 15 þúsund manns sáu
ieikinn. Jan Sobol náði forustu fyrir
Lodz á 18. minútu en Rene Muecher
jafnaði fyrir Beerschot, skoraði fram hjá
félaga sínum Tomaszewski. t leikhléi var
staðan 1—I en þegar á fyrstu mínútu
skoraði Beerschot, Johan Coninx.
Tomaszewski mun ekki leika framar
með landsliði Póllands en Pele sagði um
Tomaszewski, að hann væri bezti mark-
vórður heims, er hann var upp á sitt
be/ta.
L:"- Palmas hefur nú forustu á Spáni
eftir !ir ,r untferðir — með 6 stig. Las
Palmas sigraði Valencia 2—0 í Las
Palmas. Alletic Bilbao er í öðru sæti
eftir 4—1 sigur sinn gegn Racing 1 Bil-
bao. Barcelona sigraði Salamanca 3—0 i
Barcelona — og hefur fjögur stig. Real
Madrid sigraði Hercules 2—1 á útivelli
og er í fjórða sæti, á eftir nýliðum
Recriativo með 5 stig.
Ekkert var leikið í Belgiu um helgina
vegna landsleiks Belga í Evrópukeppni
landsliða viö Norðmenn i Belgiu.