Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 15
Frá leik ÍS og UMFN i gærkvöld.
Knötturinn er að fara út af en Dirk
Dunbar, burðarásnum i liði Stúdenta,
tókst að krækja í hann á siðustu
stundu. Lengst til vinstri er Banda-
rikjamaðurinn i Njarðvikurliðinu,
Ted Bee. Bjarni Gunnar fylgist með
og lengst tii hægri er landsUðsmark-
vörðurinn i knattspyrnunni, Þorsteinn
Bjarnason, sem einnig er landsUðs-
maður i körfuboltanum. DB-mynd
Hörður.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978.
DAGBLAÐID. FÖSTUDAGUR 27.ÖKTÓBER 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Dunbar réð ekki
við Njarðvíkinga
— þó hann skoraði 55 stig í gærkvöldi. Njarðvík 109 -
stúdentar 102 í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
Hvernig vcgnaði ÍS-liðinu án Dirk
Dunbar innanborðs? 1 Ijósi leiksUðsins i
gærkvöldi gegn UMFN væri ekki hátt á
stúdentum risið án hans. En kannski er
óréttlátt að draga sUkar ályktanir. Lið
með jafn góðan leikmann og Dunbar er,
hlýtur að nota hann mikið og leikfélagar
hans að treysta honum bezt til allra
hluta. Þess vegna meðal annars ber mest
á Dunbar og þar af leiðandi minna á
öðrum leikmönnum ÍS liðsins.
Annars er óhætt að fullyrða að í gær
Maraþon
knattspyrnan
íKeflavík
Maraþonkeppni sex knatt-
spyrnumanna úr Kcflavík hefst I íþrótta-
sal Barnaskólans I Keflavik á morgun,
laugardag, kl. 14.00. Mikill áhugi er á
þessu framtaki leikmannanna og margir
hafa skrifað sig fyrir áheitum i sambandi
við leikinn. Gengið hefur verið i hús í
Kcflavik og viðar, þeirra erinda, og cnn
er hægt að skrifa sig á Ustana.
Leikmennirnir sex eru ákveðnir i að
setja nýtt íslandsmet — leika samfleytt
lengur en i sólarhring.
var það kvöld Njarðvíkinga. 1 fyrsta lagi
sigruðu þeir stúdentana og í öðru lagi
sást þannig leikur hjá þeim á köflum í
gærkvöldi að engum þarf að blandast
hugur um að á góðu stundunum sýna
þeir Suðurnesjamenn betri körfuknatt-
leik og skemmtilegri en oftast er boðið
uppá hérá landi.
Svo tekið sé dæmi af fallegum leik-
kafla má nefna miðbik síðari hálfleiks.
Þá yfirspiluðu Njarðvíkingar stúdentana
algjörlega og voru á tímabili komnir tíu
stigum yfir. Þá var Gunnari Þorvarðs-
syni skipt út af og þótti mörgum það
furðulegt en þar var liðsstjórinn Ingi
Gunnarsson að spara Gunnar sem átti
sannkallaðann þrumuleik i gærkvöldi.
Ef rétt var talið hjá undirrituðum var
Gunnar kominn með þrjár villur og því
betra að taka hann útaf fyrr og eiga þá
góðan sprett inni hjá honum í lokin.
Ef farið er framar í leikinn þá var
hann mjög opinn í byrjun fyrri hálfleiks.
Báðar varnirnar óþéttar og hittni ljós-
lega í lakara meðallagi hjá báðum liðum.
Þar verður þó að undanskilja Dirk
Dunbar enda fór það svo að hann
skoraði 55 stig af 102 stigum stúdent-
anna. Rúmlega helmingur stiganna
gerður af einum manni. Geri aðrir betur.
Njarðvíkurliðið hafði sigið framúr er
liðnar voru 13 mínútur af leiknum en
þrátt fyrir það að fallegt spil sæist hjá
Njarðvíkingum á köflum voru leikar
jafnir i hálfleik 54 stig gegn 54.
Þegar hálf fimmta minúta var til leiks-
loka var Njarðvík með 100 stig á töfl-
unni en stúdentar níu færri. Einni
og hálfri mín. síðar—aðeins þrem
mínútum fyrir leikslok var munurinn
enn tíu stig, 104 gegn 94. Leikurinn var
orðinn æsispennandi, ekki sízt þegar
stúdentum tókst að krækja sér í sex stig
og nf. eitt hundrað stigum. Þar af gerði
Dunbur fjögu' stig.
Aðetns Ijogurra stiga munur og ein
mínúta fjörutiu og fimm sekútdureftir.
Gunnar Þorvarðarson skorar úr einu
vitaskoti en brennir af tveimur. Dunbar
skorar úr tveimur vítum. Staðan 102 stig
hjá stúdentum 105 hjá Njarðvíkingum.
Theodore Bee nær 107 fyrir Njarðvík
og Gunnar Þorvarðarson undirstrikar
siðan sigurinn með góðri körfu og
tvístrikar undir sigur Njarðvíkinga með
því að krækja í síðasta frákast leiksins
eftir að skot Dunbars hafði farið
naumlega framhjá. Leiknum var lokið
meðsigri Njarðvíkinga UMFN með 109
stigumgegn 102stigumstúdenta.
Stigahæstir Njarðvíkinga voru þeir
Ted Bee 29, Þorsteinn Bjarnason 23 og
Gunnar Þorvarðarson 16 stig. Hjá
stúdentum Dirk Dunbar 55, og Bjarni
Gunnar og Ingi Stefánsson með 12 hvor.
ÓG.
Geir Þorsteinsson með boltann og ætlar greinilega að halda honum hvað sem það kostar. Félagi hans
Þorsteinn Bjarnason rétt hjá honum og Bjarni Gunnar gefur þeim gætur — en Steinn Sveinsson er að risa
upp eftir harða lendingu.
DB-mynd Hörður.
P Sverrir Friöþjófsson, fyrrverandi formaður handknattleiksdeildar Leiknis:
Aað ganga af félaginu dauðu?
„Á þessu ári varð íþróttafélagið Leiknir í
Reykjavik 5 ára. Ég hef starfað fyrir félagið
frá stofnun þess, ef undanskilinn er timi sem
ég var erlendis, en þá fylgdist ég náið með
gangi mála. Ég held að hinir fjölmörgu íbúar
Breiðholts III, hafi rétt á að fá smáinnsýn í
þá vitleysu sem þar á sér stað og er að ganga
af félaginu dauðu. Gagnstætt öðrum félög-
um og vonum manna hefur Leiknir ekki
vaxiö og dafnað eins og lög gera ráð fyrir
miðað við þá íbúafjölgun sem orðið hefur í
hverfinu sl. 5 ár. Einnig má sjá afturför i
starfinu á nýtingu íþróttatímanna sem félag-
ið hefur i íþróttahúsinu, en ég kem betur að
þvi síðar. En hver er ástæðan fyrir því að
hverfafélag í einu stærsta hverfinu í Reykja-
vík skuli ekki blómstra? Það er hægt að tína
til ýmislegt sem skýrt gæti skemmd þá sem í
félaginu er en slik upptalning tæki margar
síður. Ég ætla aðeins að varpa ljósi á lítið
brot af þeirri endemisvitleysu sem fram fer
innan félagsins.
Síðasta aðalfund handknattleiksdeildar
Leiknis var ekki hægt að halda skv. lögum
svo að aðalstjórn boðaði til aðalfundar deild-
arinnar og setti nýja stjórn til næsta árs. Ég
varð þannig formaður handknattleiksdeildar
Leiknis fyrir árið 1978. Þetta var i desember
’77. Restin af vetrinum var stormasöm og
einkenndist af smástríði milli aðalstjómar og
deildarstjórnar handknattleiksdeildar.
Ástæðan var sú að aðalstjórn vildi stjórna
deildunum beint en hafa okkur aðeins sem
verkfæri í sínum höndum. Það skal tekið
fram hér að fjárhagur félagsins var (og er)
allur í höndum aðalstjórnar og úthlutar
hún peningum til deildanna eftir eigin geð-
þótta. Hæst reis deila okkar er aðalstjórn
rauf gerða samninga við Hörð Sigmarsson
þjálfara meistaraflokks vegna þess „að þeir
höfðu heyrt að hann stæði sig ekki nógu
vel”. Það þarf varla að taka fram að enginn
úr aðalstjórn hefur hundsvit á handknatt-
leik. Þeir hýrudrógu Hörð og neituðu að
greiða honum u.þ.b. 180 þús. kr. sem hann
enn hefur ekki fengið, þrátt fyrir samning
sem bæði formaður og gjaldkeri félagsins
höfðu undirritað.
Endaði sl. vetur á bréfi frá aðalstjóm til
handknattleiksdeildar ds. 12. apríl og var þar
meðal annars beðið um hugmyndir okkar að
vetrarstarfi 1979. Svar óskaðist ekki seinna
en 15. maí. Ekki var svar komið til aðal-
stjómar þá, þó það væri tilbúið að hluta, en
Mikið afmælismót
Víkings í blakinu
Blakdeild Víkings efnir til mikils og
fjölmenns blakmóts um næstu helgi,
.. 28.-29. október, i tilefni af fimm ára
afmæli deildarinnar. Leikiö verður I
iþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst
mótið kl. 14.00 á laugardag með leikjum
í meistaraflokki karla.
Alls taka átta lið þátt í keppni
meistaraflokks. Tvö frá Þrótti — a og b-
lið — og auk þess frá tS, UMSE, Fram
og Breiðabliki og tvö lið verða frá
Viking. Að öllum líkindum verður um
nýtt fyrirkomuiag að ræða á þessu móti.
Það er að reynt verður að leika á
tveimur blakvöllum samtímis i húsinu.
Iþróttahúsið er eitt af fáum húsum hér,
sem slíkt er hægt.
í meistaraflokki kvenna taka þátt
fimm lið, Þróttur, MA, Völsungur, lS og
Breiðablik. Þá er fyrirhugað að keppa í
þriðja flokki karla á sunnudag í Réttar-
holtsskóla. Þar verða þrjú lið frá
Víkingi, Þrótti og HK. Keppnin hefst
kl. 13.00.
Siðustu leikir afmælismótsins verða í
íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefjast
strax að loknu júdómóti þar. Um tíma-
setningu er ekki alveg vitað en reiknað
er með að júdómótinu ljúki milli kl. 16
og 17.
J
deildarstjórnin ætlaði að halda aðalfund
sinn i maílok og láta nýkjörna stjórn leggja
línuna fyrir veturinn 1979. 23. maí berst
síðan bréf frá aðalstjórn þar sem segir:
„Aðalstjóm hefur ákveðið að allar ákvarð-
anatökur um málefni handknattleiks innan
félagsins séu í höndum aðalstjórnar þar til
aðalfundur hefur farið fram. Æskilegt væri
að aðalstjórn fengi svar við bréfi þvi er sent
var deildarstjórn fyrir nokkru síðan. Þar
eiga að koma fram m.a. hugmyndir um
framtíðina.” Engin ástæða var nefnd fyrir
þessari valdaníðslu. Við ákváðum að bíða
með aðalfund okkar um sinn, enda spurning
hvort við mættum halda hann, og óskuðum
eftir fundi með aðalstjórn og öðrum deildar-
stjórnum. Sú ósk barst aðalstjórn í byrjun
júní. í byrjun september var fundurinn svo
haldinn. Mæting var dræm og mættu aðeins
3 úr aðalstjórn. 4 frá handknattleiksdeild, 1
frá frjálsíþróttadeild og enginn frá knatt-
spyrnudeild. (Fyrrverandi formaður knatt-
spymudeildar mætti að visu en hann sagði
tvívegis af sér því embætti í sumar vegna
ágreinings við aðalstjórn. Hafa fleiri stjórn-
armenn úr þeirri deild gert það sama og er
nú svo komið að aðeins einn er eftir í þeirri
stjórn, svo aðalstjórn rekur þá deild líka). Á
þessum fundi kom það meðal annars fram
hjá formanni félagsins að ástæðan fyrir að-
gerðum aðalstjórnar í maí sl. var sú að ekk-
ert svar hefði borizt við bréfi þeirra frá í
apríl. Það voru vitni að þessum ummælum
formanns. Nokkrum dögum eftir þennan
fund barst mér í hendur bréf frá aðalstjórn
þar sem segir: „Aðalstjórn íþróttafélagsins
Leiknis tilkynnir þér hér með að felld er úr
gildi samþykkt sú er gerð var að skipa þig í
embætti formanns handknattleiksdeildar
Leiknis. Þaö skal þvi undirstrikað, að héðan
í frá og þar til annað verður ákveðið, eru
handknattleiksmál Leiknis alfarið í höndum
aðalstjórnar. Aðalstjórn óskar eftir því, að
þú skilir öllum gögnum ...” Engin ástæða
var nefnd í þessu bréfi. Mín stjóm sætti sig
illa við svona málsmeðferð og ákvað að aug-
lýsa aðalfund deildarinnar og fá nýja stjórn
því mikið lá við þar sem handknattleikstíma-
bilið var byrjað. Álitum við aö þau málalok
yrðu bezt fyrir félagið útávið sem innávið.
Aðalstjórn félagsins fékk bréf varðandi þessi
ákvörðun. Formaður félagsins hringdi síðan
í mig og tjáði mér að aðalstjórn myndi
Sverrir Friðþjöfsson.
dæma slíkan fund ólöglegan þar sem þeir
einir hefðu vald til aö boða til slíks fundar.
Talaði hann um að þeir mundu halda hann
16. okt. Tíminn leið og voru flokkar farnir
að taka þátt í Reykjavikurmótinu fyrir hönd
Leiknis, þjálfaralausir. Aðalstjórn raðaði
niður tímum í íþróttahúsið eftir eigin geð-
þótta enda engin starfandi deildarstjórn til í
félaginu. Nú þegar æfingatafla deildanna
hefur endanlega litið dagsins ljós sjást eftir-
farandi staðreyndir: Báðir kvennaflokkarnir
í handboltanum hafa verið lagðir niður, svo
og 3. fl. karla. Meistaraflokkur karla hefur
enga séræfingatima né þjálfara. Það skal
tekið fram að félagið leikur í II. deild. 2. fl.
er einnig þjálfaralaus. Af þeim 34 tímum,
sem félagið hefur i íþróttahúsinu, hefur
handboltinn aðeins 7 tíma, knattspyrnan
hefur 8, frjálsar íþróttir engan, 10 tímar eru
seldir út á frjálsum markaði fyrir badminton
og nýtast þeir mjög illa, 3 tímar eru seldir
fyrirtækjum, nánar tiltekið Heimilistækjum
og Iðnaðarbankanum, sem er ólöglegt, og
einn tími er svokallaður „old boys” þar sem
meðlimir aðalstjórnar fá að leika sér. Af-
gangurinn af tímunum er ekki nýttur. Þessir
tímar, sem eru seldir, gréiðast auðvitað í
beinhörðum peningum, enda á að reka
svona fyrirtæki með gróða, svo ég noti orð
gjaldkera félagsins. Félagsstarfinu er ýtt til
hliðar, flokkar lagðir niður þvi „það er svo
dýrt að reka þá”, var svar sem ég fékk. Það
er lítið við peninga að gera ef búið er að
flæma alla félagana burt frá félaginu.
Þetta er aðeins brot af allri vitleysunni í
þessu félagi, í þessum dúr hefur starfið verið
frá upphafi enda hafa sömu óvitarnir stjórn-
að þvi frá upphafi. Bókhald var t.d. fyrst
haldið sl. ár. Fjögur ár liðu án þess að nokk-
urt bókhald væri haldið i félaginu. Hvað
komu miklir peningar inn og í hvað fóru
þeir? Það fær aldrei neinn að vita.
Svona vitleysu verður að stöðva. Það
verður ekki liðið lengur að fákunnandi
framagosar leiki sér með þetta félag eins og
það eigi það og láti gróðasjónarmið ganga
fyrir þeim hundruðum barna og unglinga úr
Breiðholti III sem, ef allt væri eðlilegt,
myndu fmna sig í heilbrigðu tómstundastarfi
sem veitir þeim útrás fyrir þá orku sem í
þeim býr. Éf þeir ekki geta unnið verk sitt
svo vel sé, þá eiga þeir að sjá sóma sinn í að
segja af sér og létta þannig þessu þunga fargi
af félaginu sem er að draga það niður í botn-
laust fen. Ég veit að ég tala fyrir munn
margra Leiknismanna þegar ég krefst þess
að aðalfundur deildanna verði haldinn strax
svo hægt verði að koma málum þar á hreint,
og að aðalfundur félagsins verði haldinn í
byrjun nóvember.”
Sverrir Friðþjófsson,
fyrrverandi formaður
handknattleiksdeildar Leiknis.
Píslarvottsganga á
sídum dagblaðanna!
—Hannes Þ. Sigurðsson segist ekki dæma leiki hjá Víkingi framar
„Var sá vitaspyrnudómur spreng-
hlægilegur, svo ekki sé fastara að orði
kveðið, en I samræmi við störf þeirra
Hannesar Sigurðssonar og Gunnars
Kjartanssonar fyrr I leiknum. Þeir voru
afspyrnu slakir dómarar í gær.” (Gylfi
Kristjánsson I Vísi 20. október 1978 1
umsögn um leik Vals og Vlkings á
Reykjavíkurmótinu i handknattleik).
„Útidómarinn dæmdi aukakast rétti-
lega en Hannes Sigurðsson kom öllum
að óvörum og dæmdi vitakast á Vikinga,
og tók þar með völdin af útidómaranum.
Var þetta hrein gjöf til Valsmanna.”
(Þórarinn Ragnarsson I Morgunblaðinu
20. október 1978).
„Vlkingar misstu þá mann út af en
Valsmönnum virtist ekki ætla að takast
að nýta sér það. Þegar tvær sekúndur
voru eftir af leiknum fengu Valsmenn svo
dæmt víti, sem var vægast sagt furðu-
legur dómur, og endurspeglaði dómgæzl-
una allt kvöldið.” (SSv. i Tímanum 20.
október 1978).
„Mjög vafasamt viti ... þessi dómur
var hámarkið á heldur slakri dómgæzlu
þeirra Hannesar Þ. Sigurðssonar og
Gunnars Kjartanssonar, og menn voru
ekki á eitt sáttir”. (Sigurður Svavarsson
i Þjóðviljanum 20. október 1978).
Einn kunnast dómari lslands, Hannes
Þ. Sigurðsson, hefur undanfarna daga
verið að leika píslarvott á síðum dag-
blaðanna. Vondir menn sækja að
honum úr öllum áttum. Það byrjaði i
Morgunblaðinu sl. miðvikudag.
„Ég hef tekið þá ákvörðun að dæma
ekki framar hjá handknattleiksliði Vík-
ings ... Eftir að þeim leik lauk varð ég
fyrir því að einn leikmaður Víkings
hljóp mig um koll og var ég heppinn að
hljóta ekki meiðsli af,” segir Hannes og
siðar: „Ég hafði í lok þessa úrslitaleiks
dæmt vítakast á lið Víkings, sem var
HM í f imleikum í Strassborg:
ÞÆR SOVÉZKU
VORU BEZTAR
— Þriðja sinn í röð, sem Sovétríkin
hljóta HM-titilinn ísveitakeppni kvenna
Sovétríkin sigruðu með töluverðum
yfirburðum í sveitakeppni kvennaliða á
heimsmeistaramótinu í fimleikum í
Strassborg I Frakklandi í gær. Sovézku
stúlkurnar sex I sveitinni hlutu samtals
388.95 stig og sigruöu i þriðja sinn i röð
á HM. Rúmenía varð í öðru sæti með
384.25 stig. Þá Austur-Þýzkaland með
382.25 stig. Ungverjaland varð I fjórða
sæti með 377.80 stig. Bandaríkin í
fimmta með 377.45 stig og
"Tékkóslóvakía í sjötta með 376.60 stig.
Mun jafnari árangur sovézku stúlkn-
anna gerði útslagið. Þar voru sex snill-
ingar á ferð en Rúmenía byggði að
mestu á árangri ólympiumeistarans
Nadiu Comaneci og hinnar litlu, grönnu
Emilia Eberle.
Beztar í gær í sovézku sveitinni voru
Elena Mukhina, sem hlaut hæsta
einkunn samtals, Natalia
Shaposhnikova og ólympiumeistarinn
Nelli Kim, sem lék listir sínar hér á
landi 1976.
Mukhina hlaut 9.95 af 10 mögulegum
í sérhæfðum gólfæfingum — og hin
tvítuga Kim fékk tvivegis 9.90 fyrir gólf-
æfingar og stökk. Nadia Comaneci, sem
nú er orðin mikil fegurðardis, 16 ára,
hlaut aðra hæstu einkunnagjöf samtals.
Hún sagði á blaðamannafundi eftir
keppnina I gær.
„Ég er orðin eldri og hef ekki æft eins
mikið og áður. Ég á mörg áhugamál
utan fimleikanna — og svo er það
námið.” Síðan bætti hún við. „Ég er
. mjög ánægð.”
Maria litla Filatove, sem hlaut hæsta
einkunn samanlagt í keppninni á
þriðjudag, féll illa af slá i gær og kom
niður á bakið. Hún hélt keppnina áfram
og virtist ómeidd. Eitthvað var þó að og
það kom fram i gólfæfingum hennar.
Virtist „lenda” hörkulegar niður á hné
og enni I æfingum sínum. Hún fékk þó
9.50 fyrirgólfæfingarnar.
Nadia Comaneci fékk hæsta einkunn
fyrir æfingar á slánni og frjálsar gólf-
æingar í gær. Hlaut 9.90 fyrir
æfingarnar á slánni.
Maria Filotova sagði á blaðamanna-
fundinum. „Ég held að mér hafi ekki
mistekizt vegna taugaspennu augna-
bliksins í keppninni. Æfingar mínar
voru mjög erfiðar”. Hún er nú sautján
ára — og það var almenn skoðun i
Strassborg í gær að dirfskubrögð hennar
væru mun erfiðari en annarra í keppn-
inni. Ef allt heppnast hjá henni í
einstaklingskeppninni í næstu viku í
Strassborg virðist hún hafa mikla
sigurmöguleika. En til þess að verða
heimsmeistari er álitið að hún þurfi að
hemja skap sitt betur. Þar ólgar og sýður
undir niðri — og áræðni hennar er
hreint ótrúleg.
Stórleikurinn
færðurfram!
— Víkingur og Valur
leika á sunnudag
Víkingur hefur ákveðið í samráði við
Valsmenn að flýta leikjunum í hand-
knattleiknum á sunnudag. Það er gert
vegna þess, að siðasti þáttur Gæfa eða
gjörvileiki verður I sjónvarpinu um
kvöldið.
Keppni Víkings og Vals í 1. deild
karla hefst kl. 19.00 — en kl. 18.00 hefst
leikur Víkings og Vals í meistaraflokki
kvenna.
Þetta eru „heimaleikir” Víkings og
frétzt hefur að möguleiki sé á að þeir
Einar Magnússon og Ólafur Einarsson
leiki með Víkingsliðinu.
Ungverjaland og Sovétríkin gerðu jafn-
tefli 0—0 i UEFA-keppni piltalandsliðs,
16—18, ára, í Nyiregyhazea í Ungverja-
landi í gær.
Björn Borg, Svíþjóð, sigraði Banda-
rikjamanninn Vitas Gerulaites 1—6,6—
3 og 6—3 á miklu tennismóti I Kobe í
Japaní gær.
fullkomlega réttur dómur að mínu mati.
Einum leikmanni Vals var illa brugðið
og gróflega hindraður í góðu marktæki-
færi og ekki um annað að ræða en víta-
kast.”
Það er rétt að taka fram að þetta var
skrifað eftir að mynd frá leiknum hafði
verið sýnd í sjónvarpinu og með því hug-
arfari sem einkennt hefur Hannes oft.
„Ég geri aldrei villu.” Góður eiginleiki
dómara.
„En það verður að segja Hannesi Þ.
Sigurðssyni til málsbóta að ofur skiljan-
legt er að dómara, sem kominn er á sex-
tugsaldur, verði á mistök einmitt undir
lok leiksins þegar þreytan smýgur inn í
merg og bein. Það er erfitt að dæma og
hlaupa í klukkustund, æfingarlitill i
þokkabót. En því þekkja ísl. dómarar
ekki sinn vitjunartíma? Undantekning-
arlaust leggja enskir dómarar flautuna á
hilluna 47 ára." (Hallur Simonarson i
Dagblaðinu 20. október 1978).
Ennfremur í sömu grein. „Lengi vel
voru þeir siflautandi, að því er virtist til
að sýna hverjir hefðu völdin. Það kost-
aði Valsmenn að minnsta kosti tvö
mörk.”
Vegna þessara ummæla rétt að
taka fram að Hannes mun ekki vera
kominn nema rúmum tveimur árum yfir
þau aldursmörk sem alþjóðasamtök telja
hámark hjá dómurum — hvort sem það
segir nokkra sögu eða ekki.
Þetta var fyrsta dómgæzla Hannesar í
Reykjavíkurmótinu — og undanfarin ár
hefur hann aðeins dæmt örfáa jeiki. Fáir’
leikir hafa verið nógu „stórir” fyrir
hann. Hannes Þ. Sigurðsson var frábær
dómari lengstum á löngum ferli —
meðan hann lagði metnað sinn í að skila
hlutverki sínu sem bezt. Þá sá maður
hann oft hlaupandi úti á velli — æfði —
en einmitt, þegar aldurinn segir til sín, er
slegið slöku við á því sviði.
Engum íslenzkum dómara hefur
undirritaður hælt meira gegnum árin og
það veit Hannes Þ. Sigurðsson manna
bezt. Það hefur kannski jafnazt út því
fáir hafa hrósað undirrituðum jafnmikið
fyrir íþróttaskrif og hann. Hannes hefur
gert margt vel i gegnum árin og því sorg-
legra að hann skyldi ekki þekkja sinn
vitjunartíma eins og erlendir dómarar og
rriargir íslenzkir.
Skoðun mín á Hannesi Þ. Sigurðssyni
er enn að hann sé einn bezti dómari sem
Island hefur átt. Að visu mannlegur —
og hefur orðið á mistök eins og öðrum.
Þessi pislarvottsganga á síðum dagblað-
anna nú sæmir honum varla.
-hsím.
Hannes Þ. Sigurðsson með REFEREE
F.I.F.A. merkið. Sem slikur hefur hann
ekki fengið að dæma siðustu árin ...
Engum islenzkum dómara hefur undir-
ritaður hælt meira gegnum árin, segir
hsim i mcðfylgjandi grein.
Stórmót í badminton
Um helgina verður mikið mót i
badminton í iþróttahúsi Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavíkur i Gnoðarvogi.
Tíu danskir badmintonleikarar frá SAS-
badmintonklúbbnum í Kaupmannahöfn
munu þá leika gegn okkar bezta fólki i
þessari íþróttagrein.
í kvöld kl. 21.00 hefst keppni en á
laugardag og sunnudag verður mót i
einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndar-
keppni þar sem Danir verða meðal þátt-
takenda. Mótið hefst báða dagana kl.
15.00.
Danir eru meðal fremstu badminton-
þjóða heims. Eiga afburðafólki á að
skipa en lítið er vitað um styrkleika þess
fólks, sem hingað kemur. Reiknað er
með að Islendingar geti veitt þeim
harða keppni. Beztu leikmenn okkar eru
í góðri æfingu um þessar mundir enda
eiga sjö þeirra að fara á Norðurlanda-
mótið í Finnlandi í næsta mánuði.
I liði SAS-klúbbsins eru Peter
Höjland, Per Kjeldsen, Ingolf Halland-
er.Henning Soelberg, Lis Hansen, Aase
Klærke, Hans Jörgen Dahl, Henri
Kyhl, Rista Wingsöe og Catherine
Christensen og gegn þeirn leika Jóhann
Kjartansson, Sigfús Ægir Árnason, Har-
aldur Kornelíusson, Jóhann G. Möller,
Kristin Magnúsdóttir. Kristín Berglind,
Sigurður Kolbeinsson, Broddi Kristjáns-
son, Hanna Lára Pálsdóttir og Sigríður
M. Jónsdóttir.
Golfskóli Þorvaldar
eins og verið hcfur undanfarin ár. Auk
þcss, sem Þorvaldur verður á staðnum
og kennir, verða staðlaðar kennslu-
myndir frá golfkennarasambandi Banda-
rikjanna sýndar þar.
Þá er hægt að fá keypta hjá Þorvaldi
litla leiðbeiningabök frá Bandarikjunum
m.a. með smækkuðum myndum af áður-
nefndum kcnnslufyrirmyndum. Bók
þessi kom á markaðinn í ársbyrjun 1978
og var kynnt hér sl. sumar. Var til sölu I
nokkrum golfklúbbum auk þess, sem
byrjendur í skóla Þorvaldar fengu eintak
afhent í fyrsta tíma án sérstaks gjalds.
Námskeið fyrir byrjendur munu
hefjast upp úr áramótum og verður
nánar getið síðar. Upplýsingar um inni-
æfingarnar eru gefnarí síma 14310.
Inniæfingar fyrir lengra komna I Golf-
skóla Þorvaldar Ásgeirssonar hefjast í
byrjun nóvember í Ásgarði I Garðabæ
Deiluleikurinn
ísjónvarpinu!
Meðal efnis í íþróttaþætti Bjarna Felix-
sonar í sjónvarpinu á iaugardag verður
lcikurinn frægi milli Vals og Vikings i
Reykjavfkurmótinu I handknattleik.
Þessi leikur hefur mjög verið til umræðu
manna á meðal að undanförnu, svo og i
blöðum. Það ætti þvl að verða fróðlegt
að sjá hann i sjónvarpinu og það, sem
þar hefur verið um deilt.