Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978. 9 Erlendar fréttir Svo virðist sem Danmörk og Frakkland séu að hefja heljarmikið skinkustríð. Sú gæti auðveldlega orðið niðurstaðan af margþættum mót- mælum franskra bænda á Bretagne skaga gegn innflutningi dansks svína- kjöts að undanförnu. Fyrstu aðgerðir frönsku bændanna voru á mánudaginn var. Þá stöðvuðu þeir stóran danskan kælibíl, í útjaðri bæjarins Pontivy. Að sögn sjónar- votta tóku þeir bifreiðastjórann í gíslingu og óku síðan bifreið hans vitt um bæinn og köstuðu dönskum svina- lærum þar og á nærliggjandi þjóðvegi. Áöur en lögregla gat stöðvað frönsku bændurna var búið að kasta rúmlega átta tonnum af svínakjöti út úr kælibifreiðinni. Bifreiðarstjórinn er sagður hafa fengið snert af taugaáfalli í átökunum. Hann slapp þó óskaddaður og einnig er taliö að bifreiðin hafi ekkert verið skemmd. Talið er líklegt að framhald verði á mótmælaaðgerðum frönsku bænd- anna gegn svinakjötsinnflutningi frá öðrum löndum Efnahagsbanda- lagsins. Landbúnaðarmál hafa alveg. frá byrjun verið eitt helzta deilumálið i Efnahagsbandalaginu. Hafa franskir bændur talið sig fara illa út úr þeim reglum, sem bandalagið hefur sett um flutning og sölu landbúnaðarvara á milli ríkja. Ekki er að fullu ljóst hvers vegna frönsku bændurnir létu reiði sína bitna á Dönum og dönsku svínakjöti. Ýmis önnur lönd Efnahagsbanda- lagsins svo sem Belgía og Holland flytja mun meira af þeirri vöru til Frakklands en Danmörk. Eins og sjá má þá hefur verið gcngið rösklega fram við að dreifa danska svinakjötinu um göturnar og lærin jafnvel hengd á girðingar. Svínalærín eíns og hráviði út um allt —f ranskir bændur reiðir og eru nú í skinkustríði við Dani Frakkland: KORSIKA ENN EINANGRUÐ VEGNA VERK- FALLS SJÓARA Leiðtogar þeirra frönsku sjómanna, sem verið hafa í verkfalli síðan um síðustu helgi sökuðu stjórn landsins í gær um að hafa afboðað samningafundi þar sem reyna hafi átt til þrautar að leysa verkfallið. Fulltrúar stjórnvalda bera þó á móti þessu. Sjómennirnir frönsku hafa lagt niður vinnu til þess að mótmæla síauknum ráðningum erlendra manna, aðallega Asiubúa, á frönsk kaupskip. Verkfallið hefur nær því alveg stöðvaö flutninga á matvörum og öðrum nauðsynjum til eyjarinnar Korsiku. Hefur verið gripið til þess ráðs að láta franska flugherinn og flotann flytja brýnustu nauðsynjar til eyjarinnar. Verkfall sjómannanna er aðeins eitt af þeim vandamálum, sem franska stjórnin á við að glíma í samskiptum sínum við rikisvaldið. Póstmenn og sjónvarpsfólk lagði niður vinnu í byrjun þessarar viku. öll stærstu verkalýössam- tök landsins hafa boðað til eins dags alls- herjarverkfalls í næsta mánuði. Á þá að mótmæla harðri stefnu stjórnarinnar i launamálum, verðbólgunni og aukningu á atvinnuleysi. Júgóslavía: SEX LÉTUST AF SVEPPAÁTI Sex manns létust og sex aðrir voru börn yngri en sjö ára. Atburður þessi alvarlega veikir i Júgóslavíu eftir að varð i Bosníu,en fyrr í þessum mánuði hafa neytt eitraðra sveppa í gær- létust þar þrír eftir að hafa neytt kvöldi. Nokkur fórnardýranna voru sveppa. Páfinn til Chicago Jóhannes Páll annar hyggst bráðlega bregöa sér til Chicago I Bandarikjunum en það er sú borg I heiminum, sem flest fólk af pólsku bergi brotið býr I fyrir utan sjálfa Varsjá. Páfa var boðið til Chicago strax að loknu páfakjöri en ekki er ákveðið hvenær hann muni fara. Jóhannes Páll annar hefur einu sinni áður komið til Chicago. Það var í Ameríkuför hans árið 1976. Talið er að hátt á aðra milljón manns af pólsku betgi brotiö búi i Chicago. tommu með fjarstýringu aðeins kr. 464 þús. Til afgreiðslu STRAX. Snertirásaskiptíng — spennuskynjari — In-line myndlampi — katt kerfi 2 — möguleiki fyrir plötu — og myndsegulband — Aðeins 6 einingar í stað 14 sem eru i öðrum tækjum sem auðvektar aiia þjónustu — stór hátalari sem gefur skýrt hljóð RANK—MERKIÐ ER HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA SJÓNVARP og RADÍÓ, Vitastíg 3. Sími 25745.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.