Dagblaðið - 25.09.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1978.
3
Engin gangbraut við skólann:
Að bjöða hættunni heim
Húsmóðir í Hafnarfirði ( 7212—
4316) hringdi: og sagði: „t*á er búið að
setja á stofn smábarnaskóla hér í
norðurbænum, Engidalsskóla fyrir 6,
7, 8 og 9 ára börn. Það veldur mér
miklum áhyggjum að engin umferðar-
skilti eru komin við skólann. Þær
götur sem liggja að skólanum, Breið-
vangur og Norðurvangur eru miklar
umferðargötur en þar er engin gang-
braut fyrir krakkana. Það stakk mig
dálítið þegar ég fylgdi lítilli dóttur
minni í skólann er hún spurði mig
hvar gangbrautin væri. Það er búið að
vera að hvetja börnin til að fylgja um-
ferðarreglunum en svo er ástandið
svona i umferðarmálum við skólann.
Ég hef verið þeirrar skoðunar, að
betra sé að byrgja brunninn áður en
barnið er dottið ofan í. Yfirvöld virð-
ast ekki vera á sama máli.
Það er einnig annað mál þessu skylt
sem ég vil vekja athygli á. Mér brá
mjög þegar dóttir mín litla bað mig um
50 kr. til að hafa með sér í leikfimi.
Þannig er mál með vexti að börnin
fara með skólabíl niður í íþróttahús og
sagði dóttir mín, að krakkarnir þyrftu
oft að biða töluvert lengi eftir bílnum
að leikfiminni lokinni. Þá færu þau oft
í sjoppu hinum.megin götunnar þ.e.
Suðurgötunnar og keyptu sér þar sæl-
gæti. Það setur hroll að manni við þá
tilhugsun að einmitt þarna varð bana-
slys núna fyrir stuttu. Eitthvað þarf að
gera til að fyrirbyggja að fleiri börn
fari sér þarna að voða á mestu umferð-
argötu bæjarins.”
Raddir
Umferðarþungi íHamrahlíð:
LEYSIR ALFREÐ VANDANN?
Á útimarkaður
f ramtíð fyrir
sér á íslandi?
Þorbjörg Guðjónsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Alveg áreiðanlega, fólk er mjög
ánægt með þetta og lætur í Ijós ánægju
sína, enda lífgar markaðurinn upp bæ-
inn.
Spurning
dagsins
Hliðabúi hringdi:
Umferðarhraðinn við Hamrahlíð í
Reykjavík er alveg yfirgengilegur. Á
þetta hefur reyndar verið bent áður í
lésendadálkum Dagblaðsins, en góð
vísa eraldrei of oft kveðin.
Ég vil minna ráðamenn á að við
þessa götu eru tveir fjölmennir skólar,
grunnskóli og menntaskóli. Skammt
frá götunni eru tvö barnaheimili. Og
síðast en ekki sízt er þar blindraheim-
ili. Er ekki ástæða til að taka tillit til
þessa fólks? Er ekki með einhverju
móti hægt að minnka umferðarþung-
ann um götuna?
Ég vona að einhverjir ráðamenn hjá
Reykjavikurborg reki augun í þetta
bréf og rumski. Það væri þeim til
sæmdar ef þeir brygðust vel við og
gerðu ráðstafanir til að minnka um-
ferðarhraðann i Hamrahlíð.
Mér skilst að sá ágæti iþróttasinni
Alfreð Þorsteinsson sé nú orðinn for-
maður umferðarnefndar Reykjavíkur-
borgar. Gæti hann ekki lagt þessu máli
lið? Við iþróttamenn þekkjum hann af
JAFIV-
BJRTTI
Vistmenn af Reykjalundi tóku þátt I
jafnréttisgöngunni riðandi á hestum.
DB-mynd Ari.
Lokaðar
ríkis-
stofnanir
— ítilefni af jafn-
réttisgöngunni
Kristján Tryggvason hríngdi og lýsti
óánægju sinni með að ýmsar ríkis-
stofnanir hafi verið lokaðar í tilefni af
jafnréttisgöngu fatlaðra. „Á sama
tíma og verið er að tala um að herða
sultarólina er gefið frí í ríkisstofnun-
um.” Kristján tók það skýrt fram að
hann hefði ekkert á móti fötluðum og
hefði meira að segja gefið til starfsemi
á þeirra vegum. Hann sagðist hins
vegar vera þeirrar skoðunar að menn
ættu að sinna líknarmálum eftir
vinnutíma.
góðu einu og trúum honum til þess að menn borgarinnar hefur hingað til
eiga það frumkvæði sem embættis- skort.
Umferðarþunginn f Hamrahlfð er of mikill segir HUðabúl.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
HUðabúi kveðst trúa Alfreð Þorsteins-
syni, formanni umferðarnefndai
Reykjavikur, til að leysa umferðar-
vandamál HamrahUðar.
LOFTRÆSTIVTFTUR
A undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér-
verzlun landsins með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús,
verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf. %
Veitum tceknilega ráðgjöf vio val á loftrcestiviftum.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
Thermor
Jensina Jensdóttir húsmóðir: Já, þvi
ekki það, mér lízt vel á þetta.
Finnbogi Helgason: Já er það ekki, ég er
nú nýkominn frá Spáni og þar sá ég
svona markaði og ég veit að þeir eru
viða erlendis. En þetta er gott, kannski
lítið pláss en þó þetta er alveg ágætt.
Ragnheiður Eggertsdóttir bankamæn
Ég held það hljóti að vera. ég var að
kaupa gulrætur og grænmeti og held ég
hafi bara gert góð kaup.
Jóna Axelsdóttir húsmóðir: Það held ég
hljóti að vera, mér lizt mjög vel á þetta.
Ég er svona rétt að kikja hérna.
Hallbjörn Benjaminsson húsasmiðun
Það tel ég. Ég var að kaupa páskalauka
en ég er nýbyrjaður að rækta blóm. Ég
hef gert góð kaup hérna en þetta er í
fyrsta sinn sem ég kem hingað. Ég hugsa
að ég komi hingað oftar því þetta er
alveg í leiðinni fyrir mig.